Morgunblaðið - 17.11.2020, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 17.11.2020, Qupperneq 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 2020 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALINánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is 71% SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. MYNDIN SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN Í EVRÓPU UNDANFARNAR VIKUR. HÖRKUSPENNANDI MYND BYGGÐI Á SANNRI SÖGU. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Ekki er auðvelt að átta sig tilfulls á hvað fyrir höfundiBorgríkisins, MagnúsiSkjöld, dósent við Háskól- ann á Bifröst, vakir. Ætlar hann að fræða lesandann um Reykjavík eða er Reykjavík samtímans framtíðin sem blasir við íslenska þjóðríkinu? Undir bókarlok segir höfundur: „Í þessari bók hefur verið farið býsna vítt yfir sviðið en sjaldnast mjög djúpt.“ (s.152.) Undir þetta skal tek- ið. Textinn hefði vel þolað öflugri rit- stjórn. Í inngangi segir Magnús sérstakan tilgang sinn að líta til þess hvernig Reykjavík hafi breyst með aukinni fjölmenningu og „aðflutningi fólks erlendis frá“. Hann mælir með þróun í þá átt og telur að borgaryfirvöld ættu að taka bet- ur á móti útlend- ingum. Fjallað er um gildi háskóla fyrir borgir og þróun þeirra og sagt: „Eitt af því sem ætti að vera þokkalega innan seilingar til efl- ingar Reykjavíkur sem háskólaborg- ar væri að Háskóli Íslands tæki upp á því að stórauka framboð sitt á námi á ensku, en eins og staðan er nú hefur hann staðið sig afleitlega í því og hef- ur alþjóðlegum námsmönnum (skiptinemar meðtaldir) aðeins fjölg- að um 64% það sem af er 21. öld- inni …“. (s. 37.) Í huga höfundar er Reykjavík „allt borgarsvæði Reykjavíkur, eða í það minnsta öll sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu“. Magnús bendir á að árið 1990 bjuggu 92% Íslendinga í þéttbýli og segir hann það eitt hæsta hlutfall í heiminum. Þar af hafi um 70% íbúanna búið á höfuð- borgarsvæðinu eða innan við 100 km frá miðbæ Reykjavíkur. (s. 26.) Þessi skilgreining á höfuðborgar- svæðinu kemur á óvart. Almennt er litið þannig á að það nái til sjö sveitarfélaga sem eru 1.007 ferkíló- metrar, aðeins um 1% af flatarmáli landsins. Íbúar á þessu litla svæði eru um 220.000 eða um 64% þjóð- arinnar. Magnús lítur hins vegar á höfuð- borgarsvæði sem nær rétt austur fyrir Hvolsvöll, yfir Reykjanes, næst- um að Snæfellsjökli og Stykkishólmi, norður fyrir Bifröst og austur fyrir Geysi. Annars staðar segir: „Íslenska þjóðin hefur hins vegar þá sérstöðu miðað við flestar aðrar, sem hafa yfir að ráða jafn víðfeðmu landi, að vera nánast öll búsett í þéttbýli, eða um 94% Íslendinga, langflestir á höfuð- borgarsvæðinu. Þetta setur Íslend- inga yfir þær þjóðir þar sem hvað hæst hlutfall íbúanna býr í borg.“ (s.32.) Því miður eru engin kort birt í bók- inni til að auðvelda lesandanum að átta sig í sjónhendingu á svæðinu sem er í raun til umræðu. Vilji lesandinn kynnast greiningu á grunnþáttum í stjórnkerfi eða fjár- málum Reykjavíkurborgar verður hann að leita annað en í þessa bók. Í henni er skautað hratt yfir og staldr- að við mál á yfirborðinu í anda þess meirihluta sem stjórnar borginni um þessar mundir. Reykjavík verður tákn fyrir nýjan lífsstíl – til dæmis bíllausan. Að vilja flugvöll í Vatns- mýrinni er sagt gamaldags. Má kenna viðhorf höfundar við 101 til einföldunar. Mikilvægt er fyrir okkur sem þjóð að hér sé öflugt þéttbýli og borg sem býður kosti borgarlífs og heldur aftur af þeim sem annars mundu finna kröftum sínum viðnám erlendis. Mestu skiptir að sköpuð séu starfs- skilyrði til að borgarlífið styrki sam- keppnisstöðu þjóðarinnar. Þar þarf meira til en bíllausa miðborg eða borgarlínu, menningarnótt eða Gay Pride. Höfundi finnst mestu skipta að með almenningssamgöngum sé sigr- ast á duttlungum veðurfarsins til „að draga úr notkun einkabílsins sem kalla má dýrustu úlpu í heimi“. Þetta sé „eitt lykilviðfangsefni sveitar- stjórna á höfuðborgarsvæðinu á sviði skipulagsmála og vegferðar til auk- innar sjálfbærni“. (s. 150.) Höfundur segir að nú ríki klofn- ingur um „Ísland sem fyrirbæri“ það tengist „vissulega vexti Reykjavíkur og borgarvæðingunni“. Þennan klofning megi einnig sjá í Evrópu og Ameríku þar sem átök séu milli „frjálslyndra“ alþjóðasinnaðra borg- aralegra sjónarmiða sem hér tengist fjölmenningu, ESB-aðild og að ein- hverju leyti vinstri pólitík og þjóðern- issinnaðra, íhaldssamra sjónarmiða gegn Evrópusamruna. Hér birtist þessi „menningarátök“ í umræðu um byggðamál, innflytjendamál, jafn- réttismál, umhverfismál, hvalveiðar, Evrópumál, samgöngumál og at- vinnumál. Hefði verið fróðlegt að sjá höfund greina ástæður fyrir ólíkum við- horfum til ofangreindra mála hjá meirihlutanum í Reykjavík annars vegar og hjá stjórnendum annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hins vegar hvort sem svæðið er skil- greint á víðtækan hátt höfundar eða á hefðbundinn hátt og litið til 1.007 ferkílómetra svæðisins. Reykvíkingar sitja uppi með vanda vegna óvildar meirihlutans í ráðhús- inu í garð fjölskyldubílsins, vegna umferðarbanns í mannauðri miðborg, vegna glannaskapar í fjármálum og sýndarhyggju í stjórnmálum. Hug- mynd höfundar um að Reykjavík undir vinstri stjórn vísi veginn um framtíð þjóðar er ekki uppörvandi. Morgunblaðið/Golli Borgin „Ætlar hann að fræða lesandann um Reykjavík eða er Reykjavík samtímans framtíðin sem blasir við íslenska þjóðríkinu?“ spyr rýnir og veltir fyrir sér hvað vaki fyrir höfundi Borgríkisins, Magnúsi Skjöld. Stjórnmál Borgríkið – Reykjavík sem framtíð þjóðar bbmnn Eftir Magnús Skjöld. Útgefandi: Háskólinn á Bifröst, 2020. Kilja, 176 bls. BJÖRN BJARNASON BÆKUR Flókið borgríki Í kjölfar mikillar óánægju í Bret- landi með nýjan minnisvarða um rithöfundinn og kvenréttindafröm- uðinn Mary Wollstonecraft, þar sem nakin kona stígur upp úr silfr- uðum massa, hefur mikið fé verið gefið í minnisvarða um rithöfund- inn Virginiu Woolf sem verið er að ljúka við. Skúlptúristinn Laury Dizengre- mel vinnur að styttunni af Woolf sem verður steypt í brons og sýnir hana sitja á bekk. Bekknum verður komið fyrir í Richmond í London þar sem Woolf bjó og starfaði í um áratug. Talsmaður hóps sem í þrjú ár hefur safnað fé fyrir gerð verks- ins segir í samtali við The Guardian að í kjölfar umræðunnar um verkið helgað Wollstonecraft hafi söfnunin tekið geysivel við sér. Ljósmynd/Aurora Metro Arts and Media Sköpunin Skúlptúristinn Laury Dizengre- mel vinnur að styttunni af Virginiu Woolf. Óánægjan nýtist verki um Woolf Margir virtustu fornleifafræð- ingar Breta hafa harðlega mót- mælt þeirri ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að grafa rúmlega þriggja km löng hraðbrautar- göng nærri Stonehenge- fornminjasvæðinu. Menningar- stofnun Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt til varkárni og að þessi leið verði ekki farin. Samkvæmt The Art Newspaper segja fræðimennirnir að fram- kvæmdirnar ógni ekki bara Stone- henge-steinhringnum heldur þús- undum annarra fornminja sem sé að finna þar á svæðinu. Mótmæla göngum við Stonehenge Stonehenge og þjóðvegur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.