Morgunblaðið - 17.11.2020, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALINánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
71%
SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
MYNDIN SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN
Í EVRÓPU UNDANFARNAR VIKUR.
HÖRKUSPENNANDI MYND
BYGGÐI Á SANNRI SÖGU.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Ekki er auðvelt að átta sig tilfulls á hvað fyrir höfundiBorgríkisins, MagnúsiSkjöld, dósent við Háskól-
ann á Bifröst, vakir. Ætlar hann að
fræða lesandann um Reykjavík eða
er Reykjavík samtímans framtíðin
sem blasir við íslenska þjóðríkinu?
Undir bókarlok segir höfundur: „Í
þessari bók hefur verið farið býsna
vítt yfir sviðið en sjaldnast mjög
djúpt.“ (s.152.) Undir þetta skal tek-
ið. Textinn hefði vel þolað öflugri rit-
stjórn.
Í inngangi segir Magnús sérstakan
tilgang sinn að líta til þess hvernig
Reykjavík hafi breyst með aukinni
fjölmenningu og „aðflutningi fólks
erlendis frá“. Hann mælir með þróun
í þá átt og telur að borgaryfirvöld
ættu að taka bet-
ur á móti útlend-
ingum.
Fjallað er um
gildi háskóla fyrir
borgir og þróun
þeirra og sagt:
„Eitt af því sem
ætti að vera
þokkalega innan
seilingar til efl-
ingar Reykjavíkur sem háskólaborg-
ar væri að Háskóli Íslands tæki upp á
því að stórauka framboð sitt á námi á
ensku, en eins og staðan er nú hefur
hann staðið sig afleitlega í því og hef-
ur alþjóðlegum námsmönnum
(skiptinemar meðtaldir) aðeins fjölg-
að um 64% það sem af er 21. öld-
inni …“. (s. 37.)
Í huga höfundar er Reykjavík „allt
borgarsvæði Reykjavíkur, eða í það
minnsta öll sveitarfélögin á höfuð-
borgarsvæðinu“. Magnús bendir á að
árið 1990 bjuggu 92% Íslendinga í
þéttbýli og segir hann það eitt hæsta
hlutfall í heiminum. Þar af hafi um
70% íbúanna búið á höfuð-
borgarsvæðinu eða innan við 100 km
frá miðbæ Reykjavíkur. (s. 26.)
Þessi skilgreining á höfuðborgar-
svæðinu kemur á óvart. Almennt er
litið þannig á að það nái til sjö
sveitarfélaga sem eru 1.007 ferkíló-
metrar, aðeins um 1% af flatarmáli
landsins. Íbúar á þessu litla svæði
eru um 220.000 eða um 64% þjóð-
arinnar.
Magnús lítur hins vegar á höfuð-
borgarsvæði sem nær rétt austur
fyrir Hvolsvöll, yfir Reykjanes, næst-
um að Snæfellsjökli og Stykkishólmi,
norður fyrir Bifröst og austur fyrir
Geysi.
Annars staðar segir: „Íslenska
þjóðin hefur hins vegar þá sérstöðu
miðað við flestar aðrar, sem hafa yfir
að ráða jafn víðfeðmu landi, að vera
nánast öll búsett í þéttbýli, eða um
94% Íslendinga, langflestir á höfuð-
borgarsvæðinu. Þetta setur Íslend-
inga yfir þær þjóðir þar sem hvað
hæst hlutfall íbúanna býr í borg.“
(s.32.)
Því miður eru engin kort birt í bók-
inni til að auðvelda lesandanum að
átta sig í sjónhendingu á svæðinu
sem er í raun til umræðu.
Vilji lesandinn kynnast greiningu á
grunnþáttum í stjórnkerfi eða fjár-
málum Reykjavíkurborgar verður
hann að leita annað en í þessa bók. Í
henni er skautað hratt yfir og staldr-
að við mál á yfirborðinu í anda þess
meirihluta sem stjórnar borginni um
þessar mundir. Reykjavík verður
tákn fyrir nýjan lífsstíl – til dæmis
bíllausan. Að vilja flugvöll í Vatns-
mýrinni er sagt gamaldags. Má
kenna viðhorf höfundar við 101 til
einföldunar.
Mikilvægt er fyrir okkur sem þjóð
að hér sé öflugt þéttbýli og borg sem
býður kosti borgarlífs og heldur aftur
af þeim sem annars mundu finna
kröftum sínum viðnám erlendis.
Mestu skiptir að sköpuð séu starfs-
skilyrði til að borgarlífið styrki sam-
keppnisstöðu þjóðarinnar. Þar þarf
meira til en bíllausa miðborg eða
borgarlínu, menningarnótt eða Gay
Pride. Höfundi finnst mestu skipta að
með almenningssamgöngum sé sigr-
ast á duttlungum veðurfarsins til „að
draga úr notkun einkabílsins sem
kalla má dýrustu úlpu í heimi“. Þetta
sé „eitt lykilviðfangsefni sveitar-
stjórna á höfuðborgarsvæðinu á sviði
skipulagsmála og vegferðar til auk-
innar sjálfbærni“. (s. 150.)
Höfundur segir að nú ríki klofn-
ingur um „Ísland sem fyrirbæri“ það
tengist „vissulega vexti Reykjavíkur
og borgarvæðingunni“. Þennan
klofning megi einnig sjá í Evrópu og
Ameríku þar sem átök séu milli
„frjálslyndra“ alþjóðasinnaðra borg-
aralegra sjónarmiða sem hér tengist
fjölmenningu, ESB-aðild og að ein-
hverju leyti vinstri pólitík og þjóðern-
issinnaðra, íhaldssamra sjónarmiða
gegn Evrópusamruna. Hér birtist
þessi „menningarátök“ í umræðu um
byggðamál, innflytjendamál, jafn-
réttismál, umhverfismál, hvalveiðar,
Evrópumál, samgöngumál og at-
vinnumál.
Hefði verið fróðlegt að sjá höfund
greina ástæður fyrir ólíkum við-
horfum til ofangreindra mála hjá
meirihlutanum í Reykjavík annars
vegar og hjá stjórnendum annarra
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
hins vegar hvort sem svæðið er skil-
greint á víðtækan hátt höfundar eða
á hefðbundinn hátt og litið til 1.007
ferkílómetra svæðisins.
Reykvíkingar sitja uppi með vanda
vegna óvildar meirihlutans í ráðhús-
inu í garð fjölskyldubílsins, vegna
umferðarbanns í mannauðri miðborg,
vegna glannaskapar í fjármálum og
sýndarhyggju í stjórnmálum. Hug-
mynd höfundar um að Reykjavík
undir vinstri stjórn vísi veginn um
framtíð þjóðar er ekki uppörvandi.
Morgunblaðið/Golli
Borgin „Ætlar hann að fræða lesandann um Reykjavík eða er Reykjavík samtímans framtíðin sem blasir við
íslenska þjóðríkinu?“ spyr rýnir og veltir fyrir sér hvað vaki fyrir höfundi Borgríkisins, Magnúsi Skjöld.
Stjórnmál
Borgríkið – Reykjavík sem framtíð
þjóðar bbmnn
Eftir Magnús Skjöld.
Útgefandi: Háskólinn á Bifröst, 2020.
Kilja, 176 bls.
BJÖRN BJARNASON
BÆKUR
Flókið borgríki
Í kjölfar mikillar óánægju í Bret-
landi með nýjan minnisvarða um
rithöfundinn og kvenréttindafröm-
uðinn Mary Wollstonecraft, þar
sem nakin kona stígur upp úr silfr-
uðum massa, hefur mikið fé verið
gefið í minnisvarða um rithöfund-
inn Virginiu Woolf sem verið er að
ljúka við.
Skúlptúristinn Laury Dizengre-
mel vinnur að styttunni af Woolf
sem verður steypt í brons og sýnir
hana sitja á bekk. Bekknum verður
komið fyrir í Richmond í London
þar sem Woolf bjó og starfaði í um
áratug. Talsmaður hóps sem í þrjú
ár hefur safnað fé fyrir gerð verks-
ins segir í samtali við The Guardian
að í kjölfar umræðunnar um verkið
helgað Wollstonecraft hafi söfnunin
tekið geysivel við sér.
Ljósmynd/Aurora Metro Arts and Media
Sköpunin Skúlptúristinn Laury Dizengre-
mel vinnur að styttunni af Virginiu Woolf.
Óánægjan nýtist
verki um Woolf
Margir virtustu
fornleifafræð-
ingar Breta hafa
harðlega mót-
mælt þeirri
ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar að
grafa rúmlega
þriggja km löng
hraðbrautar-
göng nærri
Stonehenge-
fornminjasvæðinu. Menningar-
stofnun Sameinuðu þjóðanna hefur
hvatt til varkárni og að þessi leið
verði ekki farin.
Samkvæmt The Art Newspaper
segja fræðimennirnir að fram-
kvæmdirnar ógni ekki bara Stone-
henge-steinhringnum heldur þús-
undum annarra fornminja sem sé
að finna þar á svæðinu.
Mótmæla göngum
við Stonehenge
Stonehenge og
þjóðvegur.