Morgunblaðið - 08.10.2020, Síða 63
ÍÞRÓTTIR 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020
Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu mætir Rúmeníu í
undanúrslitum umspils um laust
sæti í lokakeppni EM í kvöld en
upphaflega átti leikurinn að fara
fram í nóvember á síðasta ári.
Biðin eftir landsleiknum er því
orðin ansi löng og strembin en í
gegnum tíðina hefur íslenska
karlalandsliðið verið hálfgert
sameiningartákn þjóðarinnar.
Gullaldarkynslóðin í ís-
lenska liðinu er komin eða er að
komast á fertugsaldurinn og því
spyrja margir sig hversu mörg
góð ár þeir eiga eftir með lands-
liðinu. Það er alla vega alveg
ljóst að liðið á enn þá góða
möguleika á því að fara á þriðja
stórmótið í röð sem yrði stór-
kostlegur árangur hjá þjóð sem
telur ekki yfir 365.000 manns.
Það er öllum ljóst að leikurinn
gegn Rúmeníu verður afar
strembinn og fari svo að liðinu
takist að vinna bíður liðsins ann-
að strembið verkefni gegn ann-
aðhvort Búlgaríu eða Ungverja-
landi í úrslitaleik um laust sæti
á EM. Eftir að hafa setið blaða-
mannafund með Aroni Einari
Gunnarssyni, fyrirliða íslenska
liðsins, í gær þá er ekki hægt
annað en að vera bjartsýnn.
Maðurinn er ekki bara fædd-
ur sigurvegari heldur er hann
líka stútfullur af sjálfstrausti,
alltaf. Hann gæti eflaust sann-
fært Kim Jong-un um að segja
af sér sem forseti Norður-Kóreu
þegar þannig liggur á honum.
Hann sannfærði mig alla vega á
blaðamannafundi gærdagsins og
ég hef enga trú á öðru en að Ís-
land fari á sitt þriðja stórmót í
röð.
Íslenska þjóðin er að ganga
í gegnum erfiða tíma en lands-
liðið hefur oftar en ekki sam-
einað landann þegar mest á
reynir og mikið er undir. Áfram
Ísland!
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Guðni það ganga ágætlega.
„Að mörgu er að huga í þessum
aðstæðum og það má alveg segja að
þetta sé ótrúlega flókin fram-
kvæmd. Taka þarf tillit til alls kyns
sóttvarnareglna bæði frá yfirvöld-
um en einnig frá UEFA. Þótt ekki
verði nema fáir áhorfendur á leikn-
um þá er þetta engu að síður flókið
í framkvæmd. En þetta hefur geng-
ið vel og samhliða landsleikjum
þurfum við að huga að mótahaldi og
öllu öðru starfi hjá knattspyrnu-
sambandinu. Þetta hefur tekið á en
gengið vel. Við kvörtum ekki og ég
held að framkvæmdin á morgun [í
dag] eigi eftir að ganga vel.“
Skiptir máli að hafa Tólfuna
Fyrir ekki löngu síðan voru vænt-
ingar um að hægt yrði að leyfa fólki
að fara á völlinn og ljóst að ekki
vantar eftirspurnina þegar svo mik-
ið er í húfi. Talsverð óvissa hefur
verið í þeim efnum og fyrir nokkr-
um dögum var útlit fyrir að um þús-
und áhorfendur gætu verið í Laug-
ardalnum en segja má að þær vonir
hafi að engu orðið á upplýs-
ingafundi almannavarna fyrir
tveimur dögum.
„Ég var í sambandi við UEFA
fyrir rúmum tveimur mánuðum. Þá
gerði maður sér vonir um að geta
verið með fjögur tvö þúsund manna
hólf á þessum leik eða nánast fullan
völl. En við höfum þurft að takast á
við þetta sem dunið hefur yfir und-
anfarnar vikur og mánuði. Þetta
hefur breyst viku frá viku og jafn-
vel dag frá degi. Við verðum þó með
okkar dyggustu stuðningsmenn í
Tólfunni sem munu hvetja strákana
áfram. Ég held að það muni skipta
máli og gefa landsliðsmönnunum
kraft. En eftir allt sem á undan er
gengið er ánægjulegt að þessi leik-
ur fari loksins fram og við ætlum
okkur sigur. Hjá mér persónulega
held ég að það verði ákveðinn léttir
þegar maður getur sest í sætið og
horft á leikinn eftir að hann verður
loksins flautaður á. Ég geri ráð fyr-
ir því að stór hluti þjóðarinnar verði
heima í stofu að fylgjast með.“
Laugardalsvöllurinn hefur af og
til verið vettvangur mikilvægra
leikja í október og völlurinn er í
góðu ásigkomulagi að sögn for-
mannsins.
„Það er auðvitað farið að kólna og
því þarf að hafa fyrir því að halda
vellinum við. Hann er í góðu standi
miðað við árstíma. Eins góðu og
hægt er að búast við myndi ég
halda,“ sagði Guðni Bergsson.
Tekur á en gengur vel
„Ótrúlega flókin framkvæmd“
vegna glímunnar við kórónuveiruna
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lykilmenn Jóhann Berg og Gylfi Þór æfðu á Laugardalsvellinum í gær.
EM 2021
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„Nei, mesta furða. Ég hef góða til-
finningu fyrir leiknum en ég er nú
líka bjartsýnn maður almennt séð.
Ég hef góða tilfinningu fyrir þess-
um leik sem og flestum öðrum hjá
landsliðunum,“ sagði Guðni Bergs-
son, formaður Knattspyrnu-
sambands Íslands, þegar Morg-
unblaðið innti hann eftir því hvort
hann væri orðinn stressaður fyrir
leikinn mikilvæga gegn Rúmeníu í
kvöld.
„Við erum með mjög sterkan
leikmannahóp. Í þetta skiptið eru
nánast engin meiðsli en nokkuð hef-
ur verið um það í undanförnum
leikjum. Menn eru instilltir og ætla
sér sigur. Liðið ætlar sér auðvitað
að komast á EM.“
Þótt þær reglur sem Knatt-
spyrnusamband Evrópu hafi sett
um framkvæmd leiksins hafi legið
fyrir þá hafa breytingar orðið á
sóttvarnareglum hér innanlands á
síðustu dögum og vikum. Spurður
um hvernig starfsfólki KSÍ hafi
gengið að undirbúa leikinn sagði
Hafdís Renötudóttir, markvörður
íslenska kvennalandsliðsins, er
gengin til liðs við sænska úrvals-
deildarfélagið Lugi frá Lundi. Haf-
dís hefur ekkert leikið með Fröm-
urum á tímabilinu vegna
höfuðmeiðsla en hún er 23 ára göm-
ul. Hún þekkir vel til í Svíþjóð eftir
að hafa leikið með Boden tímabilið
2018-19. Þá hefur Hafdís einnig
leikið með SønderjyskE í Dan-
mörku en hún er uppalin hjá Fram í
Safamýrinni. Lugi er í neðsta sæti
sænsku úrvalsdeildarinnar án stiga
eftir fyrstu tvo leiki sína.
Hafdís samdi við
Lugi í Svíþjóð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Svíþjóð Hafdís Renötudóttir er á
leið á kunnuglegar slóðir.
Margir íslenskir handknattleiks-
menn voru á ferð með liðum sínum í
gærkvöld, eins og sjá má neðst á
þessari síðu. Þar fóru fremstir í
flokki Daníel Freyr Andrésson,
markvörður Guif í Svíþjóð, og
Viggó Kristjánsson, skytta hjá
Stuttgart í Þýskalandi. Daníel fór á
kostum í markinu hjá Guif þegar lið
hans tapaði naumlega fyrir Ystad
IF. Hann varði hvorki fleiri né
færri en 22 skot og var með 45 pró-
sent markvörslu. Viggó var í aðal-
hlutverki hjá Stuttgart og skoraði 8
mörk í sigri á Essen.
Var með 45 pró-
sent markvörslu
Morgunblaðið/Eggert
Góður Daníel Freyr Andrésson
varði 22 skot í leiknum í gær.
Öllum leikjum á Íslandsmótunum í
handknattleik og körfuknattleik
hefur verið frestað næstu tólf dag-
ana, eða til mánudagsins 19. októ-
ber, vegna tilmæla sóttvarnalæknis
og almannavarna um að gert yrði
hlé á íþróttastarfi vegna útbreiðslu
kórónuveirunnar.
Knattspyrnusamband Íslands til-
kynnti enn fremur í gærkvöld að
öllu mótahaldi á Íslandsmótinu yrði
frestað um eina viku, eða til 14.
október.
HSÍ og KKÍ stóðu frammi fyrir
því að mælst var til þess að engir
íþróttaviðburðir færu fram innan-
húss en hins vegar hefði KSÍ getað
haldið áfram keppni utanhúss með
mjög ströngum reglum um sótt-
varnir og án áhorfenda.
Tvær umferðir í hvorri grein
Í handboltanum þýðir þetta að
tveimur umferðum í úrvalsdeildum
karla og kvenna hefur verið frest-
að. Konurnar áttu að leika 4. um-
ferð deildarinnar frá kvöldinu í
kvöld til laugardags og 5. umferð-
ina laugardaginn 17. október.
Karlarnir áttu að leika fimmtu
umferð sína frá laugardegi til
þriðjudags og sjöttu umferð 17. og
18. október.
Sama er að segja um efstu deild-
irnar í körfuboltanum. Konurnar
áttu að leika sína fjórðu umferð í
gærkvöld og fimmtu umferðina
næsta miðvikudag. Karlarnir áttu
að leika aðra umferð á föstudag og
laugardag og þriðju umferðina
viku síðar.
Engin frestun hjá körlunum
Í knattspyrnunni hefur viku
frestun ekki áhrif á keppni í úrvals-
deild karla en þar er ekki umferð á
dagskrá fyrr en fimmtudaginn 15.
október vegna landsleikjanna
næstu daga. Fjórar síðustu umferð-
ir deildarinnar eiga að fara fram á
tímabilinu 15. til 31. október.
Hins vegar átti að leika
sautjándu og næstsíðustu umferð
úrvalsdeildar kvenna á laugardag-
inn kemur, ásamt því að tveir áður
frestaðir leikir KR-inga áttu að
fara fram á þessu tímabili. Við-
ureign Fylkis og KR sem átti að
fara fram í gærkvöld var blásin af.
Tveimur umferðum er ólokið í
úrvalsdeild kvenna og einni til
tveimur umferðum í neðri deildum
karla og kvenna. KSÍ getur hvenær
sem er blásið Íslandsmótið end-
anlega af og þá mun staða liða,
samkvæmt hlutfalli stiga og leikja,
verða endanlega lokastaða í við-
komandi deildum. vs@mbl.is
Öllum leikjum frest-
að í sjö til tólf daga
Meistaratitillinn blasir við Los Ang-
eles Lakers eftir sigur gegn Miami
Heat í fjórðu viðureign liðanna í úr-
slitum NBA-deildarinnar í körfu-
knattleik, 102:96. Þótt lið Miami sé
laskað hefur Lakers þurft að hafa
fyrir hlutunum og forskot liðsins
var aldrei mikið í leiknum.
LeBron James voru mislagðar
hendur í fyrri hálfleik en hann var
framúrskarandi í síðari hálfleik.
Skoraði þegar upp var staðið 28
stig, tók 12 fráköst og gaf átta stoð-
sendingar. Anthony Davis var mun
betri en í þriðja leiknum og skoraði
22 stig. Kentavious Caldwell Pope
kom á óvart og skoraði 15 stig fyrir
Lakers.
Miami var án Gorans Dragic og
Bams Adebayos í tveimur leikjum.
Dragic er enn frá en Adebayo gat
verið með og skoraði 15 stig.
Jimmy Butler skoraði 22 stig, tók
10 fráköst, gaf níu stoðsendingar
og stal boltanum þrívegis. Hann
geislar af sjálfstrausti í úrslita-
rimmunni. Hinn tvítugi Tyler
Herro skoraði 21 stig. kris@mbl.is
AFP
3:1 Jimmy Butler og LeBron James eigast við í fjórða leiknum.
Meiri fyrirstaða en
margir töldu
Þýskaland
Bergischer – Erlangen ....................... 29:25
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 5 mörk
fyrir Bergischer en Ragnar Jóhannsson
ekkert. Bergischer er með 4 stig eftir tvær
fyrstu umferðirnar.
Stuttgart – Essen................................. 31:23
Viggó Kristjánsson skoraði 8 mörk fyrir
Stuttgart en Elvar Ásgeirsson ekkert.
Stuttgart er með 2 stig.
Danmörk
Skanderborg – Ribe-Esbjerg............. 29:27
Rúnar Kárason skoraði eitt mark fyrir
Ribe-Esbjerg, Daníel Þór Ingason og
Gunnar Steinn Jónsson ekkert.
SønderjyskE – Mors ............................ 25:37
Sveinn Jóhannsson skoraði ekki fyrir
SønderjyskE.
Noregur
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Drammen – Viking.............................. 35:21
Óskar Ólafsson skoraði 5 mörk fyrir
Drammen.
Svíþjóð
Kristianstad – Helsingborg................ 28:27
Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 3
mörk fyrir Kristianstad og Teitur Örn Ein-
arsson eitt.
Guif – Ystad IF..................................... 28:30
Daníel Freyr Ágústsson varði 22 skot í
marki Guif, þar af 2 vítaköst.
Sviss
Suhr Aarau – Kadetten....................... 27:25
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar lið Kadet-
ten Schaffhausen.
KNATTSPYRNA
Umspil EM karla, undanúrslit:
Laugardalsv.: Ísland – Rúmenía......... 18.45
Í KVÖLD!