Morgunblaðið - 05.11.2020, Síða 28

Morgunblaðið - 05.11.2020, Síða 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020 urinn er kurlaður. Reynt er að koma öllu í verð, líka saginu frá viðarsög- inni. Almenningur nýti afurðir „Ég vil sjá okkur verða að þróunarfélagi fyrir skógarbændur og skógareigendur á Suðurlandi. Einstaka skógarbændur hafa ekki tök á að fara út í viðarvinnslu. Við erum á undan með okkar skóg en bændur þurfa að fara að grisja sína skóga, ég á von á að mikið efni komi út úr því eftir tíu til fimmtán ár. Það telst svo sem ekki langur tími í skóg- rækt og því stutt í að þessi vinna hefjist fyrir alvöru. Við getum von- andi plægt akurinn fyrir bændur og þá sem á eftir okkur koma. Snæfoks- staðir gætu orðið miðstöðin í nýrri atvinnugrein viðarvinnslu,“ segir Kjartan. Hann hefur einnig áhuga á því að lista- og handverksfólk geti nýtt við- inn til framleiðslu muna. Nefnir í því sambandi að Landbúnaðarháskóli Íslands hafi verið með námskeið í tálgun og framleiðslu úr skógar- afurðum á Snæfoksstöðum og nem- endur í Listaháskóla Íslands hafi einnig nýtt aðstöðuna. „Það væri ánægjulegt ef við gætum stutt þá þróun að almenningur tengist þessu starfi betur og nýti afurðirnar til sköpunar. Aukin ferðaþjónusta Snæfoksstaðir eru talsvert nýttir til útivistar, bæði af íbúum héraðsins og sumarbústaðafólki úr nágrenn- inu. Segir Kjartan að vinnuvegir séu um skógana en gera mætti meira í að leggja göngustíga til að gera skóginn aðgengilegri. Reksturinn á Snæfoksstöðum skapar góðan fjárhagslegan grund- völl fyrir félagið. Það er salan á jóla- trjánum og viðnum en einnig útleiga á landi undir 60 sumarbústaði og önnur hlunnindi. Jörðin er við eina fjölmennustu ferðamannaleið landsins og í því fel- ast ýmis tækifæri, að mati Kjartans og félagsins. Fyrir utan almennt úti- vistargildi má nefna gamlar námur þar sem rauðamöl var tekin en þar má sjá jarðsögu svæðisins. Það kost- ar nokkra fjármuni að útbúa fræðsluskilti um það. Þá á jörðin land upp á barm Kersins. Hefur fé- lagið undirbúið aðstöðu til að geta boðið ferðafólki þjónustu,“ segir Kjartan Ólafsson. Vinna efni úr skóginum fyrir markað  Áherslur í starfi Skógræktarfélags Árnesinga breytast  Unnið að grisjun og viðarvinnslu í stað plöntunar  Snæfoksstaðir geta orðið miðstöð þróunarstarfs í viðarvinnslu að mati formannsins Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Skógarhlíðin 2020 Ekkert landslag sést lengur vegna hárra barrtrjáa og sums staðar eru furutré einnig farin að skyggja á. Barrtjánum var plantað eftir miðjan sjötta áratuginn og eru því komin á sjötugsaldurinn. Grisjun Bergur Þór Björnsson, framkvæmdastjóri félagsins, við grisjun í skóginum á Snæfoksstöðum. Þar eru mikil verkefni allan ársins hring. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Skógarhlíðin 1983 Til samanburðar er birt mynd sem tekin var vorið 1983, af sömu hlíð. Þá voru trén um það bil 25 ára gömul og útlínur landsins sáust enn. Nú hefur verið plantað í mestallt land jarðarinnar Snæfoksstaða. VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Áherslur í starfi Skógræktarfélags Árnesinga hafa breyst á und- anförnum árum. Í stað þess að rækta nýja skóga snýst starfið meira um að grisja og nýta efnivið- inn í vörur fyrir markaðinn, svo sem jólatré, borðvið til smíða, eldvið og kurl. „Skógurinn hefur margfaldast og trén vaxa stöðugt. Við höfum nóg efni hér á Snæfoksstöðum til að vinna úr næstu ár og áratugi,“ segir Kjartan Ólafsson, formaður félags- ins. Skógræktarfélagið keypti jörðina Snæfoksstaði í Grímsnesi fyrir 66 árum og þar hafa félagsmenn rækt- að mikla skóga, mest í sjálfboðinni vinnu. „Jörðin er 700 hektarar að stærð og við erum búin að planta trjám í meginhluta hennar,“ segir Kjartan. Tekur tíma að fá uppskeru Hluti jarðarinnar er tekinn frá til að rækta jólatré. Svæðið er hreinsað og plantað trjám í allan reitinn. Upp- skeran kemur eftir tólf til fimmtán ár og þá eru trén höggvin og seld og í lokin eru þau tré sem sitja eftir og ekki henta sem jólatré hreinsuð burt og plantað trjám fyrir nýja upp- skeru. „Þetta er alveg eins og í kart- öfluræktinni nema hvað það tekur talsvert lengri tíma að fá uppskeru,“ segir Kjartan. Framkvæmdastjóri félagsins, Bergur Þór Björnsson, er búinn að merkja þau tré sem höggvin verða í næsta mánuði til sölu fyrir jólin. Á aðventunni koma félagsmenn og hjálpa til við söluna og til að skapa jólastemningu í húsakynnum félags- ins á Snæfoksstöðum. Framkvæmdastjórinn vinnur að grisjun skógarins allt árið og á sumrin fær hann aðstoð sum- arstarfsfólks við plöntun trjáa, grisj- un og hreinsun. Mikið efni fellur því til auk þess sem tekið er við grisjunarvið úr görðum á Selfossi og víðar. Félagið hefur komið sér upp að- stöðu og góðum tækjakosti á Snæ- foksstöðum til að vinna úr þessu efni. Nýjasta tækið er góð vél til að kljúfa eldivið. Sverir bolir eru sag- aðir í borðvið en þeir minni eru sag- aðir og klofnir í eldivið og afgang- Eitt af fyrstu verkefnum Skógræktarfélags Árnesinga var að koma upp trjágarði í miðbæ Selfoss. Var hann gerður til að minnast Tryggva Gunnarssonar banka- stjóra sem stóð fyrir byggingu Ölfusárbrúarinnar gömlu en tilefnið var ekki síst 50 ára afmæli brúar- innar. Í Tryggvagarði gafst íbúum sýslunnar í fyrsta skipti gott tækifæri til að kaupa trjáplöntur fyrir garða sína. Tryggvagarður var síðar afhentur Selfoss- hreppi til eignar og umráða. Skógræktarfélagið var stofnað 2. nóvember 1940, einmitt í Tryggvaskála við Ölfusárbrú. Það fagnar því áttatíu ára starfsafmæli um þessar mundir. Kjartan Ólafsson, formaður félagsins, líkir aðstöð- unni fyrir áttatíu árum við akuryrkju. Þegar fræ séu sett í raka og varma jörð hljóti þau að spíra. Það hafi sannarlega gerst og margar greinar vaxið út frá starfi Skógræktarfélags Árnesinga. Telur Kjartan að Árnessýsla sé framarlega í skógrækt í landinu. Félagið er þannig byggt upp að deildir eru um alla sýslu og hafa margar þeirra eigin skógræktarreiti, til viðbótar landinu á Snæfoksstöðum sem Skógræktar- félag Árnesinga keypti á árinu 1954. Skógræktar- félagið er síðan aðili að Skógræktarfélagi Íslands. Öfluðu sér þekkingar Kjartan segir að lítil þekking hafi verið á trjárækt þegar félagið tók til starfa en smám saman hafi verið bætt úr því. Nefnir hann merkileg sambönd við Norð- menn sem komust á 1949 með ferðum norsks skóg- ræktarfólks hingað til starfa, gjarnan í hálfan mánuð, og ferðum íslensks skógræktarfólks til Noregs á móti. Héldust þessi samskipti í áratugi. Kjartan fór sjálfur í slíka ferð sem unglingur og segir að þær hafi vakið áhuga á skógrækt og fært þekkingu inn í land- ið. Tryggvagarður var fyrsta verkefni félagsins SKÓGRÆKTARFÉLAG ÁRNESINGA Á SÉR 80 ÁRA SÖGU Formaður Kjartan Ólafsson við söguskilti á Snæfoksstöðum sem Óskar Þór Sigurðsson, fyrrverandi formaður, gaf skóg- ræktarfélaginu til minningar um látna eiginkonu sína.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.