Morgunblaðið - 01.10.2020, Síða 41
MINNINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
vinnusnillings. Hún var alltaf með
prjónana á lofti og prjónaði heil
ósköp ásamt því að hekla og
sauma.
Amma saumaði nærri því öll föt-
in sín sjálf. Hún var ekkert að
stressa sig á uppskriftum heldur
breytti og bætti eins og henni einni
var lagið. Amma var mjög nýtin og
henni þótti gaman að sjá hversu
lengi og hvort spottarnir myndu
duga þegar hún til dæmis prjónaði
vettlinga.
Útkoman hjá ömmu var alltaf
stórskemmtileg og oftast nær
öðruvísi. Í Hellulandinu voru
amma og afi með flottar og litríkar
bútasaumsgardínur sem amma
hafði að sjálfsögðu búið til. Ég man
að amma saumaði líka fallegar
páskahænur handa okkur barna-
börnunum. Í þær fór smávegis af
sælgæti og málsháttur sem amma
hafði skrifað.
Hún amma var algjör föndrari
og man ég vel eftir heimagerðu af-
mæliskortunum sem við krakkarn-
ir fengum. Afi fór síðan að skrifa í
þau vísur sem hann hafði gert.
Ég geymi öll þessi kort og minn-
ist ömmu með hlýhug og söknuði.
Sköpunargleði ömmu fékk að
skína í starfi hennar sem grunn-
skólakennari á yngsta stigi. Ég
man að mamma talaði oft um hvað
það hafi verið gaman að alast upp
hjá kennara. Amma prófaði þannig
ýmis föndurverkefni á þeim systk-
inum áður en hún notaði verkefnin
í skólanum. Við barnabörnin nut-
um líka góðs af þessu.
Ég er sú eina af barnabörnun-
um sem fetaði í fótspor ömmu og
afa og fór í kennaranám. Þegar
amma og afi fluttu úr Hellulandinu
var ég svo heppin að fá mjög mörg
föndurverkefni og kennslugögn
frá ömmu sem ég mun án efa nota í
mínu starfi sem kennari.
Mér þykir mjög vænt um að litli
sonur minn hafi náð að hitta lang-
ömmu sína tvisvar sinnum. Þó svo
að hann komi ekki til með að muna
eftir því þá mun ég segja honum
frá langömmu sinni og hversu ynd-
isleg hún var.
Elsku amma mín ég mun alltaf
sakna þín og koma til með að minn-
ast þín. Eins og segir í laginu Rós-
inni:
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei, það er minning þín.
(Guðmundur G. Halldórsson)
Takk fyrir allt.
Þín
Gerður.
Mig langar að minnast Karenar
systur minnar með nokkrum orð-
um. Hvað getur öldungur á tíræð-
isaldri með skert minni sagt um
systur sína? Við höfum fylgst að í
gegnum lífið í hartnær 90 ár. Mér
eru hugstæð æskuárin okkar í
Skerjafirði en þar áttum við mörg
mjög góð ár. Kara, eins og hún var
oftast kölluð, var ljúflingur fjöl-
skyldunnar, hugulsöm og vel skapi
farin. Henni var handlagni í blóð
borin. Ég minnist Köru, hvernig
hún leit upp til stóra bróður. Þetta
varð til þess að hún var stundum
kölluð „litli Maffi“. Í tímans rás
hefur þetta glatt gamla manninn.
Ekki man ég gjörla okkar samleiki
á þessum árum enda ólík áhuga-
mál vegna aldursmunar en hún var
sex árum yngri. Af mörgu er að
taka er kemur að ævi og störfum
Köru, sem ég mun ekki tíunda hér.
Á réttum tíma ævinnar fann Kara
sinn draumaprins, Þorvald. Karen
og Þorvaldur áttu farsælt hjóna-
band, myndarleg börn og barna-
börn.
Á liðnum árum hefur margt
gagnlegt og skemmtilegt rekið á
fjörur okkar fjölskyldna. Mig lang-
ar aðeins að lokum að draga hér
fram til sögunnar raðhús, sem þau
Þorvaldur og Karen reistu sér í
Hellulandi 20 í Fossvogi, en ég
teiknaði húsið og Vilhjálmur faðir
okkar Köru byggði það og lagði
þar til sína smíðasnilld. Þetta verk-
efni var mér mjög kært.
Við Erla vottum Þorvaldi og
fjölskyldu innilega samúð á þessari
kveðjustund.
Manfreð Vilhjálmsson.
✝ GuðmundurGuðlaugsson
fæddist í Stóra-
Laugardal í Tálkna-
firði 3. ágúst 1931.
Hann lést á Hrafn-
istu í Reykjavík 19.
september 2020.
Foreldrar hans
voru Guðlaugur
Guðmundsson, f.
29.1. 1900 á Krossi
á Skarðsströnd, d.
28.2. 1988, og Hákonía Jóhanna
Pálsdóttir, f. 4.8. 1907 á Hamri á
Barðaströnd, d. 24.3. 1998.
Systkini hans eru Arnbjörg, f.
17.6. 1930, d. 19.8. 1998, Þórður,
f. 10.6. 1933, Páll, f. 6.11. 1935,
Jóna, f. 6.8. 1937, Helga, f. 25.8.
1940, d. 29.4. 1941, Sigrún
Helga, f. 7.8. 1942, og Margrét, f.
9.4. 1950, d. 10.1. 2018.
Guðmundur ólst upp í Stóra-
Laugardal á stóru og gest-
kvæmu heimili sem jafnframt
var kirkjustaður. Hann sótti
barnaskóla á Bakka í Tálknafirði
og síðar Héraðsskóla Vestfjarða
á Núpi. Guðmundur byrjaði ung-
ur til sjós eins og algengt var á
þeim tíma. Samhliða sjómennsk-
unni aðstoðaði hann við búrekst-
ur föður síns í Stóra-Laugardal
og kom hann árlega í heyskap og
réttir allt þar til búskap lauk þar
í kringum 1980.
Þann 31.12. 1960 kvæntist
Guðmundur Jóhönnu Pálsdóttur,
f. 24.10. 1932. Þau Guðmundur
og Jóhanna hófu búskap sinn í
Reykjavík og bjuggu þau alla
sína tíð í Laugarneshverfinu.
Börn þeirra eru:
1) Páll Ragnar, f. 21.2. 1959,
giftur Guðrúnu Björk Bjarna-
dóttur, börn þeirra
eru Jóhanna Björk,
f. 24.1. 1989, Arnór
Ingi, f. 24.1. 1993,
og María Björk, f.
29.8. 2001.
2) Hákonía Jó-
hanna, f. 8.3. 1963,
börn hennar eru
Guðmundur Andri
Garðarsson, f. 23.7.
1987, og Rebekka
Rakel Hákoníu-
dóttir, f. 17.6. 2004.
3) Elín Bryndís, f. 17.6. 1972,
gift Gretti Hreinssyni, f. 29.11.
1966, börn þeirra Andrea Mist, f.
10.11. 2005, Felix Óttar, f. 19.3.
2008, Dagmar Hrönn, f. 17.1.
2010.
4) Guðlaugur Skúli, f. 29.8.
1973, giftur Elizabeth Sargent, f.
24.7. 1979, börn þeirra Elinor
Vigdís, f. 16.4. 2010, Victoria
Bryndís, f. 7.6. 2013 og Davíð
Edward, f. 20.5. 2017.
Eftir að Guðmundur hætti sjó-
mennsku starfaði hann lengst af
hjá Eimskip þar sem hann var
verkstjóri í vöruskemmum fyrir-
tækisins, m.a. í Sundagörðum,
Borgartúni, Grandagarði og í
Faxaskála.
Síðustu fimm ár ævi sinnar
dvaldi Guðmundur á öldr-
unarheimili Hrafnistu í Laug-
arási.
Jarðarförin fer fram í Laug-
arneskirkju í dag, 1. október
2020, kl. 13. Vegna aðstæðna í
samfélaginu er athöfnin ein-
ungis fyrir nánustu fjölskyldu en
henni verður streymt á youtu.be/
DDGU6hpIM-c.
Virkan hlekk má nálgast á
www.mbl.is/andlat.
Elsku afi, við barnabörnin
dvöldum mikið hjá ykkur ömmu
þegar við vorum yngri, einkum
þau eldri okkar. Á Hofteignum
var ýmislegt brallað, við spil-
uðum, lituðum, föndruðum,
lærðum að tefla, horfðum á
barnaefni og gerðum ýmislegt
annað skemmtilegt með ykkur.
Við vorum oft í mat og eru okk-
ur í fersku minni vöfflurnar,
pönnukökurnar, kjötbollurnar,
slátrið, kakósúpan og annar
heimilismatur sem minna var
um á okkar eigin heimilum.
Okkur eru minnisstæðar sum-
arbústaðaferðirnar, utanlands-
ferðirnar og ferðir í sveitina
hans afa í Stóra-Laugardal, þar
sem honum sem og okkur leið
mjög vel. Þar gerðist ýmislegt
sem við borgarbörnin þekktum
ekki t.d. þegar farið var með
bein og matarleifar upp á ákveð-
inn stein fyrir ofan bæinn til að
gefa krumma og eftir það höfum
við litið þennan fugl öðrum aug-
um. Einnig munum við vel eftir
því þegar afi stóð úti á tröpp-
unum í Stóra-Laugardal og kall-
aðist á við tófuna og hún svaraði.
Við kynntumst lítið starfsævi
afa en fréttum þó að hann hafi
a.m.k. tvisvar lent í sjávarháska
þegar hann var ungur. Þegar afi
var 21 árs var hann á togaranum
Gylfa frá Patreksfirði sem
kviknaði í úti fyrir Snæfellsjökli.
Togarinn Fylkir bjargaði áhöfn-
inni og dró brennandi togarann
til hafnar í Reykjavík.
Síðar þegar afi var 25 ára var
hann á fyrrnefndum Fylki sem
sökk eftir að hafa fengið tund-
urdufl í vörpuna. Þá varð einnig
mannbjörg, áhöfninni tókst að
komast í björgunarbát en skipið
sökk á einungis 15 mínútum.
Afi sagði okkur hvernig þið
amma kynntust en vinkona
ömmu setti auglýsingu í Vikuna
þar sem óskað var eftir bréfa-
sambandi við pilta á aldrinum
18-25 ára og skyldi mynd fylgja.
Þetta hefur verið “Tinder“ þess
tíma. Auglýsingin bar árangur,
ömmu hefur litist vel á myndina
og þið náðuð saman í Reykjavík
að lokum. Á þeim tíma bjuggu
afi og amma hvort í sínum
landsfjórðungnum og erfitt um
samgöngur en afi tók sig til
ásamt bróður sínum og keyrði í
Willys-jeppanum sínum frá
Tálknafirði alla leið í Meðalland-
ið til að líta þessa ungu snót
augum. Þegar á hólminn var
komið brast hins vegar kjark-
urinn þannig að þau hittust ekki
í það sinnið.
Á tímabili sótti afi sundlaug-
arnar reglulega, synti mikið og
stundaði þar leikfimi. Um helgar
var þá gjarnan farið snemma
dags og þá var keppst um hver
væri fyrstur til að stinga sér í
laugina. Hann sótti námskeið í
skriðsundi og tók nokkrum sinn-
um þátt í Kópavogssundinu sem
efnt var til árlega um aldamótin.
Hann var mikill göngumaður og
umtalað var þegar hann gekk í
fararbroddi upp á Fagramúla
við Stóra-Laugardal í stígvélum,
þá rúmlega sjötugur. En ekki
fer eins miklum sögum af dugn-
aði í verslunarmollum erlendis,
þar var áhuginn minni og í
minningunni sat afi gjarnan á
bekk miðsvæðis og tók við og
gætti þess sem við börnin og
foreldrar okkar keyptum.
Afi var glaðlyndur og mjög
athugull. Hann fylgdist vel með
sínu næsta nágrenni, stóð
löngum við eldhúsgluggann og
fylgdist með bílnum sínum og
mannaferðum. Ef e-ð breyttist í
okkar útliti, hvort sem það var
ný klipping eða annað smávægi-
legt, tók afi fyrstur eftir því. Afi
sá mjög vel og heyrðum við að
hann hafi á yngri árum þekkt
kindur í fjallshlíð þar sem aðrir
sáu ekki neitt. Afi var einnig oft
að gauka að okkur peningum og
öðru góðgæti sem hann bað okk-
ur um að fara vel með og ekki
auglýsa.
Elsku afi, takk fyrir allt. Takk
fyrir að hafa verið okkur svona
góður, takk fyrir að hafa alltaf
verið til í faðmlag og að leiða
okkar hendur, takk fyrir að vera
frábær fyrirmynd, takk fyrir all-
ar samverustundirnar og takk
fyrir hversu vel við fundum að
við vorum elskuð. Elsku afi hvíl
þú í friði.
Fyrir hönd barnabarna,
Jóhanna Björk Pálsdóttir.
Guðmundur
Guðlaugsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
stuðning vegna andláts og útfarar okkar
ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður
og afa,
BALDVINS KRISTJÁNSSONAR,
Smáragrund 14,
Sauðárkróki.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Landspítalans á 11G fyrir hlýja
og góða umönnun, sem og starfsfólk Sauðárkrókskirkju fyrir
þeirra velvild.
Jóna Björg Heiðdals
Kristján Baldvinsson Karen Emilía Jónsdóttir
Róbert Páll Baldvinsson
Margrét Baldvinsdóttir Jón Svanur Sveinsson
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
TRYGGVI PÁLL FRIÐRIKSSON
listmunasali,
sem lést þriðjudaginn 7. apríl, verður
jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn
2. október klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á HSSR og Landsbjörg.
Athöfninni verður streymt á: https://bit.ly/3cEkJEq
Elínbjört Jónsdóttir
Margrét Tryggvadóttir Jóhann Ágúst Hansen
Elín Tryggvadóttir Guðjón Guðmundsson
Friðrik Tryggvason Sóley Bjarnadóttir
og barnabörn
Okkar ástkæri
STEINGRÍMUR SIGURJÓNSSON
húsasmíðameistari
og byggingafræðingur
lést á heimili sínu sunnudaginn
27. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Sveinn Geir og Kristinn Sigurjónssynir
og afkomendur Steingríms
Elsku pabbi okkar, afi, tengdafaðir
og langafi,
SVANUR BJARKAR AUÐUNSSON,
Dvergasteini, Álftafirði,
lést þriðjudaginn 22. september.
Útför hans fer fram frá
Fella- og Hólakirkju 7. október klukkan 13.
Karl Jörundsson Michelle Garnado Jörundsson
Eyrún Björk Svansdóttir Gunnar Gylfason
Ólafía Erla Svansdóttir
Glódís, Marteinn, Hugrún, Svanur,
Steinunn, Annika og Tumi
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN STEFANÍA
BRYNJÓLFSDÓTTIR,
Daltúni 2, Kópavogi,
lést í faðmi fjölskyldunnar fimmtudaginn 24.
september á Landspítalanum Kópavogi.
Útför hennar fer fram frá Hjallakirkju þriðjudaginn 6. október
klukkan 13.
Hildur Brynja Andrésdóttir Egill Örn Petersen
Páll Jakobsson
Linda María, Guðrún Lilja og Róbert Nökkvi,
Jakob Felix og Andrea Arna
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÚLÍUS KRISTJÁNSSON,
fyrrverandi framkvæmdastjóri,
Dalvík,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Dalbæ,
Dalvík, fimmtudaginn 17. september.
Útför hans fer fram í Dalvíkurkirkju laugardaginn 3. október
klukkan 13.30, að viðstöddum nánustu ættingjum og vinum.
Streymt verður frá athöfninni á fb-slóðinni: Jarðarfarir í
Dalvíkurkirkju.
Ragnheiður Sigvaldadóttir
Sigvaldi, Kristján Þór, Ásgeir Páll
tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar,
ÞÓRU HALLGRÍMSSON.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
Landakots, deildar L2, og hjartadeildar
Landspítalans fyrir góða umönnun.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Björgólfur Guðmundsson
Sálm. 86.11
biblian.is
Vísa mér veg þinn,
Drottinn, að ég
gangi í sannleika
þínum, gef mér
heilt hjarta, að ég
tigni nafn þitt.
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Elskulegur bróðir okkar,
ÍSAK ÞORBJARNARSON
frá Mel í Þykkvabæ,
Grandavegi 39, Reykjavík,
lést 21. september.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 7. október klukkan 13.
Skarphéðinn Haraldsson
Guðmundur Haraldsson Eyrún Óskarsdóttir
Rannveig Haraldsdóttir Guðmundur Smári Guðmunds.
Kolbrún Haraldsdóttir Magnús Ívar Þorvaldsson