Morgunblaðið - 05.11.2020, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020
skipuleggja svæðið, hanna heimili og
byggja. Búast má við að það taki
fimm til sjö ár. Svo þarf að fá ein-
hvern til að reka heimilin. Ekki eru
biðraðir eftir að komast í þennan
rekstur, eins og daggjöldin eru í dag.
Hvorki ríkið né sveitarfélögin vilja
bjóða þjónustuna út því þau vilja ekki
vera ábyrg fyrir fjármálunum ef illa
fer og rekstrinum verður skilað til
baka. Reiptogi Seltjarnarnesbæjar
og ríkisins um rekstur nýja heimilis-
ins á Seltjarnarnesi lauk með því að
ríkið fól félagi í sinni eigu að reka
heimilið.
Vantar millistig
Mikið er rætt um aukna heima-
þjónustu sveitarfélaga og heima-
hjúkrun á vegum heilsugæslunnar en
minna hefur orðið úr því en efni
standa til. Með því að auka þjónustu
við fólkið er hægt að draga úr þörf-
inni fyrir hjúkrunarheimili.
„Það er dýrt fyrir okkur sem þjóð
að reka hjúkrunarheimili. Okkur
vantar þarna millistig, forvarnir fyrir
fólkið sem er að eldast til að það geti
haldið heilsu og dvalið lengur heima.
Örfá endurhæfingarrými eru til fyrir
þennan hóp. Þá þarf að efla mjög
heimahjúkrun,“ segir María Fjóla
Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu-
heimilanna. Eigi að síður þurfi að
byggja upp hjúkrunarheimili til að
taka við fólki þegar kostnaður við að-
hlynningu heima er orðinn meiri en
við dvöl á hjúkrunarheimili.
Unnið er að því að setja á fót nýtt
þverfaglegt öldrunarteymi í Reykja-
vík. Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri
velferðarsviðs Reykjavíkurborgar,
segir að höfuðmarkmið þess sé að
gera fólki kleift að búa lengur í eigin
húsnæði. Í því verði læknar og hjúkr-
unarfræðingar. Teymið hefur aðset-
ur hjá Læknavaktinni og mun vinna í
nánu samstarfi við heimahjúkrun
Reykjavíkurborgar. Gerður hefur
verið samningur við Sjúkratrygg-
ingar um rekstur teymisins.
Stjórnar-
formaður Öld-
ungs hf., rekstr-
arfélags
hjúkrunarheim-
ilisins Sóltúns,
telur vert að líta
til Danmerkur
um skipulag við
uppbyggingu og
rekstur hjúkrunarheimila. Þar sé
þjónustan skipulögð þannig að al-
mennt myndist ekki biðlistar, öf-
ugt við það sem hér er. Telur Þórir
Kjartansson að miðað við ganginn
í uppbyggingu hjúkrunarheimila
og aukna þörf fyrir hjúkrunarrými
stefni í mikla biðlista á næstu ár-
um og áratugum.
Þórir segir að málaflokkurinn í
Danmörku sé á ábyrgð sveitarfé-
laganna en þó þannig að ríkið
tryggi þeim næga fjármuni til að
standa undir uppbyggingu og
rekstri. „Það er á ábyrgð dönsku
sveitarfélaganna að byggja upp þá
þjónustu sem dugir fyrir alla íbúa
sem þurfa á þjónustunni að halda.
Þau eru sektuð ef þau eiga ekki
nægilegt rými og sektirnar eru
það háar að það borgar sig fyrir
stjórnendur sveitarfélaganna að
fylgjast með þörfinni og byggja
jafnóðum upp. Sveitarfélögin
byggja ýmist upp sjálf eða fela
einkaaðilum að gera það. Stefna
ríkisins er að vera með fyrirfram-
skilgreindan hlut hjúkrunarheim-
ila einkarekinn en meirihlutinn er
samt rekinn af sveitarfélögum.
Það skapar meiri sveigjanleika og
valmöguleika fyrir fólkið í land-
inu,“ segir Þórir.
Hann bendir á að mikill þjóð-
hagslegur ávinningur skapist við
að útrýma biðlistum, eins og gert
er í Danmörku, og það sé auk þess
réttlætismál og spari fjármuni.
Danir standa betur að málum
STJÓRNARFORMAÐUR SÓLTÚNS
Þórir Kjartansson
Á morgun: Umfang og
rekstrarform hjúkrunarheimila og
rekstrarerfiðleikar þeirra.
Rekstur hjúkrunarheimila - þjónusta við aldraða
„Staðan er
ómöguleg. Sveit-
arfélagið hefur
verið að greiða
10 til 12 milljónir
á ári með rekstr-
inum og við höf-
um sætt okkur
við það til að
hafa stjórn á
starfseminni. Nú
stefnir í 37,5 milljóna króna halla.
Ef þetta heldur svona áfram hefur
Snæfellsbær ekki efni á því að
greiða 400 milljónir með rekstr-
inum næstu tíu árin og er því
nauðugur einn kostur að skila
heimilinu til ríkisins. Það er slæmt
því við veitum frábæra þjónustu,“
segir Kristinn Jónasson, bæj-
arstjóri Snæfellsbæjar, um rekstur
lítils hjúkrunar- og dvalarheimilis,
Jaðars í Ólafsvík.
Hann segir að ef bærinn neyðist
til að hætta rekstrinum sé hætt
við að hann verði skorinn niður.
Segir Kristinn að búið sé að fá ein-
stakling til að taka út reksturinn til
að athuga hvort bærinn standi að
honum með réttum hætti.
Spurður um skýringar á halla-
rekstri segir Kristinn að það
gleymist oft að fólk komi seinna
inn á hjúkrunarheimili en áður og
veikara. Það þurfi meiri umönnun,
lyfjagjafir og þvíumlíkt. Þá hafi
launakostnaður rokið upp. Dag-
gjaldið sem heimilið fái sé langt
frá því að mæta kostnaði. Hann
nefnir einnig að heimilisfólk fái
líknandi meðferð þegar að því
kemur. Þá þurfi að bæta við fólki.
Þetta sé mikill kostur í nærsam-
félaginu. Makinn og aðrir úr fjöl-
skyldunni geti verið hjá ástvini sín-
um á þessum stundum og skipst á,
í stað þess að þurfa að aka í tvo til
þrjá tíma á aðrar stofnanir.
Bærinn hefur ekki efni á þessu
BÆJARSTJÓRI SNÆFELLSBÆJAR
Kristinn
Jónasson
Morgunblaðið/RAX
Sungið á Hrafnistu Dægurflugur sveimuðu um sali á Hrafnistu við Laugarás þegar söngvararnir Kristján Jóhannsson og Geir Ólafsson komu í heimsókn og sungu við undirleik Þóris Baldurssonar.
Ryðfrítt vinnsluborð
og bandsagarblað
Vinnsluhæð: 240 mm
Vinnslubreidd: 250 mm
Færanlegt vinnsluborð 47
Mótor: 550 w
Hæð: 1.470 mm
Þyngd: 58 kg
Verð aðeins87
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, RE
DYNAMIX
Frábær k
með hakk
ARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888
0x6
.9
YKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFN
jö
a
s
00 mm
00 kr.
tsög
fs.i