Morgunblaðið - 21.10.2020, Síða 11

Morgunblaðið - 21.10.2020, Síða 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 2020 Við leigjum út krókgáma FRAMKVÆMDIR? til lengri eða skemmri tíma HAFÐU SAMBAND: sími: 577 5757 www.gamafelagid.is Hugsum áður en við hendum! Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna höfðaði í gær mál á hendur tækniris- anum Google, en fyrirtækinu er gefið að sök að hafa hagnýtt sér „ólöglega einokunaraðstöðu“ sína gagnvart leitarvélum og auglýsingum á netinu. Þetta er eitt stærsta samkeppnis- brotamál sem höfðað hefur verið i Bandaríkjunum undanfarna áratugi, en það gæti meðal annars leitt af sér að fyrirtækið verði brotið upp í smærri einingar. Jeffrey Rosen, aðstoðardóms- málaráðherra Bandaríkjanna, sagði á blaðamannafundi sínum í gær að málið beindist að yfirráðum Google yfir „vistkerfi“ netsins. „Google er hliðvörður netsins,“ sagði Rosen og bætti við að félagið hefði í krafti stöðu sinnar stundað viðskiptahætti sem héldu öðrum keppinautum niðri, og viðhéldi þannig einokun sinni með ólöglegum hætti. Í ákæruskjali stjórnvalda segir að Google hafi meðal annars gert sam- komulög til lengri tíma sem skylduðu m.a. framleiðendur símtækja til þess að hafa forrit frá Google þegar hlaðin á símunum þegar þeir væru fyrst seldir, og um leið kæmi félagið í veg fyrir að hægt væri að eyða sumum af sömu forritum. Þá biðja bandarísk stjórnvöld dómstólinn að íhuga allar leiðir til þess að bæta úr og koma í veg fyrir að Google geti haldið einokandi við- skiptaháttum sínum áfram, þar á meðal að fyrirtækinu verði skipt upp. Rosen sagði hins vegar að dómsmálið yrði að þróast meira áður en hægt væri að tala um hvernig það yrði gert. Segja málatilbúnaðinn rangan Í yfirlýsingu Google var ákvörðun stjórnvalda gagnrýnd harðlega, og sagt að málaferlin væru byggð á mjög veikum grunni, þar sem að- gerðir fyrirtækisins hefðu komið neytendum þess til góða. „Fólk notar Google, því það velur að gera það, ekki af því að það neyðist til þess eða geti ekki fundið aðra valkosti,“ sagði meðal annars í yfirlýsingu tækniris- ans. Bandarísk stjórnvöld hafa undan- farna mánuði rannsakað sterka stöðu sem nokkur fyrirtæki í há- tæknigeiranum hafa komið sér í, þar á meðal Google, Amazon, Facebook og Apple, og hafa þingmenn beggja flokka verið gagnrýnir á hana. Í ný- legri skýrslu sem kom út á vegum fulltrúadeildar Bandaríkjaþings var meðal annars lagt til að Google og öðrum fyrirtækjum yrði skipt upp til þess að viðhalda samkeppni. Sagði Rosen á blaðamannafundinum að dómsmálaráðuneytið væri einnig að fara yfir samkeppnisstöðu annarra fyrirtækja sem væru í leiðandi stöðu á netinu. „Aðgerðir dagsins marka tímamót en ekki endapunkt,“ sagði Rosen. Josh Hawley, öldungadeildarþing- maður repúblikana frá Missouri, sagði að málið yrði mikilvægasta samkeppnismál stjórnvalda í heila kynslóð, og fagnaði hann því að dómsmálaráðuneytið hefði látið til skarar skríða. Leitarvél, símar og landakort Í ákæruskjali stjórnvalda er sér- staklega vikið að þeirri staðreynd, að um 80% allra leita í Bandaríkjunum fara í gegnum leitarvél fyrirtækisins. „Google er með svo mikla yfirburði, að orðið er ekki bara nafnorð fyrir fyrirtækið eða leitarvélina, heldur einnig sögn sem þýðir að leita á net- inu,“ segir í skjalinu. Leitarvélinni var hleypt af stokk- unum árið 1998, en heimasíða henn- ar, google.com, er sú sem mest er heimsótt á netinu. Fyrirtækið fór á markað árið 2004, en sama ár ákvað það að bjóða upp á tölvupóstþjóninn Gmail, en um 1,5 milljarðar manna eru taldir nota hann fyrir tölvupóstföng sín. Þá hef- ur Google aukið þjónustu sína jafnt og þétt, og býður meðal annars upp á gps-forrit í farsíma og leit á landa- kortum, netvafrann Chrome, og var um tíma með sinn eigin samfélags- miðil, Google+, sem var lokað í fyrra. Þá hefur fyrirtækið þróað Android-farsímastýrikerfið, en það er til dæmis notað í farsíma frá Sam- sung, Sony og HTC. Árið 2017 var áætlað að rúmlega tveir milljarðar manna notuðu Android-stýrikerfið að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Málinu hefur verið líkt við mál sem Bandaríkjastjórn höfðaði á hendur Microsoft árið 1998, en því lauk á þann veg að fyrirtækið neyddist til þess að hætta að láta netvafra sinn og önnur Microsoft-forrit fylgja með Windows-stýrikerfinu. Þá hefur Google þurft að glíma við svipaðar ásakanir um einokunar- hætti í ríkjum Evrópusambandsins, en fyrirtækið hefur áfrýjað sektum sem framkvæmdastjórn þess hefur sett á vegna þeirra. AFP Google Bandaríkjastjórn hefur höfðað mál á hendur tæknirisanum fyrir brot á samkeppnislögum. Leggja til atlögu við Google  Bandaríkjastjórn höfðar mál á hendur tæknirisanum vegna einokunarstöðu  Áralöng málaferli sögð fram undan  Google mögulega brotið upp í einingar Aðalsamningamenn Breta og Evr- ópusambandsins ræddust við í gegn- um síma í gær, og hvatti Michel Bar- nier, fulltrúi Evrópusambandsins, Breta til þess að hefja fríverslunar- viðræður þeirra að nýju. Bretar telja hins vegar tilgangslítið að hefja þá vegferð að nýju, ef Evrópusamband- ið hyggst ekki gefa eftir af kröfum sínum. Þetta var annar dagurinn í röð sem Barnier og David Frost, samn- ingamaður Bretlands, eiga símtal um stöðu mála, en ríkisstjórn Bret- lands tilkynnti fyrir helgi að viðræð- unum væri í raun lokið. Frost sagði í yfirlýsingu sinni að samtal sitt og Barniers hefði verið gott og uppbyggilegt, en að staðan væri enn óbreytt. Þá hyggjast Frost og Barnier halda áfram sambandi í vikunni. Lávarðar tefja frumvarpið Þá varð breska ríkisstjórnin fyrir minniháttar skakkafalli í gær, þegar lávarðadeild breska þingsins neitaði að samþykkja umdeilt lagafrum- varp, þar sem ríkisstjórn Bretlands yrði veitt heimild til þess að brjóta gegn vissum ákvæðum útgöngusátt- málans við Evrópusambandið er varða viðskipti milli Norður-Írlands og hinna þriggja þjóðanna í Bret- landi. Neitunin þýðir að deildin mun leggjast yfir frumvarpið og gera breytingartillögur á því, sem neðri deildin þarf þá að skoða aftur. Michael Howard, fyrrverandi for- maður Íhaldsflokksins, var á meðal lávarðanna sem greiddu atkvæði gegn frumvarpinu, þrátt fyrir að vera stuðningsmaður útgöngunnar. Sagðist hann vilja að Bretar gætu borið höfuðið hátt eftir útgönguna, og í því fælist m.a. að Bretar virtu þau loforð sem þeir hefðu gefið á al- þjóðavettvangi. Ræddu Brexit- málið í símann  Neita að samþykkja frumvarpið AFP Brexit Michel Barnier, aðalsamn- ingamaður ESB, með grímu í höf- uðstöðvum Evrópusambandsins. Peter Madsen, morðingi blaðakon- unnar Kim Wall, var handtekinn í gær eftir misheppnaða flóttatilraun úr fangelsi sínu, þar sem hann af- plánar nú lífstíðardóm. Lögreglan í Kaupmannahöfn náði fljótlega að króa Madsen af, en óstaðfestar fregnir herma að hann hafi hótað lögreglumönnum á vettvangi með sprengju, áður en þeir náðu að yfir- buga hann. Madsen, sem er 49 ára, var dæmdur fyrir tveimur árum í lífs- tíðarfangelsi fyrir að hafa myrt Kim Wall um borð í kafbáti sínum árið 2017, bútað lík hennar í sundur og fleygt í hafið. Madsen hélt því fram að atvikið hefði verið slys, en í síðasta mánuði kom út heimildarmynd um málið, þar sem hann viðurkenndi að hafa myrt Wall. DANMÖRK AFP Flótti Lögreglumaður miðar á Madsen. Handtekinn eftir flótta úr fangelsinu Donald Trump Bandaríkja- forseti hvatti í gærmorgun William Barr dómsmálaráð- herra sinn til þess að hefja sakamálarann- sókn á hendur Joe Biden, for- setaframbjóð- anda demókrata. Kallaði forsetinn Biden „glæpamann“ í viðtali við Fox News-fréttastöðina, og sagði að Barr yrði að ljóstra upp um mál- ið áður en kjördagur rynni upp. Innan við tvær vikur eru til kosn- inga, og nýtur Biden töluverðs for- skots í flestum skoðanakönnunum. BANDARÍKIN Krefst rannsóknar á andstæðingi sínum Donald Trump

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.