Morgunblaðið - 08.10.2020, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020 55
Atvinnuauglýsingar 569 1100
Þjóðminjasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar starf sviðsstjóra kjarnasviðs
muna og minja. Leitað er að öflugum stjórnanda til þess að leiða faglegt starf
kjarnasviðs Þjóðminjasafns Íslands þar sem reynir á samskiptahæfni, frumkvæði,
stjórnun verkefna og forystuhæfileika. Á kjarnasviði er unnið að faglegu safna-
starfi og þjóðminjavörslu þ.e. varðveislu, rannsóknum og miðlun þjóðminja og
safnkosts. Kjarnasvið endurspeglar lögbundið hlutverk Þjóðminjasafns Íslands.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sviðsstjóri stýrir faglegu starfi kjarnasviðs og er ábyrgur gagnvart þjóðminjaverði.
Sviðsstjóri ber ábyrgð á að starfsemi sviðsins sé í samræmi við heildarmarkmið
og áherslur stofnunarinnar almennt.
Menntunar og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, meistaragráða skilyrði.
- Þekking og reynsla af stjórnunarstörfum skilyrði.
- Þekking og reynsla á fagsviði safnastarfs æskileg.
- Reynsla af verkefnastjórnun æskileg.
- Reynsla af gæðamálum æskileg.
- Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu æskileg.
- Leiðtogafærni, lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð.
- Gott vald á framsetningu efnis í töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku.
Kunnátta í Norðurlandamáli er kostur.
Umsóknarfrestur er til og með 12. október 2020. Sótt er um starfið á heimasíðu
Þjóðminjasafns Íslands. Nánari upplýsingar um starfið veita: Hildur Halldórsdóttir
mannauðsstjóri, hildur@thjodminjasafn.is, sími 864-6186 og Margrét Hallgríms-
dóttir þjóðminjavörður, margret@thjodminjasafn.is, sími 861-2200.
Þjóðminjasafn Íslands er höfuðsafn á sviði menningarminja og starfar á grundvelli
laga nr. 140/2011, safnalaga nr. 141/2011 og laga um menningarminjar nr. 80/2012.
Þjóðminjasafn Íslands starfar í almannaþágu og er hlutverk þess að
stuðla sem best að varðveislu menningarminja á landsvísu,
þekkingarsköpun og fjölbreyttri fræðslu um menningarsögu Íslands.
Þjóðminjasafn Íslands leitar af öflugum stjórnanda
Sviðsstjóri kjarnasviðs hjá Þjóðminjasafni Íslands
Ísfélag Vestmannaeyja auglýsir laust starf:
Umsjónarmaður
fiskvinnsluvéla
Ísfélag Vestmannaeyja hf. auglýsir starf til umsóknar í frystihúsi félagsins í
Vestmannaeyjum. Umsjón og viðhald fiskvinnsluvéla hússins. Í frystihúsinu eru
sjö Baader síldarflökunarvélasamstæður, tveir Baader bolfiskhausarar og þrjár
Baader bolfiskflökunarvélar og ný bolfiskroðrífa frá Baader. Mjög góð
vinnuaðstaða er á vélaverkstæði fiskvinnsluvéla.
Starfssvið og helstu verkefni
· Viðhald og umsjón fiskvinnsluvéla
· Samvinna við verkstjóra við keyrslu véla
· Leiðbeina starfsfólki á fiskvinnsluvélum
· Brýningar hnífa
· Innkaup varahluta og lagerhald
Menntunar og hæfniskröfur
· Menntun í viðgerðum véla er kostur
· Reynsla í viðgerðum fiskvinnsluvéla
· Sjálfstæði og skipulagshæfileikar
Nánari upplýsingar veitir Björn Brimar Hákonarson
framleiðslustjóri frystihúss í síma 892 0215 eða í
netfangi bjorn@isfelag.is. Umsóknir sendist
einungis í tölvupósti eigi síðar en 1.nóvember 2020.
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is
Fyrirmyndarfyrirtæki
2020
hagvangur.is