Morgunblaðið - 05.11.2020, Page 20
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Sala á jólabjór hefst í verslunum
ÁTVR í dag, viku fyrr en oftast áður
vegna aðstæðna í samfélaginu. Ekki
hefur verið hægt að taka forskot á
sæluna á börum sökum samkomu-
takmarkana svo búast má við því að
margir hugsi sér gott til glóðarinnar
þetta árið. Úrvalið er heldur ekki af
verri endanum og hefur raunar aldr-
ei verið jafn mikið.
Alls eru 88 mismunandi tegundir
af jólabjór í boði í Vínbúðunum í ár,
tíu fleiri en í fyrra. Þá eru ótaldar
ýmsar gjafaöskjur og mismunandi
umbúðir sem sumar tegundir fást í.
Mikil aukning virðist í framboði af
íslenskum bjórtegundum þetta árið.
Litlu handverksbrugghúsin eru
mörg hver stórhuga enda hefur
þeim reynst erfitt að koma vörum
sínum á framfæri á tímum kórónu-
veiru.
Alls eru 60 íslenskar tegundir
jólabjórs kynntar til leiks. Það er
ótrúlegur fjöldi sem sést best á því
að árið 2016 var hægt að velja úr 21
íslenskum jólabjór – og þótti mörg-
um nóg um. Stóru brugghúsin bjóða
fram sína sígildu jólabjóra og
krydda úrvalið með nokkrum öðrum.
Þannig er Tuborg julebryg vitanlega
flaggskip Ölgerðarinnar enda hefur
hann verið langvinsælasti jólabjór-
inn hér undanfarin ár og Jóla-Gull
nýtur sömuleiðis vinsælda. Borg
brugghús er tilraunaarmur Ölgerð-
arinnar og þaðan koma sex jólabjór-
ar þetta árið sem allir bera nöfn sem
vísa til fornra íslenskra jólasveina-
heita. Sá nýjasti er Gluggagægir
sem ku vera tvöfaldur IPA með ang-
an af sítrónuköku.
Víking brugghús býður sömuleiðis
upp á blöndu af sígildum bjórum á
borð við Víking og Thule jólabjór og
tilraunakenndari bjórum. Þar á
meðal eru Hvít jól sem er mandarínu
White Ale og Tveir vinir og annar í
jólum sem er svokallaður appels-
ínulager. Þá á Jólabóndi eflaust eftir
að njóta hylli en þar er á ferðinni
traustur IPA-bjór. Þar fyrir utan má
ganga að hinum vinsæla Einstök
Icelandic DoppelBock á sínum stað.
Bæði stóru brugghúsin bjóða upp
á jóla lite-bjóra þetta árið og er sá
frá Víking bragðbættur með eplum
og kanil.
Bleikar þyrnirósir í bragðinu
Örbrugghúsin eru misstórtæk á
jólabjórmarkaði. Þannig sendir Ölv-
isholt frá sér hvorki fleiri né færri en
fimm bjóra og Segull 67 á Siglufirði
er með þrjá jólabjóra. Sama gildir
um Malbygg en Kaldi á Árskógs-
sandi lætur sér tvo duga eins og síð-
ustu ár. Jóla-Kaldi hefur verið með
vinsælustu bjórum síðustu jól.
Smiðjan á Vík í Mýrdal hefur komið
sterk inn síðustu misseri og sent frá
sér fjölda áhugaverðra bjóra. Að
þessu sinni getur bjóráhugafólk
bragðað á Santa’s Blue Balls og
tveimur öðrum jólabjórum þaðan.
Frá RVK Brewing berast fjórir jóla-
bjórar að þessu sinni; þar á meðal
Frostrósir sem mun vera tilbrigði
við klassískan wit-bjór, með appels-
ínuberki, kóríander og bleikum
þyrnirósum.
Skrítin nöfn á skrítnum bjórum
Þar með er ekki nándar nærri allt
talið en nokkrir bjórar vekja sér-
staka athygli, þó ekki væri nema
nafnsins vegna. Þar á meðal er
Grýluhor frá Gæðingi sem mun vera
eikaður dökkur lagerbjór og Heilög
eilífð frá Ægi brugghúsi sem er 10%
sætabrauðs-stout sem fengið hefur
að þroskast á bourbon-tunnum í tvö
ár. Allt til að koma bjóraáhugafólki í
alvörujólaskap. Ægir brugghús
kynnir einnig til leiks Jóla-Bæjó og
Ekkert sérstaklega jólaleg jól.
Steðji úr Borgarfirði færir lands-
mönnum Halelúja sem er svokall-
aður jólasvartbjór, Böl Brewing
býður upp á Þriðja í jólum sem er
belgískur tripel-bjór og frá brugg-
húsinu Austra kemur einn grjót-
harður, Romm í jól.
Grýluhor og Glugga-
gægir koma með jólin
Sextíu tegundir af íslenskum jólabjór fara í sölu í dag
'89 '90 '91 '92 '93 '94 '95 '96 '97 '98 '99 '00 '01 '02 '03 '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19
2015 2016 2017 2018 2019 2020
34
43
53
60
78
88
Vinsældir jólabjórs á Íslandi
Sala á jólabjór 1989-2019
Þúsundir lítra
Fjöldi tegunda
2015-2020
785
343
10
49% seldra jóla-bjóra í fyrra
voru Tuborg julebryg
8x Árið 2007 voru 11 tegundir jólabjórs í Vínbúðunum og í ár eru þær 88
32 ár eru síðan jólabjór kom
fyrst í sölu á Íslandi
13%
Sterkasti jólabjórinn í ár er Ylur frá
Öldum, heil 13% að styrkleika
Ekki er hlaupið að því að ætla sér
að komast yfir alla jólabjórana sem
verða á boðstólum í Vínbúðunum.
Takmörk eru á því hversu mörgum
er hleypt inn í Vínbúðir í einu og þá
er framboð misjafnt eftir versl-
unum.
Sumar vörur koma ekki á fyrsta
söludegi. Mesta bjórúrvalið er í
Heiðrúnu og Vínbúðinni í Skútu-
vogi en þeir allra séðustu leggja inn
pöntun á heimasíðu Vínbúðanna og
sækja svo í rólegheitum tilbúinn
kassa þegar þeim hentar. Sú þjón-
usta kostar ekkert.
Morgunblaðið/Hari
Jólabjór Sala hefst í Vínbúðunum í dag.
Einfalt að panta
á netinu og sækjat í næsta
óteki
Kemur sem hentugur úði en honum er spreyjað yfir augnlokin þ.e. á lokuð augun.
Úðann má nota með farða og augnlinsum.
Fæs
Ap
Hafnarstræti 1–3 > fjallkona.isfjallkonan.rvk fjallkonan
FJALLKONAN FAGNAR ÞÉR!
Skoðaðu Take Away seðilinn > fjallkona.is
Pantaðu í síma 555 0950
KREISÍ
TAKE AWAY
TILBOÐ
Tilboð 1– Date night fyrir tvo
FIMM RÉTTA SEÐILL
Confit andalæri (Peking style)
Gúrka, vorlaukur, Egils appelsín sweet chilisósa,
teriyaki-maltsósa, íslenskar pönnukökur
Kjúklingastrimlar „buffalo“
Pankó & chilihjúpaðar kjúklinglundir í Buffalo BBQ sósu,
pikklað sellerí, salthnetur, gráða- ostasósa
Bleikja & lummur
Léttgrafin bleikja, kjúklingabaunalummur, piparrótar-
sósa, hrogn, stökkar linsubaunir, yuzu-ylliblómadressing
Nautalund
Gulrætur, aspas, smælki, bjór-hollandaise
Grillað blómkál
Granatepli, perlubygg, spínat & basilmauk, skyr-tahini,
pistasíur
›7.990 kr.
3.995 kr. á mann
Tilboð 4 – Peking veisla
Kjúklingastrimlar
Pankó & chilihjúpaðar kjúklinglundir í Buffalo BBQ sósu,
pikklað sellerí, salthnetur, gráðaostasósa
Confit andalæri (Peking style)
Gúrka, vorlaukur, Egils appelsín sweet chilisósa,
teriyaki-maltsósa, íslenskar pönnukökur
Þrista-súkkulaðiterta
Súkkulaði, Þristur
›3.990 kr. á mann
KL. 17–21