Morgunblaðið - 05.11.2020, Page 66
66 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2020
KRINGLUKAST
Á NETINU
4.-9. nóvember
15% AFSLÁTTUR
af völdum vörum á
DUKA.IS
DUKA.IS
Frí heimsending
um land allt.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Stafræna tónlistarhátíðin Live from
Reykjavík hefst eftir átta daga, 13.
nóvember og til að hita upp fyrir
hana verður boðið upp á fimm tón-
leikamyndbönd á vef Landsbankans
með fimm hljómsveitum og lista-
mönnum frá og með deginum í dag.
Live from Reykjavík er skipulögð af
Iceland Airwaves-tónlistarhátíðinni
sem var aflýst í ár vegna Covid-19
og koma myndböndin á vef Lands-
bankans í stað „off-venue“-
dagskrárinnar sem verið hefur fast-
ur liður á Iceland Airwaves til fjölda
ára, þ.e. tónleika utan dagskrár með
fríum aðgangi. Á vef Landsbankans
á slóðinni landsbankinn.is/
icelandairwaves má nú finna mynd-
bönd með flutningi JóaPé og Króla,
Moses Hightower, Sykurs, gugusar
og BSÍ á tveimur völdum lögum,
þ.e. tíu lögum í heildina.
Landsbankinn hefur verið
styrktaraðili hátíðarinnar frá árinu
2014 og staðið að gerð myndbanda
með upprennandi listamönnum há-
tíðarinnar á ári hverju.
Sköpun í kófinu
Gugusar var upphaflega hljóm-
sveit en er nú sólóverkefni Guð-
laugar Sóleyjar Höskuldsdóttur sem
er 16 ára. Hún gaf fyrr á þessu ári
út 16 laga plötu með eigin lögum og
textum sem nefnist Listen To This
Twice og á tónleikum sínum fyrir
Live from Reykjavík flytur hún tvö
óútgefin lög með aðstoð tromm-
arans Sólrúnar Mjallar Kjartans-
dóttur.
Guðlaug gaf fyrrnefnda plötu út
29. febrúar, á hlaupársdegi en vegna
kófsins hefur hún þurft að fresta út-
gáfutónleikum í tvígang og ekki
ljóst hvenær hægt verður að halda
þá. Kórónuveirunni hefur hins vegar
ekki tekist að stöðva sköpunarkraft
Guðlaugar. „Ég er að vinna í nýrri
plötu núna og því meiri tíma sem ég
hef heima þeim mun fleiri lög bæt-
ast við plötuna,“ segir Guðlaug en
hún er með stúdíó heima hjá sér og
segist sjá sjálf um hljóðfæraleik,
söng og upptökur. „Ég geri rosalega
mikið í tölvunni,“ segir Guðlaug sem
er líka fyrsta árs nemi í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð. Hún stefn-
ir að því að gefa út plötu í lok janúar
á næsta ári með íslenskum textum
sem hún semur sjálf, nema hvað.
Óljósar framkvæmdir
„Við erum með tvö lög af nýju
plötunni, Lyftutónlist, þannig að
þetta er nánast frumflutningur,“
segir Andri Ólafsson, liðsmaður
Moses Hightower, þar sem rétt
rúmlega hundrað manns sáu hljóm-
sveitina á tónleikum hennar í júní.
Lögin tvö eru „Framkvæmdir“ og
„Stundum“. Um hvað fjalla þau?
„Viðlagið í „Stundum“ er „stundum
líkjast eigendur hundum“ og þar er
reynt að finna kómísku hliðina á
þeim líkindum og hundarækt. Hitt
lagið er pínulítil paranoja og hjart-
sláttartruflanir í gangi,“ segir Andri
og að óljósar framkvæmdir valdi
þeim óþægindum. Hlustenda sé að
átta sig á hverjar framkvæmdirnar
séu.
Andri er spurður að því hvað Mo-
ses Hightower hafi verið að sýsla í
kófinu. „Við getum nú ekki kvartað
af því við spiluðum í Hljómahöllinni
á Látum okkur streyma í fyrstu
bylgju og svo náðum við að spila
þrenna litla tónleika niðri í bæ með-
an allt var í góðu í sumar. En svo
þurftum við að fella niður stóra tón-
leikaferð í haust en það er hálfpart-
inn þessu að þakka að platan okkar
kom út núna í haust því við höfðum
allt í einu tíma til að klára hana í
stúdíói. Við gátum loksins rumpað
henni af.“
Andri segir hljómsveitina með
ýmislegt í pípunum sem fólk fái að
sjá á næstu misserum, þ.á m. heim-
ildarmynd sem gerð er í samstarfi
við RÚV.
„Rosa mikið stuð“
Halldór Eldjárn, liðsmaður Syk-
urs, er hinn hressasti þegar blaða-
maður nær tali af honum. Halldór
gegnir líka tímabundið stöðu um-
boðsmanns sveitarinnar í fjarveru
umboðsmannsins, er „handhafi um-
boðsvalds“, eins og hann orðar það
sjálfur.
Halldór er spurður að því hvað
Sykur muni bjóða upp á í sínu
myndbandi. „Við bjóðum upp á tvö
lög, annars vegar „Svefneyjar“ sem
er nú verðlaunað lag, það var lag
ársins í flokki raftónlistar á Íslensku
tónlistarverðlaununum, og hins veg-
ar „Lost Song“ eða „Týnda lagið“.
Bæði þessi lög komu út á plötu sem
við gáfum út fyrir ári síðan, plötunni
JÁTAKK. Þetta var rosa mikið stuð,
að koma þarna og spila þetta því við
höfðum faktískt ekki spilað frá því á
Airwaves í fyrra,“ segir Halldór.
En hvað hefur Sykur verið að
gera? „Við höfum verið í hálfgerðum
dvala eins og flest önnur bönd en
vorum með einhverjar þreifingar að
vera með útgáfutónleika áður en allt
skall á í mars,“ segir Halldór og því
hafi Sykur fagnað því að geta haldið
tónleika í vernduðu umhverfi sem
nú má sjá á vef Landsbankans.
„Eftir þessa löngu hvíld eru allir
trommuheilar komnir á fullt í að búa
til nýja tónlist,“ segir hann og
spennandi að sjá hverju Sykur skil-
ar af sér árið 2021.
Þyrstir í tónleika
Kristinn Óli, helmingur tvíeyk-
isins JóiPé&Króli, segir þá félaga
lítið hafa sinnt tónlistinni undan-
farið, í kófinu, fyrir utan að flytja
tvö lög ásamt hljómsveit fyrir „off
venue“-hluta Live from Reykjavík.
„Við tókum tvö lög af plötunni Í
miðjum kjarnorkuvetri sem kom út
17. apríl. Með okkur var bandið okk-
ar sem fylgir okkur eiginlega alltaf
núna og gerir tónlistina með okkur.
Það vantaði reyndar Starra bassa-
leikara en þetta er vonandi eins
skemmtilegt og hægt er og næst því
sem hægt verður að komast af
venjulegri upplifun af tónleikum,“
segir Kristinn.
Hann segir þó nokkurn tíma hafa
farið í að velja lögin tvö en á end-
anum hafi hópurinn náð lendingu.
„Þó að þetta sé mjög vel tekið upp
er þetta ekki alvörudæmið sem
mann þyrstir svolítið í að gera aft-
ur,“ segir hann um tónleika án
gesta. Þeir Jói hafa verið uppteknir
hvor í sínu lagi, Jói í námi í Listahá-
skóla Íslands og Kristinn að þjálfa
lið Flensborgar í Gettu betur og lið
Menntaskólans í Reykjavík í Morfís
en hann hefur keppt í hvoru tveggja.
„Ég er smá nörd þegar kemur að
þessu,“ segir Kristinn og bætir við
að hann bíði þess að geta hafið æf-
ingar á leikritinu Benedikt búálfi í
uppsetningu Menningarfélags Ak-
ureyrar. „Ég leik Tóta tannálf, hinn
álfinn,“ segir Kristinn.
Þeir Jói náðu ekki að halda út-
gáfutónleika líkt og svo margir aðrir
sem gáfu út plötur skömmu fyrir
Covid og segir Kristinn að hann sé
nú kominn í dálitla pásu frá tvíeyk-
inu. „Hann er ekkert sérstaklega
sáttur við þá ákvörðun mína,“ segir
Kristinn kíminn um Jóa.
Gamalt og nýtt
Sigurlaug Thorarensen og Julius
Pollux Rothlaender skipa dúettinn
BSÍ sem stofnaður var árið 2017.
„Við spilum tvö lög, eitt af fyrstu
EP-plötunni okkar sem heitir „Ekki
á leið“ og svo tökum við nýtt lag af
nýrri plötu sem kemur út á næsta
ári, það heitir „Tal 11“,“ segir Sigur-
laug og að þau Julius hafi langað að
flytja eitt gamalt lag og eitt nýtt og
að lögin væru ólík. Sigurlaug syngur
og leikur á trommur og Julius leikur
á bassa, stjórnar sampler og spilar á
hljómborð með fótunum. Fjölhæft
fólk þar á ferð.
Sigurlaug er spurð að því hvað
þau Julius hafi verið að gera í kófinu
og segir hún þau hafa samið lög fyr-
ir plötuna væntanlegu, sett upp
stúdíó og einbeitt sér að tónlistar-
sköpun. Í sumar hafi þau náð að
spila í Iðnó á lítilli hátíð á vegum
listasamlagsins post-dreifingar og
þá hafi rifjast upp fyrir þeim hversu
skemmtilegt væri að halda tónleika.
Platan sem kemur út á næsta ári
mun bera titilinn Stundum þung-
lynd en alltaf andfasísk og segir
Sigurlaug titilinn eiga við um þau
Julius. „Við erum að leika okkur
með tvöfalt EP, þetta eru tíu lög og
annar helmingurinn snertir á ástar-
sorg og að vera leið en hinn er meira
„upbeat“ og andfasísk pönkleg lög,“
segir Sigurlaug um plötuna sem nú
er í smíðum.
Allt fram streymir
Fimm tónlistarmyndbönd eru nú aðgengileg á vef Landsbankans og eru hluti af stafrænu tón-
listarhátíðinni Live from Reykjavík JóiPé og Króli, Moses Hightower, gugusar, BSÍ og Sykur
Flytjendur Í efri röð frá vinstri
Agnes Björt Andradóttir í Sykri,
JóiPé og Króli, gugusar, BSÍ og Mo-
ses Hightower niðri í hægra horni.