Morgunblaðið - 05.11.2020, Síða 38

Morgunblaðið - 05.11.2020, Síða 38
38 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020 Með þessum línu- ritum er tekið saman yfirlit yfir loftslag fjögurra belta, norð- urhvels, jarðar, hita- beltis og suðurhvels, frá síðari hluta 19. aldar til nútíma. Enn- fremur er gerð til- raun að spá um fram- hald loftslagsins til 2120. Uppistaðan eru rauðar línur loft- hitans í heiminum árin 1875-2020. Á árunum 1875 til 1978 voru athug- anir á suðurhveli mjög strjálar og eru því nokkuð endurmetnar hér með tilliti til annarra mælinga. Á 35 ára fresti reyndust allan tímann regluleg umskipti í hitanum. Rauð lína raunverulega hitans var á hverjum 35 ára kafla fundin með því að reikna beina línu gegnum 36 meðaltöl árshitans sem sveifluðust óreglulega frá ári til árs. Hlýnunin magnast að vissu marki upp fyrir jafnvægisstöðu á 35 árum, sam- tímis því að snjór og hafís eyðast, en vaxandi snjór og hafís fara síðan að kæla nokkuð niður fyrir með- allag á næstu 35 árum, og þannig halda sveiflurnar stöðugt áfram. Þar sem rauðar línur enduðu á mörkum hitakaflanna stóðust þær ekki alltaf á. Þá var meðaltal þeirra notað, og milli allra þeirra völdu punkta voru teiknaðar rauðar línur. Þannig skiptist loftslagið í jafn langa 35 ára kafla. Svo að segja sama nákvæmni í tímasetningu sveifln- anna hefur staðið að minnsta kosti síðan fyrir landnám sam- kvæmt mælingum á Grænlandsjökli. Gegnum allar rauðu mælingarnar eru svo teiknaðar útjafnaðar línur, 71 árs keðjubundin meðaltöl mælda hit- ans. Þessar bláu yfirlitslínur verða þannig sambærilegar við línurit mannfjölda og koltvísýrings loftsins efst á myndinni, en ofan á þær leggjast svo rauðu línurnar á jarðarhvelum. Þá er komið að spánni til ársins 2120 í bláum kafla myndarinnar. Spáð er um bláa keðjubundna hitann í heila öld frá 2021 til 2120, í sem sennilegustu framhaldi af fyrri þróun. Þar er meðal annars stuðst við það að Alþjóða veðurstofan hef- ur birt mannfræðilegar heimildir um sennilega stöðvun mannfjölg- unar, og jafnvel mannfækkun, vegna mikillar fækkunar barneigna í heiminum. Trúlegt er að af því leiði minni kostnað en ella, ekki síst vegna jarðefnaeldsneytis, svo sem kola og olíu. Eftir það ætti þá líka blái keðjubundni hitinn að hækka hægar og jafnvel lækka síðar. Með því að neyta eingöngu grænnar fæðu mætti minnka mikið fæðu- kostnað og eyðslu eldsneytis. Ef það stenst eru það mikilvægar upp- lýsingar í byrjun. Með árinu 2050 er rauða línan á norðurhveli að verða of langt fyrir neðan bláu lín- una og verður að hækka sig meira en áður, og upp fyrir þá bláu. Þá minnka víðáttumiklu snjóalögin í Síberíu og Kanada, og um leið gef- ur hafísinn eftir, en rauði hitinn nær hámarki sínu um 2085. Þá fer skyndilega að kólna með auknum snjó og ís í 35 ár, til 2120. Öll áhrif á yfirborðshitann verða meira en helmingi minni á suðurhveli en á norðurhveli, einkum vegna þess að þar er sjórinn meira en helmingi víðáttumeiri og tekur til sín meiri hlutann af varmabreytingunum nið- ur í djúpin. Hannes Finnsson, sem var bisk- up í Skálholti fram undir aldamót 1800, taldi að manndauði vegna harðinda á Íslandi hefði þá und- anfarið verið tvisvar á hverri öld. Nú óttast sumir hættuleg hlýindi. En sambandið milli loftslags og mannfjölda hefur staðist vel síðan 1875, og nú sýnist hlýnunin hægari í bili. Manneskjan getur auk þess temprað lofthitann með því að eign- ast enn færri börn. Einnig þarf að hætta þeim rándýra ósið að breyta plöntum í kjöt og úrgang áður en þær eru étnar, eins og meistarinn Attenborough bendir á. Þær ráð- stafanir taka hins vegar talsverðan tíma en spara líka mikið af olíu, kolum og gasi, sem er gott að eiga. Það hrekkur þó skammt þegar 80 þúsund ára ísöldin kemur, hvort sem það verður eftir 10 þúsund eða jafnvel þúsund ár, líkt og frá land- námi Íslands, sem þá yrði jökli hul- ið. Ekki veitir af að haga sér eftir því, en vona um leið það besta. Eftir Pál Bergþórsson Páll Bergþórsson »Með því að neyta ein- göngu grænnar fæðu mætti minnka mikið fæðukostnað og eyðslu eldsneytis. Höfundur er veðurfræðingur. -0,2° -0,1° -0,1° 1875 1910 1945 1980 2015 2050 2085 2120 -0,3° -0,3° -0,2° -0,1° 0,1° 0,1° 0,1° -0,1° 0,0° 0,0° 0,0° 0,0° 0,4° 0,5° 0,7° 0,6° 0,7° 0,6° 0,9° 0,8° 1,2° 1,1° 1,3° 1,1° 1,0° 1,2° 1,9° 1,5° -0,4° 280 300 350 400 450 490 1 2 3 4 5 7 8 9 10 11 6 Mannfjöldi Koltvísýringur Norðurhvel Jörðin, meðaltal Hitabelti Suðurhvel F R A M T Í Ð Loftslag 1875-2120 Mannfjöldi á jörðinni (milljarðar) Koltvísýringur í lofthjúpnum (CO2 ppm) Lofthiti, meðaltal mælinga (vik frá 1961-1990 °C) Keðjubundið meðaltal mælds lofthita á jörðinni (°C) Loftslag frá 1875 og 100 ára spá Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.