Morgunblaðið - 16.11.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.11.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2020 Missið ekki af áhugaverðum þætti um fyrirtækin Marás og Friðrik A. Jónsson ásamt viðtölum við forsvarsmenn fyrirtækjanna. Hringbraut næst á rásum 7 (Síminn) og 25 (Vodafone) ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar í kvöld kl. 20.00 • Vélbúnaður og heildarlausnir fyrir skip og báta • Hátt þjónustustig við sjávarútveginn • Rafeindatæki af öllum gerðum sem auðvelda fiskveiðar • Viðskiptasaga síðan 1942 í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld Þjónusta við sjávarútveginn – vélar og rafeindabúnaður Heimsókn til Marás og Friðriks A. Jónssonar Fyrirtækið er byrjað að markaðs- setja íslenska lambakjötið. Það fer á bestu veitingastaði. „Þetta er dýrt kjöt, selt á tvöfalt hærra verði en nýsjálenskt lambakjöt,“ segir Björn. Hann segist hafa fengið mjög góð viðbrögð frá kaupendum um gæði kjötsins. „Þeir vita alveg hvað þeir eru að kaupa. Þekkja muninn á okk- ar kjöti og annarra.“ Meiri kröfur um sóttvörn Strangar sóttvarnareglur voru í sláturhúsunum í haust og virkuðu þær. Hvergi þurfti að stöðva slátrun. Björn Víkingur segir að kaupend- urnir ytra hafi beðið um enn strang- ari reglur sem framfylgt hafi verið og gott betur. „Ég ákvað að skima allra sem komu til að vinna í slát- urhúsinu, líka Íslendingana. Til að halda heilbrigðisvottorðinu þurftum við að hitamæla alla starfsmenn á hverjum morgni og grímuskylda var alger. Menn máttu ekki sitja hver á móti öðrum í matsalnum og aðeins ákveðinn fjöldi mátti vera inni á snyrtingum og í búningsklefum. Þetta kallaði á mikið skipulag,“ segir Björn. Til mikils er að vinna því gott verð fæst fyrir útflutning á þennan til- tekna markað í Kína, mun hærra en á öðrum mörkuðum og jafnvel hærra en fæst á innanlandsmarkaði. „Þetta er spennandi verkefni en það krefst þolinmæði,“ segir Björn. Hann segir slæmt að hafa ekki séð framhald af útflutningnum sl. vetur vegna þriðju bylgju kórónuveirunn- ar. Áhugavert hefði verið að sjá frekari þróun. Upphaflega var rætt um að þrír gámar færu út í fram- haldi af þeim fyrsta, það er að segja um 60 tonn. Segir hann að málið skýrist næstu daga en hann á von á pöntun. Sinna innanlandsmarkaði Björn segir að Fjallalamb vilji sinna innanlandsmarkaðnum vel með hangikjöt og grillkjöt, það sé undirstaða fyrirtækisins. Útflutn- ingsþörf fyrirtækisins sé um 100 tonn af lambakjöti á ári. Spurður um möguleika til að auka magnið segir hann að einfaldast væri að bæta við sig lömbum. Sláturhúsið geti slátrað 10 þúsund fjár fleira en í haust. Fjallalamb slátraði rúmlega 24 þúsund lömbum og hélt sínu betur en flestir aðrir. Björn Víkingur þakkar það staðsetningu í öflugu sauðfjárræktarhéraði. Búin byggi á traustum grunni og ungir bændur hafi verið að taka við. Þá sé héraðið víðlent og grösugt. „Það er áhyggju- efni hvað sauðfjárræktin stendur höllum fæti fjárhagslega og miklar sveiflur í kostnaði við aðföng og af- komu bænda,“ segir Björn Víkingur. Tvöfalt verð fæst fyrir lamb í Kína  Fjallalamb bíður eftir næstu pöntun frá dreifingarfyrirtæki í Kína  Útflutningur eftir síðustu slát- urtíð stöðvaðist vegna kórónuveirufaraldursins  Kínverjarnir gera kröfur um sérstakar sóttvarnir Ljósmynd/Björn Víkingur Haustmyrkur Fjallalamb er mikilvægur vinnuveitandi á Kópaskeri og stuðlar að því að koma afurðum í verð. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fjallalamb er að undirbúa útflutning á lambakjöti til Kína. Tilraunasend- ing sem fór í byrjun árs leiddi ekki til frekari viðskipta vegna kórónuveiru- faraldursins. „Vonandi dregur til tíð- inda einhvern næstu daga. Þá kemur í ljós hvað fer út á þessu ári og því næsta,“ segir Björn Víkingur Björnsson, framkvæmdastjóri Fjallalambs sem rekur sláturhús og kjötvinnslu á Kópaskeri. Eftir að gengið var frá öllum formsatriðum varðandi fríverslunar- samning Íslands og Kína varð ljóst að heilbrigðiskröfur væru það strangar að aðeins eitt sláturhús stæðist þær, Fjallalamb, sem er minnst af sauðfjársláturhúsum landsins fyrir utan þau hús sem að- eins eru með þjónustuslátrun fyrir bændur. Ástæðan fyrir útilokun ann- arra eru kröfur um að sláturhús séu utan varnarhólfa fyrir riðuveiki í fé. Fer á bestu veitingastaði Björn segir að fyrirtækið sé komið í viðskiptasamband við öflugan dreif- ingaraðila í Kína sem hafi fulla getu til að markaðssetja lambakjötið á réttan hátt. Fyrsta sendingin fór í mars sl., um 20 tonn af lambakjöti. Kjötið var lengi á leiðinni og lenti því í veirufárinu. Segir Björn mikilvægt að kjötið hafi komist klakklaust í gegn um tollinn í Kína. Það hafi verið mikill léttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.