Morgunblaðið - 16.11.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.11.2020, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2020 Til þeirra sem málið varðar: Eins og þú/þið hafið eflaust fengið ábendingar um þá eru stúdentar við Háskóla Íslands, og þá sér í lagi stúd- entar sem stunda nám við heilbrigð- isvísindasvið Háskóla Íslands, ekki sáttir við þá ákvörðun Háskólans að meirihluti lokaprófanna þessa önn verði staðbundinn. Það er eflaust öllum kunnugt um aðstæður samfélagsins sem við búum við núna og því óþarfi að minna á þær reglur sem stjórnvöld hafa sett enda eru þær settar af alvarlegum ástæð- um og okkar skylda sem samfélag að framfylgja þeim á sem bestan hátt. Við vitum ekki hvernig takmörk- unum verður háttað á næstu vikum en við teljum það ábyrgast að sýna sem mesta aðgát, mæta ekki á fjölmenna staði og svo framvegis í þeirri von að jólin verði sem auðveldust fyrir okkur öll. Í pósti frá rektor Háskóla Íslands sem sendur var út þann 2.11. síðastlið- inn kom skýrt fram að „lokapróf í Há- skóla Íslands í desember fari fram á netinu sem fjarpróf, nema í und- antekningartilvikum, s.s. samkeppn- ispróf og þýðingarmikil lokapróf“. Nú óskaði heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands eftir því að 81 próf við deildina fengi þetta tiltekna und- anþáguákvæði og yrðu þau haldin sem skrifleg próf í byggingum Háskólans. Miðað við stöðuna eins og hún er núna eru aðeins um 35% lokaprófa við heil- brigðisvísindasvið heimapróf. Það er langt undir helmingi allra prófa deild- arinnar. Ef við skoðum tölfræðina í þessu eru niðurstöðurnar sláandi. Heilbrigðisvís- indasvið er með langflest skrifleg próf eða 64%. Til samanburðar má nefna að hugvísindasvið er með 1% skrifleg lokapróf og félagsvísindasvið 5%. Þessar niðurstöður geta ekki talist boðlegar. Okkur þykir það afskaplega furðulegt að önnur svið innan Háskól- ans geti brugðist við breyttum að- stæðum og fundið nýjar lausnir til að þreyta lokapróf heima en okkar svið, heilbrigðisvísindasvið, sjái sér ekki fært að koma til móts við aðstæður samfélagsins. Við trúum því ekki að aðrar deildir geti forgangsraðað þýð- ingarmiklum prófum en ekki okkar svið. Það getur ekki staðist að þýðing- armikil próf séu nánast alfarið innan deilda heilbrigðisvísindasviðs. Við þessa ákvörðun eru stúdentar ekki sáttir. Við teljum þessa ákvörðun Háskólans og þá heilbrigðisvís- indasviðs óábyrga og eigi ekki við rök að styðjast í flestum tilfellum. Við telj- um þetta einfaldlega misnotkun á ákvæði ráðherra sem gaf þetta undan- þáguákvæði út til að koma til móts við skólann. Þess má geta að við heil- brigðisvísindasvið HÍ eru mjög marg- ir nemendur sem starfa á spítölum landsins og öðrum heilbrigðisstofn- unum. Þessir nemendur eru hluti af framlínunni og mótmæla þeirri óá- byrgu kröfu Háskólans að eiga að mæta í skólann til að þreyta loka- prófin og sýna með því óábyrga hegð- un. Þessu til rökstuðnings má nefna lokapróf fyrsta árs nema í lífeinda- fræði við HÍ. Lokapróf áfanga á fyrstu önn í lífeindafræði við Háskóla Íslands telst seint sem þýðingarmikið lokapróf þar sem ekki er um útskrift- arnema að ræða né samkeppnispróf. Þó að viðkomandi nemandi þurfi að ljúka öllum áföngum fyrsta árs til að hefja nám á öðru misseri er vel hægt að tryggja jafnræði og sanngirni milli nemenda í fjarprófum. Einnig vitnum við í þá staðreynd að erfitt sé að svindla í raungreinatengdum fögum en þess til samanburðar eru svipaðar kröfur gerðar til nemenda á hugvísindasviði en þar eru nánast öll próf heimapróf. Við höfum ekki mátt mæta í skól- ann í vetur og því þykir okkur óábyrgt og algjörlega úr takti að eiga svo að mæta í hópum til að þreyta lokaprófin. Einnig má nefna að aðstæður nem- enda eru misjafnar og taka þarf tillit til þess að margir eru með undirliggj- andi sjúkdóma, andlega og líkamlega, mismunandi fjölskylduaðstæður og annað slíkt sem stangast alfarið á við það að eiga að mæta inn í stærri hópa en tilmæli sóttvarnateymisins kveða á um, og það rétt fyrir jól. Ef upp kæmi hópsmit innan veggja skólans í próf- unum þyrftu viðkomandi einstak- lingar að vera í sóttkví og jafnvel ein- angrun út árið – við bendum á að það er yfir bæði jól og áramót! Ekki bætir það líðan nemenda sem kannanir í vetur hafa sýnt fram á að sé almennt ekki góð fyrir! Einnig bendum við á að miðað við niðurstöður þessara kannana um líðan nemenda sé sú staðreynd að við þurf- um að mæta í prófin í byggingar Há- skólans enn meiri kvíðavaldur. Grímu- notkun í margra klukkustunda prófi veldur mörgum hugarangri. Það hef- ur verið rætt um grímunotkun og gleraugu, það valdi einbeitingarskorti og óþægindum fyrir þá nemendur sem eru haldnir kvíða fyrir og þeir upplifi sig innilokaða og upplifi önd- unarörðugleika. Það eru allt of miklar kröfur gerðar til nemenda í þessu ástandi, við spáum því að brottfall nemenda úr námi árið 2020 verið meira en ella. Ekki nóg með að nemendur séu að fást við erfitt nám, búi mögulega ekki við þannig að- stæður að viðkomandi hafi góða að- stöðu til að læra heima, hafi verið í eða sé í sóttkví og svo framvegis, heldur bendum við einnig á að lesrými eru lokuð, námsrými í skólanum lokuð, tómstundir af skornum skammti og lítið sem ekkert félagslíf. Við teljum það fáránlegt að gerðar séu sömu kröfur til nemenda í miðjum heimsfar- aldri eins og á venjulegum önnum. Stúdentar, bæði almennir stúd- entar, stúdentar í Stúdentaráði, stúd- entar í námsbrautarstjórn og nem- endafélög hafa öll mótmælt þessu ákvæði heilbrigðisvísindasviðs og bent á þessi rök sem við höfum nefnt hér að ofan. Það er einnig súrrealískt að það skuli vera heilbrigðisvís- indasvið sem sækir um flest undan- þáguákvæði – maður hefði haldið að sú deild væri ábyrgari en þetta! Menntamálaráðherra sagði sjálfur eftir fund ríkisstjórnar þann 30.10. sl. að það væri mikilvægt að hlusta á vilja nemenda og teljum við það mjög ljóst að Háskóli Íslands er ekki að því. Við hvetjum Háskóla Íslands til að taka ábyrga afstöðu, breyta þessari ákvörðun og halda einungis sam- keppnispróf og þýðingarmikil loka- próf eins og undanþáguákvæðið kveð- ur á um, staðbundin. Önnur próf verði tekin sem fjarpróf. Við erum öll í þessu saman, við erum öll almanna- varnir og skoðanir stúdenta ber að virða og taka til greina. Alexander Örn Kárason, Andrea Guðrún Guðnadóttir, Andrea Kemp, Arna Dögg Kolbeinsdóttir, Ásta Kristín Jónsdóttir, Glódís Ylja Hilmarsdóttir, Helena Ósk, Inga Hanna Bergsdóttir, Júlía Óladóttir, Kamilla Sól Viktorsdóttir, Maríanna Ósk Jóhannsdóttir, Steinar Bragi Gunnarsson, Stiven Tobar Valencia, Sunna Hlín Eggertsdóttir, Sunneva Halldórsdóttir og Sylvía Rún Rósmundsdóttir. Opið bréf til stjórnenda Háskóla Íslands og Lilju Daggar Alfreðsdóttur Frá nemendum í lífeindafræði við Háskóla Íslands. »Háskóli Íslands skikkar nemendur til að mæta í staðbundin lokapróf í miðjum heimsfaraldri þrátt fyrir fjarkennslu nánast alla önnina. Stúdentar telja ákvörðun skólans óábyrga. Fyrir 1000 árum var afgreitt mál á Alþingi Íslendinga. Málið var svo mikilvægt að al- þingi varð að taka af- stöðu til málsins hér og nú eins og sagt er. Þetta mál varðaði trúardeilur kristinna manna og ásatrúar- manna. Aðdragandinn var langur. Kristnin hafði verið í sókn á Norðurlöndum og kristniboð hafði verið á landinu fyrir utan það að margir landnámsmanna bæði frjálsir og ófrjálsir voru kristnir, auk Papanna sem hér voru fyrir. Ásatrúin var á undanhaldi og fjölgyðistrúin átti ekki það sem mannssálin fann í Kristi. Sæst var á þá stórmerkilegu lausn að fela heiðnum manni, Þorgeiri Þor- kelssyni Ljósvetningagoða, að kveða upp úrskurð í deilunni og skuldbundu deiluaðilar sig til að virða úrskurð hans. Þorgeir kallaði ekki saman nefnd eða starfshóp til að vinna í málinu heldur dró sig í hlé frá umhverfinu og lagðist undir feld. Undir þessum feldi lá Þorgeir í þrjá sólarhringa. Sjálf- sagt hafa viðstaddir kristnir menn beðið bæna til Krists fyrir Þorgeir á meðan hann hugsaði málið og ása- trúarmenn gert áheit til goðanna, en hvað gerði Þorgeir sjálfur? Mín tilfinning er að Þorgeir hafi leitað eftir opinberun til yfirnátt- úrlegra afla. Í Biblíunni er talað um að menn hafi komist í guðmóð og fengið þá opinberanir. Í Daníel 2: 19 segir: „Þá var leyndardómurinn op- inberaður Daníel í nætursýn. Þá lof- aði Daníel Guð himnanna.“ Eitthvað því líkt hefur Þorgeir væntanlega upplifað og viðurkennt var í heiðni að menn væru forvitrir (spámenn). Þeg- ar svo Þorgeir fann frið í hjarta sínu fyrir því svari sem spámannsröddin gaf honum þá fór hann yfir málin með eigin hyggjuviti. Það er svo augljóst að Þorgeir frelsaðist til kristni þarna undir feldinum og lét skírast þegar hann reið heim af þingi og kastaði húsgoðum sínum í Goðafoss. Úrskurði Þorgeirs um að Íslendingar sam- einuðust undir merki kristinnar trúar má einna helst líkja við kraftaverkið þegar Páll postuli snerist til kristni. Í mínum huga er augljóst að Jesús Kristur birtist Þorgeiri með ein- hverjum hætti og gaf honum svarið. Skýringin sem Þorgils gefur að einn siður skuli ríkja í landinu til að friður haldist var ekki eingöngu til að leysa ríkjandi hættuástand á alþingi þar sem við lá að þingheimur berðist um málin. Úrskurðurinn var spámæli inn í framtíðina. Þessa mikilvægu þingsamþykkt tóku Íslendingar svo alvarlega að segja má að hún hafi greypst inn í þjóðarsálina og er í alla staði marg- falt merkilegri en trúfrelsisákvæðið sem Kristján 9. setti inn í stjórn- arskrána 1874 og gekk í berhögg við íslensk lög og trúarhefð. Það er löngu kominn tími til að leiðrétta þau afglöp og setja í stjórn- arskrána lagatexta í eftirfarandi dúr: „Kristin trú skal vera ein allra trúar- bragða opinber trú á Íslandi og gildir þar um samþykkt alþingis frá árinu 1000 e.Kr. Öll opinber stjórnsýsla Ís- lands taki mið af því í lögum lands- ins.“ Stjórnarskrárákvæðið mundi þá einnig varðveita hina sögulegu arf- leifð kristnitökunnar. Nú eru kristnir menn ofsóttir út um allan heim, mest þar sem guðleys- ingjar (kommúnistar) eða múslimar ráða ríkjum en líka í löndum þar sem búddistar og hindúar stjórna. Að setja það í lög að trúfrelsi skuli ríkja er illa ígrundað og óþarft ákvæði. „Trúin er fullvissa um það, sem menn vona, sannfæring um þá hluti, sem eigi er auðið að sjá“ (Hb 11:1). Á þessari Biblíutilvitnun má sjá að trú er huglæg og frjáls og óþarfi að setja lög þar um. Iðkun trúar er marg- breytileg og veldur árekstrum, þar þarf skilgreiningu. Í löggjöf um innflytjendur á að vera lagabálkur sem skilgreinir helsta átrúnað á heimsvísu eins og t.d. kristni, búddatrú, hindúatrú, sat- anstrú, áatrú, ásatrú og hið trú- pólitíska íslam og hin guðlausu lífs- skoðunarfélög. Þegar sjálfráða útlendingur leitar hér landvistar á að trúprófa hann og greina viðhorf hans til að aðlaga sig íslenskri menningu. Það er hægt að gera með krossaprófi í flugstöð. Útlendingar sem ríghalda í trú og menningu sem í veigamiklum atrið- um ganga gegn íslenskum lögum eiga ekkert erindi inn í landið. Sama gildir um þá erlenda sem aðhyllast trú- pólitískar stjórnmálastefnur einræðissjónarmiða. Útlendingar sem hingað vilja flytja og vilja verða góðir Íslendingar með því að gangast undir okkar menning- arhefðir eiga að vera velkomnir, aðrir ekki. Íslensk lög byggjast á kristnu gild- um sem miða að lýðræðislegum stjórnarháttum, sá menningararfur er dýrmætari en svo að honum megi ógna að óþörfu með því að veita fólki landvist sem í líkingunni ber með sér riðuveiki, mæðuveiki og fjárkláða sem sýkir þjóðina og veldur árekstr- um og ófriði. Við sem veljum að vera sauðir í hjörð góða hirðisins Jesú Krists verðum að standa vörð um ríki hans á Íslandi. Því miður eigum við í höggi við marga óvini í guðleysi þó ekki bætist við trúarerjur. Úrskurður Þorgeirs forðum er í raun spádómur, kyndill sem íslenskri þjóð er ætlað að bera inn í framtíðina svo friður hald- ist í landi okkar. Ég bið Íslendingum Guðs friðar. Stjórnarskrá og trúfrelsi Eftir Ársæl Þórðarson » Að setja það í lög að trúfrelsi skuli ríkja er illa ígrundað og óþarft ákvæði. Ársæll Þórðarson Höfundur er húsasmiður. Öll þurfum við á von að halda. Án vonar ger- ist ekki neitt. Þegar við fæddumst vonuðu for- eldrar okkar og að- standendur að okkur myndi farnast vel á æv- innar göngu. Finna okkur og verða ham- ingjusöm. Þegar fólk hefur háskólanám von- ast líklega flestir til að það gangi vel og klárist fyrr eða síðar. Þegar við förum að sofa vonum við að við sofum vel og vöknum endurnærð að morgni. Þegar við leggjum fé í banka vonumst við til að geta tekið það út aftur. Og þegar við kaupum hús vonumst við til að það haldi vatni og vindum og sé ekki gallað. Þegar við setjumst upp í bíl og ökum af stað vonumst við til að ferðin gangi áfalla- laust fyrir sig og við komumst heil heim án þess að bíllinn bili. Þegar vet- urinn kemur vonumst við til þess að það vori að honum loknum og svo komi sumar. Þegar klukkan er eitt megum við eiga von á því að hún verði tvö klukkustund síðar. Þannig von- umst við til að tíminn haldi áfram og við séum ekki stöðugt að upplifa okk- ar síðasta. Einnig vonumst við til þess núna að þetta Covid-ástand taki enda fyrr en seinna og biðjum saman að svo mætti verða. Von og áhyggjur takast á Vonin og áhyggjurnar takast á. Vonin er drifkraftur lífsins ásamt trú og kærleika. Vonin vekur bjartsýni, þrek og þor og fær okkur til að vilja halda áfram. Áhyggjurnar valda kvíða, draga úr okkur kjarkinn og vekja ótta og lamandi vonleysi. Barn sem leikur sér þarf á von að halda. Ungt fólk sem fetar sig til sjálfstæðis og framtíðar þarf á von að halda. Ástfangið fólk þarf á von að halda. Öll hjónabönd þurfa á von að halda. Uppalendur þurfa á von að halda. Þeir sem sjúkir eru þurfa á von að halda. Og þeir sem standa við dánarbeð þurfa á von að halda. Og allt deyjandi fólk þarf á von að halda sem og allir þeir sem syrgja. Lifum í voninni Það vonar enginn það sem hann sér eða veit. „Trúin er fullvissa um það sem við vonum. Sannfæring um hluti sem eigi er auðið að sjá.“ Ef við töpum voninni er líklega fátt eftir. Höldum í vonina og lifum í voninni. Frestum ekki lífinu og verum ekki að bíða eftir einhverju sem verður kannski einhvern tíma seinna. Leitumst við að njóta þess að vera í núinu eins og mögulegt er miðað við aðstæður og vonum svo það besta okkur öllum og heimsbyggðinni til handa. Missum ekki sjónar á lífinu og kær- leikanaum, frelsaranum okkar, Jesú Kristi, sem fullfær er um að varðveita okkur í núinu, í voninni, kærleikanum og trúnni. Leiða okkur, styðja og styrkja vegna elsku sinnar til okkar. Felum okkur honum. Í trausti þess að hann muni vel fyrir sjá. Í þessum heimi og í hinum komanda, þegar yfir lýkur. Lifum með vonina að vopni. Stönd- um saman. Verum vonistar. Með vonarríkri samstöðu-, friðar- og kærleikskveðju. - Lifi lífið! Virkjum vonina Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson » Vonin vekur bjart- sýni, þrek og þor og fær okkur til að vilja halda áfram. Áhyggjur draga úr okkur kjarkinn og vekja kvíða, ótta og lamandi vonleysi. Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.