Morgunblaðið - 08.10.2020, Page 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020
FUNI Dúnúlpa
kr. 33.990.-
Puffy Dúnúlpurnarkomnar
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Pólitísk viðhorf og skarpir flokka-
drættir voru afgerandi þættir í starfi
samvinnufélaganna Suðurlandi og
þar með þróun byggðar í héraðinu.
Ágreiningur í starfi Kaupfélags
Rangæinga á Rauðalæk leiddi til
þess að í Rangárvallasýslu var árið
1934 stofnað Kaupfélagið Þór á
Hellu, undir for-
ystu Ingólfs Jóns-
sonar, seinna
þingmanns og
ráðherra Sjálf-
stæðisflokksins.
Kaupfélag Rang-
æinga og Kaup-
félag Hallgeirs-
eyjar í
Landeyjum, félög
þeirra sem fylgdu
Framsóknarflokknum að málum
voru sameinuð árið 1948 og höf-
uðstöðvum þess valinn staður á
Hvolsvelli. Þessar staðreyndir réðu
miklu um að í Rangárvallasýslu
mynduðust tveir um margt svipaðir
þéttbýlisstaðir sem aðeins 13 kíló-
metrar eru á milli.
Vildu skapa eigin framtíð
Þetta kemur fram ritinu Samvinna
á Suðurlandi sem nýlega kom út og
er eftir Guðjón Friðriksson sagn-
fræðing. Þar er í fjórum bindum rak-
in saga samvinnufélaga í héraðinu. Í
hinu fyrsta segir frá aðdraganda róta
samvinnustarfsins í héraðinu, sauða-
sölunni til Bretlands, fyrstu kaup-
félögum sem starfandi voru í kring-
um 1900 og svo rjómabúunum sem
voru fyrstu afurðavinnslustöðvarnar
og skiptu miklu máli í atvinnu- og
samgöngusögu héraðsins. Samvinnu-
starfið á þessum tíma segir Guðjón
að hafi verið í raun nátengt sjálfstæð-
isbaráttu þjóðarinnar og því að fá-
tækir menn vildi taka málin í eigin
hendur og skapa sína framtíð sjálfir.
– Kaupfélög í Vestur-Skaftafellssýslu
og Grímnsnesi, svo og fjölmörg kaup-
félög í Vestmannaeyjum eru til um-
fjöllunar í 2. bindi – svo og áveiturnar
sem voru undanfari Mjólkurbús
Flóamanna (MBF) sem segir einnig
frá.
Í 3. bindi segir frá Kaupfélagi Ár-
nesinga, sem stofnað var árið 1930.
Starfsemi þess og MBF var sam-
tvinnuð fyrstu áratugina, með útgerð
mjólkurbíla sem jafnframt fluttu
vörur kaupfélagsins til bænda í hér-
aðinu sem kom KÁ nánast í einok-
unaraðstöðu. Á vegum KÁ voru á
Selfossi rekin verkstæði, smiðjur og
margvísleg þjónustustarfsemi auk
verslunarútibúa víða um sýsluna. Að
undirlagi Egils Thorarensen kaup-
félagsstjóra keypti kaupfélagið einn-
ig Þorlákshöfn þar sem hafist var
handa um uppbyggingu og útgerð.
Þegar komið var fram að aldamótum
var KÁ orðið leiðandi í ferðaþjónustu
í héraðinu, eins og Guðjón rekur.
Í 4. bindi segir svo frá rekstri og
samvinnustarfinu í Rangárvallasýslu
og Höfn á Selfossi – en á endanum
hafði KÁ tekið alla þá starfsemi yfir
auk Kaupfélags Skaftfellinga og
Kaupfélags Vestmannaeyja.
„Saga samvinnufélaganna á Suð-
urlandi er öðrum þræði saga mann-
lífs og atvinnuhátta í héraði, svo um-
svifamikil var starfsemin og stóð
fólkinu nærri. Einnig er þetta saga
samgöngumála, því á Suðurlandi eins
og víða úti á landi eru vega-, brúa- og
hafnargerð endalaust baráttumál,“
segir Guðjón. „Svo stóðu félögin vel
með fólki í ýmsum framfaramálum. Á
Hvolsvelli og Rauðalæk voru til
dæmis á árunum um og eftir 1970
byggð alls um 40 einbýlishús, það er
eftir teikningum sem Kaupfélag
Rangæinga lagði til – og lánaði hús-
byggjendum fyrir byggingaefninu.“
Þraut örendið
Miklar breytingar voru gerðar í
starfsemi Kaupfélags Árnesinga rétt
fyrir aldamót. Deildir og rekstrarein-
ingar voru seldar eða lagðar niður en
aðrar efldar, svo sem dagvöruversl-
anir. Rekstur þeirra var seinna seld-
ur og þeir fjármunir meðal annars
nýttir til fjárfestinga í ferðaþjónustu.
Bygging hótels á Selfossi varð þó til
þess að Kaupfélag Árnesinga þraut
örendið – og árið 2003 var komið að
endalokum í starfsemi félagsins, sem
var gert upp. Eftir varð þó dálítill
sjóður sem ákveðið var að verja með-
al annars til að halda merkri sögu til
haga. Guðjón Friðriksson var því
fenginn til að skrifa ritverkið sem nú
er komið út og er 1.446 blaðsíður.
Flokkadrættir og framfaramál
Ritverkið Samvinna á Suðurlandi er komið út Fjórar bækur Saga mannlífs og atvinnuhátta í
héraði Hápólitískar línur Starfsemin var víðtæk Fjárfestingar í ferðaþjónustu felldu KÁ
Ljósmynd/Þjóðminjasafn Íslands
Stórhýsi Bygging Kaupfélags Árnesinga við Austuveg var reist árið 1946 og var eitt af stærstu verslunarhúsum
landsins. Verslun félagsins var þarna til ársins 1981, en í dag eru þetta ráðhús Árborgar, skrifstofur og bókasafn.
Guðjón
Friðriksson
Ljósmynd/Ottó Eyfjörð
Athafnalíf Uppskipun á timbri úr skipi í Þorlákshöfn, en Kaupfélag Árnes-
inga kom mjög að uppbyggingu þar, svo úr varð öflugur útgerðarstaður.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hvolsvöllur Kaupfélag Rangæinga lagði til teikningar að íbúðarhúsum og
lánaði fyrir byggingaefni. Þetta var á uppvaxtarskeiði í kringum 1970.
„Kaupfélögin voru í aðalhlutverki á
Suðurlandi og veittu félagsmönn-
um sínum og öðrum altæka þjón-
ustu. Starfsemin var í raun allt-
umlykjandi,“ segir Guðjón
Friðriksson. Jafnframt því sem
Samvinna á Suðurlandi greinir frá
verslunarháttum og atvinnulífi eru
bækurnar líka saga litríkra manna.
Þar ber kannski hæst nöfn þeirra
Egils Thorarensen á Sigtúnum og
Ingólfs Jónssonar á Hellu.
Spurður sérstaklega um Egil,
segir Guðjón að hann hafi greini-
lega verið réttur maður á stað og
tíma og náð að gera KÁ að sann-
kölluðu stórveldi.
„Í fundargerðarbókum fyrri tíma
sé ég hvergi andstöðu við skoðanir
og ákvarðanir hans. Egill einfald-
lega réð ferðinni, segir Guðjón
sem auk fjölskrúðugra frumgagna
byggði skrif sín mikið á ýmsum
samtímaheimildum, svo sem hér-
aðsblöðum sem gefin voru út á
Suðurlandi og Vestmannaeyjum.
Af rituðum gögnum má ráða að
þegar Sambandið var horfið af
sjónarsviðinu upp úr 1990 hafi
kaupfélögin ekki lengur eins og
áður haft bakhjarl þegar í harð-
bakkann sló – auk þess sem
rekstrarumhverfið og tíðarandinn
var þeim ekki hliðhollt.
Sársaukafull endalok
„Samgöngur voru á endanum
orðnar svo góðar að Sunnlend-
ingar freistuðust til að fara til
Reykjavíkur og versla þar í lág-
vöruverðsverslunum fremur en
kaupfélögunum sem gátu ekki vel
keppt við þær um verð. Eldur sam-
vinnuhugsjónarinnar var ekki leng-
ur til staðar í sama mæli og áður
en greina má þó sársauka margra
yfir því hver endalokin urðu,“ segir
Guðjón.
EGILL THORARENSEN Í SIGTÚNUM RÉÐ FERÐINNI
Egill Thorarensen Ingólfur Jónsson
Kaupfélögin alltumlykjandi