Morgunblaðið - 08.10.2020, Page 38
38 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020
8. október 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 137.97
Sterlingspund 178.66
Kanadadalur 104.1
Dönsk króna 21.879
Norsk króna 14.995
Sænsk króna 15.495
Svissn. franki 150.99
Japanskt jen 1.3061
SDR 194.9
Evra 162.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 193.2653
Hrávöruverð
Gull 1912.5 ($/únsa)
Ál 1741.5 ($/tonn) LME
Hráolía 41.41 ($/fatið) Brent
● Peninga-
stefnunefnd Seðla-
banka Íslands
ákvað á fundi sín-
um á þriðjudag að
halda meg-
invöxtum bankans
óbreyttum í 1%.
Þetta kom fram í
gærmorgun þegar
ákvörðun nefnd-
arinnar var gerð opinber. Í yfirlýsingu
nefndarinnar kemur fram að efnahags-
horfur hafi versnað frá síðustu ákvörð-
un í ágústmánuði. Hins vegar hafi
hagvöxtur reynst þróttmeiri á fyrri
hluta ársins en gert var ráð fyrir á
sama tíma. Verðbólga hafi aukist á
milli fjórðunga og mældist 3,2% á
þriðja fjórðungi ársins þar sem geng-
islækkunar krónunnar á verði inn-
fluttra vara gæti enn. Bendir Seðla-
bankinn á að áhrif af lækkandi
stýrivöxtum síðustu mánuði, ásamt
öðrum aðgerðum bankans, eigi enn
eftir að koma að fullu fram og að þær
muni styðja áfram við þjóðarbúskap-
inn og stuðla að því að efnahagsbat-
inn verði hraðari en ella.
Í máli Ásgeirs Jónssonar seðla-
bankastjóra í gær kom fram að veik-
ara gengi og lægri vextir myndu skapa
efnahagsbatann á komandi mánuðum.
Stýrivöxtum Seðlabank-
ans haldið óbreyttum
Ásgeir Jónsson
STUTT
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Reykjanesbær freistar þess nú að
taka 8,4 milljarða lán hjá Lánasjóði
sveitarfélaga (LS) í því skyni að
kaupa fasteignir bæjarfélagsins út
úr Eignarhaldsfélaginu Fasteign
(EF). Verði áætlanir þessar að veru-
leika verður lánsfénu varið til upp-
greiðslu skuldabréfs sem Lífeyris-
stjóður starfsmanna ríkisins á og
stendur til greiðslu vegna fast-
eignanna sem nú eru vistaðar í EF.
Með hinu nýja fjármagni mun bæj-
arsjóður því eignast fasteignirnar að
nýju. Kjartan Már Kjartansson seg-
ir að þetta skref sé ekki aðeins já-
kvætt fyrir bæjarsjóð heldur nauð-
synlegt enda tryggi það bænum full
yfirráð yfir eignunum og lækki af-
borganabyrði af þeim.
Fasteignaævintýri á enda
„Með þessu mun tæplega tveggja
áratuga „ævintýri“ ljúka sem hófst
með stofnun Fasteignar árið 2002,“
segir Kjartan. Bendir hann á að eft-
ir fall bankanna árið 2008 hafi skuld-
ir félagsins endað í höndum Glitnis
Holdco. sem hafi á sínum tíma ekki
talið rétt að bærinn hefði stjórnun-
arlega ábyrgð á félaginu.
„Það þýddi að stjórn félagsins var
skipuð fólki sem annaðhvort var
lauslega eða alls ekki tengt bæjar-
félaginu og þeim verkefnum sem því
er ætlað að sinna.“
Þegar uppgjör slitabúa föllnu
bankanna fór fram afhenti Glitnir
Holdco. skuldabréfið á EF sem
hluta af stöðugleikaframlagi sínu í
ríkissjóð. Þaðan fór bréfið inn í
Seðlabanka Íslands og Lindarhvol
en heimildir Morgunblaðsins herma
að sú afhending hafi verið á lægra
gengi en því sem núverandi krafa
hljóðar upp á, þ.e. 8,4 milljarða
króna.
í uppgjöri milli ríkissjóðs og LSR
var að lokum ákveðið að skuldabréf-
ið rynni inn í eignasafn lífeyrissjóðs-
ins og þangað hafa afborganir og
vaxtagreiðslur runnið síðustu miss-
erin en skuldabréfið er á lokagjald-
daga eftir aldarfjórðung og ber 4,2%
verðtryggða vexti.
„Eins og staðan er á markaði í
dag teljum við tækifæri til þess að
fjármagna þessar skuldbindingar
með hagstæðari hætti,“ segir Kjart-
an og vísar þar til samkomulagsins
við LS. „Við höfum væntingar um að
geta fengið kjör sem standi í kring-
um 1% og því er vaxtamunurinn
gríðarlegur. Jafnvel þótt upp-
greiðslugjald upp á 0,5% falli ekki
niður á skuldabréfinu hjá LSR fyrr
en í lok febrúar þá getur það borgað
sig að byrja að borga inn á skulda-
bréfið um leið og útgáfa LS hefst.
Þetta metum við allt þegar það
skýrist betur hver kjörin verða.
Stórt fjármögnunarverkefni
Óttar Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri LS segir ánægjulegt að geta
komið að þessu endurfjármögnunar-
verkefni Reykjanesbæjar. Hann við-
urkennir að verkefnið sé stórt í snið-
um en til samanburðar má geta þess
að LS hefur veitt lán fyrir um 19
milljarða króna það sem af er ári en
að til samanburðar hafi heildarút-
gáfan hjá sjóðnum numið um 30
milljörðum í fyrra.
„Við teljum að þetta sé vel gerlegt
án þess að það trufli aðra og hefð-
bundnari útgáfu hjá okkur. Mark-
aðurinn brást ekki sérlega vel við
tíðindunum í morgun og ávöxtunar-
krafan hækkaði nokkuð en við för-
um í útboð í þarnæstu viku og þá
fáum við betri tilfinningu fyrir því
hvernig landið liggur. Ég hef trú á
því að þetta muni ganga vel,“ segir
Óttar.
Vaxtabyrðin lækkar verulega
Kjartan Már bendir á að með
þessu skrefi geti bæjarsjóður lækk-
að vaxtabyrði sína um 250 til 300
milljónir á ársgrundvelli og að það
muni um minna þegar mjög svo gefi
á bátinn hjá Reykjanesbæ eins og
öðrum sveitarfélögum um landið en
bærinn hefur orðið fyrir miklum
skakkaföllum eftir að kórónuveiran
lamaði nær allar flugsamgöngur til
og frá landinu.
Verði lánafyrirgreiðsla LS að
veruleika verður Reykjanesbær
annar stærsti skuldunautur sjóðsins
með u.þ.b. 13,8 milljarða króna lán
hjá honum. Aðeins Hafnarfjarðar-
kaupstaður er með stærri skuld-
bindingar tengdar sjóðnum eða um
14,5 milljarða króna.
Reykjanesbær tekur
fasteignirnar yfir að nýju
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Breyting Fasteignir Reykjanesbæjar hafa að stórum hluta verið í eigu Eign-
arhaldsfélagsins Fasteignar síðustu áratugi en nú verður breyting þar á.
Hyggst greiða upp 8,4 ma. lán frá LSR LS ræðst í skuldabréfaútgáfu
Kjartan Már
Kjartansson
Óttar
Guðjónsson
Næstu tvær vikurnar þurfa bíóhús
landsins eins og mörg önnur fyrir-
tæki, að beygja sig undir harðari
samkomutakmarkanir vegna út-
breiðslu kórónuveirunnar. Sum
kvikmyndahús hafa ákveðið að loka á
þessu tímabili en önnur ætla að hafa
opið. Þannig tilkynnti Sena fyrr í vik-
unni um lokun Smárabíós í tvær vik-
ur. Þá eru engar sýningar auglýstar
á vef Háskólabíós, sem Sena rekur,
en opið er í Borgarbíói á Akureyri,
samkvæmt upplýsingum á vef Senu.
Á vef Bíó Paradísar má sjá að sýn-
ingar verða þar áfram í boði.
Hjá Árna Samúelssyni, eiganda
SAM-bíóanna, fengust þær upplýs-
ingar að Sambíóin í Álfabakka yrðu
áfram opin, en verið væri að skoða
með að hafa önnur bíó samstæðunn-
ar eitthvað opin um helgar.
Árni segir að vinsælustu myndirn-
ar í Sambíóunum í veirufaraldrinum
hafi verið barnamyndir, en stórum
og dýrum Hollywood-myndum hafi
ítrekað verið frestað vegna ástands-
ins, að Tenet undanskilinni. Henni
hafi gengið vel.
Geir Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Myndforms, sem rekur Laug-
arásbíó, segir í samtali við Morgun-
blaðið, að Laugarásbíó verði áfram
opið, með þeim takmörkunum sem í
gildi eru, en aðeins mega 20 manns
vera í bíósal í einu, allir gestir þurfa
að bera grímu og sitja í merktum
sætum. Geir segir að Myndform hafi
kannski komist betur í gegnum
ástandið út af vinsældum íslensku
kvikmyndanna Síðustu veiðiferðar-
innar og Ömmu Hófíar, sem Mynd-
form framleiddi. tobj@mbl.is
Aðsókn Síðasta veiðiferðin sló í
gegn á árinu, og dró marga í bíó.
Áfram verður
hægt að fara í bíó
Íslenskar
myndir og barna-
myndir vinsælar
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi, Akureyri | ) 588 0640 | casa.is
Cuero Mariposa
Hannaður árið 1938 af:
Bonet, Kurchan & Ferrari
Leður stóll verð 159.000,-
Leður púði verð 15.900,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.