Morgunblaðið - 27.10.2020, Qupperneq 32
Á sama tíma og ljósið er
tendrað á Friðarsúlu Yoko
Ono í Viðey ár hvert á fæðing-
ardegi Johns Lennons 9.
október er verk Ono, Óskatré,
sett upp á nokkrum stöðum í
Reykjavík. Um er að ræða
þátttökuverk þar sem Ono
býður þeim sem áhuga hafa
að skrifa persónulegar óskir
um frið á hvíta miða og
hengja á trjágreinar birkitrjáa
sem komið hefur verið fyrir í
Listasafni Reykjavíkur. Nú á
meðan safnhúsin eru lokuð
vegna Covid-19 bjóða starfs-
menn safnsins fólki að senda
óskir gegnum hlekk á heima-
síðu safnsins og sér starfs-
fólkið svo um að skrifa óskirnar og hengja á tréð sem
má sjá úti við glugga á Kjarvalsstöðum.
Hægt að senda óskir um frið og þær
verða hengdar á Óskatré Ono
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 301. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Við förum í tvær sýnatökur áður en við förum út og
verðum í hálfgerðri sóttkví þarna úti. Ég veit ekki ná-
kvæmlega hvernig þetta verður en við verðum alla vega
í sérherbergjum og þurfum auðvitað að passa upp á
tveggja metra regluna og þess háttar. Guðbjörg Norð-
fjörð [varaformaður KKÍ] sér um þessa hlið og mun
pottþétt passa vel upp á þetta allt saman,“ segir Sig-
rún Sjöfn Ámundadóttir, landsliðskona í körfuknattleik,
meðal annars í samtali við Morgunblaðið í dag en
landsliðið mun leika þrjá landsleiki á Krít. »27
Kvennalandsliðið leikur þrjá leiki
við óvenjulegar aðstæður
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þórður Gunnarsson er um margt
óvenjulegur hlaupari. Hann keppti í
fyrsta sinn 2018, þegar hann hljóp 10
km, fór hálft maraþon í fyrra og
maraþon sl. laugardag. „Ég hef aldrei
verið í íþróttum fyrir utan badminton
vikulega á veturna og aldrei verið
hlaupari en þegar ég ákveð eitthvað
stend ég við það. Ég ákvað að hlaupa
ekki bút að þessu loknu, reyni að
standa alltaf við það sem ég segi og
nú tekur eitthvað annað við,“ segir
fyrrverandi hlauparinn.
Sunna Svanhvít Söebeck Arnar-
dóttir, eiginkona Þórðar, hefur
nokkrum sinnum hlaupið 10 km í
Reykjavíkurmaraþoninu og þegar
hann keyrði hana í hlaupið 2017
spurði hún hann hvort hann vildi ekki
bara hlaupa líka. „Ég svaraði því til
að ég ætlaði að hlaupa 10 kílómetra á
næsta ári, hálft maraþon 2019 og
maraþon í tilefni af 60 ára afmælinu
mínu 2020.“ Hann segist nánast ekk-
ert hafa æft fyrir fyrstu tvö hlaupin,
en hafi hlaupið 10 km á rúmlega 58
mínútum og hálft maraþon á um einni
klukkustund og 55 mínútum eftir að
hafa hlaupið lengst 12 km í undirbún-
ingnum. „Þetta eru engin afrek held-
ur var ég bara að standa með sjálfum
mér og eigin samvisku,“ segir hann.
Lengst 18,3 km í sumar
Þórður byrjaði að æfa sig fyrir
Reykjavíkurmaraþonið 31. mars,
hljóp vikulega í sumar og lengst 18,3
km. Þegar því var aflýst vissi hann
ekki hvað hann ætti að gera fyrr en
hann heyrði af fyrirhuguðu haust-
maraþoni áhugahlaupara 24. október.
„Þegar það var líka blásið af hugsaði
ég með mér að ég nennti ekki að bíða
lengur og ákvað að halda mínu striki,
veðurgluggi opnaðist á laugardaginn
og ég stóð við mitt.“
Í hlaupunum 2018 og 2019 safnaði
Þórður áheitum fyrir Parkinson-
samtökin. Fyrir skömmu missti hann
vin og frænda barna sinna og ákvað
að safna áheitum til styrktar ekkj-
unni. „Ég hljóp í nafni hans og safn-
aði á facebooksíðunni minni.“
Þórður leggur áherslu á að ekki
hafi verið um hetjudáð að ræða. Hann
hafi aðeins hugsað um að ljúka hlaup-
inu, sungið með sjálfum sér og fylgst
vel með gangi mála. Hann hafi þekkt
leiðina vel frá Fossvogi og út Ægisíðu
en hafi byrjað og endað við rafstöðina
í Elliðaárdal eftir að hafa farið tvo
hringi með nokkrum slaufum við
Nauthólsvík. Fjölskylda og vinir hafi
séð um drykkjarstöðvar og hann hafi
útbúið nokkurs konar salerni í vinnu-
bílnum ef á þyrfti að halda og hann
hafi ávallt verið í grennd.
„Þetta gekk áfallalaust,“ segir
Þórður, sem segist samt hafa verið
með strengi á sunnudag en þeir hafi
verið horfnir í gær. „Heilsan er fyrir
öllu og ég ætla að njóta hennar.“
Hann bætir við að í raun sé hálf-
maraþonið eftirminnilegra. Þá hafi
hann tekið þátt í brauðtertukeppni
eftir hlaupið, útbúið kökuna á föstu-
dagskvöldi, hlaupið morguninn eftir,
farið í sund og heita pottinn, síðan
heim til að ná í brauðtertuna og kom-
ið á síðustu stundu með hana í Lista-
safn Reykjavíkur. „Allar götur voru
lokaðar og því þurfti ég að hlaupa
með tertuna frá Melatorgi og niður í
bæ. Ég held að enginn annar hafi lok-
ið hálfmaraþoni með hlaupi með
brauðtertu í keppni í lokin.“
Markmiðinu náð Sunna Svanhvít Söebeck Arnardóttir, eiginkona Þórðar,
gaf honum blóm eftir maraþonið, sennilega síðasta hlaupið, á laugardag.
Úr hálfu maraþoni í
hlaup með brauðtertu
Þórður hljóp 10 km, hálfmaraþon og maraþon og hætti svo