Morgunblaðið - 01.10.2020, Síða 42

Morgunblaðið - 01.10.2020, Síða 42
Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Þóra segist vera mikill grúskari og hún hefur áhuga á fólki og samfélag- inu sem við lifum í. Hún segist þó ekki hafa mikið fræðst um eigin sögu fyrr en hún skrifaði bókina Mörk sem kom út árið 2015. „Sagan krafðist þess að ég færi að grúska í sögum úr móðurættinni og þá komst ég að því hvað það er gaman að horfa aðeins aftur fyrir sig og tengja sig við kyn- slóðirnar, gömlu Reykjavík og draga fram sögur sem hverfa annars í tím- ans haf,“ segir Þóra í viðtali við mbl.is. Viðmælendur eru Lilja Pálmadótt- ir, Hannes Þór Halldórsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Unnsteinn Manu- el Stefánsson, Hera Hilmarsdóttir og Bogi Ágústsson en viðmælendurna valdi Þóra ásamt leikstjóranum Lalla Jónssyni og framleiðsluteyminu hjá Republik sem framleiðir þættina. „Það voru ótal margar sögur og viðmælendur sem ég hefði gjarnan vilja koma að en komust ekki að í þessari seríu og verður úr nógu að velja ef það verður farið út í að gera fleiri þætti fyrir Símann. Þetta er flókið viðfangsefni og í raun eins og að gera sex heimildarmyndir fremur en hefðbundna viðtalsþætti og því mikill tími sem fer í að gera hvern og einn þátt,“ segir Þóra. Heimsóttu Angóla rétt fyrir heimsfaraldur Í þættinum um Unnstein Manuel ferðast þau til Angóla en hann er ætt- aður þaðan. Þóra segir ferðina hafa verið magnaða en þau rétt komust í hana áður en kórónuveiran setti mark sitt á heiminn. „Angóla er alveg sér á báti og þetta var einhvern veginn eins og að vera staddur í öllum borgum í heiminum í einu því það er svo mikil fjölbreytni og áberandi misskipting í Angóla. Nútímaleg höfn og sögulegar bygg- ingar þegar maður horfir í eina átt og svo æpandi fátækt ef þú horfir í aðra átt og allt í bland. Millistéttin þar býr við fábreyttan kost og skertan að- gang að vatni og rafmagni. Ég var ágætlega undirbúin því ég hafði heimsótt fátækasta land í Afr- íku ári áður þegar ég fór til Malaví á vegum UN Women en þarna kom fá- tæktin meira aftan að mér því ásjóna borgarinnar ber þess merki að það eru miklar auðlindir í landinu. Það var magnað að fá að heimsækja þá staði sem móðir Unnsteins, Ana Maria, hefur munað alla tíð en hún fór frá landinu barn að aldri. Við heimsóttum meðal annars nokkurs konar paradísareyju eða tanga sem við sigldum til. Ana Maria hefur ekki getað heimsótt það síðan út af heilsu- farslegum aðstæðum, annars hefðum við tekið hana með okkur en ég vona að þátturinn færi hana svolítið heim til upprunalandsins þegar hún horfir á hann,“ segir Þóra. En hver er Þóra? „Ég er eins og svo margir Íslend- ingar, eins og Bogi Ágústsson orðar svo vel í þáttunum, komin af vinnu- fólki, húsfreyjum, bændum, verka- fólki, kennurum og alls konar fólki af öllum stéttum eftir því hve við förum langt aftur í fortíðina. Ég held að það leynist áhugaverðar sögur í öllum ættum en það er til dæmis ein ást- arsaga sem mér finnst áhugaverð í móðurættinni minni og ég tel að ég eigi þessari ástarsögu meðal annars lífið og genasamsetninguna að þakka,“ segir Þóra. Forfaðir hennar Guðmundur Ingi- mundarson, fæddur árið 1844 í Torfa- staðasókn, vildi læra til prests en fékk ekki leyfi frá foreldrum sínum til þess. Ekki fyrr en vinnukonan Guð- björg Egilsdóttir kom í sveitina og ljóst var að þau hefðu fellt hugi sam- an. „Þá var honum skipað að fara til Reykjavíkur til náms og verða að manni en fékk ekki leyfi til að gifta sig. Hann fór suður með eigur sínar til að selja í því skyni að kosta námið en hann seldi allt nema hest og reið til baka og sótti Guðbjörgu sína og þau fluttust saman til Grindavíkur og Guðmundur fór að vinna á bát og þau eignuðust fimm börn. Guð- mundur lifði einungis til fertugs því hann stakk sig á öngli og lést úr blóðeitrun en þau eiga áttatíu og sjö afkomendur sem eru nú á lífi og ef ekki fyrir þessa óhlýðni hans við for- eldrana væri ég og ættin ekki til,“ segir Þóra. Það leynast áhugaverðar sögur í öllum ættum Leikkonan Þóra Karítas Árnadóttir er handritshöfundur og umsjónarmaður þáttanna Hver ertu? sem hefja göngu sína í Sjónvarpi Símans í dag, fimmtudaginn 1. október. Í þáttunum eru ættartré nokkurra þjóðþekktra Íslendinga grandskoðuð. Ljósmynd/Saga Sig Grúskari Þóra Karítas er umsjónarkona þáttanna Hver ertu? Ljósmynd/Republik Fyrst Lilja Pálmadóttir er fyrsti viðmælandi þáttanna. Ljósmynd/Republik Ættartré Í þáttunum eru ættartré þekktra Íslendinga skoðuð. Ljósmynd/Republik Heimaslóðir Unnsteinn Manuel á ættir að rekja til Angóla. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 ARCO gólflampi Achille & Pier Giacomo Castiglioni 1962 Verð 349.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.