Morgunblaðið - 05.11.2020, Blaðsíða 46
Sviðsstjóri
Lyfjastofnun er ríkisstofnun sem heyrir
undir heilbrigðisráðuneytið. Helstu hlutverk
stofnunarinnar eru að gefa út markaðsleyfi
fyrir lyf í samvinnu við lyfjayfirvöld á
Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit
með lyfjabúðum, lyfjafyrirtækjum,
heilbrigðisstofnunum og söluaðilum
lækningatækja á Íslandi, meta gæði
og öryggi lyfja og tryggja faglega
upplýsingagjöf um lyf og lækningatæki til
heilbrigðisstarfsfólks og neytenda.
Hjá Lyfjastofnun starfa rúmlega 70
starfsmenn af 6 þjóðernum.
Lyfjastofnun leggur áherslu á gott
vinnuumhverfi, starfsþróun og framfylgir
stefnu um samræmingu fjölskyldulífs og
vinnu. Gildi Lyfjastofnunar eru:
gæði – traust – þjónusta
Nánari upplýsingar um Lyfjastofnun má
finna á: www.lyfjastofnun.is
Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi
fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi
stéttarfélags.
Öllum umsóknum verður svarað að
ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í
6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2020. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja
starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í
starfi. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun
er kostur
• Reynsla af stjórnun og mannaforráðum
• Að lágmarki 5 ára starfsreynsla sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
• Reynsla úr störfum hjá lyfjafyrirtækjum er kostur
• Reynsla af stefnumótun og gæðamálum
• Reynsla af kynningarstarfsemi, verð- og greiðslu-
þátttöku lyfja og lyfjaskráningum
• Reynsla af hagrænni greiningu æskileg
• Mjög gott vald á íslensku og ensku í töluðu og
rituðu máli
• Afburða tölvuhæfni, nákvæmni, sjálfstæði og
skipulögð vinnubrögð
• Leiðtogahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
• Teymisvitund, frumkvæði og faglegur metnaður
• Ábyrgð á faglegu starfi og daglegri starfsemi sviðsins
• Ábyrgð á að starfsemi sviðsins fari fram í samræmi
við markmið og áherslur Lyfjastofnunar sem og þeim
lögum og reglum sem um starfsemina gilda
• Stefnumótun, starfsmannahald og áætlanagerð
sviðsins
• Erlent samstarf og samskipti Lyfjastofnunar sem heyra
undir sviðið
Lyfjastofnun leitar að öflugum leiðtoga í starf sviðsstjóra á nýju sviði. Sviðsstjóri stýrir starfsemi sviðsins og
hefur yfirumsjón með skipulagi þess og framkvæmd þeirra verkefna sem undir sviðið heyra.
Skipulag og verkefni nýs sviðs eru í mótun og mun sviðsstjóri koma að þróun og uppbyggingu þess.
Í boði er spennandi og krefjandi stjórnunarstarf fyrir framsækinn leiðtoga. Sviðsstjóri situr í framkvæmda-
ráði Lyfjastofnunar og tekur þátt í stefnumótun stofnunarinnar og áætlanagerð. Starfið heyrir undir
forstjóra stofnunarinnar.
Verkefnastjórnunardeild og samskiptadeild heyra undir sviðið. Verkefni sem nú heyra undir lyfjagreiðslu-
nefnd munu færast til Lyfjastofnunar nk. áramót og munu einnig heyra undir sviðið. Á sviðinu starfa
u.þ.b. 20 starfsmenn.
Helstu viðfangsefni og ábyrgð: Menntunar- og hæfniskröfur:
• Móttaka erinda og gilding gagna
• Útgáfa vottorða, símsvörun og vöktun pósthólfa
• Samskipti við fjölmiðla, fagaðila og almenning
• Þjónustukannanir
• Vefur Lyfjastofnunar, þ.m.t. fréttaskrif, útgáfa
sérlyfjaskrár, lyfjaverðskrár og skiptiskrár lyfja
• Ákvarðanir um verð, greiðsluþátttöku og
leyfisskyldu lyfja
Helstu verkefni sviðsins:
Upplýsingar veita: Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225 og Rúna Hauksdóttir Hvannberg,
forstjóri Lyfjastofnunar (runa.hauksdottir.hvannberg@lyfjastofnun.is) í síma 520 2100.
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR