Morgunblaðið - 05.11.2020, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 05.11.2020, Qupperneq 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020 Ekkert spendýr er jafn ósjálf-bjarga og nýfætt barn.Lengi vel var mikilvægi for- eldra aðallega talið felast í að veita barni fæðu og vernd fyrir ut- anaðkomandi hættum. Nú orðið beinist athyglin að tilfinninga- tengslum þeirra á milli og nauðsyn þess að foreldrar og aðrir fullorðnir sem annast barnið haldi streitu og vanlíðan þess innan marka, hvort sem hún stafar af hungri, þreytu, ótta eða öðru. Þá er ómetanlegt fyrir þroska og sjálfsmynd barna að for- eldrarnir geti glaðst yfir tilveru þeirra. Reynslan mótar barnsheilann Þegar barn fæðist er heili þess mjög óþroskaður. Mótun heilans veltur mjög á reynslu barnsins og er m.a. undir áhrifum hormóna en mik- ill munur er á áhrifum vellíðunar- og streituhormóna á vöxt hans og þroska. Að sama skapi skiptir sköp- um fyrir öryggistilfinningu barns og sjálfsmynd hvort því er svarað á við- eigandi hátt jafnt og þétt. Einnig hvort komið er hranalega fram við barnið eða það látið afskipt. Ung börn geta ekki stjórnað líðan sinni eða dregið úr streitu heldur verða foreldrar eða aðrir fullorðnir að grípa inn í. Með tímanum lærir barnið að annast sjálft sig á sama hátt og hinir fullorðnu gera. Tengslamyndun Í þessu umönnunarferli fyrstu ár- anna þróast tengslamyndun foreldra og barns. Í öruggum tengslum upp- lifir barnið foreldri sem örugga höfn sem það getur treyst á og leitað skjóls og huggunar hjá þegar því líð- ur illa. Vitandi af öruggu höfninni finnur barnið fyrir nægilegu öryggi til að fara frá foreldrinu og kanna nýjar slóðir. Það getur gleymt sér í leik og síðar í námi í fullvissu um að öryggi sé innan seilingar. Í óörugg- um tengslum dylja börn fremur van- líðan sína og leita síður til foreldr- anna (og síðar kennara) eða eru mjög krefjandi, eins og þau telji nauðsynlegt að halda stöðugt í at- hygli foreldranna. Hvort tveggja veldur barni mikilli streitu sem get- ur haft áhrif á félagsleg tengsl og heilsu þess fram á fullorðinsár. Þrátt fyrir góðan vilja og ást til barnsins getur ýmislegt truflað getu foreldra til að vera örugg höfn og njóta samvista við barnið, svo sem óöryggi, kvíði, veikindi þeirra eða barnsins, áhyggjur og álag. Fyrir þá sem eiga erfiða reynslu úr eigin upp- eldi eða hafa orðið fyrir áföllum get- ur umönnun barns virkað sem kveikja á gamlan sársauka. Við slík- ar aðstæður getur reynst þrautin þyngri að lifa sig inn í líðan barns og setja þarfir þess í forgang. Þá getur verið nauðsynlegt að leita hjálpar. Frá árinu 2008 hefur Miðstöð for- eldra og barna og FMB-teymi Land- spítalams veitt meðferð fyrir for- eldra og ungbörn sem glíma við vanlíðan á meðgöngu og eftir fæð- ingu barns. Geðheilsuteymi fjölskylduvernd Nú hafa teymin verið sameinuð og flutt til Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins og heita Geðheilsuteymi – fjölskylduvernd. Markhópur þess er verðandi foreldrar og foreldrar með ung börn sem þurfa meiri og sér- hæfðari þjónustu en er veitt á heilsu- gæslustöðvum. Markmið meðferðar er að draga úr vanlíðan foreldra og stuðla að öruggri tengslamyndun barna. Teymið er þverfaglegt og nær til allra heilbrigðisumdæma. Við hvetjum alla til að vera vakandi fyrir líðan foreldra og ungra barna og leita hjálpar ef þörf krefur. Á heilsuvera.is er fræðsluefni um þroskaferlið sem getur verið skemmtilegt og gagnlegt að kynna sér. https://www.heilsuvera.is/ markhopar/born-og-uppeldi/ Mikilvægi öruggrar tengslamyndunar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ungbarn Í öruggum tengslum upplifir barnið foreldri sem örugga höfn sem það getur treyst á og leitað skjóls og huggunar hjá þegar því líður illa. Heilsuráð Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir hjá geðheilsuteymi fjölskylduverndar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis. Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis. Sex rótgróin íslensk framleiðslu- fyrirtæki hafa tekið höndum saman um að hvetja neytendur til að velja ís- lenskar vörur, ekki síst ef þær standa jafnfætis eða eru betri en þær er- lendu. Fyrirtækin eru Mjólkur- samsalan, Ölgerð- in, Nó-Síríus, Kjörís, Sælgæt- isgerðin Freyja og Gæðabakstur. Í tilkynningu segir að fyrir- tækin sex vilji með átakinu „Ís- lenskt skiptir máli“ vekja neyt- endur til vitundar um að íslensk framleiðsla sé allt annað en sjálf- sögð. Markaðssvæðið sé lítið, og það að velja íslenskt tryggi ekki aðeins bara þúsundir starfa heldur hafi líka bein áhrif á íslenskum heimilum. „Ís- lenskar vörur þurfa háa hlutdeild á markaði til að standa undir sér og því skiptir máli að neytendur séu meðvit- aðir um að íslensk vara, sem þeim finnst sjálfsagt að fáist í verslunum, gæti horfið af markaði ef erlendur valkostur er valinn.“ Íslenskar vörur skapa fjölmörg störf og í núverandi ástand,i þar sem innviðir eru brothættir vegna Co- vid-19, skiptir máli að vernda störf. Samtök iðnaðarins hafa til að mynda bent á að iðnaðurinn muni draga vagninn þegar Covid sloti og þá sé nauðsynlegt að Íslendingar standi saman og kaupi íslenskt. Íslensk framleiðsla skapaði ríflega 7% af landsframleiðslu á síðasta ári, jafnvirði 219 milljarða króna. Sé fisk- vinnsla tekin út stendur eftir að 17.500 manns störfuðu í framleiðslu- iðnaði á síðasta ári, sem er um 8% starfa á íslenskum vinnumarkaði. Átakið stendur til 16. nóvember. „Til þess dags verða í loftinu ýmsar auglýsingar til að minna fólk á mik- ilvægi íslenskrar framleiðslu sem ekki er sjálfgefið að sé á boðstólum,“ segir Guðný Steinsdóttir, markaðs- stjóri Mjólkursamsölunnar, í samtali við Morgunblaðið. sbs@mbl.is Hvetja neytendur til að velja íslenskar vörur Skapa störf sem skipta máli Morgunblaðið/Eggert Ostur Íslenskur veislukostur. Guðný Steinsdóttir Öllum sem selja matvæli, það er matvörubúðum, veitingahúsum og mötuneytum, á að gera skylt að merkja uppruna matvæla sem í boði eru, svo ekk- ert fari á milli mála. Réttur til upplýsinga eru ein grunnréttinda neytenda samkvæmt Neytendasátt- mála Sameinuðu þjóðanna. Bættar upprunamerkingarnar stuðla að því að neytendur geti tekið upplýsta ákvörðun við innkaup, segja Neyt- endasamtökin. „Fyrir hendi eru þokkalega góðar reglur um upp- runamerkingar matvæla í mat- vörubúðum. Mikilvægt er að eftir þeim sé farið, ekki síst í faraldurs- ástandi eins og núna,“ segir í ályktun aðalfundar samtakanna. Á fundinum var Breki Karlsson einn í kjöri til formanns og er því sjálfkjör- inn formaður til næstu tveggja ára. Einnig var sjálfkjörið í stjórn samtak- anna sem nú skipa þau Auður Alfa Ólafsdóttir, Guðjón Sigurbjartsson, Guðmundur Gunnarsson, Gunnar Al- exander Ólafsson, Helga Margrét Marzellíusardóttir, Liselotte Widing, Páll Rafnar Þorsteinsson, Pálmey Helga Gísladóttir, Sigurlína G. Sigurð- ardóttir, Snæbjörn Brynjarsson, Stef- án Hrafn Jónsson og Þórey S. Þóris- dóttir. Í öðrum ályktunum eru endur- vinnslumál meðal annars gerð að um- fjöllunarefni. Þar eru ríki og sveit- arfélög hvött til að gera betur. Málið varði umhverfi og alþjóðlegan orðstír Íslendinga, og ekki síst er í húfi trún- aðartraust neytenda sem vilja að end- urvinnsla skili raunverulegum árangri. Þetta eigi sérstaklega við um endur- vinnslu á gleri. „Neytendur hafa undanfarin ár og áratugi lagt meiri og meiri áherslu á sjálfbærni og endurvinnslu. Baráttan fyrir hreinna og fjölbreyttara um- hverfi nær til allra þátta hagkerfisins og þegar á skortir getur vistkerfið orðið fyrir óafturkræfum skaða sem gerir umhverfi okkar snauðara. Því er alvarlegt þegar ríki og sum sveit- arfélög bregðast skyldum sínum og jafnvel alþjóðlegum skuldbindingum.“ Þörf á samráði Neytendasamtökin gjalda í ályktun sinni varhug við óútfærðum áformum um tilfærslu verkefna neytendarétt- arsviðs Neytendastofu út frá sparn- aðarsjónarmiðum fyrir ríkissjóð. Ákvarðanir um breytingar á verk- efnum Neytendastofu eða að hún verði lögð niður verði að taka með hag neytenda í huga og með samráði við almenning og almannasamtök sem gæta hags neytenda. Nú sé rétti tím- inn til að renna styrkari stoðum undir rétt neytenda, bæði af opinberri hálfu og með starfi frjálsra félagasamtaka. sbs@mbl.is Neytendsamtökin vilja skýrar merkingar og sjálfbærni Morgunblaðið/Hari Innkaup Hagsmunamál neytenda eru mörg og breytast í takt við ný viðhorf. Breki Karlsson Efla verður réttindi neytenda
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.