Morgunblaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Veiðar íslensku skipanna á norsk- íslenskri síld eru langt komnar. Skip Brims hf., Venus NS og Vík- ingur AK, luku vertíðinni um helgina og liggja nú í Sundahöfn. Ingimundur Ingimundarson, út- gerðarstjóri uppsjávarskipa hjá Brimi, segir að vertíðin hafi gengið einstaklega vel. Í gær var búið að landa um 73 þúsund tonnum af norsk-íslenskri síld, en heildarkvóti íslenskra skipa í ár er rúmlega 91 þúsund tonn. „Það var eiginlega ekki hægt að hugsa sér betri gang í þessu,“ segir Ingimundur. „Við lönduðum fyrstu síldinni 11. september að lokinni makrílvertíð og þremur vikum síð- ar var búið að landa ellefu þúsund tonnum, sem var kvóti skipanna. Þegar best lét voru þau um þrjá tíma af miðunum fyrir austan land að bryggju á Vopnafirði og hráefn- ið var mjög gott, sérstaklega fram- an af vertíðinni. Skipin voru yfir- leitt með 1.000-1.100 tonn og það tók þau nánast alltaf innan við sól- arhring á miðunum að ná skammt- inum.“ Aðspurður segir Ingimundur að verð fyrir síldina hafi verið þokka- legt miðað við aðstæður og heldur betra en í fyrra, þegar það var lágt. Langmest af síldinni er fryst fyrir markaði í austanveðri Evrópu, nema hvað nokkuð er saltað hjá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði. Íslensk síld og kolmunni Skip Brims fara væntanlega til veiða á íslenskri sumargotssíld upp úr næstu mánaðamótum. Þar er ætlunin að veiða um 1.500 tonn, en kvótinn er ekki mikill, auk þess sem gætt verður að því að eiga eitthvað eftir af íslenskri síld til að eiga vegna meðafla á makrílveiðum næsta sumar. Að þessu verkefni loknu verður stefnan tekin á kolmunnaveiðar í færeyskri lögsögu. Eitt íslenskt skip, Bjarni Ólafsson AK, hefur undanfarið verið á kolmunna fyrir austan land. Kolmunnakvóti ársins er 247 þúsund tonn og samkvæmt yfirliti á vef Fiskistofu er búið að landa um 187 þúsund tonnum. Morgunblaðið/Eggert Víkingur AK Síldarvertíð gekk vel og tók aðeins um þrjár vikur. Þrjá tíma af mið- unum að bryggju  Góðri síldarvertíð skipa Brims lokið Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Sjósókn frá Bolungarvík hefur gengið vel í haust, en aflabrögð hefðu mátt vera betri í september. Vel hefur hins vegar veiðst það sem af er október, að sögn Sam- úels Samúelssonar, framkvæmda- stjóra Fiskmarkaðs Vestfjarða. Uppboð eru flesta virka daga, en fiskurinn fer síðan til vinnslu víðs vegar um land. Samúel segir að þrátt fyrir kór- ónuveirufaraldur um allan heim hafi gengið merkilega vel að selja fisk og hefur meðalverð verið gott. Þannig hafa fengist 354 krónur fyrir kíló af öllum þorski að meðal- tali það sem af er ári. Hjá mark- aðnum eru 14-15 stöðugildi á árs- grunni, en nokkrar sveiflur eftir árstímum. Endurgreiddu hlutabætur „Þetta leit ekki vel út í upphafi faraldursins í marsmánuði,“ segir Samúel. „Við gripum til þess að setja hluta af fólkinu okkar á hlutabótaleiðina, en fljótlega kom í ljós að ótrúlega vel rættist úr sölu- málum. Við endurgreiddum því mánuði síðar það sem við höfðum fengið vegna hlutabóta. Verð fyrir fiskinn lækkaði á þessum tíma, en það voru kaupendur að aflanum áfram og bátarnir gátu haldið áfram að róa. Það mátti hins vegar ekki mikið út af bera og ef magnið var of mikið kom það strax fram í verði og um tíma voru ekki full af- köst.“ Frá áramótum er búið að selja um tíu þúsund tonn á Fiskmarkaði Vestfjarða, en síðasti vetur var erfiður vegna ótíðar. Auk starf- seminnar í Bolungarvík er fyrir- tækið með útibú á Suðureyri og Flateyri. Samúel reiknar með að um markaðinn fari hátt í 13 þús- und tonn í ár. Það er talsvert meira en í fyrra þegar þar voru seld 11.600 tonn, en nokkru minna en metárið 2018 þegar um 14 þús- und voru seld á markaðnum. Fimm línubátar frá Bolungarvík landa hjá FiskVest; Otur ÍS, Einar Hálfdáns ÍS, Jónína Brynja ÍS, Fríða Dagmar ÍS og Guðmundur Einarsson ÍS. Einnig landa þar dragnótabátarnir Þorlákur ÍS, Ás- dís ÍS og Finnbjörn ÍS og togarinn Sirrý ÍS að hluta. Jakob Valgeir ehf. gerir út þrjá línubátanna og togarann og er stærsti hluthafinn í fiskmarkaðnum, sem sér einnig um slægingu fyrir útgerðina og fleira. Samúel segir að lítið hafi verið um aðkomubáta í viðskiptum við markaðinn undanfarið. Bátar af Snæfellsnesi og víðar hafi oft kom- ið vestur síðustu mánuði ársins, en þeir séu ekki enn komnir. Fiskmarkaður Vestfjarða tók til starfa í Bolungarvík árið 2007. Hefur gengið merki- lega vel á markaðnum  Hátt í 13 þúsund tonn seld á Fiskmarkaði Vestfjarða í ár Ljósmynd/Samúel Samúelsson Stór vinnustaður Samúel Samúelsson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Vestfjarða í Bolungarvík, en þar eru 14-15 stöðugildi á ársgrunni. Í grein í vísindaritinu Scientific Reports er fjallað um áhrif hlýn- andi sjávar á útbreiðslu fiskteg- unda og voru 82 tegundir skoðaðar. Greinin byggist á gögnum úr 5.390 togstöðvum í stofnmælingum í haustralli Hafrannsóknastofnunar 1996-2018. Á tímabilinu breyttist ástand sjávar á Íslandsmiðum mik- ið og markmið rannsóknarinnar var að meta áhrif þeirra breytinga á útbreiðslu mismunandi fiskteg- unda. Alls reyndist útbreiðsla helmings tegundanna hafa breyst og lang- flestar sýndu tilfærslu til vesturs, norðvesturs eða norðurs. Breyt- ingar á útbreiðslu voru mest áber- andi hjá tegundum grunnslóð- arinnar og þá sérstaklega hlýsjávartegundum og þeim sem lifa við þröngt hitastigsbil á Ís- landsmiðum. Tilfærsla tegunda samfara 1°C hækkun sjávarhita var metin vera á bilinu 1-326 kíló- metrar, að meðaltali 38 km. Rann- sóknin sýndi að hækkun um 2-3°C væri líkleg til að valda stórfelldum breytingum á útbreiðslu fiska og fiskveiðum við Ísland. Höfundar eru Steven E. Camp- ana og Ragnhildur B. Stefánsdóttir frá Háskóla Íslands og Klara Jak- obsdóttir og Jón Sólmundsson frá Hafrannsóknastofnun. aij@mbl.is Hærra hita- stig sjávar hefur áhrifEltak sérhæfir sig í söluog þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is SANGSIN gæðavara frá Kóreu BREMSU VÖRUR í flestar gerðir bíla 2012 2019
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.