Morgunblaðið - 01.10.2020, Page 38

Morgunblaðið - 01.10.2020, Page 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020 ✝ Bryndís fædd-ist 22. septem- ber 1928 á Vatt- arnesi í Fáskrúðs- firði en flutti sex ára með fjölskyld- unni til Reykjavík- ur, d. 21. okt. 2020. Hún var yngst átta systkina. Foreldrar hennar voru Guð- laug Sigmunds- dóttir fram- kvæmdastjóri, f. 19. apríl 1895 í Gunnhildargerði, Hróarstungu, N.-Múl., d. 26. okt. 1988, og Pét- ur Sigurðsson bóndi og vitavörð- ur, f. 8. janúar 1888 að Hjart- arstöðum, Eiðaþinghá, S.-Múl., d. 24. febr. 1955. Systkini Bryndísar (öll látin) voru Sigríður, Sigrún, Inga Mar- grét,Ragnhildur, Einar, Rós og Bergur Eysteinn. Bryndís gekk í V.Í. en fór 16 ára í Leiklistarskóla Lárusar Pálssonar og útskrifaðist þaðan og steig fyrst á svið undir leik- stjórn Lárusar sem Cecilía í Jónsmessudraumi á fátækra- heimilinu 18. nóvember 1946. Með námi starfaði Bryndís á rannsóknarstofu HÍ við Baróns- stíg. Helstu áhugamál Bryndísar voru leiklist og ljóðalestur. Hún sté fyrst leikara á svið í vígslu- sýningu Þjóðleikhússins sem Guðrún í Nýársnóttinni. Upp frá Bryndís lék í kvikmyndum, sjónvarpi og útvarpi og fór m.a. með aðalhlutverk í fyrstu ís- lensku kvikmyndunum Milli fjalls og fjöru og Niðursetning- unum. Eiginmaður Bryndísar var Örn Eiríksson, f. 28.1. 1926, d. 15.6. 1996, loftsiglingafræð- ingur. Foreldrar hans voru Ei- ríkur Kristjánsson, f. 25.8. 1893, d. 4.4. 1965, kaupmaður á Ak- ureyri, og k.h., María Þorvarð- ardóttir, f. 17.5. 1893, d. 21.6. 1967. Synir Bryndísar og Arnar eru: 1) Eiríkur Örn Arnarson, f. 19.7. 1949, prófessor emeritus í sál- fræði við HÍ, og k.h. Þórdís Kristmundsdóttir, prófessor em- eritus í lyfjafræði við HÍ. Dætur þeirra eru Hildur, f. 1978, og Kristín Björk, f. 1984; 2) Pétur Arnarson, f. 16.5. 1956, flugstjóri hjá Icelandair og k.h. Magnea Lilja Haraldsdóttir skrif- stofumaður. Börn þeirra eru Haraldur Fannar, f. 1983, Bryn- dís, f. 1989, og Leó Snær, f. 1992, og 3) Sigurður Arnarson. f. 29.6. 1967, sóknarprestur í Kópavogs- kirkju, og k.h. Inga Rut Karls- dóttir, verkefnastjóri hjá Icelandair. Börn þeirra eru Kristinn Örn, f. 1999, Birna Magnea, f. 2002, Karólína María, f. 2006, og Gunnar Karl, f. 2009. Útför Bryndísar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 1. október 2020, klukkan 13 að viðstöddum nánustu fjölskyldu og vinum. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni: sonik.is/bryndis. Virkan hlekk á slóð má nálgast á www.mbl.is/andlat. því varð ekki aftur snúið og hún gaf sig leiklistargyðjunni á vald og hafði leiklist að lífsstarfi. Í Þjóðleikhúsinu lék Bryndís uns hún lét af störfum fyrir aldurs sakir ef frá eru talin nokkur leikrit hjá LR auk þess að taka þátt í leikriti hjá LA. Hún hlaut viðurkenningu fyrir störf sín á 50 ára afmæli Þjóðleikhúss- ins. Á yngri árum fór hún á sumrum í margar leikferðir um landið. Bryndís var fjallkona 1959. Meðal minnisstæðra hlutverka Bryndísar við Þjóðleikhúsið eru Rósalind í Sem yður þóknast, Helga í Gullna hliðinu (’52 og ’55), Sybil í Einkalífi, Sigríður í Pilti og stúlku, Leónóra í Æði- kollinum, Ismena í Antígónu Anouhils, Essí í Er á meðan er, Sigrún í Manni og konu, Doris í Brosinu dularfulla, María mey í Gullna hliðinu, Júlía í Romanoff og Júlíu, Helena Charles í Horfðu reiður um öxl, Louise í Eftir syndafallið, Vala í Lausn- argjaldi, Enuice í Sporvagninum Girnd og Munda í Stalín er ekki hér. Síðast lék hún Helgu í Kaffi eftir Bjarna Jónsson, á Litla sviði Þjóðleikhússins árið 1998. „Komi þeir, sem koma vilja. Fari þeir sem fara vilja. Mér og mínum að meinalausu.“ Þetta er fyrsta setningin, sem flutt var í fyrstu frumsýningu Þjóðleikhúss- ins á „Nýársnóttinni“ árið 1950. Setninguna sagði mamma mín, Bryndís Pétursdóttir, þá rúmlega 21 árs að aldri. Og ég veit að hún tók þá, sem og alltaf, vel utan um orðin eins og hún hafði lært í Leik- listarskóla Lárusar Pálssonar á sínum tíma. Setningunni úr Ný- ársnóttinni gleymdi hún aldrei og fór síðast með í þarsíðustu viku. Og það var gert skýrt og vel. Mamma þoldi ekki muldur og ef hún heyrði slíkt þá fengu viðkom- andi skýr skilaboð um að það gengi ekki og þess háttar fyrir- lestra sat ég oft hjá henni. Þá sagði hún Sigurður en ekki Siggi. Loftur Guðmundsson kvikmyndaleikstjóri fór einu sinni á fund Arnar Johnson, forstjóra Flugfélags Íslands, og sagðist vera að leita að fallegri flugfreyju til að leika aðalhlutverk í fyrstu ís- lensku talsettu kvikmyndinni og Örn kynnti hann fyrir mömmu. Leiklistin var henni mikið en ekki síður fólkið hennar. Pabbi, bræður mínir, ég og fólkið okkar og aðrir ættingjar og vinir. Hún vildi allt og gerði allt sem hún gat fyrir okkur í orði og verki með skilyrð- islausri ást. Fór mörg aukaskref ef henni sýndist svo. Skólaljóðin las hún með mér sem barni og sum þeirra kann ég orðrétt enn þá og svo las hún með og fyrir mann á hverju kvöldi og sögurnar urðu einhvern veginn ljóslifandi í henn- ar túlkun. Hún sá um að ég lærði og ef vantaði betri stuðning t.d. í stafsetningu eða stærðfræði leit- aði hún lausna og fann þær. Ég á henni svo ótalmargt að þakka. Mamma var ákveðin og stefnu- föst. Einu sinni ók hún bifreið á Hringbrautinni og fór yfir á rauðu ljósi. Ég blánaði efalaust í framan og stundi upp: „Mamma, þú keyrðir yfir á rauðu ljósi.“ Þá svaraði hún strax: „Sigurður, það er aldrei rautt ljós hér.“ Hún fór á móti straumnum ef hún taldi þörf á en gerði hlutina með hjartanu, húm- or og á sinn hátt. Síðasta hláturs- kastið áttum við saman í þarsíð- ustu viku og hjúkrunarfræðingur á kvöldvaktinni í Sóltúni þurfti að koma inn í herbergið hennar til að biðja okkur að hafa lægra. Þá brostum við breitt. Á dánardegi mömmu í síðustu viku, í hádeginu, flaug Boeing 747, ein af uppá- haldsflugvélunum hans pabba, lágflug yfir Reykavíkurflugvöll með drunum og það er sjaldgjæf sjón. Þegar ég sá þetta og heyrði brosti ég út að eyrum og hugsaði glaður með mér: Nú er pabbi að ná í mömmu. Sigurður (Siggi). Elsku amma Dísa, alltaf tókst þú á móti okkur með hlýju og brosi á vör. Að koma í heimsókn til þín og afa Bassa var ævintýri lík- ast, maður gat auðveldlega villst innan sem utandyra á Sæbraut- inni. Sama hvaða tíma dags vorum við alltaf velkomin í sælgæti, síg- arettur og vindla. Þegar við mætt- um varst þú auðvitað búin að setja rúllur í hárið, henda í einn appels- ínu kjúkling og rölta út í Hagkaup og kaupa bakkelsi „hjá strákun- um“ eins og þú sagðir alltaf. Þegar jólin nálguðust stjórnað- ir þú laufabrauðs gerðinni í Hjall- anum og auðvitað átti pabbi alltaf fallegustu skreytinguna ár eftir ár. Alltaf varst þú til í að grípa í spilin með okkur þegar við kom- um í heimsókn. Sama hvað gekk á passaðir þú uppá að við fengum engar skammir þegar þú heyrðir til og gerðir þig stóra til að passa uppá okkur ef þess þurfti. Þú varst alltaf til staðar og lagðir það ekki fyrir þig að skutl- ast með okkur hvert sem er ef þess var óskað. Þessir bíltúrar tóku sinn tíma en eru okkur svo dýrmætir í minningunni. Í seinni tíð fengum við ófá sím- töl sem enduðu í bíltúr út á Nes til að hjálpa þér með sjónvarpið og fjarstýringuna, sem átti það til að flækjast fyrir þér, því ekki máttir þú missa af dagskrá kvöldsins. Alltaf varst þú svo glæsileg, fórst aldrei út úr húsi nema vel til höfð og þín einstaka orka heillaði alla sem á vegi þínum varð. Þú sast aldrei á þínum skoðunum, hreinskilin og sagðir alltaf ná- kvæmlega það sem þú varst að hugsa. Stundum var það óheppi- legt en oft gátum við hlegið mikið af því. Okkur þykir ótrúlega vænt um að þú hafir kynnt okkur fyrir leik- húsinu og töfrum þess, tókst okk- ur baksviðs og lést eins og þú ætt- ir staðinn meðan þú kynntir okkur sérstaklega fyrir öllum sem við hittum í Þjóðleikhúsinu. Þér var annt um að við töluðum skýrt og lagðir áherslu á það við okkur. Sögurnar og minningarnar sem rifjast upp eru endalausar. Þín verður sárt saknað elsku besta amma Dísa og munum við alltaf hugsa til þín með hlýjunni og bros- inu sem þú tókst á móti okkur með. Þú, Guð, sem stýrir stjarnaher og stjórnar veröldinni, í straumi lífsins stýr þú mér með sterkri hendi þinni. Stýr mínu fari heilu heim í höfn á friðarlandi, þar mig í þinni gæslu geym, ó, Guð minn allsvaldandi. (Valdimar Briem) Haraldur Fannar, Bryndís og Leó Snær. Amma mín er án efa ein magn- aðasta manneskja sem ég hef kynnst. Hún kenndi mér margt. Þegar ég var í menntaskóla sat ég einu sinni í sögutíma. Í tímanum var verið að fara yfir seinni heims- styrjöldina. Kennarinn spurði okkur nemendurna hvort eitt- hvert okkar kynni þýsku? Ég svaraði fljótt: „Já, ég er svona mellufær í þýsku.“ Kennarinn fékk hláturskast og spurði hver hefði kennt mér þetta orðalag. Ég svaraði: „Jú amma mín kenndi mér þetta.“ En orðið er ekki það eina sem amma kenndi mér. Frá ungum aldri þurfti maður alltaf að mæta á réttum tíma annars kom þessi setning hjá henni: „Því ég hefði verið rekin úr leikhúsinu hefði ég ekki mætt tímanlega.“ Svo kenndi hún mér líka að standa á mínu. Þótt hún hafi kannski ver- ið fullþrjósk. Violet Crawley, sem Maggie Smith lék í sjónvarps- þáttaröðinni Downtown Abbey, sagði eitt sinn: „Ég rökræði ekki, ég útskýri.“ Þetta er dæmigert fyrir það sem hún amma mín hefði sagt. En svo var hún líka alltaf góð við mig, skutlaði mér út um allan bæ, var alltaf með jólaköku til- búna handa mér og sýndi mér aldrei neitt nema kærleika. Síð- ustu ár hennar fór hún að gleyma, en þótt hún vissi ekkert hver ég væri var hún alltaf góð við mig, sama hvað. Hún var eitt stykki magnað eintak og engum lík. Ég er búinn að ganga svo langt að fá mér húðflúr með orðinu amma. Því ömmur eru nefnilega lang- bestar. Kristinn Örn Sigurðsson. Eftir að ég áttaði mig á því að lífið væri ekki án enda hef ég kvið- ið því að amma myndi halda í Draumalandið. Hún átti inni- haldsríkt, gjöfult, langt og dásam- legt líf en var tilbúin að halda á stefnumót við afa Bassa á nýjum stað. Hún grínaðist með það að hún færi að fara og ég bað hana þá í guðanna bænum að vera ekki að taka upp á því og svo hlógum við. Góð kona benti á fyrir stuttu að við fólkið hennar yrðum að sleppa svo hún gæti farið en held að við höfum öll ríghaldið. Þótt söknuð- urinn leyni sér ekki þá er þakk- lætið alltumlykjandi. Forréttindi að fá að kalla þessa stórglæsilegu konu ömmu og betri fyrirmynd er ekki hægt að hugsa sér, hún hefur verið stoð mín og stytta alla tíð, en alltaf tilbúin að gleðjast. Amma kenndi margt gott og fallegt og fór fram með góðu fordæmi. Mátti ekkert aumt sjá, öfund var ekki til í hennar orðabók, gerði aldrei mannamun og að það dýrmætasta væri fólkið okkar. Í gegnum ömmu fékk ég að kynnast leikhúsinu og tækifæri til að fylgjast með æfingaferlinu og sjá leikhústöfrana verða til, fylgj- ast með alls staðar að úr leikhús- inu og síðast en ekki síst standa með henni á sviði í Fjalla-Eyvindi sem var líka fyrsta verkið sem amma sá í leikhúsi. Við lásum saman línur og hún veitti mér inn- sýn í vinnu leikarans en til að koma hlutverki til skila þarf að gjörþekkja sjálfan sig. Amma lýsti því að tilfinningin við að standa á sviði og ná tengingu við áhorfand- ann væri ólýsanleg en kæmist næst gæsahúð af hrifningu. Amma varaði mig við leikhúsinu sem ævistarfi þar sem samkeppn- in og harkan getur verið mikil, ég sé það nú að hún vildi vernda mig fyrir atriðum sem eru erfið í lífinu sjálfu en við förum ekki á mis við þótt starfssviðið sé annað. Ég skil vel að hún hafi viljað vernda mig því ég vil mínum börn- um það sama. Það er ekki tilviljun að elsti drengurinn minn heitir í höfuðið á þeim afa Bassa og eins litla Dísin mín. Við ferðuðumst oft saman og þá var mikið um að vera og lítill svefn en pössuðum að njóta stundarinnar eins og þegar við hlýddum á söngvara syngja á torgi „those were the days my friend, I thought they’d never end“ og óskaði þess svo heitt að þessir dagar okkar myndu ekki taka enda. Nú er mitt verkefni að vera öðr- um það sem elsku amma var mér; uppalandi, leiðbeinandi, sálusorg- ari, hvatning og dýrmæt vinkona. Það er okkar allra að varðveita minningu hennar með góðum gild- um, sögum og skemmtilegum til- svörum eins og henni var tamt. En hlutverkið er líka að segja frá dýpstu hjartarótum „takk fyrir að vera til“ við fólkið sem við elskum eins og hún. Elsku amma mín, það er með yfirmáta þakklæti sem ég kveð eina af mínum bestu vinkon- um með kvæði sem þú fluttir fyrir mig á einum af okkar síðustu fundum þegar við önduðum að okkur ferska loftinu, fengum rign- inguna í andlitið og ofurlitla skeið af sjeik. Blessuð sólin elskar allt, allt með kossi vekur, haginn grænn og hjarnið kalt hennar ástum tekur. Geislar hennar út um allt eitt og sama skrifa á hagann grænan, hjarnið kalt. Himneskt er að lifa! (Hannes Hafstein) Þín Hildur. „Dísa systir“ – þessi tvö orð ómuðu öll mín uppvaxtar- og full- orðinsár þar til fyrir skömmu og hljómur þeirra bar vitni um mikla elsku Ragnhildar móður minnar í garð litlu systur sinnar. Duglegu litlu systur sem hafði brotist úr viðjum og gert garðinn frægan. Á þeirra tíma vísu þótti hæfilegt að synirnir og elsta dóttirin gengju menntaveginn, ekki voru efni til annars. Miðjudótturinni móður minni þótti áberandi vænt um að Dísa hafði fylgt hjartanu og valið sér vettvang á sviði leiklistarinnar sem mátti í þá daga segja að væri jafnvel nokkuð utan alfaraleiðar fyrir unga stúlku úr sveit. Allt frá því að Dísa valhoppaði lítil hnáta um grundir á Vattarnesi við Fáskrúðsfjörð í stórbrotinni austfirskri náttúru og horfði til hafs á Skrúðinn var þessi knáa manneskja að sækja á og feta nýj- ar slóðir. Hún umbreytti sér úr sveitabarni í siglda og þenkjandi borgardömu. Yfir henni var tígu- leg ára heimskonunnar, hún var Grace Kelly litlu Reykjavíkur; sveiflaði ljósgullnum makkanum svo sígarettureykurinn þyrlaðist í allar áttir og lagaði faldinn á glæsilegum tískukjólnum, alltaf elegant og vakti athygli hvar sem hún fór. Hún vann hug og hjarta leikhúsgesta sem leikkona sem sópaði að frá fyrstu senu og vann einnig um hríð sem flugfreyja í ár- daga millilandaflugs landsmanna. Hún var fyrsta íslenska kvenfilm- stjarnan og lék í alls kyns leiksýn- ingum, kvikmyndum, sjónvarpi og útvarpsleikritum fram á efri ár. Þau Bassi heitinn, Örn Eiríks- son, áttu glæsilegt heimili þar sem andríki, samræða og menning skipuðu öndvegi. Í minningunni var þar aldrei lognmolla og synir Dísu og Bassa, þeir Eiríkur, Pétur og Sigurður, hafa borið andríkið áfram í sínu lífi, hver á sinn hátt. Dísa þekkti alla sem skiptu máli, þá sem voru á stóra sviðinu og fyrst og fremst skapandi fólk með hugsjónir og eldmóð sem lagði meginlínurnar í menningar- lífi og arfleifð okkar þjóðar. Hún tók drjúgan þátt í þeirri uppbygg- ingu og var skapandi og starfandi alla tíð. Ég var satt að segja dauð- hrædd við Dísu frænku þegar ég var barn. Mér fannst hún svo glæsileg og ósnertanleg, jafnvel af öðrum heimi. Henni fylgdi lang- oftast klingjandi hlátur og léttur þytur, ilmvatnsangan, flýtir. Hún var ákveðin í tali, dvaldi ekki við það sem henni þótti ómerkilegt og lokaði málefnum með konkret yf- irlýsingum. Ég hafði ekki roð í að tala við hana. Ekki fyrr en ég var komin til vits og ára og áttaði mig á að hún vildi viðnám og þá fund- um við snertiflöt sem varð grunn- ur að áralangri hlýju á milli okkar. Mamma mín sagði mér margt um líf þeirra systkina fyrir austan til ársins 1933 og við Dísa dvöldum þar gjarnan í samræðum síðustu árin og skemmtum okkur hið besta. Hún elskaði Fljótsdalshér- að með Gunnhildargerði í Hróars- tungu og austfirsku firðina fögru, upprunastaðurinn var einstakur og bjartur í hennar huga. Þessi fastastjarna á himni mín- um er nú hnigin til viðar, síðust af systkinunum, daginn fyrir nítug- asta og annað afmæli sitt. Heiðruð og blessuð sé minning hennar. Ég votta kærum frændum mínum og fjölskyldum mína dýpstu samúð. Steinunn Ásmundsdóttir. Ég minnist Bryndísar frænku minnar fyrst þegar Þjóðleikhúsið fór í leikferð um landið, kannski fyrir svona 60 árum. Þá kom hún við á æskuheimili mínu með allan leikhópinn í rútu. Veggspjald með auglýsingunni um leikritið var sett á fjárhúsið. Man eftir hvað ég, stelpukrakkinn, var stolt af að eiga svona glæsilega frænku. Síðar kynntist ég henni betur þegar við bjuggum nálægt hvor annarri á Seltjarnarnesinu. Fór þá stundum í kaffi til hennar. Hún var með eindæmum frændrækin. Þessar stundir voru mjög gefandi og engin lognmolla. Ekkert var henni óviðkomandi. Leikhúsið lif- andi fyrir henni. Hún dáðist að mörgum yngri leikurunum en bætti við: „Þetta unga fólk kann ekkert í framsögn, það bara muldrar.“ Hvöss og gagnrýnin og með kímnigáfu. Ég man söguna af frændanum úr Vesturheimi sem heimsótti Ísland. Bryndís vildi keyra með hann á Gullfoss en frændinn sagði: „I have seen Ni- agara falls.“ Sá sem þekkti frænku mína getur ímyndað sér hvort þetta hafi fallið í kramið. Við hjónin urðum líka þeirrar gleði aðnjótandi að hún varð okk- ur samferða til Lúxemborgar en þar átti Hildur, sonardóttir henn- ar, heima um árabil. Samband þeirra var fallegt og sterkt. Bryndís frænka mín var glæsi- leg kona, henni verður best lýst með slettunni „elegant“. Á öðrum tímum en hún lifði á ferli sínum hefði henni örugglega hlotnast meiri frami. Stundum upplifði ég að hún hefði gjarnan viljað hafa hlutina öðruvísi en hún var fljót að beina samræðunni inn á jákvæð- ari brautir. Blessuð sé minning hennar. Ættingjum votta ég innilega samúð. G. Bergþóra Karlsdóttir. Á enga hygg ég sé hallað þótt ég segi að svipmeiri og glæsilegri konu efri ára hefi ég ekki augum litið heldur en Guðlaugu frænku mína Sigmundsdóttur frá Gunn- hildargerði. Það sópaði að henni er hún bar íslenska þjóðbúninginn svo sem vera ber, með reisn og af virðuleika. Aldrei varð ég þeirra forréttinda aðnjótandi að sjá Bryndísi dóttur hennar á íslensk- um búningi en ljósmynd hefur borið mér fyrir augu sem staðfest- ir að ofangreindir eiginleikar móð- urinnar erfðust með sóma. Og annað sem ekki var síðra: Lífsfjör og drifkraftur sem af bar. Góður maður sagði eitt sinn að ávallt skyldum við minnast fólks eins og það var þegar það skartaði sínu besta. Þeim orðum trúr get ég sagt að fáar manneskjur hefi ég hitt um dagana sem bjuggu að slíkri lífsorku og fjöri sem Bryndís Bryndís Pétursdóttir Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.