Morgunblaðið - 05.11.2020, Síða 39
UMRÆÐAN 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020
Biskupar og öfga-
vinstrifólk á borð við
Rósu Björk Brynjólfs-
dóttur hvetja íslensk
stjórnvöld til að veita
umsækjendum um al-
þjóðlega vernd dval-
arleyfi af mannúðar-
ástæðum ef þeir hafa
dvalið hérlendis til
lengri tíma og aðlagast
samfélaginu óháð nið-
urstöðu máls þeirra. Já
„óháð niðurstöðu“. Nú
hefur meðlimi í öfga-
fullum samtökum músl-
ima, þar sem margir
meðlimir eru jafnframt
hryðjuverkamenn, en
allir meðlimir haturs-
menn samkynhneigðra
og gyðinga, verið veitt
hér hæli. Honum er
veitt hæli vegna þess að hann er með-
limur í haturssamtökum. Ekkert er
því til fyrirstöðu að aðrir fái hæli á
sama grunni. Lýsingin á Bræðralagi
múslima stemmir fullkomlega við önn-
ur samtök öfgafullra samtaka múslima
svo sem talibana, Hezbollah, Al queda
o.s.frv. Ekki hafa allir meðlimir þeirra
enn framið hryðjuverk; ekki fyrr en
krafist er. Það voru persónuleg tengsl
milli Hamas-hryðjuverkasamtakanna
og íslenskra öfgavinstrimanna sem
réðu komu öfgamannsins til Íslands.
Og til að hafa það á hreinu, þá hafa
börn ekki skotið órjúfanlegum rótum
við það eitt að dvelja í landi og læra
hrafl í málinu. Ræturnar eru í fæð-
ingar- og uppeldislandinu. Það á ekki
bara við um okkur Ís-
lendinga.
Verða öfgamenn
fangelsaðir við
heimkomuna?
Það kann að vera að
öfgamenn sem bisk-
uparnir og öfga-
vinstrifólk styðja verði
fangelsaðir. En það mun
einungis gerast ef þeir
eru tengdir hryðjuverka-
starfsemi. Meira en
fimmtungur Egypta
styður Bræðralag músl-
ima. Ekki er fimmtungur
Egypta þó í fangelsi að
best er vitað. Bræðralag
múslima og hálfgildings
bræðralag þess við ýmis
vinstrisamtök hér á Ís-
landi er með ólíkindum.
Og af hverju umbera
samtök samkynhneigðra
hatur í sinn garð ef hat-
ararnir eru útlendingar?
Fari svo að öfgamenn verði fangels-
aðir í heimalandinu, þá með réttu, þá
verða börn þeirra í fjölmennum hópi
barna sem eiga fanga að föður. Það er
auðvitað dapurlegt. Syndir föðurins
munu koma niður á börnunum eins og
þar segir. Hvað segja þá biskuparnir
svokölluðu? Engan í fangelsi?
Landnám öfganna á Íslandi eftir
hörfun kallar á nauðsynlega varúð
Svo dæmi sé tekið eru í Bretlandi í
gildi ítarlegar leiðbeiningar til að
vernda stúlkubörn fyrir umskurði (e.
FGM). Nú þarf þær hér. Um alla Evr-
ópu er nákvæmlega fylgst með öfga-
mönnum sem hætta kann að stafa af.
Sér ríkisstjórnin til þess að lögreglan
fái aukna fjármuni til að bregðast við
hinu nýja landnámi öfgasamtaka
múslima á Íslandi? – Íslenskir vinstri-
menn eru alltaf nokkrum skrefum á
eftir. Forystumenn vinstrimanna í
Bretlandi, Danmörku, Frakklandi og
víðar hafa séð ljósið og eru nú orðið í
framvarðasveit gegn trúaröfgum og
gyðingahatri. Hvenær tekur íslenska
vinstrið, að Viðreisn meðtalinni, við
sér?
Enn um Bræðralag múslima
Stofnandi Bræðralags múslima
sagði: „Það er eðli íslams að drottna,
að láta ekki stjórnast, setja lög sín yfir
allar þjóðir og útvíkka vald sitt til allr-
ar jarðarinnar.“ Hann var einlægur
aðdáandi Hitlers og talsmaður útrým-
ingar gyðinga. Hann lét m.a.s. þýða
Mein Kampf á arabísku. Minning
stofnandans er í hávegum höfð í
bræðralaginu, ekkert hefur á hana
fallið.
Núverandi yfirstjórnandi bræðra-
lagsins er vissulega trúr stofnand-
anum. Leiðtogi bræðralags múslima
sem Erdogan hýsir varaði meðlimina í
september 2019 við að eitthvað myndi
koma kristnum „í eld“ og ráðlagði
þeim að halda sig fjarri kirkjum. Hinn
13. október 2019 stórskemmdi eldur
aldagamla kirkju heilags Georgs í
Egyptalandi. Kirkjan var stærsta og
elsta kirkja koptísku rétttrúnaðar-
kirkjunnar í Egyptalandi.
Ofsótt fólk í löndunum fyrir botni
Miðjarðarhafs (og ég er ekki að tala
um bræðralagið) bíður, bíður og bíður
og undirtektirnar láta á sér standa.
Hvað er eiginlega að?
Meðlimi í Bræðralagi múslima
hefur verið heimiluð landvist
Eftir Einar S.
Hálfdánarson
» Stofnandi
Bræðralags
múslima var ein-
lægur aðdáandi
Hitlers og tals-
maður útrým-
ingar gyðinga.
Einar S. Hálfdánarson
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
Frí heimsending um land allt
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 • Vefverslun: selena.is
Fallegir sloppar
í úrvali
Vefverslunselena.is
Ég bíð hérna spennt við tækið
eirðarlaus og orðin þreytt.
Þarna kemur þríeykið
skyldi allt vera orðið breytt?
Óvissa og ótti
vofir yfir enn.
En óþekkt og geðþótti
hrjáir margar konur og menn.
Spritt, grímur og þvottur
það þvælist fyrir Gunnu og Geir.
Að þvo sér eins og þrif-óður köttur
þau geta ekki meir …
Samhugur eða sundrung
hvert viljum við fara?
Út í ána, hún er straumþung
eða yfir brúna, það er öruggara.
Þórólfur, Alma og Víðir
þau byggðu þessa brú.
Víði honum ég hlýði
og hin eru heilbrigðishjú.
Palli, hann var einn í heiminum
en nú er hann kominn í mynd.
Hann heldur uppi spítalageiminu
sem í dag er okkar helsta auðlind.
Heilbrigði eða sprungur
hamingja eða sorg.
Róðurinn er þungur
í okkar fallegu borg.
Höldum fjarlægð og virðum hvert annað
því metrar eru málið í dag.
Að knúsa og kyssa er bannað
sameinumst í andlegt þjóðarfaðmlag.
Eitt augnablik, eitt skref, einn dagur
þetta líður og brátt verður ár.
Látum hvern dag heita einstakur og
fagur
þó í birtingu hann virðist bara grár.
Við getum þetta öll, við erum saman
leiðumst í gegnum þennan byl.
Seinna við höfum það gaman
og minnumst þess sem gaf okkur yl.
Baráttukveðjur áfram!
Klukkan er
að verða 11
Eftir Lindu
Guðrúnardóttur
Linda
Guðrúnardóttir
»Hvatning til þríeyk-
isins og landans, í
formi ljóðs.
Höfundur er ljóða-, texta- og
lagahöfundur.
lindagudrunar@gmail.com