Morgunblaðið - 05.11.2020, Blaðsíða 22
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Samkeppni á matvörumarkaði er
hörð, neytendur eru meðvitaðir um
verð og gæði og aðstæður breytast
hratt. Nú er flökt á gengi krónunnar
og við finnum að hjá fjölda fjöl-
skyldna er efnahagurinn þrengri.
Til þess þarf að horfa við álagningu
og vöruval eins og kostur er, ekki
síst nú þegar jólavertíðin er að hefj-
ast,“ segir Ásta Sigríður Fjeldsted,
nýr framkvæmdastjóri Krónunnar.
Hún tók við starfinu í byrjun októ-
bermánaðar og hefur að undanförnu
verið að setja sig inn í fjölþætta
starfsemi þessa stórfyrirtækis sem
er tuttugu ára um þessar mundir.
Ásta Sigríður er vélaverkfræð-
ingur að mennt og starfaði í árarað-
ir erlendis, meðal annars fyrir ráð-
gjafarfyrirtækið McKinsey, IBM og
Össur. Áður en hún tók við núver-
andi starfi var hún framkvæmda-
stjóri Viðskiptaráðs Íslands. Að
stýra starfsemi Viðskiptaráðs og nú
Krónunnar segir hún vera gjörólíkt,
þó í grunninn snúist stjórnun alltaf
um samskipti við fólk og að ná skýr-
um markmiðum sem sett eru.
Aukin sókn í ódýrari vörur
Margt er í deiglunni í starfsemi
Krónunnar um þessar mundir. Ný-
lega voru tvær nýjar verslanir opn-
aðar, önnur við Hallveigarstíg í
Reykjavík og hin við Hraunhellu í
Hafnarfirði. Þá er snjallverslun
Krónunnar í mikilli sókn. Þar er
hægt er að panta vörur í gegnum
app og sækja á valda staði eða fá
sent heim. Ör þróun er í öllum
tæknilausnum fyrir verslanir. Hefð-
bundnar búðir verða að sjálfsögðu
starfræktar áfram, en snjalllausn-
irnar eru nýr kostur segir Ásta.
„Sjálfri finnst mér áhugaverðast
að fara í búðirnar okkar, tala við við-
skiptavinina, verslunarstjórana og
starfsfólkið sem fylgist vel með og
er í raun með fingurinn á púlsi þjóð-
arinnar,“ segir Ásta. „Alls vinna hjá
okkur um 1.000 manns, fjölbreyttur
hópur, eins og þarf að vera í versl-
unum því þangað kemur fjöldinn.
Öllu okkar starfsfólki ber saman um
að vegna efnahagsástandsins sé nú
aukin sókn í ódýrari vörur sem við
nýverið fórum að merkja sér-
staklega og gera meira áberandi í
verslunum okkar. Heilt yfir er salan
að aukast. Ef við berum saman síð-
ustu mánuði við þá sömu í fyrra þá
er aukningin 20-30% milli ára og þá
frekar nær hærri tölunni.“
Höfum áhrif á
val viðskiptavina
Aukin viðskipti í verslunum að
undanförnu segir Ásta ekki þurfa að
koma á óvart. Margir vinni heima
um þessar mundir, mötuneyti í skól-
um og á vinnustöðum eru lokuð og
veitingastaðir að mestu sömuleiðis.
Auk þess er lítið um ferðalög til út-
landa.
„Fólk borðar heima og veltan í
sumum verslunum okkar slær öll
fyrri met. Í sölunni sjáum við að
fjölskyldur reyna að gera vel við sig,
kaupa ostabakka og lúxusmáltíðir.
Svo er sala á vörum í jólabaksturinn
komin á fullt. Hjá Krónunni er lögð
áhersla á að beina viðskiptavinum í
holla valkosti, svo sem ávexti og
grænmeti og salan þar er alltaf að
aukast. Við stjórnum ekki inn-
kaupum okkar viðskiptavina en get-
um haft áhrif,“ segir Ásta og áfram:
„Reyndar er áskorunin nú, þegar
flutningar til landsins eru úr föstum
skorðum, að ná ávöxtum og græn-
meti til landsins þannig að ferskleiki
sé tryggður. Vandamál vegna veir-
unnar koma víða fram.“
Ásta minnist þess frá unglings-
árum, þegar hún vann við afgreiðslu
í matvöruverslun, að henni fannst
það bæði skemmtilegt og lærdóms-
ríkt.
„Hraðinn í samfélaginu er mikill
nú og kröfur viðskipavina aðrar og á
mörgum sviðum meiri en var. Við
bregðumst við hraðanum með því að
hjálpa viðskiptavinum okkar að ein-
falda verslunarferðina, til dæmis
með ýmsum óvæntum tilboðum og
forvitnilegum vörum, ýmsu smálegu
fyrir börnin og fleiru. Tími fólks í
dag er oft takmarkaður og því mæt-
ir Krónan með dæmis auknu úrvali
tilbúinna rétta sem bragðast vel og
fljótlegt er að matbúa. Ný lína af
réttum sem heita Korter í fjögur
kemur í verslanir á næstu dögum,
en þar getur fólk getur púslað sam-
an auðveldri máltíð fyrir tvo með
því að velja prótín, meðlæti og
sósu.“
Nýjar verslanir og
stefnt er út á land
Síðar í þessum mánuði verður
opnuð ný verslun Krónunnar í Aust-
urveri við Háaleitisbraut í Reykja-
vík. „Við finnum fyrir eftirvænt-
ingu, ekki síst meðal íbúa í Fossvogi
og Bústaðahverfi fyrir nýrri búð í
Austurveri,“ segir Ásta. Krónubúð-
in nýja verður þar sem Nóatún var
áður, sem áfram verður vörumerki
sælkeravöru og ljúfmetis, ekki síst
nú fyrir jólin. Að síðustu segir Ásta:
„Við fylgjumst vel með mark-
aðinum frá mörgum sjónarhornum
og erum með ýmislegt í þróun.
Áherslan núna er á snjallverslun
Krónunnar og þannig viljum við til
dæmis auka þjónustu úti á landi, í
gegnum dreifingarleiðir sem við
höfum þar. Þá stefnum við á að
hefja uppbyggingu nýrrar versl-
unar á Akureyri á næsta ári, en hún
verður í nýbyggingu á horni Gler-
árgötu og Tryggvabrautar. Fleiri
staðir fyrir nýjar verslanir eru í
skoðun, meðal annars hér á höfuð-
borgarsvæðinu.“
Verslunarhættir breytast hratt
Krónan í sókn Viðskipti hafa aukist um 20-30% að undanförnu Nýjar búðir og fleiri eru vænt-
anlegar Mikil samkeppni Samdráttareinkennin eru komin fram í matarinnkaupum landans
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Verslun Hjá okkur vinna um 1.000 manns, fjölbreyttur hópur eins og þarf að vera í verslunum því þangað kemur
fjöldinn, segir Ásta Sigríður Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar. Hér er hún við nýja búð í miðborginni.
Hallveigarstígur Gott úrval og
bjartur svipur í nýrri verslun.
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020
Stóra breytingin á matvörumark-
aði á síðustu árum miðað við fyrri
tíð er að lágvöruverðsverslanir eru
orðnar ráðandi og samkeppni þar
mjög virk. „Síðan bætast tækni-
framfarir við sem gjörbreyta leikn-
um,“ segir Ásta Sigríður Fjeldsted.
Þúsundir viðskiptavina hafa þegar
hlaðið appi snjallverslunar Krón-
unnar niður í símann sinn en í
gegnum það er hægt að panta
vörur.
Næsta stig í tækniþróun Krón-
unnar er væntanlegt á næsta ári,
en hún felst í því að viðskiptavinir
skanna sjálfir vörur sínar í versl-
unum Krónunnar beint í símann og
ganga sjálfir frá greiðslu, áður en
gengið er út. Bið við afgreiðslu-
kassa heyrir þá sögunni til. Sömu-
leiðis geta viðskiptavinir matað
snjalltækin á upplýsingum um
hvaða vörur henti þeim með tilliti
til næringarefna og hollustu. Svo
varar síminn fólk við ef til dæmis
ofnæmisvaldandi innihald er að
finna í vörunni.
„Við viljum fyrst og fremst að
snjallverslun Krónunnar einfaldi
fólki lífið óháð því hvort það vilji
nýta sér heimsendingu eða ekki.
Þarna er hægt að skoða vöruúrval,
bera saman verð við aðrar versl-
anir og kanna innihald, hvort varan
sé vegan, lífræn og svo fram-
vegis,“ segir Ásta.
Snjallverslun með upplýsing-
um léttir viðskiptavinum lífið
LÁGVÖRUVERÐSVERSLANIR RÁÐANDI Á MARKAÐI
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tækniöldin Hver gengur að sínu og bráðum færist afgreiðslan í síma fólks.
FJARLÆGÐARMÆLIR
- fyrir Frisbígolf og Golf -
Jólagjöfin í ár!
Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
Tæknilegar
upplýsingar
Orkugjafi: Lithium
batterí, USB hleðsla
Svið: 5-600 metrar
Mælieiningar: Metrar/
Yards
Aðdráttur: 7x
Rakaþol: Class II
Aflestur: LCD
Bygjulengd: 905 nm
Þyngd: 190 gr
Mælir einnig upp/niður áhrif (slope),
er með hraðamæli og „finna fána“
24.990 kr.