Morgunblaðið - 16.11.2020, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2020
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
NÚ FÁST BOSCH
BÍLAVARAHLUTIR HJÁ KEMI
TUNGUHÁLSI 10
„SNÚÐU HENNI Á HVOLF OG HRISTU
HANA. ÉG VIL SJÁ HVORT HANN ER ENN
MEÐ FLÖSU.”
„HANN STÖKK YFIR FIMMTÁN OG HÁLFA
RÚTU Á MÓTORHJÓLINU SÍNU.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að gera við.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞAÐ ER ALDREI AÐ VITA
HVAÐA DÁSEMD NÁTTÚRAN
SÝNIR OKKUR NÆST
FAGURT SÓLSETUR…
GLÆSILEGAN RÓSARUNNA…
RUSLATUNNU Á
HLIÐ…
SVO HRÓLFUR TEKUR
HLUTI SEM AÐRIR
EIGA? TRUFLAR
ÞAÐ ÞIG EKKERT,
HELGA?
SEGIR KONAN
SEM STAL
KÆRASTANUM
MÍNUM!
Fyrir viku birti ég í Vísnahornivísu sem ég kallaði húsgang
og lærði á Akureyri. Þóroddur Már
Árnason á Norðfirði hafði samband
við mig og sagðist hafa lært vísuna
í æsku. Hún væri sögð eftir Sigurð
Jónsson frá Brún og ort um Hólm-
geir Þorsteinsson á Hrafnagili:
Allir þekkja Andskotann,
og hans falska sinni.
Þeir eru líkir Hólmgeir og hann,
Hólmgeir er bara minni.
Ágúst H. Bjarnason sendi mér
póst vegna Vísnahorns á fimmtu-
dag: „Í framhaldi af vísunni um Er-
lend Þórðarson í Odda má rifja upp
þessa; höfundur ókunnur:
Að eiga væna undirsæng
oft má þreytu buga,
en Erlend prest fyrir yfirsæng
ætti þér að duga.
Erlendur fæddist í Krossdal í
Kelduhverfi, en flutti með for-
eldrum sínum tíu ára gamall í
Svartárkot. Hann fer í Odda 1918
og foreldrar hans með honum. Árið
1924 var byggð ný kirkja á staðn-
um, en hin eldri var frá tið Matt-
híasar, reist 1884. Timbrið í henni
gisnaði svo mjög, að hún varð ekk-
ert nema dragsúgur, hvenær sem
blés á norðan eða úr landsuðri.
Gusturinn átti það til að fletta við
blaðinu í sálmasöngbók Péturs
Guðjohnsens óforvarandis.
Smiður var Tómas Tómasson,
kallaður Trumbi, frá Reyðarvatni.
Ekki samdi þeim presti vel meðan á
smíðinni stóð og Trumbi orkti:
Voru í Odda vitringar,
vel sem báru korðann.
En nú sem stendur stjórna þar
stórgripir að norðan.“
Þetta rifjar upp fyrir mér, að við
Ari Jósefsson fórum oft með skrýti-
lega stöku þegar við vorum í
Menntaskólanum á Akureyri. Að-
dragandinn var sá, að karl fór út að
gá til veðurs og sagði þegar hann
kom í inn:
Norðan kaldinn úti er
er kominn á norðan.
Guð alvaldur hjálpi mér
engan hef ég korðann.
„Engan hef ég korðann!“ sagði
þá kerling. „Já, margt dettur ykkur
skáldunum í hug.“
Gunnar Hólm Hjálmarsson yrkir
á Boðnarmiði:
Yfir móinn leið mín lá
lengi um hæðardragið.
Kunna vel ég þurfti þá
þúfnagöngulagið.
Friðrik Steingrímsson yrkir og
skýrir sig sjálft:
Berjast sífellt virðist við
vindmyllur, þótt slíku neiti.
Donald líkist dálítið
Don kíkoti að þessu leyti.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af húsgangi og vitringum í Odda
og erum með kindur í Meirihlíð.
„Við ræktum allt okkar grænmeti
sjálf, sem er stundum erfitt. En
þetta er frábært heilsufæði fyrir
bóndann. Grænmeti og ómengaður
fiskur beint úr sjónum og ferskt
lambakjöt. Er hægt að hafa það
betra?“
Fjölskylda
Eiginmaður Arndísar er Finnbogi
Bernódusson vélstjóri, f. 7.12. 1947.
Foreldrar hans eru Bernódus Örn
Finnbogason, f. 21.2. 1922, d. 17.4.
1995 og Elísabet Sigurjónsdóttir, f.
14.8. 1924, d. 1.7. 2016.
Börn Arndísar og Finnboga eru
Guðrún Benný, f. 2.8. 1970; Elísabet
Anna, f. 13.9. 1972, gift Guðmundi
Harðarsyni; Ingibjörg Ólöf, f. 13.5.
1974, kærasti Jóhannes Elíasson;
Bernódus Örn, f. 14.4. 1975, d. 2.11.
1991; Arndís Aðalbjörg, f. 8.7. 1986, í
sambúð með Sigurði Friðriki Frið-
rikssyni og Sigríður Ágústa, f. 27.1.
1992, í sambúð með Hjalta Má
Magnússyni.
Barnabörnin eru orðin tólf og
barnabörn á fæti eru sex.
Alsystkini Arndísar eru Einar, f.
18.5. 1953 og Guðbjörg, f. 29.3. 1955.
Systkini samfeðra eru Sverrir, f.
16.5. 1931; Bernharð, f. 10.5. 1932, d.
30.4. 2002; Anna, f. 26.5. 1935, d. 8.2.
1995 og Hjördís, f. 12.5. 1939.
Systkini sammæðra eru Svavar Ein-
arsson, f. 23.6. 1934; Kristján Ein-
arsson, f. 14.1. 1940, d. 26.8. 2004 og
Guðmundur Einarsson, f. 7.5. 1943.
Fóstursystkini hennar eru Eyrún,
Gísli, Magnús og Steinþór Guðna-
börn.
Foreldrar Arndísar eru Hjörtur
Sturlaugsson, f. 7.4. 1905, d. 30.7.
1985 og Guðrún Guðmundsdóttir, f.
16.5. 1910, d. 2.10. 1999.
Arndís
Hjartardóttir
Halldóra Guðmundsdóttir
bóndi, Tungufelli,
Lundarreykjardal,Borgarf.
Magnús Eggertsson
bóndi, Tungufelli,
Lundarreykjardal,Borgarf.Guðrún Magnúsdóttir
bóndi á Brekku á
Ingjaldssandi við
Önundarfjörð
Guðmundur Einarsson
bóndi og refaskytta á Brekku á
Ingjaldssandi við Önundarfjörð
Guðrún
Guðmundsdóttir
bóndi, Fagrahvammi
í Skutulsfirði
Steinþóra Einarsdóttir
bóndi á Heggst., síðar húsfreyja,Rvk.
Einar „sterki“ Guðmundsson
bóndi á Heggstöðum,Andakíl,
Borgarfirði. Drukknaði frá 9 börnum.
Þórey Jónsdóttir
bóndi á Krossárbakka,
Bitrufirði, Strandasýslu
Jón Jónsson
bóndi á Krossárbakka,
Bitrufirði, Strandasýslu
Guðbjörg Jónsdóttir
bóndi í Snartartungu,
Bitrufirði
Sturlaugur Einarsson
bóndi í Snartartungu, Bitrufirði, Strandasýslu
Gúðrún Bjarnadóttir
bóndi í Snartartungu,
Bitrufirði, Strandasýslu
Einar Þórðarson
bóndi í Snartartungu,Bitrufirði, Strandasýslu
Úr frændgarði Arndísar Hjartardóttur
Hjörtur Sturlaugsson
bóndi, Fagrahvammi
í Skutulsfirði