Morgunblaðið - 17.11.2020, Síða 13

Morgunblaðið - 17.11.2020, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2020 Greiðsluáskorun Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 16. nóvember 2020, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. nóvember 2020 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 16. nóvember 2020, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagns- tekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetra- gjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, ofgreiðslu stuðnings úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launa- kostnaðar á uppsagnarfresti, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 25.000 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.500 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verð út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 17. nóvember 2020. Ríkisskattstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á Vestfjörðum Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Bandaríska líftæknifyrirtækið Mod- erna tilkynnti í gær að prófanir þess á bóluefni sínu gegn kórónuveirunni bentu til þess að það sýndi um 94,5% virkni gegn veirunni. Eru þær frum- niðurstöður byggðar á þriðja stigs prófunum á rúmlega 30.000 manns, en þetta er annað bóluefnið á undan- förnum tveimur vikum sem sýnir mikla virkni gegn veirunni. Markaðir bæði austan hafs og vestan tóku mikinn kipp við tíðindin, líkt og þeir gerðu þegar Pfizer og BioNTech kynntu í síðustu viku að bóluefni þess sýndi um 90% virkni gegn veirunni. Bæði bóluefnin byggjast á nýrri tækni, þar sem erfðaupplýsingar veirunnar, svo- nefnt mRNA, eru nýttar til þess að láta frumur líkamans framleiða mót- efni gegn verunni. Moderna hyggst sækja um leyfi fyrir bóluefninu innan bæði Banda- ríkjanna og annars staðar á næstu vikum, og segir fyrirtækið að það geri ráð fyrir að um 20 milljón skammtar verði tilbúnir í Bandaríkj- unum fyrir árslok, og að allt að einn milljarður skammta verði framleidd- ur á næsta ári. Bóluefni Moderna þykir hafa þá kosti umfram bóluefni Pfizer/Bio- NTech, að það er auðveldara í geymslu og flutningi, en á móti kem- ur að það nýtir meira af erfðaupplýs- ingum veirunnar í hverjum skammti, sem þýðir að það hentar verr til fjöldaframleiðslu. Þá er um hvorugt bóluefnið vitað hversu lengi það veit- ir vörn gegn veirunni. Baráttunni ekki lokið enn Sérfræðingar í heilbrigðismálum vöruðu þó við því að enn væru erfiðir mánuðir fram undan, þó að ljósið við enda ganganna væri vissulega bjart- ara nú þegar fleiri en eitt bóluefni hefðu sýnt mikla virkni gegn kórónuveirunni. „Bóluefni eitt og sér mun ekki binda enda á faraldurinn,“ sagði Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfir- maður Alþjóðaheilbrigðisstofnunar- innar, WHO. Benti Tedros á að fyrst um sinn yrði bóluefni einungis að- gengilegt fyrir viðkvæma hópa og heilbrigðisstarfsfólk, og á þeim tíma myndi veiran enn hafa mikið svig- rúm til að dreifa sér. Í millitíðinni hafa mörg ríki, sér í lagi í Evrópu, gripið til harðra sótt- varnaaðgerða til þess að reyna að stemma stigu við seinni bylgju heimsfaraldursins. Stjórnvöld í Bretlandi greindu frá því í gær að Boris Johnson forsætis- ráðherra væri nú kominn í sóttkví, eftir að hann fundaði fyrir helgi með þingmanni Íhaldsflokksins sem reyndist svo smitaður. Sagði John- son að hann myndi halda áfram að stýra baráttu stjórnvalda gegn veir- unni úr einangrun sinni í Downing- stræti 10, og taldi sig ekki í mikilli hættu, þar sem hann væri að „springa úr mótefnum“, eftir að hafa veikst sjálfur í apríl síðastliðnum. Vill grímuskyldu í skólum Angela Merkel Þýskalandskansl- ari var í gær sögð vilja enn hertar að- gerðir ofan á þær sem tóku gildi í byrjun nóvembermánaðar, þar sem fjöldi nýrra tilfella í landinu væri enn of mikill. Vill Merkel meðal annars að grímuskylda verði tekin upp í öll- um skólum, og að fólk hitti einungis annað fólk af einu öðru heimili utan skóla og vinnu. Þá þykir staðan í Bandaríkjunum enn grafalvarleg, þar sem milljón ný tilfelli bættust við í síðustu viku. Hafa sérfræðingar varað við því að fólk haldi stóra þakkargjörðarhátíð, en hún á að vera í næstu viku. AFP Bóluefni Þátttakandi í prófunum Moderna sést hér fá skammt af efninu. Annað bóluefni veitir von  Líftæknifyrirtækið Moderna segir bóluefni sitt sýna 94,5% virkni gegn kórónu- veirunni  Erfiðir mánuðir enn fram undan  Boris Johnson kominn í einangrun Eldflaug bandaríska geimferða- fyrirtækisins SpaceX tókst á loft í fyrrinótt frá Kennedy-geimstöðinni í Flórída, með fjóra geimfara innan- borðs, þrjá frá Bandaríkjunum og einn frá Japan. Ferðinni er heitið til alþjóðlegu geimstöðvarinnar, og er þetta í fyrsta sinn í níu ár sem geim- farar á vegum bandarísku geim- ferðastofnunarinnar NASA halda þangað frá bandarískri grund. Hef- ur stofnunin þurft að treysta á Rússa til þess að flytja geimfara sína um borð í stöðina í allan þann tíma. Talsmenn SpaceX og NASA lýstu yf- ir ánægju sinni með skotið, en gert er ráð fyrir að geimfararnir komist á áfangastað í nótt. BANDARÍKIN AFP SpaceX Geimskotið þótti heppnast vel. Fyrsta mannaða geimferðin í níu ár Nikol Pashinyan, forsætisráðherra Armeníu, ákvað í gær að reka Zohr- ab Mnatsakanyan, utanríkis- ráðherra landsins, vegna mótmæla- öldu sem skekið hefur landið eftir að átökunum í Nagornó-Karabak- héraði lauk í síðustu viku. Stór hluti Armena lítur á friðar- samkomulag Armeníu og Aser- baídsjan í deilunni sem uppgjöf, þar sem það felur í sér að svæði sem Armenar náðu á sitt vald fyrir þrjá- tíu árum voru aftur færð undir yfir- ráð Asera. Áfram var mótmælt gegn sam- komulaginu á götum höfuðborg- arinnar Jerevan í gær og kölluðu mótmælendur eftir því að Pashi- nyan segði af sér. Hrópuðu þeir „Nikol farðu“ og „Nikol svikari“. Stjórnarandstæðingurinn Eduard Sharmazanov ávarpaði mótmæla- fundinn og sagði að hver einasta klukkustund sem Pashinyan væri við völd væri ógn við þjóðaröryggi Armeníu. Pashinyan sagði hins vegar í um- ræðum á þinginu að friðarsam- komulagið hefði verið eina leiðin út úr átökunum og það hefði tryggt að Nagornó-Karabak yrði áfram undir sinni eigin stjórn, frekar en undir yfirráðum Aserbaídsjan. Tyrkir vilja vera með Samkvæmt skilmálum samkomu- lagsins munu Rússar taka að sér hlutverk friðargæslu í héraðinu til þess að koma í veg fyrir að átök brjótist út að nýju. Er gert ráð fyrir að um 2.000 rússneskir hermenn sinni því hlutverki næstu fimm árin. Recep Tayyip Erdogan Tyrk- landsforseti tilkynnti hins vegar í gær að Tyrkir hygðust einnig taka þátt í að framfylgja friðarsam- komulaginu, og óskaði hann eftir formlegu leyfi tyrkneska þingsins til þess að senda herlið til Aserbaíd- sjan, sem muni aðstoða Rússa við að stýra vopnahléinu. Rússnesk stjórnvöld segja hins vegar að tyrkneskir hermenn muni ekki sinna friðargæsluhlutverki í Nagornó-Karabak-héraði. Þátttaka Tyrkja er ekki óumdeild í Armeníu, en þeir studdu rétt Asera til þess að endurheimta Na- gornó-Karabak með valdi, og sök- uðu vestræn ríki þá um að hafa sent sýrlenska vígamenn til átakasvæð- anna. Ráðherra rekinn vegna mótmæla  Friðarsamkomulaginu enn mótmælt AFP Armenía Friðarsamkomulaginu var mótmælt alla helgina í Jerevan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.