Morgunblaðið - 01.10.2020, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 01.10.2020, Qupperneq 6
BAKSVIÐ Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Fulltrúar þeirra stjórnmálaflokka sem Morgunblaðið ræddi við eru sammála um að efnahagsaðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins verði stóra málið við upphaf þings, sem sett verður í dag. Ágreiningurinn muni þó ekki snúa að því hvort rétt sé fyrir stjórnvöld að grípa til einhverra að- gerða heldur um þær leiðir sem verða farnar. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra á þó síður von á því að efna- hagstillögurnar, sem kynntar voru í vikunni, muni mæta mikilli andstöðu og vonast eftir málefnalegri umræðu um málið í þinginu. Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra sagði í skriflegu svari við fyrir- spurn Morgunblaðsins að stærsta mál næsta þings væri „fjármálaáætl- un og skyld mál um stefnumörkun til næstu ára, um það hvernig við beit- um ríkisfjármálunum til að takast á við áhrif heimsfaraldursins. Við eig- um að setja okkur markmið um að það verði sem sterkara samfélag sem hefur náð lengra á ýmsum sviðum, nota tækifærið og búa okkur undir áskoranir framtíðarinnar með sterk- ari tækniinnviðum, fjölbreyttara at- vinnulífi, betri lausnum í umhverfis- og loftslagsmálum, aukinni sam- keppnishæfni og sanngjarnara vel- ferðarkerfi,“ ritar Bjarni. Katrín segir mikilvægt að reyna að auka umsvif í hagkerfinu til að takast á við það atvinnuleysi sem hér ríkir og að verjast langtímaatvinnuleysi. „Ríkisstjórnin mun auka opinbera fjárfestingu og skapa jákvæða hvata til grænnar atvinnuvegafjárfesting- ar,“ nefnir Katrín sem dæmi um að- gerðir til að auka umsvif. Stjórnarskrárbreytingar Hvað varðar frumvörp á næsta þingi sem VG leggur áherslu á, þá vonast Katrín eftir því að áform um miðhálendisþjóðgarð fái brautar- gengi. Eins gerir hún sér vonir um breiða sátt um að taka breytingar á stjórnarskrá til afgreiðslu. „Þetta eru ákvæði um auðlindir í þjóðareign. Ákvæði um umhverfis- og náttúru- vernd. Tillögur að breytingum á kafl- anum um forseta og framkvæmda- vald. Ákvæði um íslenska tungu og táknmál og ákvæði um þjóðar- atkvæðagreiðslu og vonandi fleiri ákvæði,“ segir hún. Fulltrúar verkalýðshreyfingarinn- ar gagnrýndu efnahagsaðgerðirnar sem kynntar voru í fyrradag á þeim forsendum að þær væru sniðnar að atvinnulífinu fremur en almenningi. Katrín telur hagsmuni beggja sam- ofna: „Við kynntum miklar aðgerðir í tengslum við lífskjarasamningana í fyrra upp á 80 milljarða króna á því tímabili. Og það hefur verið mín sýn að þarna fari saman hagsmunir al- mennings og atvinnulífs. Það eru hagsmunir okkar allra að atvinnu- leysi verði ekki viðvarandi í okkar samfélagi. Svo má ekki gleyma því að margar af þeim aðgerðum sem kynntar voru í fyrra og við erum enn að vinna að snúast um að bæta af- komu almennings. Lengra fæðingar- orlof, lægri skattbyrði á tekjulágt fólk, aukinn stuðningur við félagslegt húsnæðiskerfi og fleira,“ segir Katr- ín. Ríkisstjórn viðbragða Logi Einarsson, formaður Sam- fylkingar, telur að sumar þeirra efna- hagstillagna sem lagðar voru fram séu ágætar en þær komi of seint og gangi of skammt. Þá segir hann rík- isstjórnina skorta sýn til framtíðar. Samfylkingin muni leggja fram sínar eigin efnahagstillögur á næstu dög- um þar sem m.a. er lögð til hækkun atvinnuleysisbóta. „Það er snöggur blettur á aðgerðum ríkisstjórnarinn- ar. Það eru 20-30 þúsund manns án atvinnu og við þurfum að tryggja þessu fólki lífsviðurværi,“ segir Logi. Hann segir að efnahagstillögurnar miði m.a. að því að skapa sem flest störf í einka- og opinbera geiranum. „Það er alveg ljóst að þetta er ríkis- stjórn viðbragða. Ríkisstjórn sem reynir að slökkva elda frekar en að byggja mannvirki sem eru eldþolin og standast kröfur tímans,“ segir Logi. Viðbrögð við hótunum SA Helgi Hrafn Gunnarsson, þing- maður Pírata, segir að efnahagstil- lögurnar séu „bersýnileg viðbrögð við hótunum Samtaka atvinnulífs- ins“. Hann telur þær um of í anda gamalla tíma og saknar þess að sjá tillögur um það hvernig tekist verður á við framtíðina. Í því samhengi sé m.a. vert að skoða borgaralaun í bar- áttu við ójöfnuð. „Framundan eru miklar loftslags- breytingar og fjórða iðnbyltingin. Þetta mun hafa varanleg áhrif á það hvernig hagkerfið þróast og breytast í grundvallaratriðum. Við erum ekki með einhverja eina lausn á því en við verðum að horfast í augu við þennan nýja raunveruleika með nýjum hug- myndum,“ segir Helgi. Efnahagsaðgerðir í skugga faraldurs eru stóra málið Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alþingi Í gær voru allir hliðarsalir þingsins gerðir klárir, en lengra bil þarf að vera á milli þingmanna og gesta við þingsetninguna, sökum sóttvarna. Þingmenn sem ekki sjá púltið geta séð ræðumenn á skjá í hliðarsölunum.  Forsætisráðherra vonast eftir samstöðu um stjórnarskrárbreytingar á Alþingi 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020 Með því að bóka tíma losnar þú við biðina í útibúinu, hvort sem erindið snýst um ráðgjöf eða aðra þjónustu. Þú byrjar á að fara á arionbanki.is/bokafund og panta símtal. Við hringjum svo í þig og finnum tíma sem hentar. Markmiðið er alltaf að bankaþjónustan sé eins þægileg og hægt er. arionbanki.is Bókaðu þægilegri bankaþjónustu Áætlað er að um 173 aðilar hafi beint kröfu að íslenska ríkinu sl. 10 ár vegna mistaka í heilbrigðisþjón- ustunni. Stundum eru fleiri en einn aðili að baki hverri kröfu. Þetta kemur m.a. fram í svari heil- brigðisráðherra við fyrirspurn Jóns Þórs Ólafssonar, þingmanns Pírata. Óskaði hann eftir upplýsingum um hve margir hefðu fengið slíkar bæt- ur undanfarin tíu ár. Á þessum tíma hafa 20 dómar fall- ið þar sem fólki hafa verið dæmdar bætur, í 20 málum hefur ríkið verið sýknað og tíu málum er ólokið. 173 kröfur vegna læknamistaka Alþingi verður sett í dag, 1. október, og hefst þingsetning- arathöfnin kl. 13:30 með guðs- þjónustu í Dómkirkjunni. Í tilkynningu frá skrifstofu Al- þingis segir að vegna kórónu- veirufaraldursins verði aðeins örfáum gestum boðið til þing- setningarinnar að þessu sinni. Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskup Ís- lands, forseti Alþingis, ráð- herrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins líkt og hefð gerir ráð fyrir. Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða í kvöld kl. 19:30. Fyrsta umræða um fjárlaga- frumvarp 2021 og fyrri umræða um fjármálaáætlun verða aðal- mál 2. viku þingsins og hefst umræðan mánudaginn 5. októ- ber. Örfáum boðið til þingsetningar FYRRI UMRÆÐA UM FJÁRMÁLAÁÆTLUN HEFST 5. OKTÓBER Starfsmenn utanríkisráðuneytisins vörðu 130 klukkustundum, eða á fjórðu vinnuviku, í að svara einni fyrirspurn frá alþingismanni. Þetta kemur fram í svari Guð- laugs Þórs Þórðarsonar við fyrir- spurn frá Brynjari Níelssyni um kostnað ráðuneytisins við skrifleg svör við fyrirspurnum. Samkvæmt upplýsingum sem ráðuneytið veitti Morgunblaðinu fór svona mikill tími í að svara fyrir- spurn frá Óla Birni Kárasyni um orkupakka ESB, eftirlitsstofnanir sambandsins og EES-samninginn. Fyrirspurnina lagði hann fram á 149. löggjafarþingi 2018-2019. Í utanríkisráðuneytinu hefur ver- ið haldið að nokkru leyti utan um áætlaðar vinnustundir við svörun fyrirspurna þingmanna frá árinu 2017 og gefi það innsýn í þá vinnu sem almennt fer í að svara fyrir- spurnum á ársgrundvelli. Á árinu 2017 var varið alls um 55 klukku- stundum til þessara verkefna og á árinu 2018 alls um 58 klukkustund- um. Alls var 218 klukkustundum varið til vinnslu svara við fyrir- spurnum til skriflegs svars á 149. löggjafarþingi. Loks hefur alls 121 klukkustund farið í að svara fyrir- spurnum þingmanna sem beint hef- ur verið til ráðuneytisins á yfir- standandi löggjafarþingi. Þrjár vinnustundir fóru í að taka saman svar við fyrirspurn Brynjars, upplýsir ráðuneytið. sisi@mbl.is Brynjar Níelsson Guðlaugur Þór Þórðarson Tímafrek vinna við að svara

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.