Morgunblaðið - 01.10.2020, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
✝ Teitur Stef-ánsson fæddist
á Brúarlandi í Mos-
fellssveit 23. júní
1949. Hann lést á
hjúkrunar- og dval-
arheimilinu Höfða,
Akranesi, 20. sept-
ember 2020.
Foreldrar hans
eru Stefán Kristinn
Teitsson, f. 15.
mars 1930 og Fríða
Lárusdóttur, f. 6. janúar 1931.
Teitur var elstur sex systkina
sem eru: Drengur, f. 3. október
1950, d. 3. október 1950, Örlyg-
ur, f. 10. janúar 1953, Hulda, f.
29. júní 1954, Halldór, f. 29. des-
ember 1961 og Þórgunnur, f. 11.
október 1966. Teitur giftist Ás-
gerði Ísfeld, f. 10. ágúst 1957, á
árinu 1985. Þau skildu árið
2016. Börn þeirra eru Fríða
Björk, f. 25. febrúar 1983 og
Ragnar Torfi, f. 7. ágúst 1990.
mars 2003, og Höskuldur Már, f.
1. júní 2006.
Teitur ólst upp á Akranesi og
gekk þar í barna- og gagnfræða-
skóla. Hann lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akureyri
árið 1970. Þá lauk hann námi í
útvegsfræði við Tækniskóla Ís-
lands árið 1977. Teitur vann
nær allan sinn starfsferil við
sjávarútveg, m.a. hjá Heima-
skaga á Akranesi. Þá starfaði
hann sem framkvæmdastjóri
Félags íslenskra fiskmjöls-
framleiðenda og starfaði loks
sem framkvæmdastjóri Tré-
smiðjunnar Akurs á Akranesi til
ársins 2010.
Á árinu 2018 veiktist Teitur
alvarlega og fluttist í kjölfarið
inn á hjúkrunar- og dvalarheim-
ilið Höfða, Akranesi.
Útför Teits fer fram frá Akra-
neskirkju í dag, 1. október 2020,
kl. 13. Vegna aðstæðna verður
athöfninni einnig streymt frá
heimasíðu Akraneskirkju,
www.akraneskirkja.is. Virkan
hlekk á slóð má nálgast á
www.mbl.is/andlat.
Sambýlismaður
Fríðu Bjarkar er
Sverrir Haralds-
son, f. 26. sept-
ember 1984 og son-
ur þeirra er Teitur
Logi, f. 27. júní
2016. Fyrir átti
Teitur soninn Stef-
án, f. 30. desember
1972, með Önnu
Sigurbjörgu Jó-
hannesdóttur, f. 14.
mars 1951. Stefán er giftur And-
reu Magnúsdóttur, f. 7. apríl
1978 og börn þeirra eru Jóhann-
es Freyr, f. 3. september 1999,
Baldur Páll, f. 24. janúar 2004
og Anna Björk, f. 15. júlí 2011.
Fyrir átti Teitur einnig dótt-
urina Helgu Dögg, f. 29. janúar
1975, með Ólafíu Þórunni Stef-
ánsdóttur, f. 4. ágúst 1953.
Helga Dögg er gift Ásgrími Ás-
grímssyni, f. 9. júní 1966, og syn-
ir þeirra eru Kristján Jakob, f. 3.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
(Hallgrímur Pétursson)
Elsku pabbi, takk fyrir allt,
fyrir yndislegar minningar og
samverustundir.
Elska þig, þín dóttir
Helga Dögg.
Bróðir minn Teitur Stefáns-
son er látinn.
Með fátæklegum orðum er
rétt að kveðja elskulegan bróð-
ur sem þurfti að takast á við til-
veru sem við hin fáum ekki skil-
ið síðustu árin.
Teitur var fæddur 23. júní
1949 á Brúarlandi en ólst upp á
Akranesi. Pabbi var á veiðum á
Halamiðum þegar hann fékk
fréttir af því að frumburður
hans væri fæddur. Pabbi sá
hann ekki fyrr en þremur vik-
um síðar þegar hann kom í
land.
Við Teitur ólumst upp á Sól-
eyjargötunni í faðmi stórfjöl-
skyldu þess tíma, með afa Teiti
og ömmu Huldu sem bjuggu á
neðri hæðinni en foreldrar okk-
ar bjuggu í sama húsi. Teitur
var fimm árum eldri en ég en á
milli okkar er Örlygur. Teitur
var stóri bróðir minn og eru
minningarnar góðar frá upp-
vaxtarárum okkar.
Í bakgarðinum var trésmíða-
verkstæði afa Teits og pabba
sem var lifandi leikvöllur í
tengslum við fólk og verkefni
sem unnið var að hverju sinni.
Þangað var gaman og gott að
koma.
Teitur var glatt barn segir
móðir okkar jafnan þegar talið
berst að bernsku Teits og það
geislaði af honum gleðin þegar
komið var að Brúarlandi í Mos-
fellsbæ, en þar bjuggu móður-
foreldar okkar, þau afi Lárus
og amma Kristín.
Við Teitur fórum bæði til
náms til Reykjavíkur, ég í
tækniteiknun en hann í útgerð-
artækni við Tækniskóla Ís-
lands.
Við höfðum mikla ánægju af
tónlist, hlustuðum m.a. á Roll-
ing Stones, Shadows og aðrar
stór hljómsveitir þess tíma
enda átti hann mikið plötusafn.
Við áttum annað sameigin-
legt áhugamál sem var skóg-
rækt og voru bústaðir okkar
staðsettir í Borgarfirði þar sem
við áttum góðar stundir með
okkar fjölskyldum. Samband
okkar var alla tíð náið og gott.
Teitur var einstaklega góður
við börnin sín sem og annarra
manna börn og eiga synir mínir
góða minningar um hann.
Fyrir allar þær sem og aðrar
góðar minningar ber að þakka.
Lífið hefði verið fátæklegra án
hans, án stóra bróður.
Hvenær sem kallið kemur
kaupir sér enginn frí,
þar læt ég nótt sem nemur,
neitt skal ei kvíða því.
(Hallgrímur Pétursson)
Hulda Stefánsdóttir
Í dag kveð ég elsku bróður
minn og einn minn besta vin.
Það eru orðin rúm tvö ár síðan
hann veiktist og hefur hann háð
erfitt veikindastríð. Á milli okk-
ar Teits var alltaf gott samband
þótt aldursmunurinn væri
sautján ár. Að loknu námi kom
hann aftur heim á Akranes og
kynnist ég honum þá enn betur.
Hann keypti íbúð og fékk mig
til að sjá um þrif og fékk ég
borgun fyrir. Þetta fannst mér
æðislegt og í ofanálag gat ég
spilað plöturnar hans en hann
átti gott safn. Það var samt
ekki alveg sama hvað ég setti á
fóninn. Ég mátti ekki spila það
sem var í uppáhaldi hjá honum.
Hann vildi meina að ég gæti
rispað plöturnar. Alltaf var
mikill samgangur á milli okkar
og við fórum saman í ferðalög
og veiðitúra með fjölskyldum
okkar. Á árunum 2001-2007
unnum við saman í Trésmiðj-
unni Akri. Það var alltaf gott að
leita til Teits. Hann var glað-
vær, ráðagóður og samkvæmur
sjálfum sér og oftar en ekki
ansi sannspár. Teitur hafði allt-
af áhuga á því sem maður var
að gera, vildi alltaf vita hvernig
systir hans og fjölskylda hefði
það og þegar hann spurði um
frændur sína talaði hann oft um
larfana sína. „Hvað segja larf-
arnir mínir í dag?“ Þau voru
nokkur gullkornin sem hrundu
af vörum hans og mörg orða-
tiltækin eftirminnileg. Við fjöl-
skyldan kveðjum bróður minn
með trega og við eigum eftir að
sakna hans. Teitur hefur alltaf
átt stóran stað í hjarta okkar
og minning um kæran vin mun
lifa.
Á kveðjustund er þungt um tungutak
og tilfinning vill ráða hugans ferðum.
Því kærum vini er sárt að sjá bak
og sættir bjóða Drottins vilja og
gjörðum.
En Guðs er líka gleði og ævintýr
og góð hver stund er minningarnar
geyma.
Farðu vel, þér fylgir hugur hlýr
á ferð um ljóssins stig, og
þagnarheima.
(Sigurður Hansen)
Þórgunnur systir
og fjölskylda.
Teitur Stefánsson er látinn.
Góður drengur, mágur, vinur
og veiðifélagi fékk loks hvíld sl.
sunnudag og þar með frá örlög-
um sem enginn sá fyrir eða fær
skilið. Fyrir rúmum tveimur ár-
um missir hann meðvitund eftir
veikindi og var lagður inn á
hjúkrunarheimilið Höfða á
Akranes. Þar dvaldi þessi vinur
einangraður í hugarheimi sem
við náðum ekki til, en við að-
búnað og umgjörð sem ber að
þakka.
Teitur var bróðir konu minn-
ar, Huldu en henni kynnist ég á
menntaskólaárum mínum að
Laugarvatni. Þau tvö voru um
margt lík, náðu einstaklega vel
saman og voru í miklu sam-
bandi alla tíð.
Við hjónin kaupum okkar
fyrstu íbúð með Teiti að Garða-
braut 26 á Akranesi og vinnu-
staðir okkar voru í sama hús-
næði við höfnina, Teitur vann á
skrifstofu Heimaskaga en ég
hjá Trésmiðjunni Akri, þar sem
hann varð síðar framkvæmdar-
stjóri. Við gerðum út trillu sam-
an, vorum í verslunarrekstri, og
fiskeldi. Sérhvert verkefni sem
tekist er á við stuðlar að víðsýni
og þroska.
Þegar við hjónin tókum okk-
ur síðan upp og fórum til fram-
haldsnáms í Reykjavík þá var
Teitur ávallt til staðar og kom
með fisk færandi hendi sem
hélt í okkur lífinu á námsárun-
um.
Teitur var stríðinn, hann
fylgdi sínum skoðunum eftir af
krafti og hann hafði sterkar
skoðanir á mönnum og málefn-
um og lét sér annt um sitt
byggðarlag. Hann var ávallt
góður félagi og ráðagóður var
hann við alla sína samferðar-
menn. Skógrækt ásamt veiði
voru hans ær og kýr.
Barngóður var hann og eiga
synir mínir margar góðar minn-
ingar um þennan brosmilda
frænda.
Hann hafði alltaf tíma fyrir
þá þrátt fyrir amstur þess tíma
og hann sagði oft í stríðni við
strákana, „hvað er að frétta
larfarnir mínir?“
Teitur eignaðist fjögur börn,
tvö með Ásu fv. eiginkonu sinni,
sem ólust upp á þeirra heimili.
Þau áttu mörg góð ár saman á
Skaganum svo og í Hafnarfirði.
Þar komum við ávallt við á Þor-
láksmessu í hvíld eftir erilsöm
jólainnkaup í Reykjavík.
Þau Ása bjuggu sér fallegan
bústað í Borgarfirði en þar
dvaldi Teitur mikið síðustu árin
eftir að hann lauk störfum.
Við Teitur förum ekki aftur í
Haukadalsá en þangað fórum
við oft, fyrst 27.7. 1973. Dag-
urinn er eftirminnilegur fyrir
þær sakir að þann dag fæddist
frumburður okkar Huldu. Faðir
Teits hafði komið því til leiðar í
nokkur ár að synir og síðar
tengdasynir færu saman í veiði
í Haukuna.
Teitur varð minn leiðbein-
andi enda hafði hann fengið
góða tilsögn og kennslu hjá föð-
ur sínum. Þarna var Teitur
ávallt í essinu sínu, veiði- og
sögumaður eins og þeir gerast
bestir. Persónur urðu ljóslifandi
og staðir fengu rauntilveru í
hans frásögn. Samverustundir
sem við áttum við árnar og síð-
an á kvöldin eftir misgóðan
veiðidag eru mér í sterku
minni, en Teitur var fyrst og
fremst vinur og félagi sem bar
með sér hlýju sem er vand-
fundin í dag.
Síðasta veiðiferð okkar
Huldu með Teiti var í Anda-
kílsá. Lítil var veiðin en sú
samverustund og aðrar munu
lifa um ókomin ár.
Nú er hann á veiðum með
öðrum vinum og félögum. Hann
mun taka á móti okkur í fyll-
ingu tímans. Hvíldu í friði minn
kæri og hafðu þökk fyrir sam-
veruna.
Sigurður Valur
Ásbjarnarson.
Vongleði bjó í hug okkar
allra sem hófum nám í MA
haustið 1966. Landsprófið
gamla var hálfgerð fullorðins-
vígsla, skildi á milli feigs og
ófeigs, og nú var nýr sjónhring-
ur fyrir augum og við engir
snáðar lengur, heldur karlar í
krapinu! Í hringiðu skólalífsins
kynntumst við jafnöldrum af
öllu landinu og þar bundumst
við vináttuböndum sem enn
halda.
En það fækkar í hópnum og
nú er Teitur vinur okkar fallinn
frá eftir erfið og langvarandi
veikindi, þessi glaði drengur.
Hann var góður félagi, sífellt
hvetjandi og jafnan í góðu skapi
þótt hann gæti brýnt raustina
þegar honum mislíkaði og átti
þá til býsna kröftugt orðaval,
harður keppnismaður og
fylginn sér og aldrei lognmolla
þar sem hann gekk um dyr.
Hann var glettinn, stundum
smástríðinn og hafði einstak-
lega hlýlegt fas og notalega
nærveru, vinfastur og tryggur.
Hann hafði mikið yndi af tónlist
og sótti tónleika víða um heim;
eltist mikið við Rolling Stones,
Paul McCartney og ýmsa af
þeirra kynslóð. Hann æsti sig
hressilega yfir fótbolta, hélt
með ÍA og Tottenham. Glaðvær
hlátur hans var smitandi.
Við höfum mikið hlegið sam-
an síðustu hálfa öld; áttum 50
ára stúdentsafmæli í vor. Þótt
vík hafi verið milli vina var allt-
af eins og við byggjum á sömu
torfunni og hittumst reglulega.
Við vorum tvö ár í matarfélagi
Önnu og Eiríks í Möðruvalla-
stræti 9 á menntaskólaárunum
þar sem Teitur leigði líka her-
bergi; þar var oft glatt á hjalla
og spilaður gosi í hádegishléinu.
Ef hallaði á vin vorn sagði hann
gjarnan að við værum í sam-
særi gegn sér og bætti við
nokkrum vel völdum orðum!
Við sögðum þeim hjónum
stundum ævintýrasögur eftir
helgar og Anna trúði engu upp
á Teit en öllu á okkur, sér-
staklega Einar. „Hann Teitur
minn! Neiii, drengir mínir, en
Einar…!“ Teitur tók að sér ým-
is verkefni um dagana og sinnti
þeim af kostgæfni og eðlislægri
samviskusemi, lengst hjá Sam-
tökum fiskmjölsframleiðenda
og Trésmiðjunni Akri, fjöl-
skyldufyrirtækinu þar sem
hann lauk starfsævinni farsæl-
lega. Það var þungbært að sjá
hann svo illa leikinn af veik-
indum, en aðdáunarvert hvað
fólkið hans sinnti honum af ein-
stakri alúð, börn, foreldrar,
systkini.
Allur aðbúnaður á Höfða var
líka til sérstakrar fyrirmyndar.
Hljóðnuð er nú rödd hans og
hláturinn gleðilegi heyrist ekki
framar.
Við munum lengi sakna vinar
í stað.
Börnum hans, öldruðum for-
eldrum og systkinum sendum
við hugheilar samúðarkveðjur.
Fari hann nú sæll.
Einar Friðþjófsson,
Kristján Sigurgeirsson,
Sölvi Sveinsson.
Teitur Stefánsson
Móðir okkar,
SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ,
andaðist á Landspítala, Fossvogi, sunnudaginn 20. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Kristín Sigmarsdóttir
Elín Sigmarsdóttir
Ástkær eiginkona, dóttir, móðir,
tengdamóðir og amma,
SIGRÚN BJÖRG EINARSDÓTTIR
kjólameistari,
Fannafold 184, Grafarvogi,
lést á gjörgæsludeild LSH 27. september.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 5. október
klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað.
Kristinn Jónsson
Einar S. Björnsson Jóhanna Ragnarsdóttir
Gígja Sæbjörg Kristinsdóttir Jóhann Ó. Sveinsson
Hanna Bára Kristinsdóttir Brynjar F. Valsteinsson
Einar Ingi Kristinsson Desiree Arrasco
og ömmubörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
JÓN VALGEIR GUÐMUNDSSON,
Jón á Skála,
Austurvegi 5, Grindavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð laugardaginn 26. september.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju mánudaginn 5. október
klukkan 14. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu
aðstandendur verða viðstaddir athöfnina.
Athöfninni verður streymt á facebooksíðu Grindavíkurkirkju
klukkan 13:40.
Fyrir hönd aðstandenda,
Erla Stefánsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SVAVA LILJA VALDIMARSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 22. september.
Útför hennar fer fram frá Garðakirkju
föstudaginn 2. október klukkan 15.
Vegna aðstæðna í samfélaginu verður aðeins nánasta
fjölskyldan viðstödd.
Jónfríður Loftsdóttir Øivind Smebye
Valdimar Arnfjörð Loftsson Ingibjörg D. Baldursdóttir
Sóldís Elfa Loftsdóttir Hörður Jónsson
Sigrún Linda Loftsdóttir Sigurður Óli Ólason
Svala Rós Loftsdóttir Bjarni Gunnarsson
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn
Lokað
Gallerí Fold verður lokað föstudaginn 2. október
vegna jarðarfarar TRYGGVA PÁLS FRIÐRIKSSONAR
listmunasala
FOLD
Gallerí - Uppboðshús
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
UNNUR ELÍSABET GRÖNDAL,
lést á Dalbæ, heimili aldraðra,
10. september. Útförin fer fram frá
Langholtskirkju föstudaginn 2. október
klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna verður útförinni jafnframt streymt á https://ww
w.youtube.com/watch?v=pFQyS9IfejY&feature;=youtu.be
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Dalbæ, heimili aldraðra á Dalvík.
Benedikt Björnsson Bjarman
Halldóra Gísladóttir Sigurður Ragnar Sverrisson
Gísli Sigurður Gíslason Karólína Gunnarsdóttir
Hólmfríður Amalía Gíslad. Júlíus Baldursson
barnabörn og barnabarnabörn