Morgunblaðið - 16.11.2020, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2020
Þjóðadeild UEFA
A-deild, 2. riðill:
Danmörk – Ísland .................................. 1:2
Belgía – England .................................... 2:0
Staðan:
Belgía 5 4 0 1 12:4 12
Danmörk 5 3 1 1 6:3 10
England 5 2 1 2 3:4 7
Ísland 5 0 0 5 3:13 0
A-deild, 1. riðill:
Holland – Bosnía ..................................... 3:1
Ítalía – Pólland ........................................ 2:0
Ítalía 9, Holland 8, Pólland 7, Bosnía 2.
A-deild, 3. riðill:
Svíþjóð – Króatía .................................... 2:1
Portúgal – Frakkland ............................. 0:1
Frakkland 13, Portúgal 10, Króatía 3,
Svíþjóð 3.
A-deild, 4. riðill:
Sviss – Spánn ........................................... 1:1
Þýskaland – Ukraína .............................. 3:1
Þýskaland 9, Spánn 8, Úkraína 6, Sviss
3.
B-deild, 1. riðill:
Austurríki – Norður-Írland ................... 2:1
Austurríki 12, Noregur 9, Rúmenía 4,
Norður-Írland 1.
B-deild, 2. riðill:
Slóvakía – Skotland ................................ 1:0
Tékkland – Ísrael .................................... 1:0
Skotland 10, Tékkland 9, Ísrael 5, Sló-
vakía 4.
B-deild, 3. riðill:
Tyrkland – Rússland .............................. 3:2
Ungverjaland – Serbía ........................... 1:1
Rússland 8, Ungverjaland 8, Tyrkland 6,
Serbía 3.
B-deild, 4. riðill:
Wales – Írland ......................................... 1:0
Búlgaría – Finnland ................................ 1:2
Wales 13, Finnland 12, Írland 2, Búlg-
aría 1.
C-deild, 1. riðill:
Kýpur – Lúxemborg ............................... 2:1
Aserbaídsjan – Svartfjallaland .............. 0:0
Svartfjallaland 10, Lúxemborg 9,
Aserbaídsjan 5, Kýpur 4.
C-deild, 2. riðill:
Norður-Makedónía – Eistland .............. 2:1
Georgía – Armenía .................................. 1:2
Norður-Makedónía 9, Armenía 8,
Georgía 6, Eistland 2.
C-deild, 2. riðill:
Slóvenía – Kósóvó ................................... 2:1
Moldóva – Grikkland .............................. 0:2
Slóvenía 13, Grikkland 11, Kósóvó 2,
Moldóva 1.
C-deild, 4. riðill:
Hvíta-Rússland – Litháen ...................... 2:0
Albanía – Kasakstan ............................... 2:1
Hvíta-Rússland 10, Albanía 8, Litháen 5,
Kasakstan 4.
D-deild, 1. riðill:
Malta – Andorra ...................................... 3:1
Lettland – Færeyjar ............................... 1:1
Færeyjar 11, Malta 8, Lettland 4, An-
dorra 2.
D-deild, 2. riðill:
San Marínó – Gíbraltar .......................... 0:0
Gíbraltar 7, Liechtenstein 4, San Marínó
2.
Undankeppni EM U21
1. riðill:
Írland – Ísland.......................................... 1:2
Lúxemborg – Ítalía.................................. 0:4
Staðan:
Ítalía 9 7 1 1 23:4 22
Ísland 9 6 0 3 16:12 18
Írland 9 5 1 3 13:7 16
Svíþjóð 8 5 0 3 27:8 15
Armenía 8 1 0 7 4:7 3
Lúxemborg 9 1 0 7 2:27 3
Portúgal
SL Benfica – Sporting ............................ 0:3
Chloé Lacasse lék allan leikinn með SL
Benfica.
Frakkland
Le Havre – Bordeux ............................... 0:2
Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Anna
Björk Kristjánsdóttir léku allan leikinn
með Le Havre.
Svíþjóð
Kristianstad – Linköping....................... 1:2
Svava Rós Guðmundsdóttir kom inn á
sem varamaður hjá Kristianstad á 83. mín-
útu Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið.
Rosengård – Växjö.................................. 0:1
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård
Djurgården – Uppsala............................ 2:0
Guðrún Árnadóttir og Guðbjörg Gunn-
arsdóttir léku allan leikinn með Djurgår-
den
Anna Rakel Pétursdóttir var ekki í leik-
mannahópi Uppsala
England
D-deild
Bradford – Exeter................................... 2:2
Jökull Andrésson lék allan leikinn með
Exeter.
Katar
Deildabikarinn, 8-liða úrslit
Al-Arabi – Al Saliliya..................... 6:7 (2:2)
Heimir Hallgrímsson þjálfar Al-Arabi
Ítalía
C-deild
Padova – Matelica ................................... 3:0
Emil Hallfreðsson lék fyrstu 61 mín-
útuna með Padova.
Hinriksdóttur að þakka en Keflvík-
ingurinn spilaði hverja einustu mín-
útu í leiknum og skoraði 31 stig, tók
átta fráköst og gaf fjórar stoðsend-
ingar.
Sara bar íslenska liðið á herðum
sér og hvað eftir annað skoraði hún
úr gríðarlega erfiðum skotum með
nokkra búlgarska varnarmenn í sér.
Því miður voru ekki margir aðrir
leikmenn sem náðu sér á strik.
Þóra Kristín Jónsdóttir kom næst á
eftir með átta stig, en hún hitti að-
eins úr þremur af þrettán skotum
sínum. Dagbjört Dögg Karlsdóttir
skoraði sex stig en hitti aðeins úr
einu af fimm skotum sínum utan af
velli.
Skotnýting íslenska liðsins var
yfir höfuð alls ekki nægilega góð
eða 27,3 prósent. Þá hitti íslenska
liðið aðeins úr þremur af 23 skotum
sínum fyrir utan þriggja stiga lín-
una.
Tveir skellir á Krít
Ísland lék tvo leiki í Heraklion en
liðið lá gegn Slóveníu í fyrri leikn-
um 58:94. Var ljóst að verkefnið
yrði afar erfitt því langflestir leik-
menn íslenska liðsins höfðu ekki
æft né spilað í nokkrar vikur vegna
takmarkana hér á landi vegna kór-
ónuveirunnar. Liðið var því alls
ekki í miklu leikformi gegn tveimur
sterkum andstæðingum. Ísland átti
að leika við Slóveníu á heimavelli og
Búlgaríu á útivelli en vegna veir-
unnar fóru báðir leikir fram á Krít
og máttu leikmenn lítið annað gera
en að æfa, spila og eyða tíma á hót-
elherbergjum þess á milli.
Tveir leikir eru eftir af und-
ankeppninni; gegn Grikklandi og
Slóveníu í febrúar. Á Ísland að leika
við Grikkland á heimavelli og Slóv-
eníu á útivelli, en of snemmt er að
segja hvort það gangi eftir.
Stórleikur Söru dugði ekki
Ísland fékk skell gegn Búlgaríu á Krít
Ljósmynd/FIBA
Best Sara Rún Hinriksdóttir var besti leikmaður íslenska liðsins.
KÖRFUBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í körfu-
bolta mátti þola 74:53-tap fyrir
Búlgaríu í fjórða leik sínum í und-
ankeppni EM 2021 í borginni Her-
aklion á Krít á laugardag. Ísland
vann seinni hálfleikinn með tveimur
stigum en erfiður fyrri hálfleikur
varð liðinu að falli, staðan eftir
hann var 44:21, Búlgaríu í vil.
Ísland hefur átt erfitt uppdráttar
og tapað öllum fjórum leikjum sín-
um í A-riðli og er því í neðsta sæti
með fjögur stig, en eitt stig fæst
fyrir tap í keppninni. Slóvenía er
efst með átta stig og Grikkland og
Búlgaría koma þar á eftir með fjög-
ur stig.
Sara fór á kostum
Íslenska liðið lék án Helenu
Sverrisdóttur sem er ólétt og Hild-
ar Bjargar Kjartansdóttur sem er
meidd. Hafa þær verið bestu leik-
menn liðsins undanfarin ár og því
ljóst að Ísland ætti afar erfitt verk-
efni fyrir höndum gegn sterku
búlgörsku liði. Sóknarleikur ís-
lenska liðsins gekk afleitlega fram-
an af leik og skoraði liðið aðeins sjö
stig í fyrsta leikhluta. Sem betur
fer batnaði sóknarleikurinn til
muna í næstu þremur leikhlutum og
það var fyrst og fremst Söru Rún
Íslendingalið Djurgården, sem þær
Guðbjörg Gunnarsdóttir og Guðrún
Arnardóttir spila með, bjargaði sér
frá falli í lokaumferð sænsku úr-
valsdeildarinnar í knattspyrnu í
gær með því að vinna 2:0-sigur á
Uppsala. Svava Rós Guðmunds-
dóttir og stöllur í Kristianstad töp-
uðu gegn Linköping á heimavelli,
2:1, Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar
liðið. Þá tapaði Rosengård 1:0 á úti-
velli gegn Växjö þar sem Glódís
Perla Viggósdóttir spilar. Töpin
komu ekki að sök, bæði lið fara í
Meistaradeildina á næstu leiktíð.
Björguðu sér á
lokadeginum
Morgunblaðið/Eggert
Úrvalsdeild Guðrún Arnardóttir
verður áfram í efstu deildinni.
Viggó Kristjánsson fór á kostum og
var markahæstur í sigri Stuttgart á
Hannover-Burgdorf, 31:26, í efstu
deild þýska handboltans um
helgina.
Viggó skoraði 10 mörk úr 11
skotum en liðsfélagi hans Elvar Ás-
geirsson komst ekki á blað marka-
skorara Stuttgart sem hefur níu
stig eftir sjö leiki.
Bjarki Már Elísson var að vanda
atkvæðamikill fyrir Lemgo er hann
skoraði fjögur mörk sem dugðu þó
skammt í 26:18-tapi gegn RN Lö-
wen.
Viggó átti stórleik
í þýsku deildinni
Ljósmynd/Einar Ragnar
Atkvæðamikill Viggó Kristjánsson
skoraði tíu mörk um helgina.
þess að halda öðru sæti riðilsins.
Ísland átti að mæta Armeníu á
Kýpur sama dag en vegna stríðs-
ástandsins í Armeníu var leiknum
frestað og verður að teljast líklegt
að Íslandi verði úrskurðaður sigur
gegn Armenum.
Línur farnar að skýrast
Undankeppnin samanstendur af
níu riðlum. Í átta þessara riðla leika
sex lið og í einum riðli leika fimm
lið.
Þau níu lið sem enda í efstu sæt-
um síns riðils fara beint á EM en
vegna kórónuveirufaraldursins
verður ekkert umspil fyrir loka-
keppnina sem fram fer í Ungverja-
landi og Slóveníu.
Þar af leiðandi fara fimm lið með
bestan árangur í öðru sæti riðla-
keppninnar einnig áfram í loka-
keppnina og þar liggja möguleikar
íslenska liðsins.
Í sex liða riðlunum gilda stigin
gegn neðstu liðum riðilsins ekki og
það setur allt annan svip á stöðuna í
undankeppninni.
Frakkar eru eitt þeirra lið sem er
öruggt með sæti sitt í lokakeppninni
sem lið í öðru sæti síns riðils, sem
og Portúgal.
Baráttan um hin þrjú sætin er
enn þá galopin en Rúmenía þarf
sem dæmi að vinna Danmörku á
heimavelli í 8. riðli á þriðjudaginn til
þess fara upp fyrir Ísland á stigum.
Á sama tíma þurfa Belgar að vinna
Bosníu á útivelli í 9. riðli til þess að
fara upp fyrir Ísland.
Þá þurfa Skotar að vinna Grikki á
útivelli í 4. riðli til að fara upp fyrir
íslenska liðið og því ljóst að það get-
ur ansi margt gerst enn þá í barátt-
unni um síðustu lausu sætin í loka-
keppninni.
Draumurinn lifir eftir sigur í Dublin
Íslenska U21-árs landsliðið þarf að treysta á hagstæð úrslit hjá Ítalíu og Svíþjóð
Ljósmynd/FIBA
Átök Willum Þór Willumsson og Connor Ronan eigast við í leiknum.
FÓTBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Íslenska U21-árs landsliðið í knatt-
spyrnu vann afar dýrmætan sigur
gegn Írlandi í undankeppni EM á
Tallaght-vellinum í Dublin í gær.
Valdimar Þór Ingimundarson
skoraði sigurmark leiksins í uppbót-
artíma eftir að hafa komið inn á sem
varamaður á 72. mínútu en leiknum
lauk með 2:1-sigri íslenska liðsins.
Sveinn Aron Guðjohnsen kom Ís-
landi yfir um miðjan fyrri hálfleik-
inn en Írar jöfnuðu metin á 75. mín-
útu þegar Joshua Kayode átti skot
sem fór af Ara Leifssyni og í netið.
Íslenska liðið fór með sigrinum
upp í annað sæti 1. riðils og er nú
með 18 stig eftir níu leiki, einu stigi
minna en Ítalir sem eiga leik til
góða á Ísland.
Írland er í öðru sæti með 16 stig
eftir níu leiki og Svíar eru í fjórða
sætinu með 15 stig eftir átta spilaða
leiki.
Þann 18. nóvember mætast Ítalía
og Svíþjóð á Girabaldi-vellinum í
Pisa á Ítalíu og þarf íslenska liðið að
treysta á að Svíar tapi stigum til