Morgunblaðið - 01.10.2020, Síða 53

Morgunblaðið - 01.10.2020, Síða 53
MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI AÐRAR MYNDIR Í SÝNINGU: * Harry Potter * Hvolpasveitin (ísl. tal) * The Secret : Dare to dream * The New Mutants SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Frábær ný teiknimynd fyrir alla fjölskylduna. FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS Nýjasta Meistaraverk Christopher Nolan    The Guardian The Times The Telegraph Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Lífið á eyjunni, Island Living á ensku, nefnist stuttmynd sem frum- sýnd var á Alþjóðlegri kvikmynda- hátíð í Reykjavík, RIFF, um síðustu helgi og er nú hægt að leigja á vef hátíðarinnar, riff.is, á meðan á henni stendur. Leikarinn og kvikmynda- gerðarmaðurinn Atli Óskar Fjalars- son framleiddi myndina og skrifaði handrit hennar með Viktori Sigur- jónssyni og Apríl Helgudóttur en Viktor leikstýrði henni. Myndin er 30 mínútur að lengd og fjallar um ungan dreng sem smíðar sér trommusett úr rusli og stofnar hljómsveit með vini sínum en í mynd- inni má heyra þekkta tónlist frá átt- unda og níunda áratugnum því drengurinn finnur gamalt kassettu- tæki móður sinnar og kemst í tæri við slíka tónlist. Myndinni er ætlað að vekja athygli á málefnum drengja, geðheilsu þeirra, félagslegri ein- angrun og bágri stöðu í skólakerfinu og vonast höfundar til þess að hún veki umræður um þau mál og leiði til breytinga. Stuttmyndin var unnin í samstarfi við ADHD-samtökin, Geð- hjálp, Eitt líf, Öryrkjabandalag Ís- lands, Olnbogabörnin og Allir gráta. Tvíræður titill „Það er pínu tvíræðni í þessu. Þetta er auðvitað eyjan okkar allra, Ísland, en þetta vísar til þess að strákar eru svolítið einir á sinni eigin eyju í lífinu, eru svolítið einangraðir oft. Þetta er lífið á eyjunni, þinni eig- in eyju,“ segir Atli um titil myndar- innar. Strákar eigi erfiðara með að opna sig og lesa eigin tilfinningar, til- finningalæsið sé lélegt hjá þeim. – Er þá hugmyndin að sýna mynd- ina í skólum? „Já, við erum náttúrlega bara kvikmyndagerðarmenn og gerðum það sem við gerum best, að búa til kvikmyndir, og hvað sem kemur svo út úr því er svolítið úr okkar hönd- um. Ég held samt að sýna eigi mynd- ina sem hluta af RIFF í öllum skól- um landsins og það er mjög jákvætt,“ svarar Atli. Aðalsögu- persónur myndarinnar, drengirnir tveir, verða helteknir af rokki og poppi frá áttunda og níunda áratugn- um og segir Atli að í stuttmyndinni sé þroskasaga þeirra sögð að miklu leyti í gegnum þessa tónlist. Dreng- irnir fara að prófa sig áfram í tón- listarsköpun og setja stefnuna á hæfileikakeppni sem er hápunktur myndarinnar. Krúttleg vinátta Atli er spurður að því upp úr hverju þessi saga hafi sprottið, hver hafi átt hugmyndina. „Það var Vikt- or, leikstjórinn. Hann var staddur í strætó, sá þar tvo drengi og þótti vin- átta þeirra svo krúttleg og sæt og langaði að skoða vináttu stráka því hún er svo falleg. Upp úr því spratt þessi hugmynd og við unnum hand- ritið saman og úr varð þessi mynd,“ svarar hann. Atli segir þá Viktor báða hafa glímt við ADHD í æsku og við skóla- kerfið sem hafi ekki náð utan um slík börn. Atli og Viktor eru á svipuðum aldri, Atli fæddur árið 1992 og Viktor tveimur árum fyrr. Atli segir þá hafa langað til að gera mynd sem væri gagnrýnin á skólakerfið. „Kerfið var alveg eins og það er í dag. Við erum ennþá í 140 ára gömlu menntakerfi, það hefur ekkert breyst og ég held að hrista þurfi upp í því og gera eitt- hvað,“ segir Atli. Útrás fyrir sköpunargleði – Þú ert lærður leikari, hafði það eitthvað að gera með ADHD að þú valdir það fag? „Já, ég held að það hafi klárlega verið útrás fyrir sköpunargleðina og þessa orku sem ég var með. Það spil- aði klárlega inn í og svo er fullt af fólki sem ég þekki sem var alveg jafnskapandi og jafnmiklir ADHD- pésar sem náðu ekki að finna sinn farveg og beina þessari orku í ein- hvern skapandi grunn. Það er mjög sorglegt og ég held að hjálpa þurfi þessu fólki við að finna sinn vettvang til að geta tjáð sig,“ svarar Atli. Atli er ekki hættur að leika þó hann hafi snúið sér í auknum mæli að kvikmyndagerð. Hann leikur í kvik- myndinni Skuggahverfið sem frum- sýnd var á RIFF fyrr í vikunni og hægt er að leigja á vef hátíðarinnar, riff.is, líkt og Lífið á eyjunni sem er í stuttmyndapakkanum Íslenskar stuttmyndir II. Á krana Stilla úr stuttmyndinni Lífið á eyjunni sem sýnd er í leigu RIFF þessa dagana í stuttmyndapakka. Samstarfsmenn Atli Óskar Fjalarsson og Viktor Sigurjónsson. Strákar einir á sinni eyju  Stuttmyndin Lífið á eyjunni er á dagskrá RIFF  Ætlað að vekja athygli á málefnum drengja, geðheilsu, félagslegri einangrun og stöðu í skólakerfinu Sjónvarpsþáttaröðin Ráðherrann var tilnefnd til sjónvarpsverðlaun- anna Venice TV Awards sem veitt voru í Feneyjum í fyrradag. Verð- launin eru veitt árlega fyrir framúr- skarandi sjónvarpsefni framleitt á árinu en sýningar hófust á Ráðherr- anum á RÚV 20. september. Segir í þáttunum frá Benedikt Ríkharðs- syni, formanni Sjálfstæðisflokksins, sem tekur við embætti forsætisráð- herra og fara einkenni geðhvarfa að koma fram í fari hans og hegðun skömmu síðar. „Það er virkilega ánægjulegt hve góðar viðtökur þættirnir eru að fá í Evrópu, fyrir stuttu var tilkynnt um tilnefningu á PRIX Europa. Þætt- irnir hafa fengið góðar viðtökur í Belgíu þar sem sýningar hófust í síð- ustu viku,“ er haft eftir Hilmari Sig- urðssyni, forstjóra Sagafilm og ein- um framleiðenda Ráðherrans, í tilkynningu. Þáttaraðirnar Peaky Blinders, Catherine the Great, Bar- on Noir, Hierro, Eagles, Charité 2 og sigurvegarinn The New Pope voru tilnefndar með Ráðherranum en tilkynnt var um sigurvegara á sama tíma og tilnefningarnar voru kynntar. Í dómnefnd hátíðarinnar sátu meðal annars Sonia Rovai, yfir- maður leikins efnis hjá Sky Italia; dr. Markus Schäfer, framkvæmda- stjóri All3Media í Þýskalandi og Hollandi, og Michael Gray, framleið- andi hjá BBC. Leikstjórar Ráðherrans eru Nanna Krisín Magnúsdóttir og Arn- ór Pálmi Arnarson og með hlutverk ráðherrans fer Ólafur Darri Ólafs- son. Ráðherrann tilnefndur Ráðherrann Ólafur Darri Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.