Morgunblaðið - 16.11.2020, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2020
FÓTBOLTI
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu hefur átt erfiða viku. Eftir
agalega svekkjandi tap í umspilinu
gegn Ungverjum í Búdapest á
fimmtudaginn mátti liðið þola annað
svekkjandi tap í gærkvöldi, að þessu
sinni gegn gömlu herraþjóðinni sem
neitar að sleppa ógnartakinu; Ísland
tapaði gegn Danmörku á Parken í
Kaupmannahöfn, 2:1, og kom sig-
urmarkið auðvitað í blálokin.
Ísland var þegar fallið úr A-
deildinni í annarri útgáfu Þjóða-
deildar UEFA en að loknum fimm
umferðum er Ísland á botninum án
stiga. Ísland hefur svo sem aldrei
sýnt sitt rétta andlit í þessari keppni
og á því eru eflaust einhverjar skýr-
ingar en leikurinn í gær var spilaður
við ólíkar kringumstæður en oft áð-
ur.
Enn eitt tapið
Erik Hamrén landsliðsþjálfari
gerði átta breytingar á byrjunarlið-
inu í sínum næstsíðasta leik með ís-
lenska liðið. Aðeins þeir Birkir
Bjarnason, Gylfi Þór Sigurðsson og
Hörður Björgvin Magnússon héldu
sæti sínu en annars fengu aðrir að
spreyta sig. Margir telja kyn-
slóðaskipti hjá landsliðinu í aðsigi og
spiluðu margir í gærkvöldi sem ætl-
að er að taka við kyndlinum. Rúnar
Alex Rúnarsson var í markinu og
stóð sig vel, hann þurfti að taka á
sínum stóra sínum nokkrum sinnum
og er að auki snöggur að koma bolt-
anum í leik. Sverrir Ingi Ingason
hefur mátt bíða þolinmóður fyrir aft-
an þá Kára Árnason og Ragnar Sig-
urðsson í goggunarröðinni en hann
er tilbúinn að verða lykilmaður í ís-
lensku vörninni. Þá voru Arnór Sig-
urðsson og Albert Guðmundsson
einnig í liðinu en þeirra kvöld var
erfiðara er íslenska liðið komst lítið í
boltann framan af leik.
Þetta byrjaði ekkert sérstaklega
vel er Ari Freyr Skúlason sparkaði
niður Daniel Wass inn í vítateig.
Christian Eriksen skoraði örugg-
lega úr vítaspyrnunni og ef eitthvað
lið var líklegt til að skora næsta
mark í fyrri hálfleik þá voru það
heimamenn. Eftir því sem leið á
seinni hálfleikinn gerði Hamrén hins
vegar breytingar sem sneru taflinu
við. Fyrirliðinn Aron Einar Gunn-
arsson og Guðlaugur Victor Pálsson
komu inn á miðjuna og skyndilega
gekk mikið betur að halda boltanum.
Viðar Örn Kjartansson kom svo inn í
framlínuna og hann jafnaði metin á
85. mínútu. Ari Freyr bætti upp fyr-
ir mistökin í byrjun kvölds með frá-
bærri stungusendingu á Viðar sem
skoraði milli fóta Frederik Rønnow í
danska markinu. Með markinu
glæddist aukin trú í liðið sem færði
sig upp á skaftið og reyndi að kreista
fram sögulegt sigurmark. Auðvitað
varð sú ekki raunin gegn erfiðasta
andstæðingi okkar í sögunni. Hörð-
ur Björgvin fékk boltann í höndina
innan eigin vítateigs í uppbótartíma
og Eriksen skoraði sigurmark úr
annarri vítaspyrnu sinni. Enn einn
ósigurinn gegn Dönum sem hafa nú
unnið 21 af 25 leikjum sínum gegn
Íslendingum frá því þjóðirnar mætt-
ust fyrst árið 1946.
Nýtt upphaf
Íslenska liðið heldur nú til Eng-
lands og spilar þar á Wembley í síð-
asta leiknum í A-deildinni í bili. Nú
þegar er ljóst að þó nokkrir leik-
menn úr U21-árs liðinu koma inn í
hópinn fyrir þann leik: Alfons Sam-
psted, Andri Fannar Baldursson,
Ísak Bergmann Jóhannesson, Jón
Dagur Þorsteinsson og Sveinn Aron
Guðjohnsen. Þá er Gylfi Þór Sig-
urðsson á meðal þeirra sem hefur
leikið undir stjórn Hamréns í síðasta
sinn. Það er því ekki ólíklegt að fleiri
ungir leikmenn fái tækifæri til að
sýna sig á Wembley. Þá verður einn-
ig fróðlegt að sjá hvort leikmenn
eins og Hannes Þór Halldórsson,
Kári og Ragnar komi aftur inn í liðið
og hvort þetta gæti orðið þeirra síð-
asta verkefni. Því næst tekur við að
finna nýjan landsliðsþjálfara sem
mun stýra okkur í undankeppni HM
á nýju ári.
Danir halda ógnartakinu
Ísland grátlega nálægt stigi í Kaupmannahöfn Annar leikurinn í röð tapast
með marki í uppbótartíma Breytingar í aðsigi fyrir lokaleikinn á Wembley
AFP
Parken Sverrir Ingi Ingason eltir danska framherjann Yussuf Poulsen í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Íslenski varnarmaðurinn var öflugur í leiknum.
„Ég er stoltur af öllum leiknum, sérstaklega miðað við
að við lentum undir eftir tíu mínútur úr ódýrri víta-
spyrnu. Við lögðum mikið á okkur í varnarleiknum í
fyrri hálfleiknum þar sem Danir voru mikið með bolt-
ann. Í seinni hálfleik sköpuðum við mikið fram á við,
svo ég er stoltur,“ sagði landsliðsþjálfarinn Erik Ham-
rén við Stöð 2 sport eftir leik Danmerkur og Íslands í
Þjóðadeildinni í gærkvöld.
Hann hafði einföld skilaboð fyrir Viðar Örn Kjart-
ansson áður en Selfyssingurinn kom inn á og skoraði
jöfnunarmarkið. „Ég sagði honum að koma inn á og
skora og það er augljóst að hann hlustar,“ sagði Svíinn,
en hann hættir með liðið eftir leikinn við England á
miðvikudagskvöldið.
„Þeir voru betri í fyrri hálfleik þrátt fyrir að við vor-
um ekkert slakir, en í seinni hálfleik fannst mér við
með yfirhöndina. Við áttum að vinna leikinn eftir að við
jöfnum en þeir refsa ef þú gerir ein mistök en í heildina
var þetta frábær seinni hálfleikur,“ sagði Viðar Örn
Kjartansson við sama miðil.
Viðar jafnaði metin í 1:1 á 85. mínútu eftir að hann
kom inn á sem varamaður en það dugði ekki til. „Ég
átti að berjast og reyna að skora og vera líflegur. Mér
fannst við gera það. Við vorum að pressa á þá og vorum
flottir sem er góð viðurkenning á móti svona góðu liði
eins og Danmörku. Þegar maður kemur inn á sem
varamaður er ekki alltaf öruggt að maður skori. Ég
fékk frábæran bolta frá Ara, ég hefði líka getað sent
boltann en ég skoraði. Ég hefði viljað fá jafntefli í stað-
inn,“ sagði Viðar.
Ég sagði Viðari að koma inn og skora
AFP
Mark Viðar Örn Kjartansson fagnar
markinu sínu á Parken í gær.
Þýskaland
RN Löwen – Lemgo .............................26:18
Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir Lö-
wen en Alexander Petersson er frá vegna
meiðsla.
Bjarki Már Elísson skoraði 4 mörk fyrir
Lemgo.
Stuttgart – Hannover-Burgdorf ........31:26
Viggó Kristjánsson skoraði 10 mörk fyr-
ir Stuttgart en Elvar Ásgeirsson ekkert.
Bergischer – Kiel .................................27:32
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 4 mörk
fyrir Bergischer en Ragnar Jóhannsson
ekkert.
Neckarsulmer – Leverkusen ............. 30:26
Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 2
mörk fyrir Leverkusen.
B-deild
Aue – Bietigheim..................................28:27
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 1
mark fyrir Aue.
Gummersbach – Hamburg..................26:25
Elliði Snær Viðarsson skoraði 5 mörk
fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs-
son þjálfar liðið.
Undankeppni EM 2021
A-riðill:
Búlgaría – Ísland ................................. 74:53
Grikkland – Slóvenía............................ 70:77
Slóvenía 8, Grikkland 6, Búlgaría 6, Ís-
land 4.
Spánn
Fuenlabrada – Zaragoza.................... 82:81
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 8 stig og
tók 5 fráköst hjá Zaragoza.
Þýskaland
Fraport – Bayern München ............... 52:75
Jón Axel Guðmundsson skoraði 11 stig
og tók 3 fráköst hjá Fraport.
DANMÖRK – ÍSLAND 2:1
1:0 Christian Eriksen 12. úr vítaspyrnu
eftir að brotið var á Daniel Wass.
1:1 Viðar Örn Kjartansson 85. eftir
sendingu Ara Freys Skúlasonar í gegn-
um vörn Dana.
2:1 Christian Eriksen 90. úr vítaspyrnu
eftir að Hörður handlék knöttinn í
teignum.
M
Ari Freyr Skúlason
Aron Einar Gunnarsson
Hólmar Örn Eyjólfsson
Rúnar Alex Rúnarsson
Sverrir Ingi Ingason
Viðar Örn Kjartansson
Dómari: Halil Meler, Tyrklandi
Áhorfendur: Engir
Viðar Örn Kjartansson skoraði sitt
fjórða mark fyrir landslið Íslands í sín-
um 28. landsleik. Hann skoraði síðast
gegn Andorra í undankeppni EM 2019.
Ísland bíður enn eftir sigri gegn Dan-
mörku. Liðin hafa nú mæst 25 sinnum
en Danir hafa unnið 21 leik og jafnteflin
eru fjögur.
Ísland mætir Englandi á Wembley á
miðvikudaginn í síðasta leik sínum und-
ir stjórn Erik Hamréns og þeim síðasta
í A-deild Þjóðadeildarinnar að sinni.
Viktor Gísli Hallgrímsson reyndist
hetja GOG gegn Skanderborg í efstu
deild danska handboltans á laugardag
er lið hans vann 29:28. GOG var marki
yfir þegar Mads Kalstrup fékk boltann
aleinn á línunni er átta sekúndur voru
eftir. Viktor Gísli æddi út af línunni og
gerði sig breiðan og varði skotið
glæsilega.
Bandaríkjamaðurinn Dustin John-
son stóð uppi sem sigurvegari á Mast-
ers-mótinu í golfi á Augusta National-
vellinum í Georgíu í Bandaríkjunum í
gær. Hann lauk keppni á alls 20 högg-
um undir pari sem er mótsmet.
Anton Sveinn McKee synti 200
metra bringusund í gær á tímanum
2:02,61 mínútum og varð annar í und-
anúrslitum ISL-mótaraðarinnar í
Búdapest. Anton keppir fyrir Toronto
Titans.
GR-ingurinn Haraldur Franklín
Magnús náði sínum besta árangri í
Áskorendamótaröðinni er hann keppti
á Challenge Tour-mótinu í Cadiz á
Spáni. Haraldur lék alls á
þremur höggum undir
pari og hafnaði því í 14.
sæti
Barcelona hafði
betur gegn Puente
Genil á útivelli í
spænsku 1. deild-
inni í handbolta á
laugardag, 29:20.
Var sigurinn sá 52. í
röð hjá Barcelona í
öllum keppnum. Ar-
on Pálmarsson
skoraði þrjú mörk
úr fimm skotum
hjá Barcelona.
Eitt
ogannað