Morgunblaðið - 21.10.2020, Side 13

Morgunblaðið - 21.10.2020, Side 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 2020 Miðbærinn Hjólabrettakappar sýndu listir sínar á Ingólfstorgi í gær, vegfarendum til yndisauka. Þeir létu jarðskjálftahrinu ekki slá sig út af laginu. Eggert Eins og líklegast flestum Íslendingum finnst mér ís góður. Þess vegna geri ég mér gjarnan ferð út í ísbúð. Og aldrei hefur úrvalið verið meira. Það er eiginlega allt til. Bragðtegundirnar eru næstum óteljandi. Fyrir þann sem alinn var upp við vanilluís (rjóma) er erfitt að ná utan um fjöl- breytnina eða skilja þá miklu hug- myndaauðgi sem framtaksfólk sýn- ir í framleiðslu. En lifandi samkeppni þar sem neytendur hafa fengið að njóta fjöl- breytileikans hefur vakið athygli opinberra eftirlitsaðila. Þess vegna var talið nauðsynlegt að rannsaka starfsemi ísbúða – það hlyti að vera pottur brotinn í starfsemi þeirra og því aðkallandi að grípa til ráðstaf- ana og sekta til að verja saklausa neytendur. Í júní síðastliðnum lét Neyt- endastofa til skarar skríða. Gerð var könnun á sölustöðum og vefsíð- um ísverslana. Opinberir eftirlits- menn mættu á staðinn til að rann- saka hvort „verðskrá yfir þjónustuliði væri sýnileg á sölustað, sbr. ákvæði laga nr. 57/2005, um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, og hvort veittar væru upplýsingar um þjónustuveit- anda, sbr. ákvæði laga nr. 30/2002, um rafræn viðskipti og aðra raf- ræna þjónustu, á vefsíðu“. 20 þúsund króna dagsekt Samkvæmt vefsíðu Neytendastofu var niðurstaðan: Verðmerkingar og einingaverð við sölu á vörum var í öllum til- fellum í samræmi við lög og reglur. Skoðun á vefsíðum – fésbók- arsíðum – „sýndi að á vefsíðunni vantaði upplýsingar um kenni- tölu, virðisaukaskattsnúmer, op- inbera skrá og leyfi þjónustuveit- anda“. Þar sem engin ísbúðanna hafði sýnt viðbrögð ákvað Neyt- endastofa að leggja 20 þúsund króna dagsektir á hvern og einn ef hlutunum verður ekki kippt í liðinn innan tveggja vikna. Óformleg „rannsókn“ þess sem hér heldur um penna, leiddi í ljós að ísbúðirnar hefðu orðið við tilmælum Neytenda, enda upplýsingar op- inberar og aðgengilegar öllum t.d. á upplýsingasíðum ja.is. Fæstar búð- anna stunda rafræn viðskipti a.m.k. ekki í gegnum fésbókarsíður sem eru fyrst og síðast til að koma á framfæri upplýsingum um verð, girnilega matseðla og afgreiðslu- tíma. Rafræn viðskipti með ís eru eðli máls samkvæmt ýmsum ann- mörkum háð. En Neytendastofa er á vaktinni eins og góðri barnfóstru sæmir. Það er aukaatriði hvort ísbúðir bjóða góða vöru og þjónustu í virkri sam- keppni sem neytendur njóta. Mestu skipti að þegar vafrað er um fés- bókarsíður ísbúðanna komi skýrt fram virðisaukaskattsnúmer og kennitala. Endurskoðun á tilvist Auðvitað eiga fyrirtæki að fara eftir settum lögum, jafnvel þeim sem gera lítið annað en íþyngja rekstrinum og verja ekki hag neyt- enda með neinum hætti. En eft- irlitsaðili verður ekki aðeins að búa yfir góðri dómgreind og ganga fram af hófsemd, heldur vera þess full- viss að þegar þvingunum er beitt á grundvelli laga þá falli viðkomandi fyrirtæki án vafa undir þau lög. Rannsókn Neytendastofu á ís- búðum er vísbending um að stofn- unin hafi ágætt svigrúm til að sinna litlum og stórum verkefnum – sé ekki ofhlaðin verkefnum. Þegar svo er komið er skynsamlegt að endur- skoða tilvist ríkisstofnunar. Mörg verkefna Neytendastofu eru betur komin hjá öðrum, s.s. Neytenda- samtökunum, önnur hjá Samkeppn- iseftirlitinu og jafnvel Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Þannig er hægt að fækka barnfóstrunum um eina. Við erum samfélag sem byggir á lögum – setjum ákveðnar leik- reglur. Eftirlit með að leikregl- unum sé fylgt er nauðsynlegt (það er hins vegar ekki náttúrulögmál að allt eftirlit eigi að vera á vegum op- inberrar stofnunar – ekki frekar en bifreiðaskoðun). Það hefur hins vegar reynst erfitt fyrir góðhjart- aða stjórnmála- og embættismenn að feta hinn gullna meðalveg – setja einfaldar og skilvirkar leikreglur og þvælast ekki fyrir eðlilegum við- skiptum. Tilgangurinn er göfugur; að verja almenning gagnvart sjálf- um sér og öðrum. Og til verður land barnfóstrunnar sem er alltumlykj- andi í formi eftirlitsstofnana svo tryggt sé að einstaklingar og fyrir- tæki fari að fyrirmælum og fari sér ekki að voða. Ógöngur eftirlitskerfisins Ríkisbarnsfóstran hefur því áhyggjur af öllu – ekki aðeins hvort virðisaukaskattsnúmer ísbúðar liggi kýrskýrt fyrir. Á stundum er engu líkara en fóstran sé sannfærð um að almenningur þjáist af al- mennri heimsku, einstaklingar geti ekki borið ábyrgð á eigin lífi og fyrirtækjum sé ekki treystandi til að bjóða góða vöru og þjónustu á hagstæðu verði. Hugmyndafræði barnfóstrunnar og alþjóðleg samvinna barnfóstra hefur krafist þess að framleiðendur smur- og hreinsiefna taki sérstak- lega fram að leita þurfi til læknis, ef „efnið er drukkið“. Skordýraeitur verður að merkja sérstaklega; taka fram að ekki megi geyma það hjá matvælum og ekki nota eitrið á fleti þar sem matvæli eru unnin, mat- búin eða þeirra neytt. Svo verður sérstaklega að taka fram að alls ekki megi „nota efnið á fólk og hús- dýr“. Í bæklingi með rafmagnssög er með skýringamynd varað við því að setja hendurnar fyrir sagar- blaðið. Í leikfangabúðinni er Súp- erman-búningurinn merktur sér- staklega og tekið fram að þótt menn klæðist búningnum geti þeir ekki flogið. En á sama tíma eru merk- ingar margra matvæla annaðhvort illskiljanlegar og/eða ólæsilegar a.m.k. fyrir miðaldra karl án gler- augna og þó eru merkingarnar í samræmi við fyrirmæli. Ekkert af þessu er án kostnaðar. Ég hef lengi verið sannfærður um að opinbert eftirlitskerfi hafi ratað í ógöngur, þótt margt sé þar gert sem er til fyrirmyndar. Það verður að stokka kerfið allt upp og ekki síst innleiða nýja hugsun. Við þurfum sterkar og öflugar eftirlits- stofnanir sem framfylgja settum reglum af heilbrigði skynsemi og sinna leiðbeinandi hlutverki til að tryggja heilbrigði viðskiptalífsins og hagsmuni neytenda. Uppstokk- unin kallar á sameiningu stofnana og útvistun verkefna þar sem við á. En um leið þarf löggjafinn að taka til hendinni og einfalda regluverkið. Við þá vinnu er nauðsynlegt að hafa í huga að leikreglurnar eru til að verja neytendur og fyrirtæki, en ekki til að byggja undir eftirlitsiðn- aðinn og þær fjölmörgu ríkisfóstrur sem vilja allt faðma. Sá faðmur er ekki alltaf hlýr. Eftir Óla Björn Kárason »Erfitt er fyrir stjórn- mála- og embætt- ismenn að feta hinn gullna meðalveg – setja skilvirkar leikreglur og þvælast ekki fyrir eðli- legum viðskiptum. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Eftirlitið finnur sér ís-verkefni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.