Morgunblaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.12.2020, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2020 5 kg heill kalkúnn 1 stk. laukur 1 stk. grænt epli 1 stk. sítróna timjan rósmarín salvía  Innvolsið úr kalkúninum er tekið og sett til hliðar fyrir sósuna, lifrinni er hent.  Kalkúnninn er þurrkaður og skinnið losað frá bringunum, en það er gert með því að smeygja hendinni varlega undir skinnið og færa sig smám saman aftar á bringuna.  Þar á milli er síðan smurt um það bil 1⁄3 af kryddsmjörinu.  Þá er kalkúnninn saltaður og pipraður að innan og utan og allur fuglinn penslaður með restinni af kryddsmjörinu.  Laukurinn, eplið og sítrónan skorið gróflega og sett inn í kal- kúninn ásamt kryddjurtunum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Aðalréttir Heill kalkúnn með döðlu- og trönuberjafyllingu, heimagerðu rauðkáli, sykur- púðasætkartöflumús og svívirðilega góðri kalkúnasoðsósu Involsið úr kalkúninum (háls, hjarta og fóarn) 3 stk. hvítlauksgeirar 2 stk. laukur 2 stönglar sellerí 3-4 gulrætur rósmarín timjan salt og pipar kjúklingakraftur/kalkúnakraftur 750 ml rjómi 2-3 msk. Dijon-sinnep 1 msk. trönuberjasulta maizena-mjöl  Innmaturinn steiktur í frekar stórum potti með olíu, þegar hann er orðinn vel brúnaður er grænmet- inu bætt út á ásamt salti og pipar.  Steikt þar til grænmetið er farið að mýkjast vel.  Þá er um það bil 2 lítrum af vatni hellt út á og leyft að sjóða rólega í um það bil klukkutíma.  Þá er soðið sigtað í annan pott, fitan og grugg veitt ofan af og látið sjóða niður um sirka helming.  Þá er rjómanum og sinnepinu bætt út í og þegar það hefur náð suðu er sósunni annaðhvort leyft að sjóða rólega niður í klukkutíma eða smökkuð til og athugað hvort það þurfi aukakraft eða salt og pipar.  Í lokin er sultunni bætt úr í sós- una og hún þykkt með maizena- mjöli. Kalkúnasósa 500 g smjör 6 stk. hvítlauksgeirar 4 greinar rósmarín 4 stórar greinar timjan 4 stórar greinar salvía pipar  Smjörið brætt í potti, kryddin pilluð gróflega af greinunum, hvít- laukur flysjaður og allt sett út í smjörið, leyft að krauma í 2-3 mín- útur.  Þá er kryddsmjörið sett í blandara. Kælt lítillega áður en smurt er á fuglinn. Gott er eða geyma kalkúninn með kryddsmjörinu í kæli yfir nótt, en alls ekki nauðsynlegt.  Þá er kalkúnninn settur í miðjan ofninn á 150°C í um það bil 4 klukkutíma. Gott er að ausa smjörinu og soðinu sem kemur af honum yfir fuglinn á svona 30 mínútna fresti.  Þegar kalkúnninn er klár þarf hann að fá að standa í að minnsta kosti 20 mínútur áður en skorið er í hann. Kryddsmjörið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.