Morgunblaðið - 01.10.2020, Page 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
30. sept. – 6. okt.
Kauphlaup í
Smáralind
15% AFSLÁTTUR
af völdum vörum í
DÚKA SMÁRALIND
SMÁRALIND – DUKA.IS
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég náði viðtali við býsna marga af frum-
byggjunum og reyndi að láta persónurnar
koma sjálfar fram og lesendur finna fyrir nær-
veru þeirra með því að hafa beinar tilvitnanir í
fólkið. Einnig fékk ég lýsingar fólks á
ákveðnum þáttum, til dæmis úr sláturhúsinu,
sem ég notaði beint enda er ég aðeins skrásetj-
arinn,“ segir Ingibjörg Ólafsdóttir sagnfræð-
ingur sem ritað hefur sögu Hellu og Rang-
árþing ytra hefur gefið út í tveggja binda riti.
Gamlir og nýir Hellubúar fögnuðu útkomu
bókarinnar 15. september en þá voru liðin 93
ár frá því Þorsteinn Björnsson fékk fyrstur
verslunarréttindi á staðnum.
Þorsteinn var bóndi úr Vatnsdal í Húna-
vatnssýslu sem leitaði sér að betri bújörð á
Suðurlandi en gerðist verslunarmaður. Hann
verslaði fyrst á Rauðalæk en fékk keyptan
smáskika úr landi jarðarinnar Helluvaðs árið
1927, við brúna sem þá var yfir Ytri-Rangá, og
hóf rekstur hefðbundinnar „brúarverslunar“.
Hann gaf versluninni nafnið Hella sem er
stytting úr Helluvaði og færðist það nafn á
þorpið sem þar byggðist upp.
Skörp pólitísk skil
Ingibjörg segir að heimskreppan á fjórða
áratugnum hafi gert út af við verslunina. Eftir
það vaknaði áhugi manna á að stofna kaup-
félag á Hellu, að sögn Ingibjargar annaðhvort
af því að þeim fannst vanta samkeppni í versl-
un eða af pólitískum ástæðum, og tók það til
starfa 1935. Fyrir voru kaupfélög á Rauðalæk
og Hvolsvelli. Einhverjir þeirra sem komu að
stofnun Kaupfélagsins Þórs á Hellu höfðu
hætt vegna ósættis í stjórn Kaupfélags Holta-
manna á Rauðalæk. En hver sem upphafleg
ástæða var urðu skörp pólitísk skil á milli
kaupfélaganna. Sjálfstæðismenn stóðu að
Kaupfélaginu Þór á Hellu og skiptu við það en
framsóknarmenn stóðu að hinum félögunum
sem sameinuðust árið 1948 í Kaupfélag Rang-
æinga. „Þeir sem tilheyrðu austurhlutanum
horfðu til suðurs þegar þeir óku í gegnum
Hellu en þeir sem tilheyrðu Kaupfélaginu Þór
litu í átt til sjávar þegar þeir óku í gegnum
Hvolsvöll,“ segir Ingibjörg.
Ingólfur Jónsson, ungur og efnilegur innan-
búðarmaður á Rauðalæk, var fenginn til að
vera kaupfélagsstjóri. Hann var vakinn og sof-
inn yfir kaupfélaginu, þorpinu og hagsmunum
bænda innan og utan sýslunnar. Hann tók sæti
á Alþingi árið 1942 og var meðal annars land-
búnaðar- og samgönguráðherra allan starfs-
tíma Viðreisnarstjórnarinnar.
Hella byggðist upp hægt og rólega á landi úr
jörðunum Helluvaði og Gaddstöðum. Ingi-
björg segir að mikill kippur hafi komið í þróun
kauptúnsins þegar virkjanaframkvæmdir hóf-
ust á hálendinu. Þar gat ungt fólk sem annars
hefði þurft að leita að vinnu á höfuðborgar-
svæðinu eða annars staðar aflað góðra tekna
og byggt sér íbúðarhús á Hellu. Þorpið þandist
út.
Hella var í Rangárvallahreppi og er nú
stjórnsýslu- og þjónustumiðstöð Rangárþings
ytra eftir sameiningu nokkurra sveitarfélaga í
vesturhluta Rangárvallasýslu árið 2002. Á
Hellu eru nú rúmlega 880 íbúar og 1.680 í
sveitarfélaginu öllu.
Byggðasöguhring lokað
Ingibjörg ólst upp á Hellu. Henni var falið
að annast söguritunina fyrir tólf árum. Hún
segist hafa lokið stórum hluta verksins fyrir
sjö árum. Síðan hafi orðið hlé fram að enda-
sprettinum sem fólst í uppsetningu bókarinnar
og frágangi verksins en það hafi verið ærin
vinna enda sé verkið ríkulega myndskreytt.
Þar munar mest um gamlar myndir úr safni
Helmuths Stolzenwald og Rúdolfs sonar hans
en Helmuth var þýskur klæðskeri sem ráðinn
var til starfa hjá Kaupfélaginu Þór árið 1942.
Gefa myndirnar bókinni sérstakt gildi.
Í Hellubókinni eru merkri sögu Rangárvalla
gerð nokkur skil. Með henni er byggðasögu-
hringnum í Rangárþingi ytra lokað því áður
hafa verið gefin út jarða- og ábúendatöl allra
hreppanna í vesturhluta sýslunnar.
Ingólfur og virkjanir örlagavaldar
Út er komin saga Hellu á Rangárvöllum Sagan hefst fyrir 93 árum þegar verslunin Hella var stofnuð
við gömlu brúna á Ytri-Rangá Gamlar myndir úr safni Stolzenwald-feðga gefa verkinu gildi
Ljósmynd/Stolzenwald
Útgáfuteiti Ritið Hella – þorp í þjóðbraut kynnt, f.v. Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri, Sólveig
Stolzenwald, Unnur Þórðardóttir, Gunnar Guðmundsson, Ólafur Egill Stolzenwald, Bogi
Thorarensen, Ingibjörg Ólafsdóttir, höfundur bókarinnar, og Harpa Rún Kristjánsdóttir.
Hella 1947 Eldfjallið Hekla er ná-
granni Hellu og líta íbúarnir til hennar
með stolti en um leið ákveðnum ótta.
Þegar umræður urðu um byggingu
nýrrar brúar á Ytri-Rangá komust
samgönguyfirvöld að þeirri nið-
urstöðu að hagkvæmast væri að
byggja nýja brú 500 metrum sunn-
an við gömlu brúna. Við það færð-
ist Suðurlandsvegur suður fyrir
þorpið.
Þessi áform komu illa við hags-
muni Kaupfélagsins Þórs sem
byggt hafði starfsemi sína upp við
Suðurlandsveg, samkvæmt gild-
andi skipulagi. Meðal annars hafði
nýtt verslunarhús verið byggt þar
og kaupfélagið starfrækti sölu-
skála við veginn. Ingólfur Jónsson
kaupfélagsstjóri gerði strax grein
fyrir þessum sjónarmiðum og að
krafist yrði bóta ef vegurinn yrði
færður.
Í Hellubókinni kemur fram að
kaupfélagsmenn hafi fallist á að
flutningur brúarinnar væri skyn-
samleg lausn en eðlilegt væri að
félagið fengi bætur vegna þess
tjóns sem það yrði fyrir. Niður-
staða gerðardóms var að ríkið
skyldi greiða bætur. Framkvæmdir
við brúargerð á nýjum stað hófust
haustið 1959 og var að mestu lok-
ið við brúna, sem enn stendur, á
árinu 1960. Síðar byggði kaup-
félagið nýtt verslunarhús við nýjan
Suðurlandsveg.
Kaupfélagið fékk bætur vegna
brúar og nýs Suðurlandsvegar
BREYTTAR FORSENDUR
Jólainnkaupin Viðskiptavinir úr sveitinni flykkjast í kaupfélagið. Bændur voru
ekkert áfjáðir í það að bakka og nýttu bílastæðin því öðruvísi en nú er gert.