Morgunblaðið - 05.11.2020, Side 27
YFIRTÖKUTILBOÐ TIL HLUTHAFA EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS HF.
Samherji Holding ehf. gerir hluthöfum Eimskipafélags Íslands hf. tilboð um kaup á hlutum
þeirra í félaginu á genginu 175 kr. fyrir hlut.
Þann 21. október sl. keypti Samherji Holding ehf. („Samherji Holding“) 550.000 hluti í Eimskipafélagi Íslands hf.
(„Eimskip“) eða sem nemur 0,29% af útgefnum hlutum í félaginu. Hlutirnir voru keyptir á genginu kr. 175 á hlut.
Í kjölfar tilgreindra kaupa fer Samherji Holding með atkvæðisrétt 56.630.000 hluta í Eimskip eða sem nemur
30,28% atkvæða í félaginu. Kaupin gera það að verkum að Samherja Holding er skylt að gera öðrum hluthöfum
Eimskips yfirtökutilboð, þ.e. að bjóðast til að kaupa hlut þeirra í félaginu, sbr. 100. gr. laga nr. 108/2007 um
verðbréfaviðskipti („vvl“).
Samherji Holding mun leggja fram yfirtökutilboð, í samræmi við ákvæði X. og XI. kafla vvl., með þeim skilmálum
og skilyrðum sem fram koma í opinberu tilboðsyfirliti sem dagsett verður og birt þann 10. nóvember nk. („til-
boðsyfirlitið“).
Tilboðshafar
Tilboðið nær til allra hluta í Eimskip sem ekki eru í eigu Samherja Holding eða Eimskips sjálfs við lok viðskipta-
dags þann 9. nóvember nk. Hluthöfum sem skráðir eru í hlutaskrá Eimskips í lok viðskiptadags þann 9. nóvem-
ber nk. verður sent tilboðsyfirlitið, samþykkiseyðublað og svarsendingarumslag.
Tilboðið nær ekki til þeirra hluthafa í Eimskip sem verða skráðir í hlutaskrá Eimskips eftir lok viðskiptadags
9. nóvember nk. Framangreind skjöl verða einnig aðgengileg hjá umsjónaraðilum (eins og þeir eru skilgreindir að
neðan). Einnig verður tilboðsyfirlitið aðgengilegt á vef Eimskips (www.eimskip.is), í fréttakerfi Nasdaq Iceland og
á vef Landsbankans (www.landsbankinn.is).
Umsjónaraðilar
Beljandi ehf. og Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hf. („umsjónaraðilar“) hafa verið ráðnir sem umsjónaraðilar
yfirtökutilboðsins fyrir hönd Samherja Holding. Frekari upplýsingar eru veittar í gegnum netfangið
eimskip@landsbankinn.is og í síma 410-4040.
Tilboðsverð og greiðsla
Tilboðsverð er 175 krónur fyrir hvern hlut í Eimskip veðbanda- og kvaðalausan. Tilboðsverðið er jafnhátt og
hæsta verð sem Samherji Holding hefur greitt fyrir hluti í Eimskip á síðustu sex mánuðum áður en að tilboðs-
skylda myndaðist og er jafnframt hærra en dagslokagengi hluta í Eimskip á síðasta viðskiptadegi áður en að
tilboðsskylda myndaðist. Er tilboðsverðið enn fremur hærra en það tilboðsverð sem ráðgert var að bjóða hlut-
höfum er tilboðsskylda Samherja Holding myndaðist þann 10. mars 2020, sbr. flöggun Samherja Holding þann
sama dag. Greiðsla fyrir hluti þeirra sem tilboðið samþykkja verður innt af hendi í íslenskum krónum inn á banka-
reikning sem hluthafi tilgreinir. Greiðslan verður innt af hendi eigi síðar en fimm viðskiptadögum eftir að gildistíma
yfirtökutilboðsins lýkur.
Tilboðstímabil
Gildistími yfirtökutilboðsins er frá kl. 9:00 þann 10. nóvember 2020 til kl. 17:00 þann 8. desember 2020.
Samþykki yfirtökutilboðsins verður að hafa borist umsjónaraðilum og/eða á tölvupóstfangið
eimskip@landsbankinn.is eigi síðar en kl. 17:00 þann dag. Hluthafar bera sjálfir ábyrgð á því að samþykkis-
eyðublaðið berist tímanlega. Samherji Holding áskilur sér einhliða rétt til að ákveða hvort samþykkiseyðublöð,
sem kunna að berast eftir að gildistími tilboðsins rennur út, verði tekin gild. Framlengja má yfirtökutilboðið að því
marki sem ákvæði vvl. leyfa.
Framtíðaráætlanir
Eimskip er í meirihlutaeigu íslenskra lífeyrissjóða sem saman fara með rúmlega helming hlutafjár. Samherji
Holding telur Eimskip vel til þess fallið að vera áfram skráð á almennan hlutabréfamarkað og stjórnendur
Samherja Holding binda vonir við að eiga áfram gott samstarf við aðra hluthafa Eimskips.
Tilboðsyfirlitið felur ekki í sér ráðgjöf af hálfu Samherja Holding eða umsjónaraðila og er tilboðshöfum bent á að
leita sér viðeigandi ráðgjafar sérfræðinga.
Reykjavík, 5. nóvember 2020
Samherji Holding ehf.