Morgunblaðið - 01.10.2020, Side 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. OKTÓBER 2020
Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður
Við erum hér til að aðstoða þig! --
• Sérsmíðaðir skór
• Skóbreytingar
• Göngugreiningar
• Innleggjasmíði
• Skóviðgerðir
Erum með samning við
sjúkratryggingar Íslands
Tímapantanir í síma 533 1314
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Í núverandi ástandi er sveigjanleiki
lykilorðið og jafnframt reynir mikið
á að koma auga á tækifærin í stöð-
unni. Meðan faraldurinn gengur yfir
og við vitum ekki hvort og hvenær
hægt verður að sýna fyrir fullu húsi,
vegna fjarlægðar- og fjöldatakmark-
ana, munum við ekki freista þess að
setja upp stórar klassískar sýningar
með tilheyrandi áhættu, enda myndi
það rekstrarmódel ekki ganga upp
miðað við hversu mikið við leggjum í
okkar uppfærslur. Það er hins vegar
ýmislegt sem við getum gert án þess
að hafa fullskipaða sali,“ segir Stein-
unn Birna Ragnarsdóttir, óperu-
stjóri Íslensku óperunnar, um kom-
andi starfsár. Nefnir hún í því
samhengi ýmsar tónleikaraðir og
sviðsetta tónleikauppfærslu á borð
við Valkyrjuna sem fresta þurfti um
tæpt ár í vor.
Starfsárið hófst í byrjun septem-
ber þegar tvær tónleikaraðir
Íslensku óperunnar hófu göngu sína.
Annars vegar Kúnstpása sem verður
að vanda einu sinni í mánuði í
þriðjudagshádegi þar sem einsöngv-
ari flytur óperuaríur og sönglög
ásamt píanóleikara áhorfendum að
kostnaðarlausu. Hins vegar ný tón-
leikaröð sem nefnist Söngskemmtun
og verður á völdum laugardögum kl.
16. Kristinn Sigmundsson reið á
varðið á Kúnstpásu og eftir munu
fylgja Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir,
Sigrún Pálmadóttir, Davíð Ólafsson,
Karin Björg Torbjörnsdóttir, Sigríð-
ur Ósk Kristjánsdóttir, Björk Níels-
dóttir og Áslákur Ingvarsson. Elmar
Gilbertsson var fyrstur til að syngja
á Söngskemmtun og á næstu tón-
leikum kemur Stuart Skelton fram
ásamt Bjarna Frímanni Bjarnasyni.
Gefið dýrmætt áhrifavald
„Þessar tvær tónleikaraðir eru
hluti af því sem ég vil gera meira af
meðan faraldurinn gengur yfir.
Þetta eru einfaldari viðburðir sem
hægt er að bjóða upp á hvar sem við
erum stödd í litakóða almannavarna.
Ég er mér mjög meðvituð um hvað
hlutverk listastofnanna er mikilvægt
á þessum krefjandi tímum sem við
erum að fara í gegnum því okkur er
gefið dýrmætt áhrifavald til þess að
breyta lífsgæðum og líðan fólks til
hins betra. Það er mjög mikilvægt að
við förum vel með þá ábyrgð og leit-
um allra leiða til að skapa tækifæri
til að létta fólki lífið og gera sem
flestum kleift að komast í gegnum
þetta eins farsællega og mögulegt er.
Tónlistin og þá sérstaklega söng-
urinn er það sem gefur lífinu tilgang
og linar þrautir og mótlæti þeirra
sem mest þurfa á að halda.
Það má nefnilega ekki vanmeta
andlega þáttinn, líðan fólks og lífs-
gæði þegar framtíðinni, eins og við
þekktum hana, er allt í einu aflýst
eða í það minnsta frestað með til-
heyrandi álagi. Óvissan er vissulega
mikill áhrifavaldur í okkar starfsemi
en í henni felast líka mikil tækifæri
og að mörgu leyti frelsi frá venjum
og hefðum sem í einhverjum til-
fellum var alveg tímabært að endur-
skoða. Við þurfum að segja sögur
sem fólk tengir við hvenær sem þær
eru skapaðar og mynda þannig per-
sónuleg tengsl við áhorfendur, enda
sýnir sagan að þær listastofnanir
sem samfélög og þjóðir eru stoltar af
eru þær sem vegnar vel og eiga sér
bjarta framtíð fyrir höndum,“ segir
Steinunn Birna og bendir á að þriðja
viðburðaröð starfsársins sé enn í
mótun.
Listrænir sálarbræður
„Ég sé fyrir mér að bjóða upp á
valdar senur úr óperum sem svið-
settar væru að hluta. Mér finnst
mikilvægt að við bjóðum gestum
okkar upp á sömu listrænu gæðin
þótt umfangið þurfi eðli málsins sam-
kvæmt að vera minna um þessar
mundir,“ segir Steinunn Birna og
bendir á að hennar listræna sýn hafi
ávallt verið sú að hrófla lítið við
klassísku verkunum og leggja frem-
ur áherslu á endursköpun óperu-
formsins með nýjum verkum.
„Við erum þannig mjög stolt af því
að vera búin að panta næstu óperu
frá Daníel Bjarnasyni höfund óper-
unnar Brothers sem er stórkostlegt
meistaraverk. Nýju óperuna vinnur
hann í samstarfi við kanadíska
líbrettistann Royce Vavrek, en þeir
eru listrænir sálarbræður,“ segir
Steinunn Birna, en óperan mun
byggja á sögu Agnesar Magnús-
dóttur, sem tekin var af lífi árið 1830
fyrir morðin á
Illugastöðum.
„Þetta er
dramatísk saga
sem liggur beint
við að færa í
óperuform,“
segir Steinunn
Birna sem legg-
ur áherslu á að
fá meðframleiðendur erlendis frá til
að tryggja sýningunni framhaldslíf
utan landsteinana.
Lætur drauminn rætast
„Uppfærslan, sem frumsýnd verð-
ur haustið 2023, verður tileinkuð öll-
um konum sem ekki hafa rödd í eigin
örlögum og þær eru því miður allt of
margar enn þann dag í dag á heims-
vísu,“ segir Steinunn Birna og tekur
fram að sér hafi, út af umfjöllunar-
efninu, þótt nauðsynlegt að fá konu
til að leikstýra og valið hina grísku
Rodulu Gaitanou sem komið hefur að
sköpunarferlinu
frá byrjun. „Við
erum komin vel á
veg að móta efni-
viðinn, hlutverkin,
senurnar og sögu-
þráðinn og aðeins
farin að velta fyrir
okkur söngv-
urum,“ segir
Steinunn Birna og áréttar að sköp-
unarferli frumsamdrar óperu séu að
lágmarki tvo til þrjú ár. „Ópera er
eins og borgarísjaki þar sem hið
sýnilega yfir sjávarmáli er aðeins
10% af heildinni,“ segir Steinunn
Birna og bendir á að hún hafi frá því
hún tók við starfi óperustjóra látið
sig dreyma um að koma sögu
Agnesar í óperuform.
„Það er svo frábært þegar maður
getur látið drauma sína og markmið
rætast,“ segir Steinunn Birna og rifj-
ar upp að önnur markmið hennar í
starfi hafi verið „að styrkja enn frek-
ar listræn gæði, koma Íslensku óp-
erunni á alþjóðlega óperukortið og
auka hreyfanleika hennar þannig að
við getum sýnt þar sem hentar
hverju verki best. Ég get merkt við
þessi markmið og er mjög stolt af
því,“ segir Steinunn Birna og áréttar
að það sé komið að því að setja sér ný
markmið og móta stefnu stofnunar-
innar í nýjum veruleika.
Breiður sjóndeildarhringur
„Það er ástæða fyrir því að list-
rænir stjórnendur eru ekki æviráðn-
ir. Það þarf mikinn eldmóð, ástríðu
og úthald til þess að sinna stjórn-
endastarfi og því gott að endurnýja
kraftinn reglulega,“ segir Steinunn
Birna og ítrekar að samtímis þurfi
stjórnendur listastofnana að búa yfir
réttu blöndunni af bjartsýni og
raunsæi. „Það eru alltaf þó nokkrir
sem telja sig vita betur hvernig eigi
að gera hlutina, því það er svo auð-
velt að hafa skoðanir á því sem mað-
ur ber ekki ábyrgð á. Stjórnendur
þurfa því ávallt að hafa breiðan sjón-
deildarhring en halda samtímis
tryggð við eigin sýn, sem er oft mikill
línudans.“
Tvö verkefni síðasta starfsárs fær-
ast yfir á nýhafið starfsár vegna far-
aldursins. Þetta eru annars vegar
Örlagaþræðir, sem frumsýnt verður
í nóvember, í sviðsetningu Níelsar
Th. Girerd. Steinunn Birna lýsir
verkinu sem samrunaverki þar sem
söngur og dans renna saman í túlkun
á ljóðum Mariu Stuart og Mathilde
Wesendonck. „Robert Schumann
samdi tónlistina við ljóð Mariu en
Richard Wagner við ljóð Mathilde.
Umfjöllunarefni kvennanna eru ólík
og lifðu þær á ólíkum tímum en eiga
það þó sameiginlegt að hafa báðar
verið fullar af ástríðu og þrótti þó
hvorug hafi náð að lifa í frelsi,“ segir
Steinunn Birna. Ljóðin verða túlkuð
af Auði Gunnarsdóttur sópran-
söngkonu og Láru Stefánsdóttur
dansara við píanóleik Snorra Sigfús-
ar Birgissonar. Um leikmynd og
búninga sér Ásta Guðmundsdóttir.
Lán í óláni
Viðamesti viðburður komandi
starfsárs er Valkyrjan eftir Richard
Wagner sem flutt er í samstarfi við
Sinfóníuhljómsveit Íslands og
Listahátíð í Reykjavík í Eldborg
Hörpu 25. og 27. febrúar 2021. Um
er að ræða viðsetta tónleika-
uppfærslu þar sem myndbands-
hönnun Tals Rosner leikur stórt
hlutverk í umgjörðinni og kemur í
stað hefðbundinnar leikmyndar. Við-
burðurinn var upphaflega settur á
dagskrá í vor, en var frestað. Af þeim
sökum tók Eva Ollikainen hljóm-
sveitarstjóri við tónsprotanum af
Alexander Vedernikov. „Við erum
samt svo ótrúlega lánsöm að flestir
söngvararnir geta verið í verkefninu
áfram þó uppfærslan frestist um
tæpt ár,“ segir Steinunn Birna og
tekur fram að örfáar breytingar
verði þó. Þannig taki Iréne Theorin
við hlutverki Brünnhilde af Christine
Goerke og Kristinn Sigmundsson við
hlutverki Hunding af Stefani Kocán.
„Sem er ákveðið lán í óláni, því Krist-
inn var alltaf mitt fyrsta val en hann
gat vegna anna ekki verið með í vor.
Vegna annarra skuldbindinga getur
Ólafur Kjartan Sigurðarson því mið-
ur ekki lengur sungið Wotan, sem
var mikið tilhlökkunarefni,“ segir
Steinunn Birna. Spurð hvort ekki sé
streituvaldandi að eiga eftir að
manna eitt aðalhlutverkanna fimm
mánuðum fyrir flutning svarar
Steinunn Birna að hún sé ýmsu vön.
„Kollegi minn á Írlandi bauð mér
eitt sinn á frumsýningu á Aidu í
óperuhúsinu sem hann stýrði. Meðan
við snæddum hádegismat á frumsýn-
ingardag fékk hann þær upplýsingar
að söngvaranir sem syngja áttu aðal-
hlutverkin tvö, þ.e. Aidu og Rad-
amès, hefðu forfallast. Það voru allir
ræstir út til þess að hringja í um-
boðsmenn og kollega út um alla Evr-
ópu til að finna söngvara sem stokkið
gætu inn í hlutverkin með svona
stuttum fyrirvara og það tókst.
Fyrst þetta var hægt þá er allt
hægt,“ segir Steinunn Birna kímin.
Lögum okkur að aðstæðum
Aðspurð segir Steinunn Birna
ekkert launungarmál að sökum þess
hversu dýrt listform óperan er þá sé
ekki gerlegt að setja upp viðamiklar
klassískar óperusýningar meðan
fjölda- og fjarlægðartakmarkanir
eru ríkjandi, enda þurfi góða sæta-
nýtingu til að láta sýningar standa
undir sér. „Útfærslan á Valkyrjunni
er þannig að við munum geta sveigt
okkur að aðstæðum allt eftir því hvar
við erum stödd í þessum faraldri
þegar að sýningunum kemur. Mér
finnst til vinnandi að þurfa ekki að
slá hana af eða fresta,“ segir Stein-
unn Birna og bendir á að uppfærslan
á Valkyrjunni hafi ávallt verið hugs-
uð sem liður í því að fagna 40 ára
starfsafmæli Íslensku óperunnar.
„Íslenska óperan var formlega
stofnuð 3. október árið 1980 og í
venjulegu árferði hefðum við fagnað
því með veglegri afmælisveislu, en
við þurfum auðvitað að laga okkur að
aðstæðum,“ segir Steinunn Birna og
bendir á að einn liður í að fagna af-
mælinu sé verkefni sem nefnist
Óperuminning, en þar er um að ræða
röð stuttra myndbanda á samfélags-
miðlum og vef Íslensku óperunnar
sem hefur göngu sína á afmælisdag-
inn næsta laugardag.
Samhyggðin mikilvægust
„Í myndböndunum rifja viðmæl-
endur upp óperuminningu sem er
þeim mikilvæg og hefur mótað
þeirra viðhorf til listformsins,“ segir
Steinunn Birna og bendir á að við-
mælendur séu listamenn úr ýmsum
geirum og víða að. „Fæstir þeirra
sem við leituðum til eru tengdir
óperulistforminu í hugum fólks, sem
verður athyglisvert fyrir marga en
þarna hafa komið fram margar
heillandi sögur,“ segir Steinunn
Birna og bendir á að Níels Th.
Girerd, sýningar- og verkefnastjóri,
eigi heiðurinn af vinnslu myndband-
anna.
Að lokum er ekki úr vegi að spyrja
Steinunni Birnu, sem fylgist vel með
alþjóðlegu listasenunni, hvort og
hvaða áhrif hún telji að heimsfarald-
urinn muni hafa á nálgun þeirra
stjórnenda sem veljast til að stjórna
listastofnunum á heimsvísu. „Það er
greinilegt að þeir eiginleikar sem
hingað til hafa oft verið í fyrirrúmi,
svo sem sjarmi, sjálfstraust og
stundum sjálfhverfa eru að víkja fyr-
ir kröfunni um hæfni, hógværð og
heilindi. Þessi þróun er eitt af því já-
kvæða sem er að koma út úr þessu
öllu saman. Samtímis eru að opnast
fleiri tækifæri fyrir kvenstjórnendur
í listaheiminum, mögulega þar sem
þeim er eðlislægt að nálgast aðra af
samhygð sem er líklega sá eiginleiki
sem er mikilvægastur á þessum tím-
um sem við erum að upplifa og það
verður vonandi varanleg þróun,“
segir Steinunn Birna að lokum.
Ljósmynd/Saga Sig
Ástríða „Það þarf mikinn eldmóð, ástríðu og úthald til þess að sinna
stjórnendastarfi,“ segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri.
„Sveigjanleiki lykilorðið“
Íslenska óperan býður upp á Kúnstpásu, Söngskemmtun, Örlagaþræði, Valkyrjuna og Óperuminn-
ingu á næstu mánuðum 40. starfsárinu fagnað með ögn öðrum hætti en ráðgert vegna faraldurs
»Ekki gerlegt aðsetja upp viðamiklar
klassískar óperusýn-
ingar meðan fjölda- og
fjarlægðartakmarkanir
eru ríkjandi.