Morgunblaðið - 05.11.2020, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 05.11.2020, Qupperneq 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020 ✝ Árni Sigurðs-son, fv. sóknar- prestur á Blöndu- ósi, fæddist á Sauðárkróki 13. nóvember 1927 og ólst þar upp. Hann lést á Litlu-Grund 26. október 2020. Foreldrar hans voru Sigurður Sig- urðsson, f. 19.9. 1887, d. 20.6. 1963, sýslumaður í Skagafirði, og Guðríður Stefanía Arnórsdóttir, f. 15.4. 1889, d. 14.6. 1948, hús- freyja. Systkini Árna voru Margrét Þórunn, f. 4.5. 1915, d. 23.5. 1994, hjúkrunarfræðingur og bæjarfulltrúi í Helsingborg í Sví- þjóð; Sigurður, f. 29.10. 1916, d. 7.12. 1996, cand. phil. og listmál- ari í Kópavogi; Stefanía Guð- ríður, f. 5.1. 1918, d. 12.7. 1993, skrifstofumaður í Reykjavík; Arnór, f. 1.3. 1919, d. 14.11. 1998, sýsluskrifari og versl- unarmaður á Sauðárkróki; Stef- án, f. 5.10. 1920, d. 8.2. 1993, lög- tæknifræðingi. Börn þeirra eru Sif, f. 1992, og Þór, f. 1994, fyrir átti Hildur Eyrúnu Ýri, f. 1976. Árni lauk stúdentsprófi frá MA 1949, guðfræðiprófi frá HÍ 1953, stundaði framhaldsnám í guðfræði við háskólann í Lundi 1960-61. Árni gegndi predikunarþjón- ustu á Stað í Grunnavík sumarið 1952, var aðstoðarprestur á Hvanneyri 1953-54, sóknar- prestur á Hofsósi 1955-62, sókn- arprestur á Norðfirði 1962-67 og sóknarprestur á Blönduósi 1968- 97 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Jafnframt prestsstörfum kenndi hann við Bændaskólann á Hvanneyri, við barna- og ungl- ingaskólann á Hofsósi 1955-62, við barna- og gagnfræðaskólann í Neskaupstað 1962-67, við MA 1967-68 og við gagnfræðaskól- ann á Blönduósi 1968-79. Árni verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag, 5. nóv- ember 2020, klukkan 13. Útförinni verður streymt á slóðinni: https://www.sonik.is/arni Virkan hlekk á slóð má einnig nálgast á: https://www.mbl.is/andlat maður á Akranesi; Hrólfur, f. 10.12. 1922, d. 17.9. 2002, listmálari í Kópa- vogi; Guðrún Ragn- heiður Urup, f. 25.7. l925, d. 28.6. 2012, listmálari og húsmóðir í Holte í Danmörku; Snorri, f. 15.4. 1929, d. 26.5. 2009, skógfræðingur í Kópavogi. Árni kvæntist 30.3. 1952 Ey- rúnu Gísladóttur, f. 17.1. 1931, d. 2.12. 1997, hjúkrunarkonu. Börn Árna og Eyrúnar eru: 1) Arnór, f. 6.7. 1952, sagnfræðingur og fv. kennari við Árbæjarskóla, kvæntur Ástu Ragnarsdóttur bókasafnsfræðingi, börn þeirra eru Stefanía Embla, f. 1980, Kol- beinn, f. 1985, og Árni, f. 1985. Fyrir átti Ásta Sigurð Snorra, f. 1972. 2) Hildur, f. 21.7. 1956, ljósmóðir og skurðhjúkrunar- fræðingur á Landspítala í Reykjavík, gift Pétri Böðv- arssyni, f. 19.4. 1955, skipa- Elsku pabbi, nú ert þú farinn yfir móðuna miklu eins og þú orð- aðir það og eftir standa ljúfar minningar um svo margt. Þú varst mikill náttúruunnandi og ég man eftir mörgum ferðum, þar sem við tíndum fjallagrös, fórum í berja- mó og plöntuðum trjám og aðal- lega hjá Gunnfríðarstöðum. Alltaf þegar ég keyri um Langadal og fram hjá Gunnfríðarskógi, þá vaknar stolt hjá mér um framlag þitt til skógræktar. Einnig varstu óþreytandi að fræða mig um flóru Íslands. Þá varstu duglegur að kynna fyrir okkur staði sem þú hafðir áður búið á og er ógleym- anleg ferðin sem við fórum fjöl- skyldan í Grunnuvík með þér fyrir allnokkrum árum. Ást þín á nátt- úru og landi var óþrjótandi og varstu iðinn við að ferðast um allt land og fræðast um staði, náttúru og fólk. Það var alltaf stutt í húmorinn hjá þér og á góðri stundu var hvergi eins gaman en að hlusta á þig segja sögur frá bernsku þinni á Króknum enda var margt brall- að þar hjá ykkur sex bræðrum. Einnig eru mér minnisstæðar sög- ur þínar, þegar þú varst aðstoð- arprestur í Grunnuvík. Sögðum við oft þú ættir skrifa ævisögu þína, en ekki varð af því. Einnig var gott að leita til þín ef á bjátaði þegar ég var flutt að heiman. Oftar en ekki komstu með úræði sem dugðu vel. Um það leyti sem þú lést af störfum féll mamma frá, þá varstu duglegur að finna þér eitthvað til að hafa fyrir stafni, bókband og námskeið um Íslendingasögurnar hjá Jóni Bö, einnig varstu duglegur að fara með vinum í ferðalög og veiðiferðir. Nokkrum árum eftir fráfall mömmu hittirðu Hjördísi Jóns- dóttur og áttuð þið mörg góð ár saman þar sem þið ferðuðust og nutuð samveru hvort annars. Síð- ustu fjögur árin hefurðu dvalið á Litlu-Grund þar sem þér hefur liðið vel, tekið þátt í kirkjustarf- inu og sungið í kórnum sem þér þótti svo gaman að gera. Ég hafði mikla ánægju af að koma og hlusta á þig. Elsku pabbi, nú ertu kominn til mömmu og allra hinna og eftir eigum við fallegar minningar um þig. Þín er sárt saknað en minn- ingin lifir. Guð geymi þig elsku pabbi. Þín Hildur Árnadóttir. Árni móðurbróðir og prestur er fallinn frá og mig langar til að rifja upp nokkur atriði úr lífi fjöl- skyldunnar. Árni fæddist í Sýslumannshús- inu á Sauðárkróki. Elst systkina hans var Margrét Þórunn, móðir mín, sem þá var tólf ára. Tveimur árum síðar kom Snorri, níunda barnið, og mamma kallaði þá „litlu strákana“. Margrét fór út síðsumars 1939, en þá var Árni í sveit á Bakka í Viðvíkursveit, hjá Jóni Björnssyni og Guðrúnu Guð- mundsdóttur. Þau lifðu að hefð- bundnum hætti. Torfbærinn sneri að sjó og þar var frambær, gestastofa, skáli og innbær, þrí- skipt baðstofa. Þar var eldavél og hlóðaeldhús. Hvorki var sími né rafmagn á bænum og póstur kom einu sinni í viku. Árni var fjögur sumur á Bakka og sagði oft frá þeim. Þegar hann kom heim sögðu eldri strákarnir, sem voru stríðn- ir: „Þarna kemur sá sem er reyktur.“ Hjónin gáfu Árna ýmsa gamla muni sem hann færði Byggðasafni Skagafjarðar. Bæði Sigurður í Vigur og Arn- ór í Hvammi, afar Árna, voru prestar og það þótti sjálfsagt að einhver af strákunum sex færi í prestskap. Nokkur sumur vann hann við kvörnina sem hakkaði hrat í mjöl á Siglufirði. Síðar var hann í vegavinnu í Vatnsdalnum í Húnavatnssýslu, stoltur yfir að hirða mokstursvél sína mjög vel. Það var góður tími og hann kost- aði námið í guðfræði. „Þarna kemur ýtuprestur,“ sagði Fúsi á Torfustöðum. Margrét fór til Svíþjóðar 1940 og settist að í Helsingjaborg. Fyrst sumarið 1947 gat hún kom- ið heim á Krók með mér, Gunnari bróður og föður okkar, Olle Her- mansson. Stefanía, móðir Árna, lá þá veik og varð svo að leita sér lækninga úti. Árni kvaddi hana fyrir jól og sá hana ekki aftur. Á Jónsmessu 1960 ók Árni mér og mömmu frá Hofsósi til Siglu- fjarðar. Hann sagði okkur sögur af ættmönnum, af séra Jónmundi í Grunnavík og öðrum. Þegar ég vorið 1974 kom úr Færeyjum í Árbæjarsafn var Árni prestur á Þingeyrum. Sem formaður í Norræna félaginu bað hann mig að tala um eyjarnar á Blönduósi. Ég spurði hvort hann vildi ekki gifta okkur Pétur Ot- tosson í leiðinni. Sjálfsagt, sagði hann. Fyrir Jónsmessu keyrðum við norður og ég sýndi litskyggn- ur. Á eftir spurði ég Árna um giftinguna. Jú, hann hafði ekki gleymt því, búinn að panta kirkj- una á Víðimýri næsta dag. Eyrún var með og Arnór, bróðir Árna. Veðrið var hið besta og á eftir dró prestur upp kampavínsflösku úr læknum og á bakkanum gaf hann okkur unaðslega stund. Auðsótt mál var að fá Árna að skíra syni okkar, Stefán Gorm og Magnús, í Silfrastaðakirkju í safninu. Mamma og pabbi höfðu 1947 ákveðið að þau vildu fá að hvíla uppi á Nöfunum. Það var eins og sjálfsagt að Árni kæmi með okk- ur, sem komum að utan, að jarð- syngja í kirkjugarðinum. Við Pétur vildum eignast samastað í Reykjavík. Árni hringdi 2009 og sagði mér að kaupa íbúð sem hann þekkti til. Við gerðum það og þar fengum við margar góðar stundir með Árna og Hjördísi Jónsdóttur, en hún hafði verið hjá okkur úti fyrrum. Þau komu bæði út á Jóns- messu 2013 og Árni skírði Ellu Stefaníu, dóttur Magnúsar. Við minnumst Árna með þakk- læti. Nanna Stefanía Hermansson. Meira: mbl.is/andlat Árni Sigurðsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi, við sendum þér okkar hinstu kveðju með þessu fallega ljóði eftir sveitunga þinn Hannes Pétursson. Bláir eru dalir þínir byggð mín í norðrinu heiður er þinn vorhiminn hljóðar eru nætur þínar létt falla öldurnar að innskerjum – hvít eru tröf þeirra. Þöglar eru heiðar þínar byggð mín í norðrinu. Huldur býr í fossgljúfri saumar sólargull í silfurfestar vatnsdropanna. Sæl verður gleymskan undir grasi þínu byggð mín í norðrinu því sælt er að gleyma í fangi þess maður elskar. Ó bláir eru dalir þínir byggð mín í norðrinu. (Hannes Pétursson) Embla, Kolbeinn og Árni. Við viljum minn- ast Hjöddu frænku okkar með þessum skrifum þótt seint sé. Hjödda frænka. Við vorum bara litlar stelpur þegar við mun- um fyrst eftir henni, kannski 3 og 5 ára, fyrir meira en fjörutíu ár- um. Hjödda hafði mjög sterka nær- veru. Hún var náfrænka móður okkar og ólst að einhverju leyti upp með stórum systkinahóp mömmu en Hjördís og móðir hennar, Guðrún Salvör Sumar- liðadóttir, deildu á tímabili heim- Hjördís Guðbjartsdóttir ✝ Hjördís Guð-bjartsdóttir fæddist 11. október 1933. Hún andaðist 4. júlí 2020. Útför Hjördísar var gerð í kyrrþey. ili með systur Guð- rúnar, ömmu okkar, sem einnig hét Guð- rún Sumarliðadótt- ir. Það er svona þeg- ar nöfnin koma í draumi. Frá þessum tíma og lengi framan af var Hjördís því allt- af eins og ein af systrunum, heim- sóknir voru tíðar á milli húsa á okkar uppvaxtarár- um og mikið verið að koma sam- an til hátíðabrigða. Þá var Hjör- dís alltaf með. Eða þannig munum við það. Það gustaði alltaf af Hjöddu frænku og það fór ekkert á milli mála ef hún var komin í heim- sókn; hávaxin og glæsileg, með sterka rödd og miklar skoðanir. Hún var líka ólík öllum öðrum í fjölskyldunni af því hvað hún hafði ferðast víða - hún var heimsborgari. Heimsborgari sem kom oftar en ekki færandi hendi. Fyrir litl- ar systur sem voru vanar að fá að gramsa í pokum af notuðum föt- um var alltaf gaman að fá gjafir frá Hjöddu frænku. Og kannski var það Hjödda frænka sem gaf okkur systrum viðurnefnið „prúðu systurnar“ en við höfum líklega ekki þorað annað en að vera stilltar því hún kleip alltaf svo fast í kinnarnar á okkur að það var betra að láta það ganga hratt yfir en að fara að tefja það með masi. Þegar við fórum með mömmu á Seljaveginn til Hjördísar og Gunnars var jafnan boðið upp á heitt súkkulaði. Alvöru heitt súkkulaði með þeyttum rjóma og eitthvað með því. Þar voru líka sígarettur í gylltu statívi á dúk- lögðu borði innan um listaverk á veggjum og fagurskreytta muni á gljáandi fráleggsborðum. Munir og hlutir sem var alveg bannað að snerta eða að fikta í. Það var allt- af svo fínt hjá Hjöddu frænku og heimsborgarabragur eins og á henni sjálfri alla tíð. Við vissum að Hjördís lærði og starfaði við hjúkrun í nokkur ár í Danmörku en það var ekki fyrr en í sumar að við heyrðum af því hvernig hún hafði ferðast um Sýrland ein síns liðs en síðan þá hafði hún víst mikið dálæti á Mið-Austurlönd- um og Sýrlandi þá sérstaklega. Við minnumst Hjördísar með hlýhug. Hún var okkur systrum alltaf góð og vildi okkur alla tíð vel. Það fór ekkert framhjá okk- ur. Hún var líka góð við mömmu svona. Flestar minningar um Hjördísi eru hlýjar og fjalla um heimboð, heimsóknir, heitt súkkulaði og gjafir og hvernig hún spurði okkur alltaf af miklum áhuga um hvernig gengi hjá okk- ur, líka þegar við vorum orðnar stálpaðar og vaxnar úr grasi. Svona fundum við fyrir hennar hlýju í okkar garð alla tíð. Henni var ekki sama um okkur og okkur var ekki sama um hana þótt ryk hafi fallið á samskiptin síðustu árin. Við kveðjum Hjördísi með söknuði og hlýju, hún lifir í minn- ingum okkar. Rakel Hildardóttir Sara Stef. Hildardóttir. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar systur okkar, mágkonu og frænku, KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR, Blikahólum 2, sem lést 13. október. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild 12E og gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut. Svanborg Jónsdóttir Júlíus Skúlason Þór Jónsson Elísabet Pétursdóttir Óskar Jónsson Kerstin Jonsson Örn Jónsson Kristín Jónsdóttir Þorkell Jónsson Lilja Ólafsdóttir Guðmundur Ingi Jónsson Guðrún Sigþórsdóttir Ásgeir Jónsson Birna Jóhannsdóttir og fjölskyldur þeirra Innilegar þakkir fyrir veitta samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVEINBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Ljósheima á Selfossi og dvalarheimilisins Áss í Hveragerði fyrir hlýhug og góða umönnun. Bjarni Ingólfsson Þórunn Kristjónsdóttir Guðmundur Ingólfsson Auður Marinósdóttir Gunnhildur Ingólfsdóttir Hlynur Óskarsson Guðríður Ester Geirsdóttir Víðir Óskarsson Klara Gunnarsdóttir Við erum hér tvær skólasystur Heiðars Ástvalds- sonar sem lést 4. október 2020. Okkur langar til að minnast hans. Heiðar var ynd- islegur maður, mjög félagslynd- ur og kenndi fjölda manns að dansa, meira að segja þegar við vorum í gagnfræðaskólanum vor- um við 20 stelpur og 6 strákar í bekknum. Heiðar kenndi þeim öllum að dansa. Hann kenndi eldra fólkinu hérna í Kópavogi þrjá vetur án endurgjalds og var alltaf að segja okkur eitthvað skemmtilegt svo allir fóru ánægðir heim. Við vitum að fólkið í Kópavogi gleymir aldrei þess- Heiðar Róbert Ástvaldsson ✝ Heiðar fæddist4. október 1936. Hann lést 4. október 2020. Útförin fór fram 21. október 2020. um tímum. Já, það er margs skemmti- legs að minnast, við ólumst saman upp á Siglufirði. Alltaf var Heiðar hrókur alls fagnaðar, hann var mjög námfús enda vel lærður. Hann var formaður Sigl- firðingafélagsins hér í borginni og stóð sig vel. Já, hann var ógleymanleg per- sóna og reyndist vinum sínum vel. Við minnumst hans með sökn- uði og vonum að honum líði vel á öðru tilverustigi. Blessuð sé minning hans. Ef minning geymir ást og yl hún yfir sorgum gnæfir Því alltaf verða tónar til sem tíminn ekki svæfir. (Kristján Hreinsson) Erla og Geirlaug. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horn- inu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.