Morgunblaðið - 01.10.2020, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - hitataekni.is
Sími 588 6070 - hitataekni@hitataekni.is
Sjálfvirk pottastýring
með snertiskjá og vefviðmóti
POTTASTÝRING
HVER restaurant á Hótel Örk
er fyrsta flokks veitingastaður,
fullkominn fyrir notalegar
gæðastundir með vinum,
fjölskyldu eða vinnufélögum.
GIRNILEGUR
OG SPENNANDI
MATSEÐILL
Pantaðu borð í síma 483 4700 | www.hverrestaurant.is
BAKSVIÐ
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Í Auðlindagarði HS Orku á Reykja-
nesi eru fjölmörg verkefni í undir-
búningi en fyrirtækið stefnir nú á að
auka framleiðslugetu Reykjanes-
virkjunar um 30 MW á næstu tveim-
ur árum. „Nokkur erlend og innlend
fyrirtæki eru að
skoða uppbygg-
ingu í auðlinda-
garðinum. Eitt er
að breyta raforku
með rafgreiningu
í annað form, svo
kallað Power to
X, það er vetni,
metan, eða met-
anól til dæmis,“
segir Tómas Már
Sigurðsson, for-
stjóri HS Orku. „Við teljum líka að
mikil tækifæri séu í tengslum við
fiskeldi, þörungarækt og hátækni-
vædd gróðurhús. Á svæðinu er nægt
framboð á heitu og köldu vatni auk
hreins koltvísýrings sem skiptir
miklu við hverslags ræktun.“
Álfan sjálfri sér næg
Í dag eru 10 fyrirtæki starfrækt í
auðlindagarðinum og þar starfa í
allt um 1.500 manns við fjölbreytta
starfsemi. Vöxtur starfsemi í garð-
inum var eftir hruntíma hornsteinn
atvinnuppbyggingar á Reykjanesi,
að sögn Tómasar. Hann telur HS
Orku standa undir enn frekari vexti,
nú á erfiðum tímum.
„Ég var um árabil í stjórn sam-
takanna Business Europe þar sem
saman koma forstjórar stærstu fyr-
irtækja álfunnar. Á þeim vettvangi
er reglulegt samtal við æðstu ráða-
menn ESB sem fóru fyrir allnokkru
að tala opinskátt um mikilvægi þess
að álfan væri sjálfri sér næg um
græna orku. Ekki gengi að eiga allt
undir duttlungum OPEC eða ann-
arra ráðandi afla,“ segir Tómas Már
og heldur áfram: „Mótleikurinn er
meðal annars bygging vindorku-
garða og framleiðsla vetnis með
vindorku. Í þessari byltingu eru
bæði ógnir og tækifæri fyrir okkur
Íslendinga. Það dregur úr sam-
keppnisforskoti okkar að orkuverð í
Evrópu hefur lækkað, sem ég tel þó
vera tímabundið. Við getum hæg-
lega nýtt okkur þessa þróun og farið
að framleiða vetni eða aðra orku-
gjafa. Ekki bara til að vera sjálfum
okkur nóg um alla orkugjafa í sam-
göngum heldur líka til útflutnings.
Við teljum mikilvægt að halda
áfram að afla aukinnar raforku,
samanber að stækkun Reykjanes-
virkjunar hefst senn og endurgerð
vélbúnaðar í Svartsengi er í skoð-
un.“
Vindorkan hagkvæmari
Nýting vindorku verður æ fýsi-
legri og hagkvæmari kostur í fram-
leiðslu orkufyrirtækja. Brýnt er þó
leysa úr flækjum til dæmis á sviði
skipulagsmála sem torveldað hafa
uppbyggingu á því sviði, segir Tóm-
as Már. Er fyrirtækið með nokkra
kosti á sviði vindorku í skoðun.
„Framleiðsla á vindorku er mun
hagkvæmari en áður,“ segir Tómas.
„Sú var tíðin við að kostnaður við
hvert uppsett megavatt var meira
en tvöfalt það sem kostar að virkja
fallorku eða jarðhita. Þetta er gjör-
breytt. Nú er kostnaður við hvert
megavatt í vindorku um fjórðungur
af því sem það kostar að byggja
vatnsafls- eða jarðvarmavirkjanir.
Þessi kostur verður því mun áhuga-
verðari en áður, sérstaklega hér á
landi þar sem lognið fer hratt yfir.“
Breyttur heimsmarkaður
Tómas Már leggur áherslu á mik-
ilvægi þess að vanda til verka við
uppbyggingu vindorkugarða. Þeir
þurfi til dæmis að vera utan fjöl-
sóttra ferðamannastaða og í sátt við
nærsamfélagið. Ný tækni og breytt
viðhorf leiði svo til þess að horfa
þurfi til nýrra þátta í atvinnumálum.
Álframleiðsla í Kína og Mið-
Austurlöndum hafi verið aukin
stórum á síðustu árum sem breytt
hafi aðstæðum á heimsmarkaði.
Tækifæri eru í útflutningi á vetni
Auðlindagarður og tækifæri hjá HS Orku Vetni og metanól Fiskeldi og hátækni í gróður-
húsum Mikilvægt að halda áfram að afla aukinnar raforku, segir forstjórinn Stærri virkjanir
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Svartsengi Endurgerð vélbúnaðar í virkjuninni er í skoðun með það fyrir augum að auka raforkuframleiðslu þar.
Tómas Már
Sigurðsson
Vesturverk ehf., sem er í meiri-
hlutaeigu HS Orku, hefur lengi
stefnt að virkjun Hvalár við Ófeigs-
fjörð á Ströndum. Í vor ákváðu
stjórnendur fyrirtækisins að hægja
á framkvæmdum. Þar ræður að
undirbúningur Vesturverks er kom-
inn mun lengra en annarra sem
málinu tengjast. Þar nefnir Tómas
Landsnet hf.; að mat á umhverfis-
áhrifum vegna háspennulína frá virkjuninni liggi enn
ekki fyrir. Raunar felist vandi Vestfjarða í orkumálum
ekki í ónógri raforkuframleiðslu, heldur veiku flutn-
ingskerfi sem verði að styrkja. Hvalárvirkjun sé þó at-
hyglisverður kostur, það er að hún kæmi með breyti-
lega framleiðslu í takt við þarfir almenna
markaðarins á hverjum tíma.
„Það er óþarfi að taka verkefnið hraðar en þörf er
á,“ segir Tómas. Hann segir andstöðu gegn þessum
áformum vissulega skiljanlega. Hún sé þó umhugs-
unarverð í ljósi þess að virkjun
Hvalár var í nýtingarflokki skv.
rammaáætlun um orkunýtingu. Í
því ferli hafi mörgum kostum verið
hent út, svo sem Búlandsvirkjun í
Skaftártungu. Þá hafi orkufram-
leiðsla við Trölladyngju á Reykja-
nesskaga verið tekin úr nýting-
arflokki og sett í vernd. Þar hafi
því verið sjálfhætt fyrir HS Orku en
fyrirtækið hafði þó áður varið miklum fjármunum og
löngum tíma til rannsókna á svæðinu.
Hvalá áfram á dagskrá
„Virkjun Hvalár er því áfram á dagskrá þó erfitt sé að
tímasetja það verkefni. Einnig erum við opin fyrir því
að aðrir aðilar komi að þessu verkefni. Í núverandi
stöðu og þegar aðrir nærtækari virkjunarkostir eru til
staðar beinum við hjá HS Orku kröftum okkar að
þeim,“ segir Tómas Már að síðustu.
Aðrir virkjunarkostir nærtækari
HVALÁRVIRKJUN FRESTAÐ EN VERKEFNIÐ ER ÁFRAM Á DAGSKRÁ
Hvalá Verður ekki virkjuð í bráð, en verkefn-
inu er þó haldið áfram vakandi.
Allt um sjávarútveg