Morgunblaðið - 08.10.2020, Side 54

Morgunblaðið - 08.10.2020, Side 54
54 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020 ✝ Vilhjálmur JónGuðbjartsson fæddist í Reykjavík 9. júní 1948. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Skóg- arbæ 24. september 2020. Foreldrar hans voru Guð- bjartur Haralds- son, f. 5.9. 1930, d. 23.3. 2015, og Hanna Jónsdóttir, f. 6.6. 1931, d. 3.9. 1995. Vil- hjálmur ólst að mestu upp hjá móðurforeldrum sínum, Vil- helmínu Kristjánsdóttur, f. 22.6. 1900, d. 15.11. 1995, og Jóni Jónssyni, f. 24.8. 1896, d. 3.1. 1969. Systkini Vilhjálms eru: Haraldur, f. 1949, Jóhann Grét- ar, f. 1951, Jóhannes Þór, f. 1953, Hafsteinn, f. 1956, Þor- finnur Þráinn, f. 1959, Hanna Björt, f. 1961. f. 2009 og Eva Sóley, f. 2014. 3) Símon Elvar, f. 1983. Unnusta hans er Bryndís Einarsdóttir, f. 17.11. 1987. Vilhjálmur ólst upp í Vestur- bænum hjá móðurforeldrum sín- um en dvaldi á sumrin á Flateyri hjá foreldrum sínum og systk- inum. Árið 1972 tók Vilhjálmur sveinspróf í húsasmíði. Hann starfaði lengi vel við almennar smíðar fyrir ýmsa verktaka. Jafnframt starfaði hann um skeið við innréttingasmíði á verkstæði Axels Eyjólfssonar (Axis). Árið 1988 hóf Vilhjálmur störf í Byko Breiddinni og starf- aði þar í 25 ár. Lengst af var hann deildarstjóri í festinga- deild. Útför Vilhjálms verður gerð frá Seljakirkju í dag, 8. október 2020, og hefst athöfnin kl. 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu geta ekki nema nánustu að- standendur verið við athöfnina. Hægt er fylgjast með athöfninni í streymi: https://www.seljakirkja.is Virkan hlekk á streymi má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat Þann 30. október 1971 kvæntist Vil- hjálmur Jóhönnu Sigríði Guðjóns- dóttur leikskóla- kennara, f. 26.5. 1953, dóttir Sím- oníu K. Helgadótt- ur, f. 1.10. 1927, og Guðjóns S. Svein- björnssonar, f. 7.12. 1928, d. 7.5. 2018. Börn Vilhjálms og Jóhönnu eru: 1) Dröfn, f. 15.4. 1972, gift Elfari Úlfars- syni, f. 18.6. 1965. Börn þeirra eru: a) Alexander, f. 1987, kvæntur Auði Sif Kristjáns- dóttur, f. 1992, sonur þeirra er Elfar Ingvi, f. 2018. b) Ósk, f. 1994. c) Vilhjálmur Jón, f. 2000. d) Jóhanna Inga, f. 2004. 2) Guð- jón, f. 30.1. 1976, kvæntur Re- bekku Sif Kaaber, f. 27.2. 1977. Dætur þeirra eru Bára Margrét, Tengdafaðir minn Venni var einstakt ljúfmenni. Hann var nær- gætinn og hjartahlýr. Hann var traustur, hreinn og beinn. Það var alltaf stutt í hláturinn og gleðina hjá Venna og barnabörnin hans nutu þessa óendanlega. Afi Venni gat alltaf leikið með þeim í barns- legri einlægni og hló hæst að skondnum uppátækjum þeirra. Venni kunni að gleðjast með öðr- um og fátt gladdi hann meira en nærvera barnabarnanna. Eitt af áhugamálum Venna var veiði- mennska og hápunktur sumarsins hjá börnunum og mér var að fara með honum að veiða. Hann kenndi okkur öll trikkin í bókinni, átti allt- af réttu græjurnar og það var allt- af sólskin í þeim ferðum, þó svo að hellirigndi. Venni var hrifnæmur og bar djúpt skyn á umhverfi sitt og allt sem orð fá ei lýst. Þetta endur- speglaðist í fegurðarskyni hans og nærgætni hans gagnvart öllu lífi, hvort sem það var vinur í vanda, fiskur á bryggjusporði eða gróður náttúrunnar. Á toppnum trónaði brosið hans en síðan komu hend- urnar hans. Hvort sem það var spýta eða rósarunni, allt lék í höndum hans og vandvirkni var hans aðalsmerki. Hann lærði húsasmíði og nýtti sér hæfileika sína fljótt í mikilvæg verkefni. Eitt það fyrsta, og líklega það af- drifaríkasta, var þegar hann fyrir um 50 árum frelsaði verðandi eig- inkonu sína út úr herberginu sínu þegar hurðin hviklæstist. Fjöl- skyldumeðlimum tókst ekki að opna og ákváðu að lokum að sækja Venna út í bíl þar sem hann beið eftir því að eiga stefnumót með nýju kærustunni og hafði enn ekki hitt tilvonandi tengdafjölskyldu sína. Það má því segja að hand- lagnin hafi opnað honum margar dyr. Dyrnar hjá Venna voru alltaf opnar og vilji hans til að hjálpa öðrum sem þurftu á að halda var sjálfsprottinn. Í þau fimmtán ár sem við fjöl- skyldan bjuggum erlendis vorum við alltaf velkomin og gista á heim- ili hans og tengdamömmu í öllum okkar fríum. Hann var gjafmildur og hikaði ekki við að lána okkur öll þau tæki og tól sem hann átti og þau voru ófá. Bíllinn hans stóð okkur líka alltaf til boða og með í pakkanum var að passa börnin okkar. Venni kenndi mér smíðar og verklag. Hann var vandvirkur með eindæmum og mikið snyrti- menni. Fyrir mig var hann ótæm- andi fjársjóður af verkviti og verk- lausnum. Um leið og við hjónin festum kaup á húsnæði sem við vildum gera upp var Venni kom- inn í öllum sínum frístundum svo mánuðum skipti til að að græja húsið frá grunni upp í ris. Hann smíðaði og skapaði stóru myndina í smáatriðum og aldrei var ryk- arða skilin eftir í lok langs vinnu- dags. Venni var mér sá faðir sem ég átti aldrei. Ég hefði ekki getað fengið betri fyrirmynd. Nú er hann fallinn frá eftir erfið veikindi og kominn í aðra heima. Við þessa kveðjustund er söknuður og þakk- læti mér efst í huga. Þar sem áður var líf og gleði, er ei meir á sólríkum degi vinur deyr. Þú kvaddir í hljóði, í löngum draumi þá hugur þinn löngu farinn frá lífsins glaumi. Nú ertu kominn í aðra heima, heima sem kærleik og gleði geyma. Á daginn þú smíðar og rósirnar snyrtir á nóttunni brosir þar til í hjörtunum birtir. Elfar Úlfarsson Elsku afi Venni var stór hluti af lífi okkar. Ekki síst vegna þessa að við fjölskyldan bjuggum hjá hon- um og ömmu í Látraselinu í öllum okkar sumar- og jólafríum í þau 15 ár sem við bjuggum í Svíþjóð. Afi var alltaf svo glaður og ánægður með að hafa okkur hjá sér. Jafnvel þegar við í fjölskyldunni vorum orðin sex og tókum orðið ansi mik- ið pláss. Minningarnar eru margar. Afi að skellihlæja með okkur yfir teiknimyndum sem urðu alltaf fyndnari fyrir vikið. Afi aflakló að veiða með okkur og kunni að hnýta fullkomna veiðihnúta. Afi reddari að laga allt sem bilaði og flautaði alltaf lágt á meðan. Afi snyrtipinni að stússast í bílskúrn- um sínum þar sem allt var ávallt í röð og reglu. Afi með grænu fing- urna sína að gera garðinn fínan. Afi í hægindastólnum sínum að horfa á sjónvarpsfréttirnar. Afi bílstjóri að skutla okkur hvert sem við þurftum að fara. Afi handlagni í framkvæmdum að smíða og laga. Afi forvitni með okkur á ferðalög- um að skoða alla framandi hluti í þaula, hann vildi alltaf kanna hvernig allt virkaði. Afi matmaður að njóta þess að hittast og borða góðan mat með stórfjölskyldunni, þá naut hann sín allra best. Við kveðjum þig með söknuði, elsku besti afi, og munum aldrei gleyma þér. Þín Alexander, Ósk, Vilhjálmur Jón og Jóhanna Inga. Vilhjálmur eða Venni bróðir eins og hann var alltaf kallaður í fjölskyldunni var elstur okkar sjö systkina. Venni fékk ungur löm- unarveiki og var þess vegna mikið hjá ömmu, Vilhelmínu Kristjáns- dóttur, og afa, Jóni Jónssyni, á þessum tíma. Þegar fjölskyldan okkar flutti til Flateyrar 1958 varð Venni eftir í Reykjavík hjá ömmu og afa þar sem betri aðstoð var að fá vegna veikindanna. Það varð til þess að hann ólst upp hjá þeim við allt aðrar aðstæður en við hin. Venni kom oftast vestur á sumrin og hafði hann orð á því við mig hvað það var erfitt að fara suður aftur eftir að hafa verið með okk- ur, allri fjölskyldunni, sumarlangt. Venni lærði til smiðs og fetaði þannig í fótspor afa okkar Jóns Jónssonar. Hann starfaði við smíð- ar alla sína starfsævi þó ekki væri það alltaf hans aðalstarf. Hann þótti einstaklega vandvirkur og ná- kvæmur við öll þau verk sem hann tók sér fyrir hendur. Jafnvel þótti einhverjum nákvæmnin meiri en góðu hófi gegndi. Venni hóf störf hjá BYKO 1988 og vann þar lengst af sem deilda- stjóri festingadeildar verslunar- innar í Breiddinni. Venni var ánægður í sínu starfi og sinnti því af fagmennsku. Það var sama við hvern maður talaði, það vissu allir hver Villi í BYKO væri, en það var hann kallaður þar. Venni var þekktur fyrir mikla þekkingu og afbragðsgóða þjónustulund. Venni var ellefu árum eldri en ég. Það má segja að ég hafi ekki kynnst Venna fyrir en 1985, árið sem ég flutti heim frá Svíþjóð. Það var gott að leita til Venna. Hann var traustur, vildi allt fyrir mann gera og það var gott að ræða við hann. Þó ég væri hvatvís og oft fljótur á mér en Venni rólegur og yfirvegaður, fannst mér gott hvað við náðum vel saman. Það var alltaf stutt í brosið hjá Venna en hann ljómaði ef ég gat stungið að honum einum eða tveimur bröndurum. Venni var mikill Kiwanismaður og bauð okkur bræðrunum gjarnan með þar í veislur hvort sem um var að ræða skötu, villibráðarhlaðborð eða annað. Var þá gjarnan boð áð- ur heima hjá Venna og Jóhönnu þar sem boðið var upp á góðar veit- ingar. Áttum við saman margar ógleymanlegar stundir. Venni var giftur Jóhönnu Guð- jónsdóttur og áttu þau saman þrjú börn. Hann var mikill fjölskyldu- maður og hugsaði vel um sína nán- ustu. Þau Jóhanna byggðu sér fal- legt heimili, síðast í Látraseli. Stórfjölskyldan var Venna einnig mikilvæg og kær. Venni greindist með alzheim- ers-sjúkdóminn 63 ára og var sú barátta erfið og grimm. Jóhanna og fjölskyldan öll stóð honum þétt við hlið í gegnum erfiða tíma. Elsku Jóhanna, Dröfn, Guðjón og Símon, innilegar samúðar- kveðjur til ykkar og fjölskyldunn- ar allrar. Guð styrki ykkur í sorg- inni. Þ. Þráinn Guðbjartsson. Áttundi áratugurinn er í al- gleymingi og við Dröfn tilheyrum öflugri sveit pokadýra í Hagkaup í Skeifunni. Eftir á að hyggja þá er þetta eina starfsstéttin sem við vinkonur höfum tilheyrt sem lagt hefur upp laupana. Fram undan hjá okkur vinkon- um eru langir vinnudagar í poka- bransanum, með herðapúðana á sínum stað, sem brotnir eru upp með heimsóknum í Pizzahúsið og ef við erum heppnar, sem við er- um ansi oft, koma Jóhanna og Vil- hjálmur að sækja okkur. Þegar ég horfi til baka og hugsa til Vil- hjálms hljómar lagið „Solid as a rock“ sem er dálítið merkilegt því ég held að við vinkonurnar höfum mest hlustað á Whitney Houston á Seljabrautarárunum, að minnsta kosti þegar Dröfn fékk að ráða, en þetta lag er mjög viðeigandi þegar Vilhjálms er minnst. Fjölskylda Drafnar vinkonu minnar er einfaldlega þannig að þegar maður tengist einum í fjöl- skyldunni þá tengist maður allri fjölskyldunni, foreldrunum sem voru dálítið eins og jörð og eldur, bræðrunum, Ingu fræknu og ömmu og afa sem lést árið 2018. Nú kveðjum við Vilhjálm og, svona eftir á að hyggja, finnst mér að hann hafi alltaf verið að gera mér smá greiða en ég hafi aldri getað endurgoldið honum greiðana. Reyndar held ég að ég hafi hjálpað í einhverju afmæli hjá honum en ég tel það varla með því hann var allt- af boðinn og búinn til að koma og segja sitt góða og fagmannlega álit á öllum framkvæmdum á mínu heimili. Vilhjálmur var ekki marg- máll en það sem hann sagði var gulls ígildi og hann kunni vel að meta þegar vandað var til verka. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar ég fékk Vilhjálm til að segja sitt álit á baðherbergisframkvæmd heima hjá mér, þau hjónin komu saman, Jóhanna spjallaði en Vil- hjálmur skoðaði sig um, spurði spurninga og kvaddi með því að segja að honum þætti þetta fínt. Í næsta símtali við Dröfn mína kom í ljós að pabbi hennar hafði verið yfir sig hrifinn, já hann Vilhjálmur var ekki að dreifa efsta stigs lýsingar- orðum að óþörfu en lét verkin tala. Sóttvarnaráðstafanir munu hamla því að ég fylgi Vilhjálmi seinasta spölinn en hann mun vera umkringdur sínum nánustu og það er jú fólkið sem skipti hann ávallt mestu máli. Elsku Dröfn mín, elsku Jóhanna, Guð- jón, Símon og fjölskyldur, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Anna Sif Jónsdóttir. Kær frændi er fallinn frá, eftir erfið veikindi. Ég sit hér á Skriðu og horfi upp í loftið á bústaðnum og minn- ist góðs og hjálpsams frænda, hingað kom hann að hjálpa frænda sínum eftir að hann veikt- ist og mátti finna að veikindin höfðu haft áhrif. En viljinn og hjálpsemin voru sannarlega á sín- um stað. Venni, eins og við kölluðum hann í fjölskyldunni, og ég vorum systkinabörn en Venni var í raun meira, nær því að vera föðurbróð- ir því hann var mikið hjá Jóni afa og Villu ömmu og að hluta alinn upp af þeim. Ein af fyrstu bernskuminningum mínum er um Venna í rúminu hjá afa og ömmu með sáraumbúðir á fæti eftir að hafa fatast miðið í hnífap- arís. Önnur er að Venni átti „mekkanó“ og ég man hvað spennandi var að fylgjast með honum byggja allrahanda hluti úr því, og hvað þá að fá að byggja sjálfur. Venni hafði ákveðnum skyld- um að gegna hjá afa og ömmu, þar á meðal að sjá um G 1087 sem var bíll afa en afi var blindur síð- ustu æviárin svo Venni var um- sjónarmaður og bílstjóri þeirrar bifreiðar. Ótrúlega var gaman fyrir ungan dreng að fá að fara með frænda sínum í bíltúr. Annað sem hann sá um var jólaserían sem var með sérstökum perum með innbyggðum loftbólum. Al- veg fram á síðustu ár var Venni að leita að perum í hana og fann að lokum og mikið var gaman að sjá hana í gangi um síðustu jól. Ég á ótal aðrar skemmtilegar minningar úr æsku enda bjó stór- fjölskyldan í miklu návígi í Vest- urbænum. Heimilið á Vesturgöt- unni er sérkafli í lífi okkar í fjölskyldunni. Þar bjuggu afi og amma síðustu árin, svo og Venni. Amma hélt heimili til æviloka, komin hátt á tíræðisaldur, og á engan er hallað þótt ég fullyrði að hún hefði ekki getað það nema fyrir ómælda aðstoð þeirra Venna og Jóhönnu sem sinntu henni af einstakri nærgætni og trúmennsku. Á sunnudags- morgnum var ævinlega kaffi á könnunni og pönnukökur og þar hittist stórfjölskyldan og oftast mætti Venni. Venni lærði trésmiði og vann við þá iðn alveg þangað til hann hóf störf í Byko. Hann var fær í sínu fagi og afar farsæll smiður. Fagþekking hans nýttist vel hjá Byko þar sem hann sá um fest- ingadeildina í Breiddinni. Hann var einstaklega vinsæll og vel lið- inn og byggði deildina upp af mikilli þekkingu og gerði hana þannig að eftir var tekið. Hann var virtur og velmetinn af meist- urum og verktökum og menn söknuðu hans sárlega þegar hann hætti þar. Eins og áður sagði var hann einstaklega hjálpsamur, jafnan boðinn og búinn að aðstoða, hafði alltaf tíma og var bóngóður með afbrigðum. Þau Jóhanna voru líka einstaklega samhent og dugleg að rækta tengslin við vini og ætt- ingja. Við Sigga höfum notið góðs af því. Ég á eingöngu ljúfar og hlýjar minningar um Venna og ánægjuleg samskipti okkar alla tíð. Þau einkenndust af rólyndi hans og góðri nærveru. Hans verður ævinlega minnst með hlýju í hjarta. Elsku Jóhanna og fjölskylda, megi allar góðar vættir fylgja ykk- ur og styðja um ókomna framtíð. Jón Ingi Guðmundsson. Nú þegar komið er að leiðarlok- um hjá ástkærum vini okkar Vil- hjálmi Jóni Guðbjartssyni, Venna, langar okkur að minnast hans og þakka fyrir að hafa fengið að ganga með honum í gegnum lífið. Samfylgd sem spannar yfir 50 ár og aldrei hefur fallið skuggi á þá vináttu. Við kynntumst þegar við vorum öll undir tvítugu. Hópurinn hittist reglulega á Bárugötunni í húsnæði ungtemplara á þriðju- dagskvöldum og á gömlu dönsun- um í Templarahöllinni á laugar- dagskvöldum. Þar bundumst við sterkum vináttuböndum. Við höfðum öll unun af ferðalögum og ferðuðumst saman hvenær sem tími gafst. Hanna og Venni voru fyrsta parið í okkar hópi en á þeim tíma fór hópurinn að tvístrast, sumir fóru út á land og aðrir til útlanda. Við vorum hrædd um að missa hvert af öðru og stofnuðum því saumaklúbb til að halda utan um hópinn. Saumaklúbburinn varð fljótt að traustum vinahópi sem naut þess að koma saman af ýms- um tilefnum. Farið var í árvissar fjölskyldutjaldferðir, sumar- bústaðaferðir, utanlandsferðir, árshátíðir haldnar og matarklúbb- ur stofnaður, að ógleymdum gönguferðum. Við vorum eins og stórfjölskylda þar sem eiginmenn urðu vinir og börnin vissu ekki betur en að allir væru bundnir fjölskylduböndum og þannig vildi Venni ekki síst hafa það. Sumarferðalög hópsins voru ávallt tilhlökkunarefni og þar var Venni í essinu sínu. Hrókur alls fagnaðar við grillið enda matgæð- ingur, hafði bæði skoðun og vit á eldun og framreiðslu góðs matar. Skipulagshæfileikar hans nutu sín vel í byggingu á „sameigninni“ en hópurinn fjárfesti snemma í forláta tjaldi þar sem allir gátu borðað saman og haldið kvöldvökur í hvaða veðri sem var. Til að tjalda því þurfti gott skipulag og stýrði Venni ávallt því verki af mikilli röggsemi. Það var gott að vera í návist Venna, hans fallega bros og glettnin í augunum lýstu stundina. Það fylgdi honum alltaf yfirvegun og rósemd. Allir hlutir voru á sín- um stað. Nákvæmni hans og natni birtust í öllum hans verkum jafnt í smíðinni sem var hans iðn, sem og umgengni við alla hluti. Bílarnir hans voru til að mynda alltaf eins og nýkomnir úr kassanum, alltaf hreinir og vel við haldið. Allt sem hann gerði var vel gert. Venni var hjálpsamur og ætíð tilbúinn að leggja góðum málum lið. Kiwanisklúbburinn Elliði, sem hann var félagi í yfir 40 ár, naut góðs af dugnaði hans og nennu. Þegar Venni er kvaddur er þakklæti efst í huga. Þakklæti fyr- ir ljúfmennskuna og hans góðu nærveru. Kæri Venni, hafðu þökk fyrir ógleymanlegar og yndislegar stundir í gegnum árin. Elsku Hanna okkar, Dröfn, Guðjón, Símon og fjölskyldur, okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Megi góður guð styrkja ykkur á þessum sorgartímum og minn- ingin um dásamlegan eiginmann, föður, tengdaföður og afa lifa. Anna, Þröstur, Ása, Eiríkur, Ás- laug, Guðrún, Kristín, Rebekka, Sigþór, Þóra María og fjölskyldur. Vilhjálmur Jón Guðbjartsson Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, KARENAR VILHJÁLMSDÓTTUR kennara. Sérstakar þakkir til starfsfólks Fríðuhúss og starfsfólks Hrafnistu í Skógarbæ. Þorvaldur Óskarsson Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir, Sigurður Ásgrímsson Marta Steina Þorvaldsdóttir, Gautur Þorsteinsson Vilhjálmur Smári Þorvaldsson, Rósa Halldórsdóttir Óskar Torfi Þorvaldsson, Susanne A. Elgum barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.