Morgunblaðið - 08.10.2020, Page 49
Það er mörgum
tilhlökkunarefni
þegar jólasúkkul-
aðið kemur í
verslanir. Omnom
bregst ekki fremur
en fyrri ár og hafa
fagurkerar keppst
við að dásama
hversu fallegt það
er enda fengu færri
en vildu í fyrra.
Vetrarlína Omnom er komin út
og líkt og fyrri ár sækir hún inn-
blástur sinn í íslenskar jólahefðir
sem ylja landsmönnum um
hjartarætur með minningum lið-
inna jóla.
Omnom sækir innblástur í mat-
arhefðir, bragðtóna og venjur sem
hringja inn jólin.
Vetrarlínan inniheldur þrjú
súkkuaðistykki og kemur einnig í
fallegri gjafaöskju en umbúðirnar
voru hannaðar í samstarfi við lista-
konuna Söru Riel. Vetrarlínan seld-
ist upp í fyrra og eru landsmenn
hvattir til að næla sér í vetrarsúkku-
laði Omnim sem fyrst.
Dark Nibs + Raspberries
Margslungnir, fíngerðir tónar og fislétt rauð-
berjabragðið gerir Madagaskar 66% súkkulaðið
að einu stóru ástarævintýri fyrir bragðlaukana.
Hátíðlega fagurrauð hindber með sinn sérstaka
sæta keim, pöruð með vænlegu dassi af kakón-
ibbum, fullkomna pakkann. Nú er hátíð í bæ!
úr framleiðslunni hjá Omnom, tröllahöfrum og
ríkulegu magni af engifer og kanil.
Spiced White + Caramel
Appelsínur og malt. Malt og appelsín. Krydd-
að, maltað hvítt súkkulaði með appelsínuberki,
kanil og stökkri karamellu. Flestir Íslendingar
halda fast í þessa ríkulegu hefð af hátíðlegri
bragðupplifun, sem er engri lík. Súkkulaði sem
er sannkallaður óður okkar til jólanna.
Jólin eru komin hjá Omnom
Milk + Cookies
Það er ómögulegt að hugsa til jóla án þess að
upp komi í hugann minning um piparkökur og
glas af ískaldri mjólk. Súkkulaðimeistarar Om-
nom vildu fanga þessa minningu og leituðu því
til Brauðs & Co til að aðstoða við að búa til hina
fullkomnu krydduðu smáköku.
Grunnurinn var unninn úr afgangsmöndlum
Eftirsótt Vetrarlína Omnom
seldist upp í fyrra en umbúð-
irnar eru hannaðar af Söru Riel.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020
Pantanir í s. 558 0000 og
info@matarkjallarinn.is
Aðalstræti 2, 101 Rvk. |www.matarkjallarinn.is
MATARPAKKI 2MATARPAKKI 1
Koníaksbætt humar- og kóngakrabbasúpa
m/steiktum humar og kryddjurtarjóma
Grilluð nautalund
m/piparsósu, tvíbakaðri kartöflu,
steiktum villisveppum og rótargrænmeti
Súkkulaði ganache
m/hindberjum, heslihnetum og saltkaramellu
5.990 á mann fyrir 3 rétti 5.990 á mann fyrir 3 rétti
Nauta carpaccio
m/trufflu majónesi og reyktummöndlum
Hægeldað andarlæri
m/heimagerðu rauðkáli, tvíbakaðri kartöflu,
steiktum villisveppum og rótargrænmeti
Súkkulaði ganache
m/hindberjum, heslihnetum og saltkaramellu
Matarpakkar Matarkjallarans 25% AFSLÁTTUR
af TAKE AWAY matseðli
Lágmark 7.500 kr. fyrir fría heimsendingu
*Panta þarf matarpakka með dags fyrirvara **Lágmarkspöntun er fyrir 2 manns
Matgæðingar geta formlega hætt að hafa
áhyggjur af jólunum því meistari Þráinn
Freyr Vigfússon, sem allajafna er kenndur
við Sumac og ÓX, er að senda frá sér bók fyr-
ir jólin. Ætla má að það sé eldhústeymið allt á
Sumac sem stendur að verkinu og verður
spennandi að sjá bókina sem mun bjóða upp á
ævintýraveislu fyrir bragðlaukana ef allt er
eins og það á að vera. Bókin ku væntanleg í
verslanir í lok nóvember.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þráinn á Sumac
bar + grill með
bók fyrir jólin
Meistarakokkur
Þráinn Freyr Vig-
fússon er mað-
urinn á bak við
Sumac og ÓX.
Markaðurinn var opnaður síðastlið-
inn fimmtudag og stóðu á annað
hundrað manns í röð þegar dyrnar
voru opnaðar. Að sögn Sigurðar
Reynaldssonar, framkvæmdastjóra
Hagkaups, áttu menn þar á bæ ekki
von á þessum viðbrögðum. „Viðtök-
urnar voru ansi magnaðar og
bjuggumst við ekki við þessari
mætingu. Við sjáum það eftir fyrstu
vikuna að aukningin er yfir 300% á
milli ára sem verður að teljast stór-
góð aukning. Það er engu líkara en
að fólk kunni vel við að sækja í
gamlar íslenskar matarhefðir á
þessum skrítnu tímum sem við öll
erum að upplifa,“ segir Sigurður og
bendir á að fátt sé betra en að setj-
ast niður með sínum nánustu og
taka slátur að gömlum sið.
„Vinsælasta varan okkar er þrjú
ófrosin slátur og að sama skapi
selst mikið af vömbum, þindum og
lifur. Við munum gera okkar allra
besta til að tryggja nægt magn svo
að allir sem vilja nái að taka slátur í
ár. Næg er eftirspurnin og mun
starfsfólk okkar í Kringlunni taka
vel á móti slátursvöngum viðskipta-
vinum,“ segir Sigurður en Slátur-
markaðurinn í Hagkaup Kringlunni
er opinn þriðjudaga til föstudaga
frá klukkan 14 til 18 og stendur yfir
til og með 23. október næstkom-
andi.Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
300% aukning
milli ára
Sláturmarkaður Hagkaups í Kringlunni byrjaði með
látum þetta árið. Fyrsta daginn kláraðist allt magn-
ið sem búið var að áætla yfir daginn á 40 mínútum
og hafa menn ekki séð viðlíka viðtökur.
Sækir í hefðirnar „Það er engu líkara en að fólk
kunni vel við að sækja í gamlar íslenskar mat-
arhefðir á þessum skrítnu tímum,“ segir Sigurður
Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups.