Morgunblaðið - 05.11.2020, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020
Litirnir eru
á netinu
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is
Skoðaðu vinsælu
litina okkar á
slippfelagid.is
Marta María
mm@mbl.is
Franska snyrtivörumerkið Guinot er
þekkt fyrir andlitsmeðferðir sínar
sem framkvæmdar eru á snyrtistof-
um en auk þess er hægt að kaupa
vörurnar ef fólk vill hugsa vel um
húðina. Nú er Guinot komið með sitt
eigið snyrtivörudagatal sem er fullt
af huggulegum vörum sem munu
gera lífið skemmtilegra í desember.
Guinot á sína eigin rannsóknar-
stofu en þar vinnur fjöldi vísinda-
manna að rannsóknum og þróun
meðferða sem bæta árangur og auka
vellíðan. Eftir 30 ára reynslu á
snyrtistofum er Guinot með það á
hreinu hvað virkar. En hvað skyldi
jóladagatalið hafa að geyma? Hér er
upptalning á nokkrum vörum sem
prýða dagatalið.
Créme Hydra Beauté
24 stunda rakakrem fyrir þurra
húð. Um er að ræða krem sem
verndar og byggir upp raka húðar.
Það mýkir og sléttir fínar línur sem
myndast vegna þurrks. Það er borið
á hreina húð kvölds og morgna.
Longue Vie Cellulaire
24 stunda krem fyrir allar húð-
gerðir. Kremið er doktorsverkefni
dr. Mondins í lyfjafræði, þróað á
brunadeild háskólasjúkrahúss í Par-
ís. Það hefur mjög græðandi eig-
inleika þar sem það lengir líftíma
frumunnar með þeim vítamínum og
öðrum innihaldsefnum sem það fær-
ir henni. Longue Vie Cellulaire er
fyrir allar húðgerðir, notkun þess
gefur húðinni fallegri blæ og áferð.
Um er að ræða krem sem er gott
fyrir húð sem hefur orðið fyrir
skemmdum. Longue Vie Cellulaire
hentar bæði sem viðhaldskrem með
uppbyggjandi og stinnandi línu og
sem alhliða vernd gegn öldr-
unarþáttum húðar.
Démaquillant Express Yeux
Tveggja þátta augnfarðahreinsir
sem auðveldlega leysir upp bæði
vatns- og olíukenndan augnfarða á
skjótan og öruggan hátt.
Hydra Tendre
Mildur sápuhreinsir í kremformi
sem vinna þarf upp í löður með
fingrum. Borið á raka húð og þvegið
vel af í lokin. Góður kostur fyrir þá
sem vilja hreinsa andlit með sápu og
vatni. Hreinsar vel húð án þess að
valda herpingi. Ný formúla kom í
september 2007 þar sem engin para-
ben eru notuð og hentar því allra
viðkvæmustu húðgerðum.
Gommage Eclat Parfait
Kornadjúphreinsir fyrir allar húð-
gerðir sem inniheldur tvenns konar
örsmá korn sem fjarlægja á auð-
veldan hátt dauðar hyrnisfrumur af
yfirborðinu en hvetja jafnframt ný-
mundun í neðri húðlögum.
Gommage Biologique
Mjög mildur djúphreinsir með
AH-sýrum í gelformi sem er ætl-
aður öllum húðgerðum. Hann djúp-
hreinsar húðina á auðveldan og fljót-
legan hátt án ertingar á yfirborðinu
og gefur henni jafnframt næringu
og raka. Hentar viðkvæmum svæð-
um eins og vörum, höndum og
bringu. Gelið er borið á andlit og
háls og unnið strax upp með léttum
hreyfingum þar til það verður að ol-
íu. Húðin þvegin með hreinu vatni.
Hydrazone
24 stunda rakakrem með lípósóm
sem flytja meiri og betri rakagef-
andi efni til dýpri húðlaga og losa
rakann á náttúrulegan hátt til húð-
frumna. Virku efnin rakametta húð-
ina svo hún viðheldur eða endurnýj-
ar rakajafnvægi sitt. Áferð
kremanna er létt fyrir allar húð-
gerðir en mýkri og kremkenndari
fyrir þurra húð. Kremið er borið á
hreina húð kvölds og morgna.
Créme Hydra Beauté
24 stunda rakakrem fyrir þurra
húð sem hjálpar til við að viðhalda
rakajafnvægi. Mýkir og sléttir fínar
línur sem myndast vegna þurrks.
Berist daglega á hreina húð, kvölds
og morgna.
Masque Hydra Beauté
Rakamaski sem dregur úr þreytu-
merkjum húðar. Berið þykkt lag á
húð andlits og háls. Maskinn er tek-
inn af með bréfþurrku eftir 10 mín-
útur og húðin hreinsuð með andlits-
vatni á eftir. Húðin fær fallegri
áferð, verður mýkri og frísklegri.
Eau Démaquillante Micellaire
Fjölhreinsivatn fyrir augu og and-
lit sem er jafnframt mjög árangurs-
ríkt. Húðin verður hrein án ertingar.
Inniheldur fjölmarga litla dropa sem
ná að hreinsa húðina betur en fjöl-
hreinsar hafa áður gert. Hreinsar
vel vatnsheldar förðunarvörur.
Hentar vel sem fyrsti hreinsir, í frí-
ið, sumarbústaðinn og ekki síður
sem morgunhreinsir. Húðin er
strokin létt með bómull vættri í fjöl-
hreinsinum. Engin þörf á að hreinsa
með vatni á eftir. Inniheldur engin
paraben, tilbúin litarefni né alkóhól
eða sápulausnir. Hentar öllum húð-
gerðum.
Jóladagatalið sem bætir húðina
Á tímapunkti sem þessum þar sem flestir eru í barnaorkunni sinni vegna kórónuveirunnar þurfum við að gera það besta úr hlut-
unum. Við þurfum að verðlauna okkur og hafa helst einhverja gulrót á hverjum degi til að hlakka til að takast á við daginn. Ef það er
eitthvað sem gæti lífgað upp á kalda desembermorgna í kulda og dimmu er það snyrtivörudagatal.
Upplífgandi Jóladagatalið frá Guinot inniheldur mikið af dásamlegum
snyrtivörum sem hressa upp á okkur á tímum sem þessum.