Morgunblaðið - 27.10.2020, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 2020
England
Burnley – Tottenham.............................. 0:1
Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrstu 84
mínúturnar með Burnley.
Brighton – WBA....................................... 1:1
Staðan:
Everton 6 4 1 1 14:9 13
Liverpool 6 4 1 1 15:14 13
Aston Villa 5 4 0 1 12:5 12
Leicester 6 4 0 2 13:8 12
Tottenham 6 3 2 1 16:8 11
Leeds 6 3 1 2 12:9 10
Southampton 6 3 1 2 10:9 10
Crystal Palace 6 3 1 2 8:9 10
Wolves 6 3 1 2 6:8 10
Chelsea 6 2 3 1 13:9 9
Arsenal 6 3 0 3 8:7 9
West Ham 6 2 2 2 12:8 8
Manch.City 5 2 2 1 8:8 8
Newcastle 6 2 2 2 8:10 8
Manch.Utd 5 2 1 2 9:12 7
Brighton 6 1 2 3 10:12 5
WBA 6 0 3 3 6:14 3
Burnley 5 0 1 4 3:9 1
Sheffield Utd 6 0 1 5 3:9 1
Fulham 6 0 1 5 5:14 1
Þýskaland
Leverkusen – Augsburg ......................... 3:1
Alfreð Finnbogason lék ekki með Augs-
burg vegna meiðsla.
Staðan:
RB Leipzig 5 4 1 0 12:3 13
Bayern München 5 4 0 1 22:8 12
Dortmund 5 4 0 1 11:2 12
Leverkusen 5 2 3 0 6:3 9
Stuttgart 5 2 2 1 10:6 8
Mönchengladbach 5 2 2 1 8:8 8
Werder Bremen 5 2 2 1 7:7 8
E. Frankfurt 5 2 2 1 7:9 8
Hoffenheim 5 2 1 2 9:7 7
Wolfsburg 5 1 4 0 4:3 7
Augsburg 5 2 1 2 6:6 7
Union Berlin 5 1 3 1 8:6 6
Freiburg 5 1 3 1 6:9 6
Arminia Bielefeld 5 1 1 3 4:8 4
Hertha Berlín 5 1 0 4 9:12 3
Köln 5 0 2 3 5:9 2
Schalke 5 0 1 4 2:19 1
Mainz 5 0 0 5 4:15 0
Ítalía
AC Milan – Roma ..................................... 3:3
Staða efstu liða:
AC Milan 5 4 1 0 12:4 13
Napoli 5 4 0 1 14:5 12
Sassuolo 5 3 2 0 16:9 11
Inter Mílanó 5 3 1 1 13:8 10
Juventus 5 2 3 0 10:4 9
Rússland
CSKA Moskva – Arsenal Tula................ 5:1
Hörður Björgvin Magnússon lék allan
leikinn með CSKA. Arnór Sigurðsson kom
inn á eftir 79 mínútur og skoraði fjórða
markið.
Efstu lið: Spartak Moskva 27, CSKA
Moskva 25, Zenit Pétursborg 24, Lokomo-
tiv Moskva 21, Dinamo Moskva 20, Rostov
20.
Holland
Bikarkeppnin, 3. umferð:
Excelsior – Helmond Sport .................... 4:0
Elías Már Ómarsson skoraði annað og
þriðja mark Excelsior .
Kasakstan
Okzhetpes – Astana................................. 1:5
Rúnar Már Sigurjónsson lék ekki með
Astana vegna meiðsla.
Tyrkland
B-deild:
Akhisarspor – Bursaspor ....................... 2:1
Theódór Elmar Bjarnason var í byrjun-
arliði Akhisarspor.
Svíþjóð
Norrköping – AIK ................................... 2:2
Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn
með Norrköping.
Kolbeinn Sigþórsson kom inn á hjá AIK
sem varamaður á 61. mínútu.
Staðan:
Malmö 25 14 8 3 51:25 50
Norrköping 25 11 7 7 51:37 40
Häcken 24 10 10 4 38:24 40
Elfsborg 25 9 13 3 39:32 40
Djurgården 24 11 6 7 39:27 39
Hammarby 25 10 9 6 41:36 39
Sirius 24 9 8 7 40:41 35
Östersund 25 8 9 8 26:29 33
Örebro 25 9 6 10 32:36 33
Mjällby 25 8 8 9 37:41 32
AIK 24 8 7 9 26:28 31
Varberg 25 7 7 11 33:38 28
Gautaborg 25 4 12 9 27:39 24
Helsingborg 25 4 10 11 28:41 22
Falkenberg 25 4 8 13 26:42 20
Kalmar 25 4 8 13 26:44 20
B-deild:
Brage – Jönköping .................................. 1:4
Bjarni Mark Antonsson var ekki í leik-
mannahópi Brage.
Danmörk
Ringsted – Kolding.............................. 25:27
Ágúst Elí Björgvinsson varði 10 skot í
marki Kolding sem er í 8. sæti af fjórtán lið-
um í deildinni.
Suður-Kóreumaðurinn Heung-Min
Son gerði gæfumuninn fyrir Tott-
enham Hotspur í gærkvöld og ekki
í fyrsta skipti. Tottenham heimsótti
Burnley í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu og skoraði Son eina
mark leiksins á 76. mínútu. Jóhann
Berg Guðmundsson var í byrj-
unarliði Burnley og lék í 76 mín-
útur. Tottenham er í 5. sæti með 11
stig en Burnley er í 18. sæti með að-
eins 1 stig. Liðin fyrir ofan Burnley
í 16. og 17. sæti, Brighton og WBA,
gerðu 1:1 jafntefli og eru með 5 og
3 stig eftir sex umferðir.
Tottenham fór
upp í 5. sæti
AFP
Mikilvægur Heung-Min Son fagnar
markinu gegn Burnley í gær.
Frásagnir af áhuga stórliða í knatt-
spyrnunni á Skagamanninum Ísak
Bergmann Jóhannessyni eru ekki
úr lausu lofti gripnar. Yfirnjósnari
sænska liðsins Norrköping sem
Ísak leikur með staðfesti í gær við
Aftonbladet að ítölsku meistararnir
í Juventus og ensku félögin Man-
chester United og Liverpool séu öll
að fylgjast með Ísak. Hafa þau öll
haft samband við Norrköping
vegna áhuga á Skagamanninum
sem er aðeins 17 ára gamall en er
orðinn einn umtalaðasti leikmað-
urinn í Svíþjóð.
Ísak er orðinn
eftirsóttur
Eftirsóttur Ísak Bergmann Jóhann-
esson vekur geysilega athygli.
EM KVENNA
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu mætir Svíþjóð á Ullevi-
vellinum í Gautaborg í undankeppni
EM í dag.
Íslenski hópurinn hélt til Svíþjóð-
ar á þriðjudaginn í síðustu viku og
hefur því haft góðan tíma til þess að
undirbúa sig fyrir verkefnið.
Þá er liðið fullt sjálfstrausts þessa
dagana eftir frábæra spilamennsku
gegn Lettlandi og Svíþjóð í undan-
keppni EM í september en stelp-
urnar unnu þá 9:0-stórsigur gegn
Lettum hinn 17. september og gerðu
svo 1:1-jafntefli gegn Svíþjóð 22.
september. Báðir leikirnir fóru fram
hér á landi á Laugardalsvelli.
Það voru yngstu leikmenn Íslands
sem stálu fyrirsögnunum eftir leik-
ina tvo en þær eru allar fæddar á ár-
unum 2000 til 2001 og hafa fengið
viðurnefnin aldamótabörnin í fjöl-
miðlum eftir frammistöðu sína í
september.
Stjarna Sveindísar Jane Jóns-
dóttur skein einna skærast en hún
lék sinn fyrsta A-landsleik gegn
Lettum, skoraði tvívegis, og þá lagði
hún upp mark Elínar Mettu Jensen
gegn Svíþjóð.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lék
sína fyrstu mótsleiki með liðinu en
hún var á skotskónum gegn Lettum,
ásamt því að leggja upp tvö mörk
fyrir liðsfélaga sína.
Þá lék Alexandra Jóhannsdóttir
landsleiki númer sex og sjö gegn
Lettum og Svíum en þrátt fyrir það
spilaði hún eins og hún væri á meðal
reyndustu leikmanna liðsins, svo
örugg var hún á boltanum.
Allar þrjár leika með Breiðabliki í
úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-
deildinni, en það má fastlega gera
ráð fyrir því að þær verði allar í
byrjunarliðinu gegn Svíþjóð í dag.
Trúin til staðar
Sænskir fjölmiðlar hafa fjallað
mikið um leikmennina í aðdraganda
leiksins og verið duglegir að orða
þær við stærstu lið Svíþjóðar.
„Það mikilvægasta sem við tökum
með okkur er trúin á að geta unnið
leikinn,“ sagði Alexandra Jóhanns-
dóttir í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Það var smá skrekkur í okkur
í fyrri hálfleik gegn þeim heima og
við vorum aðeins passívar. Svo í
seinni hálfleik vorum við síst lakari
aðilinn í leiknum og sýndum að við
getum alveg sótt á þær og spilað
framarlega á vellinum.
Við vorum búnar að fara virkilega
vel yfir þær fyrir leikinn og þær litu
mjög vel út á öllum myndbands-
klippum. Ósjálfrátt þá kannski fer
maður aðeins inn í skelina en þegar í
leikinn var komið gleymdi maður því
alveg að þetta var bronsliðið frá HM
2019.
Við í Breiðabliki fengum frábæra
reynslu gegn þessum stærri liðum
þegar við mættum PSG í sextán liða
úrslitum Meistaradeildarinnar á síð-
ustu leiktíð og sú reynsla hjálpaði
okkur klárlega fyrir leikinn gegn
Svíunum,“ bætti Alexandra við.
Tölfræðin hliðholl Svíum
Íslenska liðið hefur ekki riðið feit-
um hesti frá viðureignum sínum
gegn sænska liðinu.
Alls hafa liðin mæst sextán sinn-
um frá árinu 1982 og hefur Svíþjóð
tólf sinnum fagnað sigri, tvívegis
hafa liðin gert jafntefli og tvívegis
hefur íslenska liðið farið með sigur
af hólmi.
Ísland vann Svíþjóð 12. mars 2014
á Algarve-mótinu þar sem Sara
Björk Gunnarsdóttir og Harpa Þor-
steinsdóttir skoruðu mörk Íslands í
2:1-sigri. Það var síðasti leikur lið-
anna þar til í september þannig að
Svíar hafa ekki náð sigri í tveimur
síðustu leikjum þjóðanna.
Þá vann Ísland einnig 2:1-sigur
gegn Svíþjóð 2. mars 2011 á Alg-
arve-mótinu þar sem þær Margrét
Lára Viðarsdóttir og Katrín Jóns-
dóttir skoruðu mörk Íslands.
Í þeim leikjum þar sem úrslitin
hafa hins vegar skipt mestu máli
hafa Svíar iðulega fagnað sigri,
nema á Laugardalsvelli í september,
þar sem íslenska liðið var óheppið að
fara ekki með sigur af hólmi.
Þá skoraði Sara Björk Gunnars-
dóttir mark undir lok fyrri hálfleiks
sem var ranglega dæmt af.
Svíar eru með nánast sama leik-
mannahóp og á Laugardalsvelli en
það má gera ráð fyrir að framherj-
inn Stina Blackstenius og hægri
bakvörðurinn Hanna Glas komi inn í
byrjunarliðið.
Af þeim 25 leikmönnum sem Pet-
er Gerhardsson valdi í leikmanna-
hóp sinn leika sautján í Svíþjóð, tveir
á Englandi, tveir í Þýskalandi, tveir
á Ítalíu og tveir á Spáni.
Kastað langt og spilað fast
Landsliðsþjálfarinn Jón Þór
Hauksson er afar sáttur með undir-
búninginn í Svíþjóð og viðurkennir
að Svíarnir hafi nálgast leikinn í dag
með ákveðnum hroka.
„Umfjöllunin hérna úti fyrir þenn-
an leik hefur snúist mikið um það að
íslenska liðið geti lítið annað en að
kasta langt. Að íslenska liðið sé fast
fyrir og markið sem við skoruðum á
Laugardalsvelli hafi verið tóm
heppni. Eins að við höfum ekki náð
að særa þær af neinu viti.
Það er smá hroki í Svíunum eins
og við þekkjum og þannig hefur það
stundum verið í gegnum tíðina. Það
er bara bensín fyrir okkur og auðvit-
að blóð á tennurnar líka. Að öðru
leyti erum við ekki mikið að velta
okkur upp úr þeirra umfjöllun. Við
vitum og finnum það að það er sjálfs-
traust í liðinu og við erum ekki mætt
hingað til þess að fylgjast með,“
bætti Jón Þór við.
Trúin á sigur það mikil-
vægasta fyrir leikinn
Lykilleikur í Gautaborg Svíar segja Ísland geta lítið annað en að kasta langt
Morgunblaðið/Eggert
Mark Elín Metta Jensen horfir á eftir boltanum í netið eftir að hafa jafnað í fyrri leiknum gegn Svíum, 1:1.
Leikur Svíþjóðar og Íslands sem hefst á Ullevi-leikvanginum í Gautaborg
klukkan 17.30 er sannkallað úrslitaeinvígi tveggja bestu liðanna í F-riðli
undankeppni EM kvenna í knattspyrnu. Bæði lið hafa unnið alla sína leiki
að undanskildu jafnteflinu þeirra á milli á Laugardalsvellinum, 1:1, fyrir
fimm vikum. Svíar eru með 16 stig og eiga eftir útileik gegn Slóvakíu, auk
leiksins í dag. Íslendingar eru með 13 stig og eiga eftir útileiki gegn Sló-
vakíu og Ungverjalandi, en þessir leikir fara allir fram dagana 26. nóv-
ember til 1. desember. Slóvakía er með 7 stig, á þrjá leiki eftir og mætir
Lettlandi í dag, og á því enn möguleika á öðru sæti riðilsins.
Sigurlið riðilsins fer beint á EM sem haldið verður á Englandi sumarið
2022. Níu lið fara þannig beint í lokakeppnina. Þrjú lið sem enda í öðru
sæti fara auk þess beint á EM þannig að innbyrðis leikir toppliðanna skipta
gríðarlega miklu máli. Hin sex liðin sem verða í öðru sæti riðlanna fara síð-
an í umspil um þrjú síðustu sætin í lokakeppninni.
Alls fara 17 leikir í undankeppninni fram í dag og að þeim loknum verð-
ur því komin skýrari staða í öllum níu undanriðlunum og hvað verður í húfi
í lokaleikjunum í lok nóvember.
Einvígi langefstu liðanna