Morgunblaðið - 27.10.2020, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 27.10.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2020 Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.innlifun.is Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Útivistar- og skógræktarsvæði eru meðal mikilvægra innviða í hverju samfélagi. Þetta hefur vel komið fram í dæmalausu ástandi að undanförnu. Aldrei fleiri en nú leggja leið sína í Heiðmörk,“ segir Auður Elva Kjartansdóttir, nýr framkvæmdastjóri Skógrækt- arfélags Reykjavíkur. Skógarnir ofan við Reykjavík eru fjölsóttir um þessar mundir. Jafnvel þó á virkum degi sé, eru þar margir á ferð ýmist gangandi, hlaupandi eða á hjóli og stundum fara reiðmenn á klárum sínum um svæðið. Tugir ef ekki hundruð þús- undir fólks fara um svæðið á ári hverju og síðustu ár hefur mikil vinna verið lögð í stígagerð og merkingar þar. Loftslagsskógur í Úlfarsfelli „Starfið er fjölbreytt og verk- efnin sem sinna þarf eru af ýmsum toga,“ segir Auður Elva sem tók við starfi framkvæmdastjóra 1. sept- ember síðastliðinn. Hún er með BS- gráðu í landfræði, cand.mag-gráðu í landfræðilegum upplýsingakerfum og meistaragráðu í forystu og stjórnun. Frá 2005 fram á líðandi ár starf- aði Auður við ofanflóðasvið Veð- urstofu Íslands, jafnhliða far- arstjórn meðal annars hjá Ferðafélagi Íslands. Hún segir þessa reynslu munu nýtast sér vel hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur sem hefur umsjón með útivist- arsvæðunum bæði í Heiðmörk og Esjuhlíðum. Þá er verið að færa út kvíarnar og talsvert var gróðursett í sumar í nýjum skógi sem verið er að rækta í Úlfarsfelli í samstarfi við Reykjavíkurborg. Skógur þessi er fyrst og fremst hugsaður sem verk- færi til bindingar kolefnis. Skógræktarsvæðið í Heiðmörk, sem er í upplöndum Reykjavík- urborgar og Garðabæjar er um 3.200 hektarar að flatarmáli, sem er svipað og öll byggð svæði í Reykja- vík. Flestir fara í Heiðmörkina frá Rauðhólum, þar sem beygt er af Suðurlandsvegi skammt ofan við Reykjavík og ekið til suðurs. Þar er fyrst farið um hlykkjóttan veg að Elliðavatni. Frá vatninu liggur leiðin suðaustur svonefndan Heiðaveg. Þar eru nokkrir þeirra níu útivistarlunda sem eru í Heið- merkurskógum. Má þar meðal ann- ars nefna Vígsluflöt, svæðið þar sem fyrstu trén voru sett í jörð fyr- ir sjötíu árum eins og minnst var í sumar. Frá Rauðhólum suður í hinn enda Heiðmerkur, það er nærri Víf- ilsstaðavatni, eru alls 13 km. Gróðurinn gerir fólki gott „Hér í Heiðmörk eru gróð- ursettar þúsundir plantna á hverju ári, enda þótt mikil vinna fari líka í umhirðu skóganna, grisjun og fleira. Þá erum við nú farin að undirbúa jólavertíðina. Fyrir hvert jólatré sem er fellt hér í Heiðmörk gróðursetjum við önnur fimmtíu í staðinn. Að undanförnu hefur svo mikil vinna verið sett í að halda umhverfinu hér í horfinu, sem er nauðsynlegt sakir þess hve margir hafa verið hér á þessum undarlegu tímum kórónuveirunnar,“ segir Auður Elva og að lokum: „Í lýðheilsufræðum hafa verið gerðar margar rannsóknir um mikilvægi skóga fyrir sálarheill. Gróður og tenging við náttúruna gera fólki got og er mikilvæg. Það hve margir leggja leið sína á hing- að í Heiðmörk núna staðfestir þetta; bæði útivistarfólk og svo fjölskyldur sem njóta samveru og gleði í þessum fallega skógi við borgarmörkin.“ Tenging við náttúruna er mikilvæg Morgunblaðið/Sigurður Bogi Morgunblaðið/Árni Sæberg Náttúra Gróður gerir fólki gott, segir Auður Elva Kjartansdóttir sem í síð- asta mánuði tók við sem framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur. Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Hlaup Tekið á rás í skemmtiskokki sem var í Heiðmörk á dögunum. Trimm- arar eru gjarnan á svæðinu, þar sem eru margar skemmtilegar leiðir.  Útivist í Heiðmörk aldrei vinsælli  Margir eru á ferðinni, gengið, hjólað og hestamenn á klárum sínum  Göngustígar og gróðursetning  Skógur í baklandi borgarinnar á 3.200 hektara svæði Dýrð Litbrigði jarðar í Heiðmörk eru sterk, hver árstíð hefur sinn heillandi svip og á haustin gjörbreytist allt í skóginum. Innflytjendur standa í mörgu tilliti verr að vígi í námi og eru braut- skráðir síðar en aðrir nemendur framhaldsskóla, skv. nýjum tölum Hagstofu Íslands. Hlutfall allra sem hófu nám haustið 2015 var 60,0% fjórum árum eftir upphaf náms. Á meðal innflytjenda, sem fluttust til landsins fyrir sjö ára aldur, var hlutfallið 57,8% og 50,0% á meðal annarrar kynslóðar innflytjenda. Þeir sem fluttust til landsins sjö ára eða eldri standa mun verr að vígi, en 32,0% þeirra höfðu braut- skráðst. Ef litið er á nýnema í starfsnámi haustið 2015 höfðu 40,3% þeirra brautskráðst innan fjögurra ára. Hlutfallið meðal innflytjenda var 43-44%. Tæplega 36% þeirra 320 innflytj- enda, sem hófu nám í dagskóla á framhaldsskólastigi haustið 2015, höfðu útskrifast fjórum árum seinna. Það er hæsta brautskrán- ingarhlutfall þessa hóps á þessari öld en mun lægra en á meðal ný- nema með íslenskan bakgrunn. Innflytjendur eru brautskráðir seint

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.