Morgunblaðið - 16.11.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2020
pinnamatur
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á
einnota fötum, tilbúið fyrir veisluborðið
Fagnaðir
Hólshraun 3 · 220 Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
anir í kennslunni um stundarsakir,
þó ekkert hafi verið gefið eftir
varðandi meginmarkmið.
Alls eru í dag 14.992 nem-
endur við Háskóla Íslands, sem er
fjölgun frá sama tíma í fyrra tæp
15%. Miðað við fjölgun umsókna
fyrir vormisserið lítur út fyrir að
um 16.000 nemendur muni verða
við skólann eftir áramót. Veruleg
fjölgun hefur t.d. orðið í mennta-
vísindum- og heilbrigðisvísindum,
svo sem í kennaranámi og hjúkr-
unarfræðinámi, það er fögum þar
sem vantað hefur fólk með sér-
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Í baráttu við kórónaveiruna hef-
ur þeim þjóðum vegnað best sem
hafa byggt aðgerðir sínar á ráð-
um færustu vísindamanna,“ segir
Jón Atli Benediktsson rektor Há-
skóla Íslands. „Í því sem öðru hafa
háskólarannsóknir skipt sköpum
og nú má vænta að bóluefni verði
komið eftir aðeins nokkra mán-
uði. Slíkt er ótvíræður vitnis-
burður um hvers skipulegt vís-
indastarf er megnugt. Þó verða
samt alltaf til öfl sem sjá sér hag í
því að vinna gegn skynsemi og
slæva dómgreind fólks vegna
hagsmuna sem geta verið pólitísk-
ir, fjárhagslegir eða aðrir. Vís-
indin munu aldrei sigra endan-
lega, þó sagan segi að allar helstu
framfarir mannkyns byggist á
upplýstri hugsun.“
Mikil fjölgun nemenda
Starf Háskóla Íslands um
þessar mundir er með talsvert
öðrum brag en venjan er. Nánast
allir fyrirlestrar við skólann eru
nú yfir netið og hefur svo verið að
miklu leyti frá því 16. mars sl.
Þegar þar var komið sögu hafði
undirbúningur rafrænnar
kennslu við skólann staðið yfir um
nokkurt skeið og tæknin sem
þurfti var tiltæk. Þegar á reyndi
var starfsfólk tilbúið í slaginn, þó
undirbúningstími væri skammur.
Því varð að gera ákveðnar tilslak-
menntun. Átak til að fjölga nem-
endum þykir hafa skilað sér.
Halda akademískum kröfum
„Okkar leiðarljós er að halda
uppi akademískum kröfum, ekki
síst með langtímahagsmuni nem-
enda í huga. Fjölmargar kannanir
meðal nemenda og kennara hafa
gefið vísbendingar um að aðlögun
að þessum nýju aðstæðum hafi að
mörgu leyti gengið vel. Hinu er þó
ekki að leyna að þegar kennsla á
staðnum er í lágmarki reynir slíkt
á og það verður gleðidagur þegar
hana má auka aftur. Þá er HÍ mjög
stór vinnustaður og með því að
halda upp eðlilegri starfsemi eins
og kostur er höfum við getað
stuðlað að stöðugleika í öllu sam-
félaginu. Það tryggir einnig að við
verðum fljót að ná okkur á strik
þegar landið tekur að rísa.“
Árangur í starfi Háskóla Ís-
lands á undanförnum árum er góð-
ur, að mati Jóns Atla, sé horft til
þess að skólinn er yfirleitt á lista
yfir þá 300 bestu í heiminum. Er
þar horft til rannsókna, kennslu
og áhrifa í alþjóðlegu vísinda-
starfi. „Auðvitað erum við fremst í
öllum rannsóknum sem gerðar eru
á íslenskum aðstæðum og veru-
leika,“ segir Jón Atli og brosir.
„Þá stöndum við líka sterkt í lífvís-
indum, verkfræði og raunvís-
indum og hjúkrunarfræði svo ég
nefni dæmi. Allt byggist þetta á
áherslum sem hér voru lagðar fyr-
ir um 15 árum um eflingu dokt-
orsnáms. Hér fjölgar í framhalds-
námi og fræðin þróast í stöðugri
framvindu.“
Hlúi að vaxtarsprota
Að undanförnu hefur Jón Atli
átt fundi meðal annars með stjórn-
málamönnum þar sem farið hefur
verið yfir stöðu og stefnu HÍ.
„Stjórnmálamenn bera mikið
traust til Háskóla Íslands og gera
sér skýra grein fyrir mikilvægi
þekkingarsköpunar, traustrar
menntunar og nýsköpunar fyrir
framtíð Íslands. Harðna mun á
dalnum í ríkisfjármálum á næstu
árum, en ég er bjartsýnn á að
stjórnmálamenn hlúi að mikilvæg-
asta vaxtarsprota; þekkingu og
hagnýting hennar,“ segir háskóla-
rektor og að síðustu.
„Alltaf þegar stór áföll verða í
samfélaginu og atvinnuleysi eykst,
fjölgar í háskólanámi. Það gerðist
eftir hrun og sama er nú. Á næsta
ári fær HÍ samkvæmt fjárlaga-
frumvarpi um 24 milljarða króna
og við gerum okkur vonir um að
tekið verði tillit til mikillar fjölg-
unar nemenda í fjárframlögum.“
Stöðug fjölgun nemenda við Háskóla Íslands og vísindastarfið stendur sterkt
Rektor Árangur í baráttu við kórónuveiruna er ótvíræður vitnisburður
um hvers skipulegt vísindastarf er megnugt, segir Jón Atli Benediktsson.
Framfarir byggjast á upplýstri hugsun
Jón Atli Benediktsson er
fæddur árið 1960 og er pró-
fessor í rafmagns- og tölvu-
verkfræði við Háskóla Íslands.
Rannsóknasvið Jóns Atla eru
fjarkönnun, mynd- og mynstur-
greining, vélrænt nám, gagna-
bræðsla og fleira. Hann er
meðal áhrifamestu vísinda-
manna heims á sínu sviði.
Við HÍ hefur Jón Atli starfað
frá 1991; sem lektor frá 1994
og prófessor frá 1996. Var þró-
unarstjóri og aðstoðarmaður
rektors 2006-2009, þá aðstoð-
arrektor vísinda og kennslu til
2015 en tók þá við embætti
rektors. Er jafnframt nýkjörinn
forseti Aurora-nets evrópskra
háskóla.
Hver er hann?
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon