Morgunblaðið - 21.10.2020, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 21.10.2020, Qupperneq 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 2020 Erlendur G. Ey- steinsson, afi minn á Giljá, var litríkur karakter með sérstaklega smitandi hlátur. Afi elskaði sveitina sína og sinnti búskap sínum með miklum sóma. Afi var mikill sögumaður og var það oft ævintýralegt að sitja á bekknum í hádeginu og hlusta á sögurnar hans. Aðspurður um sannindi sagnanna var þetta allt saman dagsatt en oft fylgdi þó lítið glott á eftir svari. Afi átti það til að nota sögur sínar sem eins konar uppeldistól og skila- boð til okkar barnabarnanna. Hann sagði okkur til dæmis sög- ur af köllunum Huma og Hosa sem bjuggu í miðstöðvarher- berginu á Giljá. Maður þorði ekki fyrir sitt litla líf þangað inn og með því var markmiði afa náð. Afi var ekki bara vinnusamur og natinn við búið sitt, hann sinnti líka fjölda sjálfboðastarfa og sat í mörgum nefndum. Hann sat til að mynda í sóknarnefnd Þingeyrasóknar og sem með- hjálpari í Þingeyraklausturs- kirkju í 49 ár. Þingeyraklaust- urskirkja á sér mikla og merka sögu sem dregið hefur að sér innlenda og erlenda ferðamenn. Afi stóð vaktina sem leiðsögu- maður í kirkjunni í ófá sumur og sagði sögu hennar af mikilli inn- lifun, alltaf á íslensku, sama af hvaða þjóðerni gestirnir voru. Hann talaði bara aðeins hægar og hærra við erlenda gesti kirkj- unnar. Afi var þess fullviss að gestirnir skildu hann mætavel. Þetta finnst mér alltaf jafn ynd- islegt og ég hlæ inni í mér þegar ég hugsa til hans tala við gestina. Minningar okkar eru margar og góðar og nú þegar þeim mun Erlendur Guðlaugur Eysteinsson ✝ Erlendur Guð-laugur Ey- steinsson, fyrrver- andi bóndi á Stóru-- Giljá, fæddist 10. janúar 1932. Hann lést 1. október 2020. Útförin fór fram 17. október 2020. ekki fjölga mun ég varðveitta þær og deila. Við fjölskyld- an yljum okkur við minningarnar og segjum af þér sög- ur. Hver veit nema ég þurfi að bregða upp glotti ef ég er spurð hvort sögurn- ar séu sannar. Hafðu bestu þakkir fyrir góða fyrirmynd, sögurnar, allt spjallið okkar, hláturinn og góða vináttu. Hvíldu í friði elsku afi. Guðrún Elsa Giljan Kristjánsdóttir. Farinn er í sumarlandið vinur og skemmtilegur félagi, sem ætíð lét verkin tala, Erlendur Eysteinsson, fyrrverandi bóndi á Stóru-Giljá. Hann vildi aldrei hafa neina ládeyðu og var óragur að fara nýjar leiðir hvar sem hann kom að. Það var ætíð gott að leita til hans þegar átaka var þörf. Kynni okkar Ella eru mjög löng. Fyrst lágu leiðir saman þegar ég var formaður í Fjár- ræktarfélagi Sveinsstaðahrepps. Elli gekk í það félag þótt hann byggi hinum megin við fljótið Giljá, sem skildi að Sveinsstaða- hrepp og Torfalækjarhrepp, og fleiri fylgdu með. Svo áttum við áralangt sam- starf í Lionsklúbbi Blönduóss og hann var oddviti í Torfalækjar- hreppi meðan ég var gjaldkeri við Húnavallaskóla. Nánast varð samstarf okkar þó í stjórn Veiði- félags Vatnsdalsár, en þar var hann varamaður Pálma á Akri á fyrstu árum mínum þar sem for- maður og sat oft stjórnarfundi. Varð síðan aðalmaður í stjórn með vaxandi störfum Pálma í landsmálunum. Elli var ávallt til í að fara nýj- ar leiðir og vildi láta verkin tala. Hann ferðaðist víða um lönd meðan hann var helsti framá- maður Lionsfélaga á Íslandi og sagði oft fróðlegar og skemmti- legar sögur úr ferðum sínum á vegum Lions bæði innan lands og utan. Magnað hvað hann náði miklum tengslum við marga er- lenda forustumenn á þeim vett- vangi þrátt fyrir takmarkaða getu til að tjá sig á erlendum málum. Sagnagleði Ella var í raun ávallt mikil og ekkert smátt í þeim. Mér er það minnisstætt þegar hann var að byggja þá lík- lega stærsta fjárhús á Íslandi að hann sagði frá því að það væri svo stórt að hann hefði pantað nokkra kílómetra af borðum í fjárhúsgólfið. Oft var gaman að vera með oddvitunum á fundum, magnaðir félagsmála- og framámenn sem vildu hag sinna þegna sem mest- an og bestan. Þó vildu fæstir þeirra, á þeim tíma sem ég var gjaldkeri Húna- vallaskóla, sameina hreppana, þegar ég var stundum að benda þeim á að meginhluti af ráðstöf- unartekjum hreppanna færi til skólamála og samfélagið yrði miklu sterkara sem ein heild. Kóngar vilja sjaldan leggja niður ríki sín. Mér segir þó svo hugur að Elli hefði verið til í slag ef nokkur von hefði verið að ná þar árangri, hann var maður sem hugsaði oft út fyrir rammann og átti stóra drauma. Hann var oft langt á undan sinni samtíð. Með Erlendi á Stóru-Giljá er genginn magnaður og um margt minnisstæður maður sem gott var að kynnast. Blessuð sé minning þess góða drengs. Ég sendi hans góðu konu, Helgu Búadóttur, og fjöl- skyldunni allri mínar innilegustu samúðarkveðjur. Magnús Ólafsson. Fallinn er frá Erlendur á Stóru-Giljá. Með honum er genginn eftirminnilegur per- sónuleiki og sveitarhöfðingi sem sett hefur svip sinn á að sam- félag sitt. Elli á Giljá eins og við köll- uðum hann gjarnan, var mikill gleðimaður, alltaf tilbúinn að segja skemmtilegar sögur en hann hafði yfir mikilli frásagn- argáfu að ráða og nýtti sér það, þar sem Elli var meðal fólks var hann hrókur alls fagnaðar sagði sögur og hló af sinni einstöku glaðværð sem var honum svo eðlislæg. Elli var mikill félagsmálamað- ur, tók virkan þátt í félagsstörf- um á nánast öllum sviðum fé- lagsstarfa í okkar samfélagi og var gjarnan áhrifamikill enda með mikinn áhuga á velgengni samfélagsins. Ekki ætla ég að fara yfir alla hans félagsþátttöku en ég hafði þá ánægju að fá að starfa með honum að ýmsum málefnum í héraðinu og var það afar ánægjulegt og fyrir það samstarf er ég þakklátur. Mest samstarf áttum við í sveitarstjórnargeiranum en hann var lengi í hreppsnefnd Torfalækjarhrepps og oddviti hennar í 16 ár, þá starfaði hann mikið að sameiginlegum málum sveitarfélaganna í sýslunni. Hann vann mikið að málefn- um Þingeyrarkirkju um langan tíma og lyfti þar grettistaki með byggingu Klausturstofunnar og verður hans lengi minnst fyrir þau óeigingjörnu störf. Störf Ella innan Lionshreyf- ingarinnar voru einstök, innan Lionsklúbbs Blönduóss gegndi hann mörgum trúnaðarstörfum og var gjarnan þar hrókur alls fagnaðar með sínar skemmtisög- ur og gæti ég trúað að enginn hafi látið félagana hlæja meira á fundum en Erlendur. Okkar maður Erlendur var kosinn til æðstu embætta innan Lionshreyfingarinnar og var kosinn Fjölumdæmisstjóri Lions á Íslandi, í því starfi ferðaðist hann víða um heiminn sem fulltrúi Íslands og trúi ég að þá hafi oft verið glatt á hjalla í ís- lenska hópnum. Það fer ekki hjá því að maður eins og Elli sem starfar svo mik- ið í félagsmálageiranum þurfi sterka bakhjarla og var þar eig- inkonan Helga Búadóttir fremst í flokki, hún stóð á bak við sinn mann og þurfti oft að vera til taks við ýmsar aðstæður. Elli var samt þrátt fyrir allt félagsmálavafstrið bóndi af lífi og sál, sem tileinkaði sér nýjung- ar og óragur við að framkvæma og þróa búskapinn. Búið var af- urðagott og ekki voru víða fleiri ær en á Stóru-Giljá. Það er ljóst að vinnuframlag Ella var mikið í þessi rúm 88 ár sem honum var úthlutað og hef- ur oft reynt á skipulagsgáfuna sem hann bjó yfir. Með Erlendi er genginn áræð- inn athafnamaður sem setti svip á sitt samfélag og gerði það gjarnan með glaðværð og góðum hug, sem okkur samferðamönn- um ber að þakka. Við Vilborg sendum Helgu og fjölskyldunni okkar innilegustu samúðarkveðjur. Valgarður Hilmarsson. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR ÞORSTEINSSON bóndi, Heiði, Biskupstungum, verður jarðsunginn frá Skálholtsdómkirkju föstudaginn 23. október klukkan 14. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu geta aðeins nánustu aðstandendur verið viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á facebooksíðu Skálholts. Ágústa S. Sigurðardóttir Gísli Þórarinsson Þorsteinn Sigurðsson Abigael Sörine Kaspersen Guðmundur B. Sigurðsson Guðríður Egilsdóttir Brynjar S. Sigurðsson Marta Sonja Gísladóttir og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSGEIR INGI ÞORVALDSSON múrarameistari, lést föstudaginn 16. október á heimili sínu í Vestmannaeyjum. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 24. október klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á vef Landakirkju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollustuvini Hraunbúða: 582-26-200200, kt. 420317-0770. Guðfinna Sveinsdóttir María Nsamba Ásgeirsdóttir Martin Nsamba Þorvaldur Tolli Ásgeirsson Ásdís Gréta Hjálmarsdóttir Sveinn Ásgeirsson Sigrún Alda Ómarsdóttir Borgþór Ásgeirsson Birgitta Sif Jónsdóttir afabörn og langafabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGFRÍÐ STELLA ÓLAFSDÓTTIR frá Firði á Seyðisfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 16. október. Jarðarförin fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn 24. október klukkan 14. Vegna fjöldatakmarkana geta einungis nánustu aðstandendur og vinir verið viðstaddir. Birgir Hallvarðsson Ólafur Birgisson Charuwan Rongmalee Guðfinna Björk Birgisdóttir Ásbjörn G. Jónsson og ömmubörnÁstkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GRÉTA FREDERIKSEN, áður til heimilis á Vallargötu 21, Sandgerði, lést á Hrafnistu Nesvöllum laugardaginn 10. október. Útförin fer fram frá Sandgerðiskirkju föstudaginn 23. október klukkan 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur verða viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á https://www.facebook.com/olinaalda.karlsdottir Þökkum auðsýnda samúð og hugheilar þakkir til starfsfólks Nesvalla í Reykjanesbæ. Ólína Alda Karlsdóttir Guðfinnur Karlsson Snæfríður Karlsdóttir Pétur Guðlaugsson Margrét Helma Karlsdóttir Karl Ólafsson Reynir Karlsson Júlía Óladóttir Karl Grétar Karlsson Margrét Jónasdóttir Alda Karlsdóttir Dante Kubischte barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS ÓLASON skipstjóri, Hríseyjargötu 19, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 16. október. Útförin fer fram mánudaginn 26. október klukkan 13.30 í Akureyrarkirkju. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu ættingjar og vinir viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á Facebook-síðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju, beinar útsendingar. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynningar, Heimahjúkrunar og lyfjadeildar SAK. Borghildur Kristbjörnsdóttir Ásta Guðný Kristjánsdóttir Kristinn Magnússon Kristjana Guðrún Halldórsd. Svala Gígja Magnúsdóttir Gústaf Adolf Þórarinsson Óli Magnússon barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sonur minn, bróðir okkar, frændi og mágur, ÖRN THORS, varð bráðkvaddur á heimili sínu 13. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Svanhildur J. Thors Örn Oddgeirsson Lára Thors Iðunn Thors Jakob Hagedorn Olsen Jóna Thors Svanhildur Thors James M. Fletcher börn og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, AMALÍA BERNDSEN, Lundi 7, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 18. október. Sveinbjörn Þór Haraldsson Inga Björk Sveinbjörnsdóttir Ágúst Heiðdal Friðriksson Haraldur Þór Sveinbjörnsson Edda Þöll Hauksdóttir Berglind Berndsen Sveinbjörnsd., Steinar Valur Ægisson og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, ÁSTRÁÐUR ÓLAFSSON, lést 18. október á Ljósheimum, Selfossi. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Erla Þórhallsdóttir Innilegar þakkir fyrir veitta samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar og tengdamóður, HELGU HANSDÓTTUR, Sléttuvegi 13, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk 3. hæðar norður á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir góða umönnun og hlýju. Guðrún Þorsteinsdóttir Friðrik G. Olgeirsson Sigrún Þorsteinsdóttir Brynjólfur Markússon Hans Ragnar Þorsteinsson Helga Laufdal Sveinn Þorsteinsson Heiða Lára Eggertsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.