Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.11.2020, Side 2
Hvað er hér á döfinni um helgina?
Jólasýning mín og Margrétar Jónsdóttur keramíklistakonu frá Akureyri,
sem er frænka mín og vinkona. Við erum vanar að hafa sýningu á vinnustofu
minni fyrstu aðventuhelgina. Hún sýnir keramík og ég sýni það sem er á
vinnustofunni hverju sinni.
Er þetta sölusýning?
Já, verkin eru til sölu. Hjá mér eru kannski ekki öll til sölu, en lang-
flest. Ég sel líka teikningar og smærri verk sem eru hér innrömmuð.
Ég er með líka með eitt innrammað portrett sem ég lét prenta sér-
staklega fyrir sýninguna í takmörkuðu upplagi.
Verður jólastemning í gangi?
Já, hluti úr kirkjukór Breiðholts ætlar að koma og syngja nokkur jólalög.
Magga er líka mikill stílisti og setur upp sína hluti ásamt kertaljósum
þannig að það myndast mikil stemning. En við erum ekki að hugsa þetta
endilega eingöngu sem jólasölu eða til að kaupa jólagjafir. Margir koma
líka til að sjá hvað við erum að gera; fá að koma inn í hlýjuna þegar það
er kalt úti.
Er kvenlíkaminn það viðfangsefni sem þú fæst mest
við?
Já, en ekki bara hann. Ég teikna mikið eftir lifandi módelum, hvort
sem það er karl eða kona. Það er ákveðin innri ljóðræn stemning sem
ég er að leita eftir; hvað það þýðir að vera manneskja. Svo blandast inn í að
ég get verið pólítísk og farið inn á tabú svæði og það að vera kona. Ég vinn
líka með texta og sauma út eftir skissum eftir sjálfa mig. Þar sýni ég línuna
og það í handverki, sem mér finnst spennandi. Svo hef ég verið að gera gull-
myndir þar sem ég vinn með listasöguna og helgimyndir en myndirnar eru
úr samtímanum og mynda þá togstreitu við hefðina.
Hvernig hefur þér liðið á þessum Covid-tímum?
Ég hugsa að starf listamannsins heiti bara sóttkví. Þetta er ekki mikil breyt-
ing fyrir mig. En vissulega er leiðinlegt að hitta ekki oft fólk. En ég hef nýtt
tímann til að hreinsa til, ekki bara í geymslum heldur líka hjá mér sem
listamanni.
Morgunblaðið/Ásdís
KRISTÍN GUNNLAUGSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Ljóðræn stemning
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.11. 2020
Hér á ritstjórninni starfaði einu sinni kona sem hafði gríðarlegar mæturog áhuga á bresku konungsfjölskyldunni. Hún flaggaði á afmælidrottningar og henti í ógurlegar hnallþórur þegar hátigið fólk þar um
slóðir gekk í það heilaga eða því fæddust erfingjar og mætti í síðkjól í vinnuna.
Enda þótt ég bæri djúpa virðingu fyrir þessari sérvisku – bý sjálfur að ýmsum
undarlegum siðum – tókst mér aldrei að hrífast með að neinu gagni og læra það
sem konan prédikaði; að við ættum að umgangast þetta góða fólk sem okkar
eigið. Gleðjast og þjást með því. Ætli ég sé ekki bara of mikill kotbóndi og al-
þýðumaður í eðli mínu til að bera skynbragð á svona bláblóðunga.
Í þessu ljósi þarf ekki að koma ykkur á óvart að sjónvarpsmyndaflokkurinn
Krúnan á flixinu hafi ekki sett líf mitt á hliðina. Ég hef varist af fimi þrátt fyrir
að hafa verið hvattur til að horfa á þá, innan heimilis sem utan. Alltaf tekist að
finna eitthvað annað þegar málið ber á
góma. Þar til nú. Á dögunum lét ég til-
leiðast og skrúfaði frá nýjustu seríunni,
sem ég held að sé númer fjögur, eins og
Patrick Vieira forðum. Ég meina, hún
hefur ratað í blöð og fréttatíma sjón-
varps. Maður verður að vera upplýstur
og máltækur í umræðunni, annars á
maður á hættu að enda úti á jaðri sam-
félagsins.
Synd væri að segja að Krúnan hafi
sogað mig til sín. Ég hálfdottaði gegnum
fyrstu þættina. Hef þó lúmskt gaman af
drottningunni sjálfri, hún er skemmtileg
týpa, ef marka má þættina (sem er víst ekki að öllu leyti). Olivia Colman leikur
hana af smekkvísi. Gillian Anderson hefur á hinn bóginn fengið rangt memó.
Hún leikur Margréti Thatcher svo sem ekkert illa en af einhverjum ástæðum
hefur hún Járnfrúna níræða. Thatcher var 53 ára þegar hún tók við embætti
forsætisráðherra Breta árið 1979.
Prinsarnir, Karl, Andrés dónakall og Játvarður, eru ekki spennandi mann-
eskjur og það hellist alltaf yfir mann einhver sorg þegar maður sér Díönu
heitna með papparassastóðið á hælunum. Filippus drottningarmaður er helst
til snobbaður fyrir minn smekk en Denis Thatcher er mun alþýðlegri. Gleymi
því aldrei þegar John Stokes leiðsögumaður í Lundúnum upplýsti okkur fjöl-
skylduna um það fyrir tuttugu árum að girðingin við Downingstræti 10 hefði
ekki verið sett upp til að valda forsætisráðherrann, heldur til að koma í veg fyr-
ir að Denis legðist í flakk á nóttunni. Ógleymanlegur maður, Stokes.
Ég glaðvaknaði óvænt í síðasta þætti en hann var helgaður ofurhuganum
Michael Fagan sem braust ekki bara einu sinni, heldur tvisvar inn í Buck-
ingham-höll árið 1982 og tyllti sér í seinna skiptið á rúmstokkinn hjá drottn-
ingu. Ef marka má þáttinn brá henni í brún í fyrstu en eftir að hún las rétt í að-
stæður fór alls ekki illa á með þeim gestinum. Galið mál, gjörsamlega galið. En
sannkallað drottningarbragð hjá gömlu. Svo við flixum aðeins meira.
Drottningarbragð
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Maður verður aðvera upplýstur ogmáltækur í umræðunni,annars á maður á
hættu að enda úti á
jaðri samfélagsins.
Gerður Helgadóttir
Kanínubangsa.
SPURNING
DAGSINS
Hvað viltu
í jólagjöf?
Baldur Sveinbjörnsson
Playstation 5. Það er aðal.
Iðunn Helgadóttir
Mér er eiginlega bara alveg sama.
Georg Kazoobadevos
Playstation 5.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Árni Sæberg
Árleg jólasýning listamannanna Kristínar Gunnlaugsdóttur og Margrétar
Jónsdóttur er núna um helgina, laugardag og sunnudag, frá kl. 13-18 á
vinnustofu Kristínar á Unnarbraut 20, Seltjarnarnesi. Grímuskylda.
Lifandi
lausnir
Nýir tímar í
viðburðahaldi
harpa.is/lifandilausnir