Morgunblaðið - 05.11.2020, Page 72
Til stóð að halda Evrópsku kvikmynda-
verðlaunin, EFA, í Reykjavík í desember en
hætta þurfti við hátíðina út af Covid-19
og ákveðið að streyma henni frá Berlín á
netinu. Hátíðahöldin munu standa yfir
í fimm daga og geta Íslendingar, líkt
og aðrar Evrópuþjóðir, fylgst með
þeim á slóðinni www.europeanfil-
mawards.eu. Hátíðin hefst 8. desem-
ber kl. 20 með umræðum um framtíð
evrópskrar kvikmyndagerðar eftir Co-
vid-19 og verða viðburðir daglega frá
kl. 20 til og með 12. desember en þá
verða aðalverðlaun hátíðarinnar veitt.
Forskot verður tekið á þessa kvik-
myndasælu 10. nóvember næstkomandi
þegar tilnefningar til verðlaunanna
verða kynntar í beinni á netinu kl. 13 að
íslenskum tíma. Verður þeirri athöfn
streymt frá Sevilla.
Fimm daga hátíð Evrópsku kvik-
myndaverðlaunanna á netinu
FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 310. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Kvennalið Vals í knattspyrnu lék sinn fyrsta keppnisleik
í rúmlega mánuð þegar liðið fékk HJK frá Helsinki í
heimsókn í 1. umferð Meistaradeildarinnar á Origo-
vellinum á Hlíðarenda í gær.
Leiknum lauk með þægilegum 3:0-sigri Vals sem var
kominn þremur mörkum yfir eftir 35 mínútna leik. Val-
ur er þar með kominn í 2. umferð keppninnar en síðar í
mánuðinum kemur í ljós hverjir andstæðingar liðsins
verða. Umfjöllun um leikinn er að finna á íþróttasíðum
blaðsins í dag. »60
Valur fór örugglega áfram í
Meistaradeild kvenna í knattspyrnu
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bókaútgáfan Ugla hefur gefið út
bókina Ég er kórónuveiran eftir
Hjálmar Árnason, en Fanney Size-
more myndskreytti. „Þetta er bók
fyrir börn á öllum aldri,“ segir höf-
undurinn, en hún kemur út í Fær-
eyjum í nóv-
ember og
væntanlega einn-
ig í Litháen auk
þess sem verið er
að kanna með út-
gáfu víðar.
Tiltölulega
stutt er síðan
Hjálmar hætti í
launaðri vinnu.
„Ég hef lengi vel haft á bak við eyrað
að setjast niður við skriftir þegar ég
fengi frelsið og yrði ekki í fastri
vinnu og hef því horft í kringum mig
og safnað hugmyndum í gegnum tíð-
ina,“ segir hann. Eftir að hafa hætt á
vinnumarkaðnum hafi hann byrjað á
því að fara á netnámskeiðið „Viltu
skrifa bók“ hjá Einari Kárasyni.
Samhliða því hafi hann farið á tvö
ljósmyndanámskeið á netinu. „Svo
hófst ég handa í rólegheitum að
skrifa niður gamlar og nýjar hug-
myndir.“
Börnin í baráttunni
Hjálmar er mikill útivistarmaður
og í einni gönguferðinni fékk hann
hugmynd að bók. „Maður hugsar
mikið á fjöllum og ég velti fyrir mér
umræðunni um kórónuveiruna,
leiddi hugann að því að ef við ætl-
uðum að ráða niðurlögum þessa
kvikindis yrðum við öll að gera það,
börnin líka.“ Í kjölfarið segist hann
hafa spurt sjálfan sig hvort barna-
börn sín væru með í umræðunni um
kórónuveiruna. „Þannig varð þessi
saga til og ég lét á hana reyna með
því að segja barnabörnunum hana.
Þau voru ánægð og þá hélt ég áfram,
leitaði viðbragða hjá nokkrum for-
eldrum, tveimur ömmum og grunn-
skóla- og leikskólakennurum og
þeim virtist líka sagan vel.“ Næsta
skref hafi verið að setja hana á blað
og síðan hafi hann leitað ráða hjá
Guðmundi Oddi Magnússyni í sam-
bandi við teikningar. Goddur hafi
bent á Fanneyju Sizemore, þau hafi
hist daginn eftir og farið yfir söguna
saman. „Út úr því komu þessar stór-
skemmtilegu teikningar, sem lýsa
viðfangsefninu vel og eru auk þess
með skemmtilegan húmor. Við lögð-
um upp með það að við þyrftum að
predika án þess að vera leiðinleg. Til
allrar hamingju var ég síðan leiddur
til Jakobs Ásgeirssonar í Uglu, hann
tók mér vel með þeim afleiðingum að
bókin er komin út.“
Bókin minnir um margt á söguna
af Karíusi og Baktusi. „Hugmyndin
er svipuð,“ segir Hjálmar. „Einhver
óværa er að predika vonda predik-
un.“ Hann segir að hann viti til þess
að fullorðið fólk hafi notað bókina til
þess að ræða við börnin, vekja þau til
umhugsunar um veiruna og hvernig
eigi að bregðast við henni.
Hjálmar var íslenskukennari í
áratugi, hefur þýtt ljóð og skáldverk
og samið kennslubækur og leiðbein-
ingar fyrir kennara. „Ég hef alltaf
verið innan um skrif og bókmenntir
og áhugasviðið hefur legið svolítið
þar, en segja má að ég sé að reyna að
skrifa mig inn í fyrsta kaflann í nýju
lífi.“ Hann sé með tvær barnasögur í
vinnslu og vinni að smásögum fyrir
fullorðna. „Hugmyndir hafa fæðst að
undanförnu og svo eru þær eldri
sem ég hef geymt í krukku, beðið
eftir næðinu sem nú er komið. Það er
mikið frelsi að geta gert það sem
maður vill þegar maður vill það.“
Á Eyjafjallajökli Hjálmar Árnason hugsar mikið á fjöllum og er að skrifa fleiri bækur, bæði fyrir börn og fullorðna.
Hugmyndir á fjöllum
Hjálmar Árnason með myndskreytta bók um kórónuveiruna
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
mánudaga - sunnudaga 12-18
Jólineru komin
25%
af öllum vöruM,
30%
af öllum jólavörum
20% af sérpöntunum
Lýkur í dag
ILV
A
ás
kil
ur
sé
rr
étt
til
að
lei
ðr
étt
aa
ug
ljó
sa
rv
ill
ur
.
INSTAGRAM.COM/ILVAISLAND
FACEBOOK.COM/ILVAISLAND