Morgunblaðið - 21.10.2020, Page 20

Morgunblaðið - 21.10.2020, Page 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 2020 30 ára Halldór Fann- berg ólst upp í Reykja- vík en býr núna í Þor- lákshöfn, sem hann lætur vel af. Halldór Fannberg vinnur hjá heildsölu. Helstu áhugamál Halldórs eru skotveiði og ferðamennska. Maki: Unnur Edda Björnsdóttir, f. 1989, háskólanemi. Synir: Sindri Freyr Elíasson, f. 2011, og Alexander Fannberg Halldórsson, f. 2018. Foreldrar: Adela Halldórsdóttir, f. 1968, vinnur á Húðlæknastöðinni í Reykjavík og Svanur Fannberg Gunnarsson, f. 1968, eigandi Litlu kaffistofunnar, býr í Þorlákshöfn. Halldór Fannberg Svansson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú þarft fyrr eða síðar að horfast í augu við staðreyndir. Leyfðu vinum þínum að dekra við þig, þú átt það skilið. 20. apríl - 20. maí  Naut Ef þér finnst brotið á þér áttu ekki að hika við að láta til þín heyra. Þú ert ekki að missa af lestinni þótt þú haldir það. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Umræðuefnið sem þú bryddar upp á á eftir að hafa mikil áhrif á þá sem voru viðstaddir. Vertu tilbúin/n til að grípa tækifærin sem poppa upp í lífi þínu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur vakið athygli yfirmanna þinna með frammistöðu þinni. Taktu þér tíma til þess að gera fortíðina upp og haltu svo lífinu áfram. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Ýmsar nýjungar eru á döfinni hjá þér og þú ert ágætlega í stakk búin/n til að fást við þær. Ekki notfæra þér góðmennsku annarra. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Stundum þarf að vita hvenær á að henda sér út í djúpu laugina. Notaðu tím- ann vel og farðu yfir farinn veg. Þér finnst þú föst/fastur í neti vanans. 23. sept. - 22. okt.  Vog Láttu það ekki slá þig út af laginu þótt óvænt atvik knýi þig til að breyta áætlunum þínum. Gættu þess að ofmetnast ekki þrátt fyrir mikið hrós. Þú kannt að taka gagnrýni líka. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þegar þú metur samband skaltu treysta innsæinu. Nýttu tækifærið og reyndu að koma sem mestu í verk á meðan þú ert laus og liðug/ur. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gefðu þér tíma til að setjast niður með öðrum og ræða sameiginlega ábyrgð og framtíðina. Þú ert ekki mikið fyrir að framkvæma án vandlegrar umhugsunar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Málefni tengd samböndum eru eilífðarverkefni. Fólk nálgast viðfangsefni á mismunandi hátt. Það sem hentar þér núna er að hlaða ekki á þig verkefnum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er svo margt skemmtilegt í boði núna að þér reynist ófært að taka þátt í því öllu. Sýndu öðrum þolinmæði. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hafðu heilsu þína í huga og gættu þess að ofkeyra þig ekki. Heilsan er það dýrmætasta sem þú átt svo þér ber að gæta hennar. Þú ert bjartsýnin uppmáluð. K ristján Þórður Snæ- bjarnarson fæddist í Keflavík en bjó fyrstu sex árin í Lyngholti á Barðaströnd. Fjöl- skyldan flutti til Reykjavíkur árið 1986 í Breiðholtið þar sem Kristján bjó til ársins 1993. Kristján var í Fellaskóla og segir það hafa verið gott að alast upp í Breiðholtinu á þessum árum og stutt í náttúruna í Elliðaár- dalnum. Kristján er mikið nátt- úrubarn og segir sveitina alltaf eiga í sér mikil ítök. „Ég var í sveit á Breiðalæk á Barðaströnd hjá ömmu og afa öll sum- ur frá því ég flutti suður þar til ég lauk grunnskóla. Í sveitinni var ég kúa- smali ásamt frændsystkinum mínum, fékk að fara stöku sinnum til sjós, annars vegar á grásleppuveiðar og hins vegar á þorskveiðar á Breiðafirði. Ég lít á Barðaströnd sem mínar æskuslóðir þó svo ég hafi varið mest- um tíma í Breiðholti og síðar í Graf- arvogi.“ Kristján hóf nám í grunndeild raf- iðna í Iðnskólanum í Reykjavík strax að loknum grunnskóla og eftir grunn- deildina fór hann í rafeindavirkjun. Meðfram náminu vann Kristján við ýmis störf, afgreiddi í vídeóleigu, sendist um bæinn með pítsur, vann í dráttarvéladeild hjá Reykjavík- urborg, var í síld og svo hjá rafverk- taka. Síðan lá leiðin í rafiðnfræði í Há- skólanum í Reykjavík, sem hann lauk árið 2008 og bætti þá við sig rekstr- ariðnfræði og útskrifaðist árið 2010. „Að iðnnámi loknu starfaði ég hjá Hátækni í skamman tíma við við- gerðir á farsímum en lengst af vann ég hjá ISAL í Straumsvík sem raf- eindavirki.“ Kristján kynntist konu sinni, Díönu Lynn, ungur. „Við vorum bæði á sautjánda ári, árið 1997. Hún bjó þá í Reykholti í Biskupstungum og við giftum okkur 17. ágúst 2002. Við eig- um saman þrjú börn, tvíburastelpur sem eru 19 ára og son sem er 10 ára, alveg að verða 11 ára.“ Unga parið flutti um tíma til heima- bæjar Díönu, Eskifjarðar, en stöldr- uðu stutt við og keyptu sína fyrstu íbúð í Breiðholtinu. Þar gátu þau þó ekki búið lengi, því þau þurftu að stækka við sig eftir að tvíburarnir fæddust, og íbúðin þá strax orðin of lítil. Síðan hafa þau búið í Grafarvog- inum. Kristján Þórður er mikill félags- málafrömuður, þrátt fyrir ungan ald- ur. „Árið 2004 hóf ég afskipti af fé- lagsstörfum, var kosinn trúnaðarmaður rafeindavirkja það ár og fór beint í kjaraviðræður við ISAL með gríðarlega öflugum hópi samn- ingafólks sem hefur reynst mér verð- mætur skóli.“ Kristján segir að þessi byrjun hafi verið eins og að stökkva beint í djúpu laugina, en hann þakkar sínum lærifeðrum í baráttunni fyrir þekkingu sína í dag. Kristján fann sig vel í starfinu og árið 2008, nokkrum mánuðum fyrir hrun, var hann kosinn formaður Félags rafeindavirkja. „Það var mjög sérstakt að koma inn á þessum tíma, þegar blikur voru á lofti. Atvinnuleysi fór að aukast og það voru mjög erfiðir tímar í félagsmálum og á vinnumarkaði og það virkilega tók á að standa vaktina á þessum tímapunkti þegar allt var upp í loft varðandi stöðu launafólks í landinu.“ Kristján tók í kjölfarið sæti í mið- stjórn Rafiðnaðarsambands Íslands og hefur setið í miðstjórn síðan. Árið 2011 var hann kjörinn formaður Raf- iðnaðarsambands Íslands, þá á 31. aldursári, og hefur sinnt því starfi síð- Kristján Þórður Snæbjarnarson formaður Rafiðnaðarsambands Íslands – 40 ára Eskifjörður Kristján Þórður og Díana í sumar á fallegum en erfiðum degi á Eskifirði eftir jarðarför móður Díönu. Stökk beint í djúpu laugina Detroit Fjölskyldan í kirkjugarðinum í Detroit við leiði Jackray Simpson. Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is 40 ára Unnur fædd- ist í Stokkhólmi en ólst upp í Vesturbæ Reykjavíkur. Hún er sálfræðingur og er teymisstjóri í ADHD og einhverfuteymi á Landspítalanum. Unn- ur hefur mikinn áhuga á handavinnu og bakstri og síðan allri útivist og ferðalög- um. Maki: Friðrik Magnus, f. 1980, starfar í Háskóla Íslands. Börn: Tómas, f. 2005, Davíð, f. 2008, og Freyja Malín, f. 2011. Foreldrar: Malín Örlygsdóttir, f. 1950, prjónahönnuður og rak lengi verslunina Storkinn á Laugavegi, og Jakob Smári, f. 1950, d. 2010, prófessor í sálfræði í HÍ. Unnur Jakobsdóttir Smári

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.