Morgunblaðið - 08.10.2020, Síða 66

Morgunblaðið - 08.10.2020, Síða 66
66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2020 Skógurinn, bæði í eiginlegrimerkingu og sem tákn fyr-ir nánast hvað sem er, ermeginstefið í bók Jónasar Reynis, Dauði skógar. Hún segir frá Magnúsi, miðaldra karlmanni í litlu þorpi, sem finnst hann vera ör- lítið á skjön við samfélagið sem hann býr í. Lesandinn fær að fylgj- ast með Magnúsi gera upp fortíðina eftir dauða föður síns í tætings- legri nútíð. Þrjár kynslóðir utangátta karl- manna birtast í bókinni, Magnús sjálfur, faðir hans og sonur. Tilfinningin sem bærist innra með þeim öllum kemst áleiðis til lesandans, óþægi- leg tilfinning þess sem finnst hann ekki tilheyra samfélaginu og langar jafnvel ekki að vera í tengslum við það. Skógurinn er áþreifanlegur í bók- inni, skógurinn sem var og skóg- urinn sem verður, skógurinn sem dó og skógurinn sem brennur, og fléttast inn í nánast hvert einasta orð bókarinnar. Hann er tákn fyrir minningar, lífið og dauðann, og vek- ur það því djúpa sorg hjá lesand- anum þegar tré fellur eða deyr, rétt eins og um manneskju væri að ræða. Jónasi Reyni, höfundi bók- arinnar, tekst reglulega vel að tengja alla anga bókarinnar saman með skóginum og mynda þannig eina gróðursæla heild og skilja les- andann eftir saddan. Texti Jónasar hefur rætur sem liggja allar á einn eða annan hátt saman og tengist hvert textabrot í bókinni þannig öðru textabroti. Flæðið í bókinni er í stuttu máli hrein unun. „Rauð lína skipti skóginum í tvennt, í dauðan skóg og lifandi, og landamærin færðust hratt til.“ Þrátt fyrir að þræðir sögunnar fléttist svo vel saman er söguþráð- urinn í heild sinni á tíðum stefnu- laus og er erfitt að sjá hvaða mark- mið söguhetjan hefur. Sagan virðist vera eins konar innlit í líf Magnúsar og þeirra sem hann umkringja án þess að um eiginlega ferð frá A til B sé að ræða. Persónusköpunin er almennt til fyrirmyndar, flestar persónur bók- arinnar eru áhugaverðar og sam- kvæmar sjálfum sér. Hildi, eigin- konu Magnúsar, sem leikur stórt hlutverk í bókinni, er þó einungis lýst nokkuð yfirborðslega og verður hún þannig þreytandi karakter, án þess að það sé nauðsynlegt sögunni sjálfri. Lesandinn spyr sig hvort það hefði veitt sögunni aukna dýpt ef Hildur hefði fengið að vera sjálf- stæðari persóna sem hefði eitthvað annað að gera en að skammast og taka til. Bókina er erfitt að leggja frá sér og Jónasi Reyni tekst að hrífa les- andann og vekja spennu um það sem gerist næst í þessari þriðju skáldsögu hans. Þótt fyrri verk Jónasar hafi heillað undirritaða meira er Dauði skógar bók sem óhætt er að mæla með. Að lesa í skóginn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hrífandi „Bókina er erfitt að leggja frá sér og Jónasi Reyni tekst að hrífa lesandann og vekja spennu um það sem gerist næst,“ skrifar rýnir. Skáldsaga Dauði skógar bbbbn Eftir Jónas Reyni Gunnarsson. JPV útgáfa, 2020. Innb., 180 bls. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR Alþjóðlegri Kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, lauk 4. október og var að þessu sinni hægt að leigja valdar myndir hátíðarinnar á undir- vef RIFF sem nefndist RIFFheima, auk þess að sækja sýningar í Nor- ræna húsinu og Bíó Paradís. Áfram verður hægt að leigja valdar myndir á RIFF heima nú í október. Myndirnar á leigu verða í þremur flokkum. Sá fyrsti nefnist Ísland og Evrópsku kvikmyndaverðlaunin í gegnum tíðina og myndirnar í hon- um verður hægt að leigja og horfa á dagana 5.-11. október. Innsýn í huga listamanns nefnist annar flokkur og hægt að leigja úr honum frá 12. október og horfa á dagana 15.-18. október. Þriðji flokkurinn er Mið- næturhryllingur sem hægt verður að leigja úr frá 19. október og horfa á dagana 22.-25. október. „Með RIFF heima og Bíóbíl RIFF færðum við kvik- myndaunnendum um land allt myndirnar okkar og erum stolt af því. Bíóbíll RIFF sló í gegn en hann fór hringinn í kringum landið, heimsótti skóla og hélt bílabíó á kvöldin,“ segir Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF, í tilkynningu. „Á sýningar- stöðum seldum við færri miða en ella á hverja sýningu og takmörkuðum gestafjölda. Heilt yfir var aðsóknin á hátíðina góð og uppselt á sýningar á stærstu myndir hátíðarinnar eins og Nomadland og Druk. Sama er að segja um sérviðburði og Bransadag- ar á netinu og á staðnum gengu von- um framar.“ RIFF verður áfram heima í október Hrönn Marinósdóttir hafa ritað söguna á farsíma á milli þess sem hún sinnti nýfæddu barni sínu. Í eftirmálanum kemur fram að höfundurinn hafi um níu ára skeið bú- ið á eyju við Kyrrahafsströnd Kól- umbíu, eyju sem byggð er bláfátæku fólki af afrískum uppruna „sem lifir eiginlega utan við nútímann“. Lífríkið er afar fjölbreytilegt en þarna er líka mjög votviðrasamt og lífið stöðug barátta við erfiða náttúruna. Sagan Tíkin gerist í þorpi á þessari eyju og segir af Damaris, fátækri konu um fertugt sem hefur ekki getað eignast barn með manni sínum Rog- elio, þrátt fyrir að hafa þráð það heitt og reynt ýmislegt, eins og töfradrykki og meðferð töfralæknis til að verða barnshafandi. Þau hjón búa í kofa uppi á háum stapa við reisulegt frí- stundahús hvítra hjóna, hús sem Damaris og Rogelio annast um og þrífa, þrátt fyrir að eigendurnir hafi ekki sést þar árum saman eða síðan Dauði, grimmdin sem lúrirundir niðri, drasl og niður-brot söguheimsins ein-kenna Tíkina, þessa stuttu en býsna áhrifaríku skáldsögu kól- umbíska rithöfundarins Pilar Quint- ana (f. 1972). Þetta er þrettánda bók- in í hinni vel lukkuðu (og fallega hönnuðu) áskriftarröð forlagsins Angústúru en langflestar koma úr öðrum menningar- heimum en þeim enskumælandi og veita innsýn í for- vitnilega og fram- andi heima. Tíkin er fjórða skáldsaga Quint- ana og tryggði henni virt kólumbísk bókmenntaverð- laun, Biblioteca de Narrativa. Þýðing Jóns Halls Stefánssonar er lipur og rennur vel en hann hefur jafnramt ritað upplýsandi eftirmála um höf- undinn og verkið – en Quintana mun sonur þeirra fórst af slysförum þar sem hann lék sér við Damaris. Lát hans er grimmur forboði um það sem síðar verður. Eins og Jón Hallur fjallar um í eftirmálanum þá er móðurhlutverkið miðlægt í sögunni og „þrúgandi frjó- semi landslagsins og náttúrunnar“ kreppir að Damaris sem nær ekki að eignast barn en tekur hins vegar að sér nokkurra daga gamlan blindan tíkarhvolp eftir að móðirin er einn margra hunda á svæðinu sem drepast eftir að hafa, að því er virðist, verið gefið eitur. Tíkin er alin upp við þá ást og umhygju sem börn Damaris hefðu notið en hér birtist enn sú gamla sögn, að sjaldan launar kálfurinn ofeldið. Þegar tíkin eldist og eðli hennar tekur yfir, svo ekki er alltaf Damaris að skapi, þá eru viðbrögðin óvænt og afar stutt í grimmdina sem liggur alls staðar í leyni í þessum söguheimi. Margt er afar vel gert í þessari sögu Pilar Quintana. Heimurinn er dreginn raunsæislegum dráttum, þrúgandi frjór og ágengur. Fátækt- inni fylgir ómælt rusl, ryð og rotnun, og þessar aðstæður fóstra öfgafullar tilfinningar og viðbrögð. Bygging sögunnar er nokkuð brokkgeng fram- an af en marglaga mannlýsingar og frásagnir af samskiptum og átökum fólks, í fagmannlega mótuðum sögu- heimi, eru vel lukkaðar. Og stutt og hnitmiðuð frásögnin er eftir því áhrifarík lýsing á mótsagnakenndu mannlegu eðli þar sem fyrir miðju eru þrá, ást og grimmd. Höfundurinn Pilar Quintana bjó í allmörg ár á eyjunni við strönd Kól- umbíu þar sem sagan gerist. Þegar vonbrigði yfir lífinu vekja grimmdina Skáldsaga Tíkin bbbbn Eftir Pilar Quintana. Jón Hallur Stefánsson þýddi og ritar eftirmála. Angústúra, 2020. Kilja, 127 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Hollensk-bandaríski gítarleikarinn Eddie Van Halen er látinn, 65 ára að aldri, af völdum krabbameins í hálsi. Van Halen stofnaði rokksveit- ina Van Halen með bróður sínum, trommaranum Alex, árið 1972 en aðrir meðlimir sveitarinnar voru bassaleikarinn Michael Anthony og söngvarinn David Lee Roth. Sonur Eddies, Wolfgang, gekk til liðs við sveitina þegar hún kom saman á ný árið 2007. Eddie Van Halen varð víðfrægur fyrir mögnuð gítarsóló sín og lipurð á rafmagnsgítarinn og var hljómsveitin Van Halen ein vin- sælasta rokksveit níunda áratug- arins. Hefur fjöldi heimskunnra tónlistarmanna minnst Eddies síð- ustu tvo daga, m.a. Gene Simmons, söngvari Kiss, og David Lee Roth, félagi hans úr Van Halen. Látinn Eddie Van Halen var einn áhrifa- mesti gítarleikari rokksögunnar. Eddie Van Halen látinn, 65 ára AFP Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Hjá Bíljöfri starfa þaulreyndir bifvélavirkjar með ára- langa reynslu að baki og hafa yfir að ráða fullkomnum tölvum til að lesa og bilanagreina bílinn þinn Sérhæfð þjónusta fyrir 544 5151 tímapantanir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 Þjónustuaðilar IB Selfossi Getum sótt og skilað bílum á höfuðborgarsvæðinu NETKAST 7.- 12. okt. -20% AF ÖLLU M SKEC HERS S KÓM D’Lites Gleeful Verð: 14.995.-/ 11.995.- FRÍ HEIMSENDING

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.