Morgunblaðið - 05.11.2020, Síða 43

Morgunblaðið - 05.11.2020, Síða 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020 klettur í lífi vina sinna og fjöl- skyldu. Hafði hlutina á hreinu. Starfaði af festu, alltaf með markmið og náði þeim. Svo kunni hann að lifa lífinu, njóta tónlistar. Við Fögrubrekkufjölskyldan vottum ykkur elsku fjölskylda Madda okkar dýpstu samúð. Maddi fer óvænt og alltof fljótt frá okkur. Við munum sakna hans mikið. Það huggar á þessari sorgarstundu að hann skilur eftir sig góðar minningar, var mikil fyrirmynd og elskaður. Það gerir andlát hans líka svona sárt. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir. Þótt árin líði og tímarnir breytist hverfur aldrei sönn vin- átta við gott fólk. Og þrátt fyrir að samverustundirnar strjálist breytir það engu um gildi vinátt- unnar. Það er eins og hún vari að eilífu. Þegar ég nú á sárri skiln- aðarstund horfi til baka, finnst mér að vinátta okkar Magnúsar H. Magnússonar, Madda, hafi byrjað jafnskjótt og ég kynntist honum; um það leyti sem ég var að hefja stjórnmálaferil minn á árunum fyrir 1990 sem frambjóð- andi og síðar þingmaður í Vest- fjarðakjördæmi. Á Hólmavík var traustur hóp- ur fólks reiðubúinn að leggja mér lið, ungum manni sem í rauninni var óskrifað blað. Það var gaman og uppörvandi að vera partur af slíku liði og heyja með þeim hina pólitísku glímu. En stórkostleg- ast var það hins vegar auðvitað að vita að þarna voru ekki bara pólitískir samverkamenn á ferð heldur vinir manns. Maddi var einn af forystu- mönnunum, enda maðurinn ljúf- ur, vinsæll og skemmtilegur, kraftmikill og sannur athafna- maður sem vildi ótrauður leggja sitt af mörkunum fyrir samfélag- ið. Það var gaman að vera með honum og ekki var það lakara að kynnast Bobbu, Þorbjörgu Magnúsdóttur, konu hans. Hún var ekki einasta stoð hans og stytta heldur kraftmikil og dug- leg í öllu því sem hún tók sér fyr- ir hendur. Alltaf var gott að koma á heimili þeirra, njóta góðra veitinga og gestrisni; en umfram allt að eiga þau að svo kærum vinum og kynnast þeirra góðu, glaðværu og samstæðu fjölskyldu. Oft dáðist ég í huganum að atorkusemi Madda. Stundum fannst manni hann eiginlega vera allt í öllu. Hann var hreppsnefnd- armaður og oddviti, atvinnurek- andi, fréttaritari, sat í stjórn Orkubúsins og sá um flugið á Hólmavík, svo eitthvað sé nefnt. Og svo var hann ætíð með hug- ann við ný viðfangsefni, einkan- lega þau sem gætu komið sam- félagi hans að gagni. Einn daginn þegar ég kom í heimsókn sagði hann mér frá áformum sínum um uppbyggingu á Riis-húsi, gömlu og reisulegu húsi sem mátti muna fífil sinn fegurri. Mér leist svona mátulega vel á. Ég gerði mér grein fyrir að þetta yrði ekki neitt áhlaupsverk og yrði dýr framkvæmd. En Maddi lagði ótrauður upp í verk- efnið. Áður en maður vissi hafði Riis-húsið gengið í endurnýjun lífdaga. Það varð þá strax mikil staðarprýði rétt eins og í dag, glæsilegt veitingahús og miðstöð margs konar samkomuhalds. En ekki lét Maddi vinur minn þar við sitja. Skammt frá Riis-húsinu stóð Bragginn, hinn gamli sam- komustaður Hólmvíkinga sem virtist eiga litla framtíð. Og fyrr en varði höfðu Maddi og Bobba fest kaup á honum og lagt út í endurgerð. Brátt iðaði gamli Bragginn af lífi og varð vettvang- ur alls konar menningarviðburða á Hólmavík. Andlátsfregn míns gamla, góða og trausta vinar varð okkur samferðamönnum og vinum hans mikið reiðarslag. Hann var drengur góður, skemmtilegur og sannur vinur. Óumræðilega sár harmur er kveðinn að hans góðu konu, Þorbjörgu Magnúsdóttur, og fjölskyldu þeirra. Við Sigrún sendum þeim okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning okkar góða og trausta vinar. Einar Kristinn Guðfinnsson. Gæfufjársjóður er orð sem finna má í eldri Biblíuþýðingum. Þetta fallega orð kemur í hug- ann þegar kær og elskaður vinur er fyrirvaralaust hrifinn burt frá okkur. Það var gæfa okkar að eiga Madda að vini og við eigum dýr- mætan fjársjóð í öllum minning- um okkar um hann. Kynnin við Madda hófust á æskuslóðum hans á Hólmavík. Heimahagarnir voru honum afar kærir. Hann hafði mikinn og ein- lægan áhuga á sögu Hólmavíkur. Hann varðveitti myndir og gaml- ar sagnir og var annt um að þess- um fróðleik væri haldið til haga. Maddi var heilsteyptur og víð- sýnn og starfaði mikið að félags- og menningarmálum. Áhrifa hans gætti víða og hann vann heimabyggðinni allt sem hann mátti sem gat horft til framfara. Seint verður fullþakkað það afrek þeirra hjóna, Madda og Bobbu, að bjarga miklum menn- ingarverðmætum á Hólmavík. Þau keyptu Riis-hús sem byggt var árið 1897, gerðu það listilega upp og ráku þar veitingastað. Þá gerðu þau einnig upp gamla fé- lagsheimilið, „Braggann“ sem margir Strandamenn eiga góðar minningar um. Maddi var félagslyndur og hláturmildur og hafði yndi af að gleðjast og syngja með fjölskyldu og vinum og þar naut há og björt tenórröddin sín vel. Okkar á milli voru Maddi og Bobba alltaf nefnd í sömu andrá. Eftir að þau fluttu frá Ströndum litum við alltaf í heimsókn til þeirra þegar við áttum leið suður. Okkur var alltaf tekið fagnandi. Oftast dvaldist okkur lengur en ætlað var því við þurftum auðvit- að að segja fréttir að heiman og svo var spjallað um allt milli him- ins og jarðar. „Við verðum að hafa gaman,“ sagði Maddi gjarn- an þegar honum fannst umræð- urnar orðar helst til alvarlegar. Engan þekkjum við sem kunni betur að nota móðurmálið til að kæta og gleðja. Hann var einstaklega frumleg- ur og hnyttinn. Hann var meist- ari orðaleikjanna, var eldsnöggur að snúa ólíklegustu hlutum upp í grín og fékk okkur ósjaldan til að veltast um af hlátri. Og þegar hann kvaddi fylgdi hann okkur ævinlega út á hlað, veifaði, bætti við einni óborganlegri athuga- semd og sendi okkur skellihlæj- andi heim. Þessi mynd af Madda vini okk- ar verður alltaf greipt í hugann. Maddi var einlægur og fölskvalaus vinur, fyrir það verð- um við alltaf þakklát. Við munum um ókomna tíð varðveita gæfufjársjóðinn sem geymir allar góðu minningarnar um hann. Guði blessi minningu góðs vin- ar. Við biðjum góðan Guð að vaka yfir Bobbu vinkonu okkar, Sig- rúnu móður hans, börnum hans og fjölskyldum þeirra. Gunnlaugur og Sigríður. HINSTA KVEÐJA Elsku afi okkar. Við eigum aldrei eftir að gleyma hversu æðislegur þú varst. Þú varst alltaf að hjálpa okkur og það var alltaf svo gott að gista hjá ykkur ömmu. Takk fyrir öll ævintýrin og ferðalögin sem við áttum saman. Við munum ávallt sakna þín og geyma fallegu minningarn- ar í hjarta okkar. Gullin þín elska þig að eilífu. Saga Margrét og Tinna Marín. Elsku vinkona. Enn og aftur hef- ur verið höggvið stórt skarð í vina- hópinn. Engan grunaði að þú færir svona snöggt frá okkur. Það sem okkur er efst í huga núna er þakklæti og söknuður. Þakklæti fyrir að hafa orðið þér samferða og fyrir nærveru þína. Þú varst höfðingi heim að sækja og smitaðir út frá þér gleði og kærleika hvernig sem aðstæður voru. Þakka þér fyrir allar skemmtilegu stundirnar sem við áttum saman, sumarbú- staðaferðirnar, fjörið í heita pottinum, kaffihúsaröltið og matarveislurnar með söng- og dansstuði og ekki síst ógleym- anlegu Barcelonaferðina okkar forðum. Í kyrrð bænarinnar, í þögn hjartans, syngja englarnir lofsöng, í höfugri kyrrð og hljóðlátum tærleik. Þar sem orð tjá hið ósegjanlega, mynd hrífur áhorfandann, tónlistin huggar þann sem syrgir, hláturinn smitar hópinn, þar eru þeir í nánd, englar Guðs. (Karl Sigurbjörnsson) Vottum þínum nánustu okk- ar innilegustu samúð. Þínar vinkonur, Anna Guðný, Anna Þóra, Guðný, Katrín, Ingibjörg, Kristín, Sigríður H. og Sigríður S. Það er með trega í hjarta sem við skrifum þessi ótíma- bæru kveðjuorð um hana elsku Millu okkar. Það er erfitt að hugsa til þess að ekki verði fleiri samverustundir að sinni með okkar yndislegu vinkonu sem umvafði okkur ávallt með sínum dillandi hlátri og blik í auga. Við erum ævinlega þakk- lát fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt undanfarna áratugi; allar skíðaferðirnar, Amalía Berndsen ✝ Amalía Bernd-sen fæddist 22. september 1959. Hún lést 18. októ- ber 2020 Útför Amalíu fór fram 4. nóv- ember 2020. útilegurnar, tón- leikana, matarboðin og skemmtanirnar. Við hefðum bara viljað hafa þær að- eins fleiri. Milla var höfð- ingi heim að sækja og hafa það verið forréttindi að taka þátt í lífi hennar sem og hennar ynd- islegu fjölskyldu. Kynslóðabilið var brúað þegar gleðin var við völd á Nesbal- anum. Alltaf var mikið hlegið, ekki var nú verra ef brostið var í söng, jafnvel dans og tíminn týndist. Okkar kona var þó engu síðri þegar erfiðleikar steðjuðu að og stóð sem klettur við hlið síns fólks. Örlæti og hlýja var í fyr- irrúmi á góðum sem slæmum stundum. Fyrir það erum við þakklát. Þegar litið er yfir far- inn veg er því eins og hún hafi lumað á lyklinum að lífsgát- unni; að njóta líðandi stundar og standa með fólkinu sínu. Það er það sem skiptir máli og það sem situr eftir. Það er huggun harmi gegn á þessum erfiðu tímamótum að vita til þess að hún Milla okkar lifði lífi sínu lifandi og innilega. Um leið og við minnumst og þökkum fyrir okkar ferðalag saman sendum við Bjössa, Ingu Björk, Haraldi, Berglindi og fjölskyldunni allri okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Þínir vinir, Sigrún, Gunnar og fjölskylda. Kær vinkona og samstarfs- kona til margra ára hefur kvatt okkur langt fyrir aldur fram eftir skammvinn veikindi, sem er þyngra en tárum taki. Ekki er nema rúmt ár síðan hún greindist með brjóstakrabba- mein og bundum við miklar vonir við að hún myndi sigrast á sínum veikindum allt þar til yfir lauk. Það var ekki til í hennar fari að gefast upp. Það var sama hvað hún tók sér fyrir hendur, allt gert með sama kraftinum, orkunni og dugnað- inum, hvort sem var í vinnu eða í einkalífi. Hún var einhvern veginn allt í öllu, alltaf á fullu. Ef hún var ekki að skipuleggja skíðaferðir, skemmtiferðasigl- ingar, alls konar önnur ferðalög um heiminn eða landið var hún að undirbúa matarboð, tón- leikaferðir, sumarbústaðaferð- ir eða ferðir í hús þeirra hjóna vestur á fjörðum. Hún var mikil félagsvera og stuðbolti sem skilur eftir sig stóran hóp vina og vandamanna, sem eiga nú um sárt að binda. Við sem unnum með henni í iðgjalda- deild Almenna lífeyrissjóðsins nutum góðs af gestrisni henn- ar, velvild og elskulegheitum. Hún var ekki bara góður yf- irmaður, heldur sannur vinur og velgjörðarmaður sem lét sig varða um líðan okkar og heilsu og fylgdist vel með öllum okk- ar afkomendum og var alltaf tilbúin að gefa góð ráð og taka þátt í okkar daglega amstri. Hennar verður sárt saknað. Amalía var ekki síður stoð og stytta stórfjölskyldunnar, sönn „ættmóðir“. Alltaf tilbúin til að hlusta, hlaupa undir bagga, leiðbeina og gefa góð ráð. Missir og sorg þeirra er mikill og sár. Við sendum Bjössa, Ingu Björk, Haraldi og Berg- lindi og fjölskyldunni allri okk- ar innilegustu samúðarkveðj- ur. Að lokum þökkum við kærri vinkonu fyrir allt sem hún var og gerði fyrir okkur. Blessuð sé minning elsku Amalíu. Una, Anna, Árný og Sigrún. Lífið getur stundum verið ósanngjarnt. Það er erfitt að sætta sig við að kona á besta aldri – sem í lifanda lífi var kjölfesta í fjölskyldu og á vinnustað – sem alla tíð setti aðra en sjálfa sig í forgang – sem vann öll verk af alúð og samviskusemi – skyldi greinast með illvígan sjúkdóm og falla frá af hans völdum eftir til- tölulega skamman tíma. En enginn fær ráðið eigin örlögum og við sem lifum vitum að við eigum engan annan kost en að halda áfram og ylja okkur við góðar minningar um látið sam- ferðarfólk. Amalía Berndsen var ein af lykilstarfsmönnum Almenna lífeyrissjóðsins og hafði starfað fyrir sjóðinn frá því fyrir alda- mótin. Í upphafi starfsferils hennar fór lífeyrissjóðurinn í gegnum breytingar sem köll- uðu á mikla vinnu og útsjón- arsemi. Eftir að Alþingi samþykkti heildarlög um starfsemi lífeyr- issjóða árið 1997 settum við okkur það markmið að sjóð- félagar okkar hefðu aðgang að daglegum upplýsingum um inn- eign og réttindi auk þess að geta valið og skipt um ávöxt- unarleiðir fyrir séreignarsparn- að sinn þegar þeim hentaði. Á þessum tíma voru flestir lífeyrissjóðir gerðir upp einu sinni á ári en til þess að ná markmiðum okkar var nauð- synlegt að allar hreyfingar væru skráðar jafnharðan og eignir sjóðsins stemmdar af á hverjum degi. Þetta hljómar einfalt en þegar litið er til fjölda sjóðfélaga og launagreið- enda, og haft í huga að á þess- um tíma voru iðgjöld skráð handvirkt, var afrek að sjóð- urinn skyldi opna sjóðfélagavef árið 1998 sem byggði á dag- legum uppgjörum. Það var ekki síst Amalíu og hennar sam- starfsfólki að þakka að þetta tókst og að okkur hefur tekist að viðhalda góðri upplýsinga- gjöf og þjónustu þrátt fyrir margfalt umfang. Amalíu verður sárt saknað. Hún var mjög hæf í sínu starfi og með yfirburðaþekkingu á réttindum og kerfismálum. Amalía var einstaklega dugleg, ósérhlífin og oftar en ekki sat hún lengi við frekar en að geyma verkefni til næsta dags eða útdeila til annarra. Það var ekki hennar stíll að kvarta, frekar tók hún meira á sig og vann verkin í hljóði. Í þau skipti sem ég sat lengi við á skrifstofunni hafði ég það gjarnan fyrir venju að segja upphátt „Amalía, fara heim“ þegar ég stóð upp frá skrif- borðinu mínu því yfirleitt var hún enn á staðnum. Það var aldrei neitt hálfkák hjá Amalíu og gilti þá einu hvort um var að ræða hefðbundna afstemmingu eða önnur verk. Þannig varð að bjóða upp á alvöru þeyttan rjóma með kaffinu. Það gleym- ist seint þegar undirrituðum varð á að kaupa sprauturjóma en þá hikaði hún ekki við að stökkva út í búð til að bæta fyr- ir þessi klaufalegu mistök. Rækjusalatið hennar var líka alvöru, með eðalmajónesi og karrí, alveg „par excellence“. En þótt við minnumst Amal- íu sem afburðastarfsmanns var hún umfram allt góð manneskja sem okkur þótti vænt um. Á fá- mennum vinnustað er mikil nánd og þegar fólk hefur unnið lengi saman breytist hefðbund- ið vinnusamband í vináttu. Innilegar samúðarkveðjur til Bjössa og fjölskyldunnar. Guð gefi ykkur styrk á erfiðum tím- um. Gunnar Baldvinsson. Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.is Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HERMANN ALBERT JÓNSSON húsasmíðameistari, Álfkonuhvarfi 39, Kópavogi, lést á Landspítala laugardaginn 24. október. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Svana Ólafsdóttir Jón Emil Hermannsson Kristín Breiðfjörð Höskuldur Hermannsson Vangie Hermannson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eignmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ARNE BJÖRN VAAG, er látinn. Útförin fer fram frá Steigen kirke föstudaginn 6. nóvember klukkan 10 að íslenskum tíma. Guðrún Hagalínsdóttir Johannes Vaag Jonas Vaag Petter Vaag og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.