Morgunblaðið - 21.10.2020, Side 23

Morgunblaðið - 21.10.2020, Side 23
HANDBOLTINN Bjarni Fritzson bjarnif@hi.is Olísdeild karla fór af stað með látum nú á haustmánuðum og fannst mér gaman að sjá hversu mörg lið komu á fljúgandi starti inn í fyrstu umferð- irnar. Eftir fjórar umferðir varð því miður að stöðva deildina „út af dotlu“ og má búast við því að hún hefjist ekki aftur fyrr en um miðjan nóv- ember. Covid Það verður svakalega spennandi að fylgjast með því hvernig liðin munu koma til leiks eftir „Covid- pásuna“. Sérstaklega í ljósi þess að liðin út á landi hafa fengið að æfa á fullu, meðan liðin á höfuðborgar- svæðinu hafa getað gert lítið annað en heimaæfingar og útihlaup, mega reyndar fara í spinning núna en það er önnur saga. Að mínu mati eru landsbyggðarliðin því í algjöru dauðafæri að koma sterk inn í mótið þegar það byrjar aftur og eitthvað sem þau gera sér augljóslega grein fyrir og munu ætla nýta sér. Þjálfarar í erfiðri stöðu Ég öfunda ekki þjálfara liðanna í deildinni að sinna sínu starfi sem er oft á tíðum alveg nógu krefjandi þó svo þeir séu ekki með heimsfaraldur í ofanálag. Ég tel að þeirra stærsta verkefni á næstu mánuðum verði ekki endilega hvaða taktík þeir ætla að spila. Frekar hvernig þeir ætli að halda leikmönnunum sínum á tánum í gegnum þetta skrýtna tímabil. Handboltamenn eru nefnilega eins og aðrir landsmenn langþreyttir á þessu ástandi og því þurfa þjálfarar að sýna mikla leiðtogahæfni til þess að passa að leikmennirnir þeirra haldi einbeitingu á það sem skiptir máli. Besta innkoman og besti leikmaðurinn hingað til Við unnendur Olísdeildarinnar fengum nokkrar góðar gjafir fyrir þetta tímabil þegar kom í ljós að margir frábærir leikmenn eins og Ólafur Gústafs, Árni Bragi, Geir Guðmunds og Björgvin Páll væru að koma til baka úr atvinnumennskunni fyrir þetta tímabil. Flestir þessara leikmanna hafa komið sterkir inn en þó er einn leikmaður sem hefur al- gjörlega skarað fram úr og það er hann Guðmundur Hólmar úr Selfossi sem hefur verið hálfóstöðvandi á báð- um endum vallarins. Þrátt fyrir að Gummi hafi byrjað frábærlega ásamt mönnum eins og Ása í FH og Bjögga í Haukum, þá er besti leikmaður deildarinnar hingað til samt sem áð- ur Magnús Óli úr Val. Þessi drengur er algjört ólíkindatól, ef mótið hefði ekki verið sett í frost hefði verið erfitt að útiloka hann úr landsliðshópnum. Stigataflan Þrátt fyrir að það sé nú ekki mikið að marka stigatöfluna svona snemma í mótinu, þá skulum við samt kíkja á hvernig liðin hafa farið af stað. Liðin sem raða sér í efstu sætin koma ekki mikið á óvart. Aftureld- ingarmenn sitja þar efstir ósigraðir en hafa átt töluvert léttara leikjaplan en Haukar og Valur sem koma þar á eftir. Þessi þrjú lið eru afar líkleg til afreka í vetur en eftir að Birkir Bene- dikts meiddist illa á seinustu æfingu fyrir fyrsta leik þá verður erfitt fyrir Aftureldingu að halda í við Hauka og Val, þau eru bara svo svakalega vel mönnuð. Lið eins og Selfoss, ÍBV og FH hafa á köflum verið að spila flottan handbolta og eru öll líkleg til þess að gera harða atlögu til að komast í topp fjóra. FH hefur kannski byrjað fullrólega en það gerðu þeir líka í fyrra og voru komnir í fimmta gír í lokaleikjum mótsins, spurning hvort það verði ekki sama upp á ten- ingnum. Ég hef haft mjög gaman af að fylgjast með KA og Stjörnunni og þrátt fyrir að þau væru bæði til í að vera með aðeins fleiri stig, þá er flott- ur bragur á þeim. Bæði þessi lið fengu marga nýja leikmenn og því tel ég að þessi tvö lið eigi eftir að bæta sig einna mest þegar líður á tímabilið. Framararnir hafa einnig átt sína spretti og verður áhugavert að sjá hvort þeir ná að gera alvöru atlögu að úrslitakeppnissæti. Ég verð að viðurkenna að mér finnst frammistaða minni spámanna hafa komið mér mjög á óvart og sér- staklega frammistaða Þórs og Gróttu sem gætu með smá heppni verið komin með aðeins fleiri stig. ÍR- ingarnir eru eina stigalausa liðið í deildinni enda erfitt að fá stig þegar þú ert að tapa boltanum hátt í 15 sinnum í hverjum einasta leik. Landsbyggðarliðin eru í algjöru dauðafæri  Magnús Óli er besti leikmaður Olísdeildarinnar um þessar mundir  Guð- mundur Hólmar hefur verið bestur þeirra sem sneru heim úr atvinnumennsku Morgunblaði/Arnþór Birkisson Gegnumbrot Erfitt reynist að halda aftur af Magnúsi Óla. Adam Haukur og Geir Guðmunds gera hér tilraun. Morgunblaðið/Eggert Sterkur Akureyringurinn Guðmundur Hólmar finnur sig vel á Selfossi. ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 2020  Heimsmeistarinn í 400 metra hlaupi kvenna, Salwa Eid Naser, sleppur við bann fyrir að skrópa í lyfjaprófi þar sem starfsmaður lyfja- eftirlitsins bankaði á vitlausa hurð þegar hann ætlaði að prófa hlaupa- konuna á hóteli sem hún dvaldi á. Ruglaðist starfsmaðurinn í leit sinni að Eid Naser og samkvæmt frétt The Guardian bankaði hann á hurð á her- bergi sem innihélt gaskúta í meira en klukkutíma, þrátt fyrir að merkingar á hurðinni bæru þess merki að lítið annað en gaskúta væri þar að finna. Naser vann gullið á heimsmeist- aramótinu í Doha á síðasta ári er hún hljóp á 48,14 sekúndum, sem er þriðji besti tími sögunnar og sá besti síðan 1985. Naser er 22 ára gömul og fædd- ist í Nígeríu en hóf að keppa fyrir hönd Bareins árið 2014. Átti hún yfir höfði sér tveggja ára bann hefði hún verið fundin sek.  Svisslendingurinn Roger Federer segist vera hóflega bjartsýnn á að geta verið með á Opna ástralska meistaramótinu í janúar, fyrsta risa- mótinu á næsta ári. Federer hefur unnið einliðaleikinn á risamótum í tennis tuttugu sinnum á ferlinum en Spánverjinn Rafael Nadal jafnaði þann árangur á dögunum. Federer er orðinn 39 ára gamall og fór í hnéað- gerð í sumar. Var það önnur hnéað- gerðin á árinu og meiðslin halda hon- um frá keppni út þetta ár. Federer segist í samtali við blaðið Schweizer Illustrierte vera á réttri leið í end- urhæfingunni. Hann finni ekki fyrir sársauka þegar hann sinnir styrkt- araæfingum en að svo stöddu æfi hann ekki með tennisspaðann í meira en tvær klukkustundir. Hann muni ekki keppa á ný fyrr en hann sé 100% tilbúinn en er hóflega bjartsýnn á að vera með í janúar.  Kristófer Ingi Kristinsson, U21 árs landsliðsmaður í knattspyrnu, skor- aði í gær fyrir Jong PSV í b-deildinni í Hollandi. Liðið mætti NEC Nijmegen á heimavelli og gerði 1:1-jafntefli. Krist- ófer var lánaður til PSV síðsumars en hann er félagsbundinn Grenoble í Frakklandi. PSV á forkaupsrétt að Kristófer næsta sumar ef áhugi verð- ur fyrir hendi hjá Hollendingunum.  Netmiðillinn Karfani.is telur að Bjarki Ármann Oddsson verði næsti þjálfari karlaliðs Þórs á Akureyri í körfuknattleik. Liðið leikur í úrvals- deildinni en þurfti að láta þjálfarann, Andrew Johnston, fara á dögunum af fjárhagslegum ástæðum.  Fjölmörg kórónuveirusmit hafa greinst hjá hollenska knattspyrnu- félaginu AZ Alkmaar en Albert Guð- mundsson leikur með liðinu. Tancredi Palmeri blaðamaður hjá BeIN sports greindi frá þessu í gær. Félagið til- kynnti níu smit í síðustu viku og nú virðist veiran hafa breitt enn frekar úr sér innan veggja þess. Liðið á að mæta Napólí á útivelli í Evrópudeild- inni á morgun en nú er óljóst hvort sá leikur fer fram samkvæmt áætlun. Ekki hefur verið gef- ið út hvort leik- menn séu á meðal þeirra sem hafa smitast eða ein- ungis aðrir starfs- menn. Eitt ogannað Óttar Magnús Karlsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Venezia þegar liðið fékk Pescara í heimsókn í ítölsku B-deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Leiknum lauk með 4:0- sigri Venezia en Óttar Magnús skoraði fjórða mark liðsins. Framherjinn kom inn á sem vara- maður á 67. mínútu og það gerði Bjarki Steinn Bjarkason einnig tíu mínútum síðar en þeir eru nýlega gengnir í raðir liðsins. Venezia er með sjö stig í fjórða sæti ítölsku B-deildarinnar eftir fyrstu fjórar umferðirnar. Fyrsta mark Óttars á Ítalíu Morgunblaðið/Árni Sæberg Ítalía Óttar er búinn að opna markareikninginn á Ítalíu. Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon voru áberandi hjá Magdeburg þegar þýska liðið heim- sótti Besiktas í Evrópudeildinni í handknattleik í Tyrklandi í gær og vann 41:23. Gísli Þorgeir virðist vera að braggast eftir erfið meiðsli og skoraði fjögur mörk. Ómar Ingi skoraði þrjú. Kadetten undir stjórn Aðalsteins Eyjólfssonar vann góðan sigur 29:28 á GOG í Sviss en Viktor Gísli Hallgrímsson varði tíu skot. Þá skoraði Aron Dagur Pálsson þrjú mörk fyrir Ålingsas sem tap- aði fyrir Nese 23:27. Gísli Þorgeir að ná sér á strik AFP Magdeburg Gísli Þorgeir Krist- jánsson lét að sér kveða í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.